Dagblaðið - 30.12.1980, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
II
Mannsöfnuðurinn með kyndla fyrir framan heimili forsætisráðherra siðdegis i gær.
Forsætisráðherra fagnað
á sjötugsaf mælinu f gær
Talsverður mannfjöldi safnaðist Úlfar Þórðarson flutti ávarp og sungið Lækjargötu að heimili Gunnars og
saman við heimili dr. Gunnars Thor- var. Dr. Gunnar ávarpaði mannskap- Völu við Víðimel, enda var veður vont í
oddsens forsætisráðherra í Reykjavík í inn og þakkaði fyrir sína hönd og konu Reykjavík í gær. — Síðdegis í gær gekk
gær til að hylla Gunnar, sem varð sjö- sinnar, Völu Ásgeirsdóttur. svo ríkisstjórnin á fund forsætisráð-
tugur. Hornaflokkur Kópavogs lék þar Ekki varð úr blysför, sem fyrirhuguð herra og færði honum afmælisgjafir.
undir stjórn Björns Guðjónssonar, hafði verið frá stjórnarráðinu við -ÓV.
Úlfar Þórðarson læknir ávarpaði forsætisráðherrahjónin og færði þeim árnaðaróskir i tilefni sjötiu ára afmælis Gunnars
Thoroddsen. DB-myndir: Gunnar Örn.
KROFUGANGA TIL STUÐN-
INGS PATRICK GERVASONI
Hópur stuðningsmanna Patricks
Gervasonis, sem gert hefur verið að
fara af landi brott í dag, safnaðist í
gær saman í dómsmálaráðuneytinu
og gekk undir kröfuspjöldum til
danska sendiráðsins í Reykjavík. Var
á kröfuspjöldunum og borðunum
mótmælt brottvísun Gervasonis.
Eftir að mótmælaorðsendingu hafði
verið komið á framfæri við sendi-
ráðið var haldið að franska sendiráð-
inu, en þar var allt myrkvað og engu
svarað.
Myndina tók ljósmyndari DB
þegar hópurinn — um 80 manns —
var að leggja af stað úr dómsmála-
ráðuneytinu skömmu eftir hádegi í
gaer.
-DB-mynd: Gunnar Öm.
Ot
ro
'to
AUGLÝSING
umút-og innflutning
peningaseðla og myntar
Með heiinild í 9. gr. laga nr. 63 frá
31. maí 1979 eru hér með settar tæmandi reglur
um útflutning og innílutning peningaseðla og
hvers konar myntar, sem eru eða hafa verið
löglegur gjaldmiðill og látinn í umferð.
íslenskir peningar
Innlendum og erlendum ferðamönnum
er heimilt, við komu eða brottför frá landinu
að taka með sér allt að 500 nýjar krónur eða allt
að 50.000 gamlar krónur, þó ekki í seðlum að
verðgildi yfir 50 nýjar krónur í gjaldmiðli, er
tekur gildi 1. janúar 1981 annars vegar og hins
vegar ekki hærri seðla en 1000 gamlar krónur
að verðgildi í þeim gjaldmiðli, sem nú er í
umferð.
Erlendir peningar
Ferðamenn búsettir hérlendis mega flytja
með sér út úr og inn í landið þann erlenda
gjaldeyri, sem þeir hafa lögleg umráð yfir.
Ferðamenn búsettir erlendis mega
flytja jafnmikla erlenda peninga út úr landinu
og þeir fluttu inn við komu til landsins að frá-
dregnum þeim dvalarkosmaði, sem þeir hafa
haft hér.
Gjaldeyrisbankar, svo og aðrir aðilar,
sem löglegar heimildir hafa, mega flytja
erlenda peninga inn og út úr landinu.
Reglur þessar gilda frá og með 1. janúar
1981, og koma í stað samsvarandi hluta
auglýsingar bankans frá 6. september 1979, er
verður áfram í gildi að öðru leyti.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njáísgötu 49 — Sími 15105
FLUGELDASALA FRA
/ FramheimiUnu og Suðurlandsbraut 30
við hiið Alþýðubankans
OPK) FRÁ KL. 10-22 OG Á GAMLÁRSDAG FRÁ KL. 9-1
25% afslátíur á fjölskyldupokum