Dagblaðið - 30.12.1980, Qupperneq 7

Dagblaðið - 30.12.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 7 Gervasoni-málið og endir þess — segir Þorsteinn frá Hamri „Mér er nú efst í huga Gervasoni- I fyrirspurn DB. Hins vegar kvaðst hann málið og að það skuli fá þennan illa enginn spámaður. „Þó óska ég þess að endi á síðustu dögum ársins 1980,” friðvænlegra verði í heiminum á nassta svaraði Þorsteinn skáld frá Hamri | ári.” -AI. Tímamótaár fyrir kvikmyndir og ballett — segir Jón Viðar Jónsson leikhúsf ræðingur „Hvað sjálfan mig snertir, var árið 1980 stórtiðindalaust,” sagði Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur. ,,En ef ég ætti að nefna minnisstæða við- burði úr íslenzku menningarlífi, þá dettur mér fyrst í hug hinn mikli upp- gangur íslenzkrar kvikmyndagerðar á árinu. Svo er mér ofarlega í huga nýlegur viðburður, sýning fslenzka dansflokksins á Blindisleik, sem mér finnst marka tímamót í sögu flokksins og er vonandi merki um betri tíð fyrir hann. Á árinu 1981 vildi ég gjarnan sjá Þjóðleikhúsið reka af sér slyðruorðið og fara að gera hluti sem einhverju máli skipta og það hefur getu til. Ég vona einnig að leikhúsfólki öllu takist að draga lærdóm af þeirri umræðu sem Velgengni í hljóm- plötuútgáfu og morðiö á Lennon — segir Rúnar Júlíusson hljómHstarmaður „Þetta hefur verið ágætis ár ef efna- hagsmál þjóðarinnar eru undanskilin,” sagði Rúnar Júlíusson, hljómlistar- maður úr Keflavík. „Hvað sjálfan mig varðar er ég ánægðastur með hvað útgáfan á hljóm- plötunni Meira salt gekk vel. Hún heppnaðist vel og sú velgengni hlýtur að verða mjög minnisstæð. Annars er mér langefst í huga morðið á John Lennon. Það er óhætt að segja, að það hafi verið mesta „sjokkið” á árinu. Á nýja árinu er mér efst í huga, að draumarnir rætist og efnahagsmál þjóðarinnar lagist með nýju krónunni,” sagði Rúnar Júlíusson. -GAJ. Bjami Aðalgeirsson bæjarstjórí: Stjómarmyndun Gunnars ber hæst „Það sem ber hæst hjá mér almennt séð er stjórnarmýndun Gunnars Thor- oddsens á árinu og í öðru lagi forseta- kosningarnar sem komu manni mjög á óvart,” sagði Bjarni Aðalgeirsson, bæjarstjóri á Húsavík. „Það sem mér er efst í huga á nýju ári er verðbólgudraugurinn, að það verði hægt að kveða hann niður. Þetta er svona það sem ber hæst, svo er auð- vitað ýmislegt hér innan héraðs, sem kannski er ekki eins almenns eðlis,” sagði Bjarni. -ELA. Söguleg endurtekning haldi ekki áf ram — segir Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjórí VSI „Mér er minnisstæðast frá liðnu ári þegar aldursforseti Alþingis var eftir langvarandi stjórnarkreppu kallaður til að bjarga sóma Alþingis og virðingu þjóðarinnar,” sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands íslands. „Þetta minnir mig á það sem gerðist í heimsstyrjöldinni miklu þegar herir Austurríkis fóru halloka og virðing þjóðarinnar var í veði. Þá greip her- stjórnin til þess ráðs að kalla góða dátann Sveik í herinn og hann braut af sér fjötra giktarinnar likt og okkar þjóðarleiðtogi braut af sér fjötra flokksbandanna og hélt i stríðið. Á næsta ári eru vonir mínar bundnar við, að þessi sögulega endurtekning úr bókmenntaverki Jaroslav Hasek haldi ekki áfram að endurtaka sig,” sagði Þorsteinn Pálsson. -GAJ. Listahátíð efst íhuga — segir Guðmundur Emilsson Vona að íslending ar drepi sig ekki úr vinnuþrælkun — segir Sigmar B. Hauksson „Það sem mér er efst í minni frá árinu er líklega myndun stjórnar Gunnars Thoroddsens — sem kom öllum á óvart og var sérstaklega gaman að fylgjast með því fyrir okkur, sem i þessu störfum. Manni sýnist eftir þenn- an atburð, að nú sé allt mögulegt í íslenzkum stjórnmálum,” sagði Sigmar B. Hauksson útvarpsmaður. Sigur Vigdisar Finnbogadóttur í for- setakosningunum sýndi sömuleiðis, að íslenzkir kjósendur eru ekki lengur hræddir við að sýna annað mynstur. Heklugosið er mér minnisstætt — ég var í Bretlandi þegar það hófst og það var gaman að fylgjast með því með augum brezkra fjölmiðlamanna. Þeir sendu menn hingað heim til að fylgjast með gosinu og það var kennslubókar- dæmi í hvernig góðir fjölmiðlamenn vinna. Af erlendum viðburðum ber sigur Ronalds Reagans hæst — sá atburður kom mér nokkuð í opna skjöldu, því eins og margir aðrir þá hélt ég að hnetubóndinn myndi hafa það. Eins þessi síðasti stórviðburður, morðið á John Lennon, sem kom við kvikuna í okkur sem tilheyrum þessari svoköll- uðu Bítlakynslóð. Ég er maður bjartsýnn og held því að allt standi til bóta á nýja árinu með nýju krónunni. Það hefur líka verið að gerast hér góður hlutur, sem er opnun fjölmargra nýrra veitingahúsa, sem selja bæði mat og veigar. Þrátt fyrir fullyrðingar ýmissa stórskiftara, eins og Halldór Laxness kallar templara í nýjustu bók sinni, um að allt muni fara í bál og brand með vínveitingaleyfum til handa þessum stöðum, þá hefur reynslan sýnt annað — hún er mjög góð. Sömuleiðis vona ég að sú stofnun sem ég vinn við fái að dafna og byggja _ J'yrir sina eigin peninga, eins og raunar háttvirtur menntamálaráðherra hefur lofað. Ég á eina ósk handa íslenzku þjóðinni og hún er sú, að íslendingar drepi sig ekki úr vinnuþrælkun.” -ÓV. „Þótt ég hafi flækzt um allan heim á árinu sem er að líða, séð og heyrt flest það sem máli skipti á hverjum stað, þá er mér samt minnisstæðust Listahátiðin í Reykjavík 1980,” sagði Guðmundur Emilsson, hljómsveitarstjóri og tón- listarfræðingur. „Á þessari hátíð gerð- ist svo margt gott og skemmtilegt og ég kynntist svo mörgu úrvalsfólki. Hvað árið 1981 varðar, þá vona ég bara að páfi hafi ekki rétt fyrir sér og við séum ekki á hraðri leið til hvelvítis í einhverri gereyðingarstyrjöldinni,” sagði Guðmundur að lokum. -AI. HelgiMárBergs bæjarstjórí: Margt minn- isstætt „Ég get bara alls ekki svarað þessari spurningu í stuttu máli. Það er mjög margt sem er minnisstætt fráárinu sem er að líða, en ég man ekki eftir neinu sem hæst ber,” sagði Helgi Már Bergs, bæjarstjóri á Akureyri. Helgi Már bætti því við að hann óskaði íslenzku þjóðinni aðeins þess bezta á næsta ári. -ELA. Bolli Kjartansson bæjarstjórí: Mun hætta starfi hér ánæstaárí „Það sem mér er minnisstæðast í augnablik.mu er stjórnarmyndun GunnarsThoroddsensáárinu sem er að líða og allt í kringum hana. Það sem snýr að okkur hér á ísafirði er mal- bikunarmálið, en það var gert stórt átak í þvi á þessu ári,” sagði Bolli Kjartansson, baéjarstjóri á ísafirði. „Á nýju ári eru mér efstar i huga þær breytingar sem verða hjá mér persónulega. Ég mun hætta hér sem bæjarstjóri og flytja aftur til Reykja- víkur eftir að hafa verið hér í tæp 9 ár. Annars vona ég bara að öllum líði vel á nýjuári,” sagði Bolli. -ELA.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.