Dagblaðið - 30.12.1980, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
Raddir
lesenda
Fri heimsmeistarakeppninni 1978. Það er sovézka skautaparið Natalia Lini-
schuk og Gennadij Karponosov sem sýnir þarna listir sinar.
EKKIÍSDANS!
Raggi hringdi:
Fyrsti klukkutíminn og rúmlega
það í íþróttaþættinum sl. laugardag
var hryllilegur. ísdans! Ár eftir ár er
okkur boðið upp á ísdans i íþrótta-
þættinum. Bjarni! Hve léngi eigum
við að þola þetta? Er sjónvarpið
virkilega svo blankt að það þurfi að
sýna ísdans í eina og hálfa
klukkustund?
Nei. Mætti ég frekar biðja um að
eitthvað gott frá síðasta ári yrði
endursýnt, t.d. það bezta frá
ólympíuleikunum. En alls ekki
ísdans, takk.
VERÐUR SAURBÆJ ARKIRKJA
Á KJ ALARNESIAF LÖGD?
Látum ekki flytja okkur eins og sauðkindur, segir einn
Kjalnesingur
Hulda Pétursdóttlr, Útkoti Kjalar-
nesi, skrifar:
Verður Saurbæjarkirkja á Kjala-
nesi af lögð? Þetta er spurning sem
við minnihlutinn i sókninni spyrjum
eftir að sóknarnefndin með prestinn í
broddi fylkingar boðaði til fundar í
Saurbæ 16. nóv. 1980. Á þessum
fundi var rætt um lélega kirkjusókn
Kjalnesinga (þó að þaö væri ekki
bókað) og jafnframt samþykkt að
efna til undirskrifta eða atkvæða-
greiðslu um framtíð kirkjunnar.
Svo að ég víki nú aðeins að Saur-
bæjarkirkju þá er kirkjubygging þar
svo til eins gömul og kristnitakan á
íslandi og þar hafa setið og þjónað
fjölmargir og merkir andans menn á
umliðnum öldum. Saurbæjarkirkja
hefur því ýmsar sögulegar minjar og
muni að geyma allt frá árunum
1696—1697. Sú kirkja sem stendur
núna í Saurbæ var vígð á jóladag árið
1904 og er því orðin 76 ára og ætti því
að njóta hefðar sem gömul bygging
þó að hún haft ekki á herðum sér
margra alda dygga þjónustu við
kristindóminn i landinu.
Það skýtur því skökku við á okkar
kirkjuöld að vilja leggja niður kirkju,
þar sem fyrirsjáanleg er fólksfjölgun
á næstu árum. Á ég þar við byggðar-
kjarnann sem er að rísa á Grundar-
holti á Kjalarnesi og mun í náinni
framtíð hafa í för með sér aukna
byggð á milli Blikdalsár og Miðdals-
ár.
Á fyrri tímum hefur kirkjusóknum
oft verið skipt niður á milli áa. Þó
svo að okkur finnist þessar ár harla
litlar I dag þá hafa þær verið mikill
farartálmi og hafa meðal annars
ráðið þvi að Kjalnesingar eiga sókn í
þrjár kirkjur, það er að segja
Saurbæ, Brautarholt og Lágafells-
kirkju í Mosfellssveit en Kjósverjar
að Reynivöllum og í Saurbæ.
Til forna áttu allir bæir norðan
Blikdalsár á Kjalarnesi kirkjusókn
að Saurbæ. En úr Kjósinni voru það
bæirnir frá Laxá 12 að tölu.
Kjósverjar hafa því alltaf verið
fleiri í Saurbæjarsókn og nú þegar
þeir óska eftir því að sitja við sama
borð og sveitungar þeirra og sækja
Reynivallakirkju þá segir það sig
sjálftaðviðmunumbíða lægrihlutí
atkvæðagreiðslu og okkur mun þá
verða úthlutað sæti í Brautarholts-
kirkju.
Það er náttúrlega ekkert nema gott
um þá kirkju að segja. En ég fullyrði
það þó hér fyrir hönd flestra þeirra
Kjalnesinga sem eiga sókn að Saurbæ
að við munum ekki láta flytja okkur
eins og sauðkindur.
Heldur standa á rétti okkar.
Ég beini orðum mínum til biskups
og annarra ráðamanna þjóðkirkj-
unnar.
Borgarbúar fái olíustyrk
fyrir að aka til vinnu
Nú I svartasta skammdeginu ættu endurskinsmerki ekki aó skaóa.
Þyiftuaðupp-
lýsa sjálfa sig
—margir illa séðir í umferðinni
Vegfarandi hringdi:
Nú í svartasta skammdeginu er
grátlegt að sjá hve margir gangandi
vegfarendur eru ekki með endur-
skinsmerki. Staðreyndin er sú að allt
of margir hafa ekkert gert til þess að
„upplýsa” sjálfa sig og eru þeir því
illa séðir í umferðinni.
Menn veröa að muna það að hér er
ekki um neitt einkamál þess gangandi
að ræða því yfirleitt er það öku-
maðurinn sem fær á sig alla sökina
þegar hann hefur orðið fyrir því
óhappi að rekast á éinhverja mann-
veru í myrkrinu.
Hér með er ég ekki að boða það að
fólk fari að klína endurskinsmerkjum
út um allar flíkur en einn smápunktur
bæði að framan og að aftan gæti
bjargað miklu. Það þarf að sjálf-
sögðu ekki að minna foreldra á að
láta börn sín ekki fara út fyrir hússins
dyr án þess að þau séu með endur-
skinsmerki.
5888—4723 skrifar:
Eru hinar stöðugu hækkanir á
bensíni hugsaöar sem einhver sér-
sköttun á íbúa Reykjavíkur og ná-
grennis? Nú er bensinið að hækka úr
515 krónum í 580 eða jafnvel 595
krónur.
Menn sem eru búsettir í Breiðholti
eða Hafnarftrði og eiga bíl nota 30
40 lítra á viku tíl að komast í og úr
vinnu, vinni þeir í miðborginni.
Vinnustaður bóndans er við
húsdyrnar en bóndinn fær olíustyrk
en íbúar Reykjavíkur og nágrennis
ekki.
Er ekki kominn tími til að það
ákvæði stjórnarskrárinnar að allir
séu jafnir fyrir lögunum sé strokað
út? Það er markleysa ein eins og sést
á dæminu sem ég tók.
DB-mynd: Ragnar Th.
KRISTJÁN MAR
UNNARSSON
Bíóið endursýni
Genesis-myndina
vegna nýrra hl jómf lutningstækja
9921—8576 skrifar:
Nú nýverið hefur hið ágæta
Laugarásbió tekið ný hljómflutnings-
tæki í notkun. Þess vegna datt mér í
hug hvort bíóið gæti ekki endursýnt
Genesis á hljómleikum
myndina með hinni stórmerku hljóm-
sveit Genesis. Mynd þessi var sýnd
fyrir 2—3 árum fyrir fullu húsi að
mig minnir, en þvi miður voru hljóm-
gæðin í lakara lagi. Laugarásbíó
myndi gera aðdáendum stórgreiða
með því að endursýna hana, þó ekki
væri i nema einn dag.