Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 4
4_ DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
....... ..............................................*
Dagblaöið hefurleitað tilnokkurra valinkunnra karia ogkvenna oglagt fyrirþau spuminguna:
Hvað erþér minnisstæöast
frá árinu 1980 — og hvað er
þér efst í huga á nýju ári?
s ...'__________________________ ^
Svanhildur Halldórsdóttin
Vona að það takist að sigla
Fleyinu okkar heldur betur
Þegar við hringdum í Svanhildi
Halldórsdóltur sem var kosningastjóri
MagnMJönsdóttin
Hnattferd-
in gleym-
ist seint
,,Það sem mér er minnisstæðast frá
árinu sem er að lfða er að sjálfsögðu
hin nýafstaðna hnattferð okkar. Það er
ferð sem seint á eftir að gleymast. Á
nýju ári óska ég aðeins eftir góðu
veðri, jafngóðu sumri og síðast, jafn-
vel betra,” sagði Magnea Jónsdóttir,
hnattfari DB.
-ELA.-
Vigdísar í sumar en starfar nít hjá
BSRB vitnaði hún í Sigfús Daðason,
sem í einu ljóða sinna biður menn að
fara varlega með orð, en sagði síðan að
á liðnu ári hefði sér þótt úrslit forseta-
kosninganna merkilegust.
„En nýja árið er eins og blessuð
börnin sem fæðast, ein stór spurning,
sem maður bindur alltaf miklar vonir
við. Ég óska okkur hér á Fróni alls
góðs af því og ég er bjartsýn að eðlisfari
og vona að þrátt fyrir alla erfiðleika
takist að sigla fleyinu okkar heldur
betur á næsta ári en því síðasta. ”
-IHH.
Valgerður Gunnarsdóttir:
Hollywood-
keppnin er
mér minnis-
stæðust
„Hollywoodkeppnin er mér að
vonum mjög minnisstæð og kemur
fyrst upp í hugann. Á nýja árinu óska
ég eftir að veðrið verði gott og að árið
verði i heild jafngott og síöasta ár,”
sagði Valgerður Gunnarsdóttir, ungfrú
Hollywood 1980.
-ELA.
Vilhelm G. Kristinsson:
Bankaverkfallið
efst f mínum huga
„Mér er auðvitað efst í huga nýaf-
staðið verkfall bankamanna á árinu.
Það var háð með góðum málstað og
tókst vel. Á nýja árinu er mér efst í
huga annað eins sumar og var sl.
sumar. Það kæmi sér vel fyrir garð-
yrkjumenn,” sagði Vilhelm G.
Kristinsson, framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenzkra bankamanna.
-ELA.
Jóhannes Hilmisson:
KJÖR VIGDÍSAR
„Það sem mér er minnisstæðast á
þessu ári er Vigdís Finnbogadóttir og
kjör hennar, en það sem mér er efst í
huga á nýju ári — ja, nú veit ég ekki
hverju ég á að svara. Ætli ég segi ekki
bara að ég voni að þetta verði gott ár,”
sagði Jóhannes Hilmisson sigurvegari í
Hæfileikakeppni DB og hljómsveitar
Birgis Gunnlaugssonar.
-ELA.
Krístjana Milla
Thorsteinsson:
Forseta-
kjörið
minnis-
stæðast
, „Forsetakjörið er mér minnisstæð-
ast frá árinu sem er að líða. Á nýja
árinu er mér efst i huga hvort takist að
draga úr dýrtíðinni og hvort ástandið
lagist í fjármálum þjóðarinnar. Þá er
mér lika ofarlega í huga atvinnuöryggi
landsmanna,” sagði Kristjana Milla
Thorsteinsson viðskiptafræðingur.
-ELA.
BenediktGröndal:
Efnahagsmálin
yfir allt hafin
„Mér er persónulega minnisstæðust
stjórnarmyndunin í upphafi ársins sem
er að lfða, bæði vegna þess að ég hafði
forstöðu fyrir millibilsríkisstjórn og
eins að stjórnarmyndunin hafði gengið
erfiðlega. Þetta var sögulegur atburður
i íslenzkri pólitík og þjóðmálum,”
sagði Benedikt Gröndal alþingismaður.
„Á nýja árinu eru efnahagsmái yfir
allt annað hafin. Hvort okkur tekst að
ná verðbólgunni niður í 30—40% í stað
70—80% eins og hún hefur verið. Eins
hvort nýja krónan verður okkur ein-
hvers virði eða heldur áfram að hrynja
að verðgildi. Takist ekki að leysa þetta
mál, þá ber ég ugg í brjósti um áfram-
haldiö.”
-ELA.