Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 12
12
Þjóðhátíðarsjóður
| auglýsir
vW eftir umsóknum
um styrki úr sjóðnum á árinu 1981.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september
1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og
annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu
og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núver-
andi kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna
til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum
Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna
til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra
menningarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju
sinni í samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig
til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og
b).
Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótar-
framlag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til
þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr
stuðningi annarra við þau.”
Stefnt er að úthlutun styrkja á fyrri hluta komandi árs.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 1981. Eldri
umsóknir ber að endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja
frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti
10, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðs-
stjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, í síma (91) 20500.
Þjóðhátíðarsjóður
'SWfriní "
MCK BENSON ASTRID LARSON
Ádultt Only
Absolutely No One
Under 18 Admitted
EASTMANCOLOR®
^/★★★★★★★★★★★★★k^
■ir
UÚF LEVNDARMÁL
Ný amerisk lauflétt gamansöm mynd af djarfara taginu. Mar-
teinn er nýsloppinn úr fangelsi og er kvennaþurfl. Hann ræöur
sig i vinnu 1 antikbúð. Yflrboðari hans er kona á miðjum aldri
og þar sem Marteinn er mikið upp á kvenhöndina lendir hann í
ástarævintýrum.
Leikarar:
Jack Benson
Astrid Larson
Joey Civera
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
STRANGLEGA BÖNNUÐINNAN 16 ára
%
AÐVÖRUN:
Fólki sem likar illa kynlifssenur eða erótik
er eindregið ráðið frá þvi að sjá myndina.
★★★★★★★★★★★
★
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
Bændur í kröfugöngu að hæstarétti Póllands:
Pólskir bændur
hóta verkföllum
—krefjast viðurkenningar á samtökum sínum
Pólskir bændur munu í dag fara
kröfugöngu aö hæstarétti landsins í
Varsjá til þess að leggja áherzlu á
kröfur sínar um að sjálfstæð verka-
lýðsfélög þeirra verði viðurkennd.
Áður hefur héraðsdómstóllinn i
Varsjá hafnað þessari kröfu bænda á
þeirri forsendu, að þeir séu ekki laun-
þegar.
Mörg þúsund félagar í „sveita-
deild Einingar” eru komnir til Var-
sjár til þess að taka þátt í mót-
mælunum. Taliö er að innan vébanda
deildarinnar séu ein milljón bænda
eða tæpur þriðjungur bænda i
landinu. Sveitadeildin hefur hótað að
neita að afhenda landbúnaöarafurðir
til borganna en það mundi enn auka
á þann matvælaskort, sem er í
borgum Póllands. Talsmaður deild-
arinnar sagði þó í gær, að í ljósi bág-
borins efnahagsástands landsins
væru bændur ákaflega tregir til að
grípa til slíkra aðgerða.
Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
átti í gær fund með Jozef Czyrek,
utanrikisráðherra Póllands, sem var
nýkominn heim frá Sovétríkjunum.
Munu þeir meðal annars hafa rætt
um væntanlega heimsókn Walesa í
páfagarð í næsta mánuði.
Biðraðir fólks við matvöruverzlanir i Póllandi er mjög algeng sjón og hætt er við að framboð á matvælum f landinu minnki
enn ef til verkfalls bænda kemur.
Erlent
Erlent
Erlent
Óhugnanlegt morðmál í Kaupmannahöfn:
Nauðgaði og myrti
83 ára gamla konu
er hann heimsótti föður sinn á elliheimilið
„Meðan ég nauðgaði þeirri gömlu
þá byrjaði hún að ranka við sér svo ég
ákvað að drepa hana,” sagði Erik
Börge Jeppesen, 26 ára gamall ibúi í
Næstved í Danmörku, fyrir rétti í
Næstved þremurdögum fyrir jól.
Morð þetta hefur vakið mikinn
óhug í Danmörku, ekki sízt vegna þess
að morðinginn skýrði frá gerðum
sínum án minnstu blygðunar, að þvi er
virtist. Fórnarlamb hans var 83 ára
gömul kona sem dvaldi á elliheimili í
bænum.
Jeppesen fór á elliheimili skömmu
fyrir jól til að heimsækja aldraðan
föður sinn. 1 heimleiðinni réðst hann
inn í íbúð gömlu konunnar, sem var við
hlið íbúðar föður hans, og svívirti hina
83 ára gömlu Marie Henriksen og myrti
hana.
Morðinginn komst inn í íbúðina á
þeim forsendum að hann þyrfti á sal-
erni og er gamla konan bauð honum
upp á kaffi og kökur réðst hann á
hana.
Það var faðir morðingjans, sem
kom lögreglunni á sporið en í fyrstu leit
út fyrir að ekki tækist að upplýsa
morðmál þetta sem vakti svo mikinn
óhughjáDönum.
Morðinginn Erik Börge Jeppesen.
Útgjöld til hermála aukast stöðugt
Utgjöld til hermála námu 480 milljörðum doilara á árinu 1978 og hafa haldió
áfram að aukast siðan.
Útgjöld til hermála námu í heim-
inum árið 1978 alls 480 milljörðum
dollara, að því er bandarísk
afvopnunar- og eftirlitsstofnun með
vígbúnaði hefur upplýst og hefur
síðan haldið áfram aö aukast.
Þessi tala var 1,7 prósent hærri en
árið áður. Talsmenn stofnunarinnar
segja að frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar hafi alls verið eytt 10
þúsund milljöröum dollara tii víg-
búnaðar i heiminum. í stofnun þess-
ari er því haldið fram, að á árinu
1978 hafi Sovétmenn eytt 154
milljörðum doilara til vígbúnaðar,
eða meira en nokkur önnur þjóð.
Bandaríkin haft eytt 108,4
milljörðum dollara.