Dagblaðið - 16.12.1980, Side 28
LUKKUDAGAR:
16. DESEMBER 16325
Kodak pocket A1 myndavél.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.
frjálst, úháð daghlað
ÞRIÐJIJDAGUR 16. DES. 1980.
Næturheimsókn
fKökuhúsið
Kökuhúsið og tvö önnur fyrirtæki í
sama húsi við Austurstræti fengu heim-
sókn óboðinna gesta í nótt. Lögreglu-
menn sem gengu frá í húsinu eftir að
uppvíst varð um innbrotið töldu að
ekki hefði verið miklu stolið og
skemmdir voru heldur ekki miklar.
Rannsóknarlögreglumenn hófu rann-
sókn sína á staðnum í morgun. -A.St.
Deilan um Vörumarkaðinn á Seltjamamesi:
„ísbjamarhúsið ekki
verra en Hagkaupshúsið’’
—segir Þóroddur Skaptason, eigandi Nesvals
„Mér finnst Magnús taka stórt upp
í sig að fullyrða að skemman sé
gömul skreiðarskemma. Þarna hefur
verið vörugeymsla og að minnsta
kosti þrjú fyrirtæki hafa geymt vöruri
þarna. Þetta hús er alveg sambærilegt
við Hagkaupshúsið, þótt þetta sé
minna,” sagði Þóroddur Skaptason,
eigandi Nesvals, er hann var inntur
eftir ummælum Magnúsar Erlends-
sonar forseta bæjarstjórnar á Sel-
tjarnarnesi í blaðinu í gær. Magnús
sagði þar m.a. að verzlunarrekstur
yrði ekki leyfður í gömlum skreiðar-
skemmum.
,,Það er góð aðstaða í þessu húsi
og ég hef fengið Þórhall Halldórsson
hjá Heilbrigðiseftirlitinu til að líta á
það. Hann benti á nokkur atriði sem
ég mun lagfæra. Þá benti hann einnig
á að ekki væri hægt að hafa
verzlunarrekstur í sama húsi og fisk-
vinnsla er í, en það verður ekki um að
ræða þarna. Asíufélagið hefur
keypt hinn hluta hússins og ætlar sér
að hafa vörugeymslu þar.
Ég hef ennþá ekki sótt um leyfi
■fyrir vörumarkað i þessu húsi enda
fæ ég húsið ekki afhent fyrr en í júní
á næsta ári. Lögfræðingur minn er
bjartsýnn á að ég vinni þetta mál en
ég tel ekki ráðlegt að ræða þetta
frekar opinberlega á meðan málið er
á þessu stigi,” sagði Þóroddur
Skaptason.
-ELA.
Jón L teflir
áEMpilta
— sem hefst í
Hollandi
áfimmtudaginn
Jón L. Árnason, skákmaðurinn
snjalli, hélt í morgun til Groningen í
Hollandi. Hann tekur þar þátt í
Evrópumeistaramóti pilta, aldurstak-
mark 20 ára eða yngri. Mótið hefst 18.
desember og stendur til 2. janúar 1981.
Skráðir keppendur eru 32 og verður
teflt samkvæmt Monrad-kerfinu.
Þekktustu keppendur auk Jóns á
mótinu eru Karolyi, Ungverjalandi,
Motwani, Skotlandi, heimsmeistari
sveina, Sovétmennirnir Andrianov og
Pigusov. Þá teflir þar K. Rasmussen
frá Danmörku og Akesson frá Svíþjóð.
-H.Sím.
Bensínið í
595 krónur
ámorgun?
Gervasoni
heldurjól
á íslandi
- þingsályktunartillaga
til stuðnings kröfu um
landvist Frakkans?
Flóttamaöurinn franski, Patrick
Gervasoni, heldur að öllum líkindum
jól á íslandi að þessu sinni eftir að
dómsmálaráðherrann ákvaðað fresta
framkvæmd brottvísunar hans af
landinu um ótakmarkaðan tima.
Embættismenn í ráðuneytinu segja
að Frakkinn fari héðan „innan tíð-
ar”.
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður
Gervasonis bað dómsmálaráðherra í
gær að framlengja dvalarleyfið um
hálfan mánuð, en samkvæmt fyrri
ákvörðun ráðherrans átti Frakkinn
að fara í gær.
Ýmsar hræringar eru ,,á bak viö
tjöldin” i Gervasoni málinu, meðal
annars hafa alþingismenn sem
hlynntir eru beiðni flóttamannsins
um landvist beitt sér fyrir því að
málið verði skoðað enn frekar.
Meðal annars er áformað að þing-
menn úr ölium flokkum leggi frani
þingsályktunartillögu til stuðnings
beiðni Gervasoni um landvist. - ARH
%
Nýr sveitar-
stjóri
íGarðinum
— Stefán Ómar Jónsson
Tuttugu og fimm ára gamall Mos-
fellingur, Stefán Ómar Jónsson,
hefur verið ráðinn sveitarstjóri í
Garðinum með öllum greiddum at-
kvæðum.
Stefán er fæddur 4. marz 1955 og
mun vera einn yngsti sveitarstjóri á
landinu. Hann lauk prófi frá Sam-
vinnuskólanum vorið 1976 og hefur
sðan fengizt við verzlunarstörf, aðal-
lega í Mosfellssveit, þar sem hann er
fæddur og uppalinn. Stefán er
kvæntur Ástu Sverrisdóttur og eiga
þau tvö börn. - IHH
Á ríkisstjórnarfundi í dag liggur fyrir
heimild Verðlagsráðs til hækkunar
bensínsverðs i 595 kr. I dag er verðið
515 kr. og er því hér um að ræða 80 kr.
hækkun á lítranum.
Stærsti hluti þessarar hækkunar mun
stafa af gengisbreytingum en einnig
ætlar ríkisstjórnin nú að nýta til fulls
heimild sína til hækkunar bensínsgjalds
til samræmis við byggingarvísitölu.
Síðast þegar bensínið var hækkað var
sú heimild ekki fullnýtt. -KMU.
Krakkarnir á dagheimilinu við Lambastaðabraut á Seltjarnarnesi eru komnir íjólaskap, — eins op
merkja má af því, að i gœrmorgun skelltu þau sér í jólabaksturinn og bökuðu piparkökur af miklum
krafti — með dálítilli aðstoð fóstranna. DB-mynd: Einar Ólason.
Bflstjóraverkfalli, sem hefjast átti á miðnætti, aflýst:
Samið við bfí-
stjóra og kokka
mjögfanda
annarra
samninga,
segirríkis-
sáttasemjari
Samkomulag tókst í morgun í deilu
kaupfélags- og mjólkurbílstjóra á
Suðurlandi og í Borgarnesi við at-
vinnurekendur. Er þar með aflýst
verkfalli bílstjóranna sem átti að
hefjast á miðnætti. Sáttafundur hófst
í gærmorgun og honum lauk í
morgun, sem fyrr segir, þegar
samningar voru undirritaðir á níunda
tímanum.
Þá tókst ennfremur samkomulag í
nótt í deilu matreiðslumanna á far-
skipum og atvinnurekenda þeirra.
Fundur þeirra hófst sömuleiðis í gær.
Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara eru samningarnir
við bílstjóra og kokka mjög í anda
þeirra samninga sem undanfarið hafa
verið gerðir á vinnumarkaðnum.
Fundi háseta á farskipum og
viðsemjenda þeirra lauk hins vegar
án samkomulags í nótt og verður sezt
á ný að samningaborði síðdegis.
Búizt er við að sjái fyrir endann á
þeirri deilu innan tíðar.
Bensínafgreiðslumenn og atvinnu-
rekendur voru á fundi í gær hjá ríkis-
sáttasemjara. Áframhald verður á
viðræðum þeirra i dag.
Óljóst er um framhald á viðræðum
sjómannasamtakanna og útvegs-
manna um bátakjarasamningana.
Fundum sem fyrirhugaðir voru um
síðustu helgi var frestað að ósk út-
vegsmanna sem töldu sig fyrst þurfa
að hafa tal af fulltrúum rikisstjórnar-
innar.
Næsti fundur um samninga verka-
fólks í ríkipverksmiðjum verður á
föstudag. -ARH.