Dagblaðið - 30.12.1980, Page 9

Dagblaðið - 30.12.1980, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 9 ALBERT LEYS- IR INNAN- HUSSVANDA SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKS í VOR —segir „Völva Vikunnar” Óróinn í Sjálfstæðisflokknum fellur niður „með óvæntum úrslitum á lands- fundi flokksins, þar sem Albert Guðmundsson kemur með málamiðl- un,” segir „Völva Vikunnar” i blaðinu, sem kemur út á nýársdag, 1. janúar 1981. Völvan segir ennfremur að hún telji óhætt að fullyrða ,,að kona af yngri kynslóðinni muni láta mikið til sín taka í íslenskum stjórnmálum og hafa áhrif innanallrastjórnmálaflokka. . . ” Þá segir „völvan” að í byrjun næsta árs fái landsmenn að sjá „óvæntar efnahagsaðgerðir. Það er þó svo einkennilegt, að ég sé ekki betur en að almenningur muni tjá sig fylgjandi þeim og sætta sig við flest það, sem gert verður þar að lútandi. Sennilega er fólk orðið langþreytt á aðgerðarleysi stjórn- málamanna á undanförnum árum,” segir völvan. „Eftir margra ára niðurlægingu og einangrun í gjaldeyrismálum geta landsmenn nú notað sinn eigin gjald- miðil hvar sem er í nálægum löndum án þess að þurf að kaupa ávísanir áður og ferðatékka á erlenda gjaldmiðla.” Völvan, sem undanfarin ár hefur oft verið furðu sannspá, telur einnig að önnur flugfélög muni koma fram á sjónarsviðið og taka upp samkeppni við Flugleiöir með þeim afleiðingum m.a. að hægt verði að fljúga beint frá Akureyri til útlanda. Hún spáir því einnig að forseti íslands muni fá til liðs við sig eins konar „varaforseta” eða aðstoðarmann, líkt og ráðherrar haft, enda verði það talið nauðsynlegt vegna óvenju mikilla anna forsetans. -ÓV. HAFNFIRDINGAR! Hauka-flugeldar ímiklu úrvali Bæjarbúar, styrkið Haukana með því að kaupa Hauka-flugelda fyrir áramótin Þeir eru einungis seldir á Reykjavíkurvegi 45 Gleðilegt nýtt ár og þökkum samstarf ið á árinu sem er aö líða Handknattleiksdeild Haufca GleðHeg jól á Eskrffirði: Rjóminn reyndist allsstaðargóður — og allir togarar heim úrviðgerðum fyrirhátíðar Allir Eskifjarðartogararnir komu til heimahafnar úr viðgerðum fyrir jólin. Jón Kjartansson kom frá Danmörku 19. desember og hafði þá verið i Dan- mörku siðan í byrjun maí. Hólmanesið kom frá Akureyri á Þorláksmessu og Hólmatindur fór (tvær veiðiferðir fyrir jól og fiskaði ágætlega en hann var búinn að vera í slipp á Akureyri frá i byrjun september. Þess skal þó getið, að Hólmatindur var keyptur frá Frakk- landi sl. haust — þetta er tæplega 500 tonna skip. Hólmanes og Hólmatindur fara á veiðar aftur 2. janúar. Bærinn var mikið skreyttur um jóla- hátíðina og jók það á hátíðablæinn. Veðrið var sæmilegt, nema á jóladag, þá gerði þreifandi byl um það leyti sem messa átti að hefjast, klukkan tvö, og var því ekki jafnfjölmennt við messu og vant er á jóladag. Mikið var um fjöl- skylduboð og mikið etið og drukkið. Rjóminn reyndist alls staðar góður — hvort hann var frá Egilsstöðum, Húsa- vík eða Litla Rússlandi (Neskaupstað). Terturnar voru því vel skreyttar eins og jafnan er þegar rjóminn er góður. Ekki veit ég annað en að allir hafí átt gleðilegjól. -Regína, Eskifirði. cVcrá A98A Q A00-0Q9. 50.000 20.000 A0.000 5-000 A.000 500 Mý*r- 900.0°0 A50000 A 80 000 • e bús.11. • Yvae\&a t r « vintY' w

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.