Dagblaðið - 30.12.1980, Page 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
Órlrtið áfengar blöndur um áramót:
Sérrí, rauðvfn, hvít-
vín og kampavín
Tilvalið er að skála f Champagne
Cobblcr á miðnætti gamlárs- og nýárs-
dags. Myndirnar eru úr bókinni 300
drykkir.
Margir hafa þann sið að lyfta
saman glösum til fagnaöar nýju ári.
Þegar um flesta fullorðna er aö ræða
er yfirleitt vín i glösunum en börnum
og þeim sem ekki vilja vín eru þá
skenktir gosdrykkir. En óþarfi ætti
að vera að drekka einungis sterka
drykki annars vegar og áfengislausa
hins vegar. Núna fyrir jólin gaf Set-
berg út bókina 300 drykki og eins og
nafnið bendir til er fleira mjöður en
brennivín í vatni. Bókin er aö nokkru
leyti unninuppúr sænsku bókinni 265
drykkir. En Símon Sigurjónsson bar-
þjónn í Naustinu hefur endurskoðað
útgáfuna. Sleppti hann nokkru af
þeim drykkjum sem ekki fæst í efni
hér á landi en tók i staðinn
verðiaunadrykki í keppnum bar-
þjóna. Þar á meðal eru nokkrir af
þeim óáfengu drykkjum, sem
uppskriftir bárust að í samkeppni
Dagblaösins og barþjóna um bezta
óáfenga drykkinn. Föstudaginn fyrir
jól birtum við þrjár af þeim
uppskriftum, svo ekki verður farið út
í þær aftur. Aftur skulu hér til teknir
nokkrir drykkir, sem eru eilitið á-
fengir þó ekki séu þeir mikið sterkir.
Gaman er að bera þessa drykki fram
um miðnæturskeiðiö og flestir þeirra
eru það veikir að mönnum ætti að
vera óhætt að aka bíl ef þeir fá sér
einn lítinn sopa.
Sherry Flip:
6 cl sérri
1 tsk. flórsykur
1 egg
múskat
Hristið allt kröftuglega saman með is
og framreiðið í miðlungsstóru glasi.
Rífið lítiðeitt af múskati yfir.
Eggjabolla: (2 lítrar)
2 flöskur hvitvín þurrt eða hálfþurrt
6egg
2dlflórsykur
1 dós af djúpfrystum greipaidinsafa
eða appelsínusafa
1 sítróna
Þeytið egg og sykur saman. Blandiö
safann eins og segir til um á leiðarvisi
dósarinnar. Setjið saman við egg og
sykur. Hellið víninu í rétt áður en
framreitt er. Setjið í nokkra ismoia
og sítrónu skorna í sneiðar.
Rauðvfnstoddí:
rauðvín
2 sykurmolar
1 sítrónusneið
litil vaniliustöng
soðið vatn
Setjiö sykurmolana, sítrónusneiðina
og vaniiiustöngina í stórt glas með
toddi-handfangi. Fyllið glasið til
hálfs meö soðnu vatni og hrærið í.
Fyllið með rauðvíni.
Hagstæðari innkaup
með stóra fjölskyldu
S.Þ.G. skrifar:
Kæra neytendasiöa.
Þó seint sé sendi ég nóvember-
seðilinn. Það hefur dregizt vegna
Reykjavikurferðar í sl. viku. Matar-
reikningurinn hefur aldrei komizt
svona hátt áður en taka má tillit til
þess að ég er búin að kaupa
heiminginn af matnum til jólanna.
Einnig er ég búin aö baka meirihlut-
ann, þó hann sé ekki stórkostlegur.
Svo má nefna, að ég fór á hina frægu
„smjörútsölu” og keypti smjör til ca
6 mánaða. En það réttlætir kannski
ekki þessa háu tölu (47.465 krónur á
mann). En mér finnst að alltaf hljóti
aö vera hagstæðara að kaupa inn
fyrir stærri fjölskyldu og byggi það á
því að ég er frá heimili sem taldi 8
manns. Það var ekki ailtaf stór
upphæð sem móðir min haföi til
matarkaupa en alltaf var þó nóg að
boröa.
Eldurinn á að vera þjónn mannsins
Eggjabollan er bæði falleg á að sjá og góð á bragðið.
Champagne Cobbler:
kampavín
4 dreitlar (dash, 3—4 dropar í dreitli)
Curacao
ávextir eftir vali
Hellið kampavíninu og líkjörnum í
vinglas með muldum ís. Skreytið með
ávöxtum að vild.
Munið svo bara að drekka ekki of
mikið, þvi þó litið áfengismagn sé í
hverjum drykkjanna safnast þegar
saman kemur. -DS.
Símalásinn minnkar útgjöldin
E.K. skrifar:
Aðeins örstutt bréf með núna. í
nóvember var keyptur sykur og hveiti
og dálítiö af útsölusmjöri en ekkert
umfram af annarri matvöru.
Liðurinn annaö inniheldur tvær af-
borganir og eina útborgun, það er af
sjónvarpi, svo að hann er í hærra
lagi. Síma- og rafmagnsreikningar
eru aftur með lægra móti, ég fékk lás
á simann í haust og hef betra eftirlit
meö símtölum síðan.
Hér kemur þá siðasti nóvemberseðillinn. Enn hvetjum við þá sem eiga eftir að
færa inn á seðil útgjöld nóvembermánaðar að bregða nú hart við þvi einhvern
timann var sagt að ekki boðaði það gott að eiga 6>okið við verk um áramót.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvcrt sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks-
Kostnaður í nóvembermánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr._
Annað kr.----
Alls kr._
m yikw
j
Þó að áramótin séu að mörgu leyti
skemmtileg vilja þeim oft fylgja meiri
óhöpp og slys en öðrum tímum
ársins. Meðal annars eru eldsvoðar
algengari um áramót en í annan tlma
og stafar þaö án efa af öllum flug-
eldunum, brennunum og því að fólk
er oft aðeins við skál að glingra með eld.
Slökkviliðsmenn f Reykjavík hafa
um þessi áramót veriö með herferð til
þess að reyna aö draga úr eldsvoöum.
Þeir benda réttilega á að bezta leiðin
til þess að varna því að eldur valdi
tjóni er að koma í veg fyrir eldsvoða.
Með því að fara varlega með eld og
sýna rétt viðbrögð ef hann nær samt
að sléppa laus. Slökkviliðsmenn hafa
undanfarna daga verið að selja
reykskynjara, asbesteppi og slökkvi-
tæki i Rammagerðinni, Heimilis-
tækjum og I Jólatréssölu Land-
græðslusjóðs og jafnframt dreift
leiðbeiningum. Eðlilegt er að þeir
telji sig málið miklu varða því
ógaman hlýtur að vera að bera látið
fólk út úr brennandi húsum. Fyrir þá,
sem engu vilja hlýða nema eigin
„skynsemi” hafa þeir dreift 10 eftir-
farandi ráðum til þess að tryggja
manntjón eða eignatjón við bruna:
1. Reyktu eina sígarettu í rúminu
áður en þú ferð að sofa.
2. Fáðu þér sígarettu, ef þú sérð
skiltið „Reykingar bannaðar”.
3. Hafðu eldspýtur og kveikjara
svo að óvitar nái vel til.
4. Ef eldur kemur upp í íbúðinni
opnaðu þá gluggann og kallaðu á
hjálp, hlauptu svo fram á gang
og sldldti allar dyr eftir opnar.
5. Ef þú vaknar við að svefnher-
bergið er að fyllast af reyk, rístu
þá snarlega á fætur og opnaði
gangadyrnar til að forvitnast
hvað um er að vera.
6. Geymdu varabirgðir af bensíni I
geymslunni eða bílskúrnum.
7. Safnaðu öllum gömlum fötum,
kössum, umbúðum o. fl. '
geymsluna eða háaloftið.
8. Lagaðu ávallt sjálfur bilaðar
raflagnir og rafmagnstæki.
9. Festu kertin beint á skreytingar
eðalausar skálar.
10. Forðastu að sóa peningum í
slökkvitæki og reykskynjara.
Mjög mikilvægt:
Ónáðaðu aldrei slökkviliðið, ef þú
verður eldsvoða var, sennilega er ein-
hver annar búinn að því.
Ungur og vaskur slökkviliðsmaður stendur þama algallaður með slökkvitækið,
reiðubúinn að stökkva inn i eldinn sem ÞÚ hefur ef til vill kveikt af óvarkárni.
DB-mynd S.
Neytendasíða Dagblaðsins óskar lesendum sínum
GLEDILEGS ÁRS
og þakkar öllum velunnurum hennar samstarfið á iðnu árí
EKKIHÚSBÓNDIHANS