Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 5

Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 5 Bubbi Morthens: Gifting mín minnisstæðust „Gifting mín á árinu 1980 er mér| minnisstæðust. Hins vegar lízt mér ekkert á árið 1981, það er af og frá. Allur þessi ófriður í heiminum veldur því,” sagði rokksöngvarinn Bubbi Morthens. -ELA. Pétur Thorsteinsson: Að óf riðarástand fheiminum breiðist ekki út ,,Á innlendum vettvangi er mér minnisstæðust forsetakosningin og aðdragandi hennar,”':sagði PéturThor- steinsson sendiherra, ,,en erlendis frá sjö vikna ferðalag sem ég er nýkominn úr um Asíulönd, allt austur til Kína og Japan. Ég varð fyrir miklum áhrifum af því hörmungarástandi sem þar ríkir víða.” Pétur fór nokkrum orðum um styrjöldina milli íran og Irak og sömu- leiðis stríðið í Afganistan og hið sorg- lega ástand í Kambódíu, en það land er eins og flakandi sár. ,,Mér er margt í huga um áramótin en þó held ég að sterkust sé óskin um að það ófriðarástand sem nú ríkir víða í heiminum breiðist ekki út.” -IHH. Unnur Steinsson: GET EKKIGERT UPPÁMILU „Það er svo margt sem er mér minnisstætt frá árinu 1980. Ég get ekki gert upp á milli. Ég vona bara að næsta ár verði eins viðburðaríkt og ánægju- legt og árið 1980,” sagði Unnur Steins- son, fulltrúi ungu kynslóðarinnar. -ELA. Tilkomumik- il eldgos — segir Sigurður Þdrar- msson jarðfræðingur „Fyrir utan persónulega hagi eru mér minnisstæðust eldgosin, sem urðu á árinu,” sagði Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur. „Tvö síðustu gosin á Kröflusvæð- inu, 10. júll og 18. nóvember, voru ákaflega tilkomumikil og raunar Heklugosið líka á fyrsta degi gossins. Þetta er nú talsvert á einu ári. í beinu framhaldi af þesssu er manni ofarlega 1 huga hvað skeður næst þarna fyrir norðan. Það verður að öllum líkindum með fyrstu stóratburðum næsta árs, þó að ég ætli ekki að fara að spá neinu,” sagði Sigurður Þórarins- son. -GAJ. Nýja krónan kemur fyrst upp f hugann ,,Ætli kvikmyndin Óðal feðranna sé mér ekki minnisstæðust á árinu 1980. Á nýja árinu er mér efst 1 huga nýja krónan. Hún kemur svona fyrst upp í hugann,” sagði Sveinn Eiðsson sem vakti mikla athygli fyrir leik sinn i myndinni Óðali feðranna. •ELA. Sendum landsmönnum bestu óskir um komandi ár meö þökk fyrir þaö lióna t 2 Alla leiö með EIMSKIP SÍMI 27100

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.