Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 13 Erlent Erlent Eríent Erlent I Jóhannes PáU annar páfi vlð komuna til Póllands I fyrra. Páf inn til Pól- landseftil innrásar kemur Bandaríska tímaritið Newsweek hefur greint frá því, að Jóhannes Páll annar páfí hafi gefið það í skyn að hann muni fara til Póllands og vera með löndum sínum, komi til innrásar Sovétmanna í landið. Blaðið segir að páfinn hafi látið þetta á sér skilja í einkasamtölum að undanförnu. Hiibner hef- urbeturgegn Kortsnoj Sovézki útlaginn og stórmeistarinn Viktor Kortsnoj stendur óvænt höllum fæti í einvígi sínu við vestur-þýzka stór- meistarann Robert Htibner. Að loknum sex skákum þeirra hefur Htibner forystuna með 3,5 vinninga gegn 2,5. Hiibner hefur unnið tvær skákir, Kortsnoj eina og þremur hefur lokið með jafntefli. Sjöttu skák þeirra lauk með jafntefli eftir 88 leiki. Sigurveg- arinn í einvíginu, sem verður sextán skákir, mun skora á heimsmeistarann í skák, Anatoly Karpov. Gíslamálið endanlega siglt í strand? Bandaríkjamenn höfhuðu „lokaskilyrðum” írana íranir hóta nú að refsa gfslunum Bandaríkjastjórn hefur hafnað kröfum írana um að stjórnin leggi fram 24 milljarða dollara tryggingu í banka í Alsir fyrir því að staðið verði við loforð um að verða við ýmsum kröfum írana, þar á meðal þeim að auðæfum franskeisara fyrrverandi verði skilað. Carter forseti hafði gefið írönum skriflegt loforð um að inneignum írana í bandarískum bönkum verði skilað, svo og að greitt verði fyrir því að unnt verði aö skila auðæfum franskeisara. franir höfðu krafizt áðurnefndrar tryggingar og sagt það sín „lokaskilyrði” í deilunni. John Trattner, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagöi í gær að orð Bandaríkjaforseta væru öruggasta trygging sem hægt væri að bjóða og ekki væri ástæða til að leggja fram aðrar tryggingar. franir hafa brugðizt illa við þessum svörum Bandaríkjastjórnar og hótað að refsa gíslunum. Hafa franir lýst þvi yfir, að óhjákvæmilegt sé að a.m.k. einhverjir gíslanná verði nú leiddir fyrir rétt. Khomelnl. Carter. í Nýju-Delhi, höfuðborg Indlands, hefur hópur afganskra flóttamanna staðið fýrír mótmælaaðgerðum að undanförnu fyrir utan sovézka sendiráðið i borginni vegna innrásar Sovétmanna i Afganistan. t gær kom til óeirða I Kabúl, höfuðborg Afganistan, og sagði sovézka fréttastofan Tass að „hópur glæpsamlegra málaliða og undirróðursöfl hefði staðið fyrir glæp- samlegri starfsemi í borginni.” Ráðherra úr stjórn Afganistan reyndi að gera litið úr mótmælunum, sem beint var gegn sovézka herliðinu, og sagði að „litlir drengir” hefðu staðið fyrir þeim. Bandaríkin: Rússnesk rúlletta banaði 15 Fimmtán bandarísk ungmenni hafa á þessu ári látið lífið i ,,rúss- neskri rúllettu” eftir að hafa horft á kvikmyndina Hjartarbanann (The Deer Hunter) í sjónvarpi. Nefndarmenn er kannað hafa áhrif ofbeldis í sjónvarpi á ung- linga sögðu, að ekki hefði átt að leyfa sýningar á myndinni í sjón- varpi. Nefndin lagði fram lista með nöfnum fimmtán unglinga, sem hefðu látið lífið í rússneskri rúllettu eftir að hafa horft á Hjartarbanann, sem fjallar sem kunnugt er um Vietnamstríðið og í myndinni er atriði þar sem fang- ar eru látnir leika rússneska rúll- ettu og þannig í mörgum tilfellum taka sjálfa sig af lífi. Sjónvarpsstöðvar er sýnt hafa myndina hafa varað áhorfendur við að rússnesk rúlletta sé lífs- hættulegur leikur. FLll Gt t / miklu úrvali 25% AFSLÁTTUR AF FJÖLSKYLDUPOKUM ÚTSÚLUSTAÐIR: Borgarbí/asaian B/ómava/, Sigtúni Skeifunni fhúsi Má/arans) HVERGI EINS ÓDÝRT! Ath. Verö á fjölskyldupokum: Kr. 6.000.- Kr. 10.000.- Kr. 20.000.- Kr. 25.000.- Kr. 30.000.- Sparið aurana — ÁRMANN

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.