Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 14

Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 14, frjálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðiö hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Kristjónason. Aflstoöarrítstjórí: Haukur Helgason. Fróttastjórí: ómar Valdimarsson. Skrífstofustjórí ritstjómar Jóhannos ReykdaL íþróttír Hallur Simonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit Ásgrímur Pólsson. Hönnun: Hilmar Karísson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Atíi Rúnar Halldörsson, Atíi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig- urðsson, Dóra Stefánsdóttír, ENn Albertsdóttír, Gfsli Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir, Kristján Már Unnarsson, Sigurður Sverrísson. Ljósmyndir Bjamleifur Bjamleífsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorrí Sigurðsson og Sveinn Þormóðsson. Skrífstofustjórí: ólafur EyjóHsson. Gjaldkerí: Þráinn ÞoríeHsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Halldórs- son. DroHingarstjórí: Valgerður H. Sveinsdóttír. Ritstjóm: Siðumúla 12. AfgreUSsla, áskríftadoild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 línur). Setning og umbrot Dagblaðið hf., Siðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., SkeHunni 10. Áskríftaryerð á mónuði kr. 7.000. Verð I lausasölu kr. 350. Mennársins Pólski verkalýðsleiðtoginn Lech Wa- lesa verðskuldar að verða talinn „maður ársins” 1980. Honum og sam- herjum hans tókst að vinna merka sigra í baráttunni við kommúnistíska harð- stjórn þar í landi. Spurningin um fram- haldið verður einna efst á baugi á komandi ári. Tekst pólsku frelsishetjunum að losa enn um hlekkina eða verður Pólland að nýju hneppt í algera fjötra, kannski með rússneskri innrás? Við minnumst frelsisbaráttu Pólverja og Afgana á því ári, sem nú kveður, en við minnumst einnig þeirrar smánar, að mörg lýðræðisríki tóku þátt í gervi-ól- ympíuleikum i Moskvu og studdu með því hið sovézka einræði. Annar ,,maður ársins” úti í heimi er Ronald Reagan, sem vann yfirburðasigur í forsetakosningun- um í Bandaríkjunum og tekur við embætti eftir nokkra daga. Kjör Reagans vekur ugg. Alls óvíst er, hvernig stefna hans verður, jafnt í utanríkis- sem í innanlands- málum, en ástæða er til að ætla, að valdataka hans verði vatn á myllu fasista í rómönsku Ameríku og annars staðar. Lát Titós Júgóslavíuforseta, eftir 35 ára valdaskeið, skapar óvissu um stöðu landsins og veikir það gagnyart Sovétríkjunum, sem jafnan bíða færis að ná tökum á því að nýju. Styrjöld írans og íraks setti svip á fréttir ársins, og olíuverðshækkanir ollu samdrætti og atvinnuleysi víða umlönd. Á innlendum vettvangi ber hæst kjör Vigdísar Finn- bogadóttur, sem Dagblaðið hefur kosið ,,mann ársins”, og stjórnarmyndun Gunnars Thoroddsen. Hvorrtveggja kom nokkuð á óvart. Allt bendir til, að hinn nýi forseti geti orðið sam- einingartákn á sama veg og fyrirrennarar hennar, Kristján Eldjárn og Ásgeir Ásgeirsson. ísland var í heimsfréttunum fyrir það að verða fyrst ríkja til að kjósa konu í forsetaembætti í lýðræðislegum kosning- um. Að því leyti er þetta býsna merkilegt ár í sögu þjóðarinnar. í tengslum við forsetakosningarnar náði Dagblaðið þeim árangri í skoðanakönnun að geta sagt nærri hár- nákvæmt fyrir um úrslit kosninganna. í ljósi þess er ekki að efa, að skoðanakannanir blaðsins gefa einnig rétta mynd af breytingum á fylgi ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen. Við stjórnarmyndunina klofnaði Sjálfstæðisflokk- urinn, og eru brotin enn sundruð í árslok. Ríkisstjórnin hafði í upphafi eindæma mikið fylgi með þjóðinni. Þegar á leið árið dvínaði fylgi stjórnarinnar talsvert, þótt hún nyti enn meirihlutafylgis. Margir tóku að efast um ágæti ríkisstjórnarinnar, þegar óðaverðbólgan hélt sínu skeiði, án þess að ríkis- stjórnin sýndi nein úrræði. Nú í árslok spyrja menn enn, hvort áhrifamikilla aðgerða í efnahagsmálum sé að vænta af þessari ríkisstjórn. Ógerlegt er að spá nú um áramótin, hvort klofningurinn í Sjálfstæðisflokknum muni leiða til al- gerrar sundrungar eða einhver leið finnst til sátta. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma, mun bardagi and- stæðra fylkinga í Sjálfstæðisflokknum setja mjög svip ákomandiár. Nýir formenn tóku við í Alþýðubandalagi og Alþýðuflokki á árinu og nýr forseti Álþýðusambands- ins var kjörinn. Komandi ár mun leiða í ljós, hvort þær mannabreytingar breyta einhverju um inntak þjóð- mála. Kvikmyndin Hoiocaust hefur á nýjan leik vakið athygli manna á glæpum nasista gegn gyðingum. að drepa það. Af gömlu mönnunum má nefna „Bing Bang” eins og hann var nefndur í útrýmingarbúðunum vegna þess að hann sló fangana í höfuðið með töng þar sem þeir stóðu í röð, eins og vitni dagsins, Tadeusz Ogrodowsky, greinir frá. „Þekkið þér hann aftur hér í saln- um?” spyr dómarinn Gtlnter Bogen og biður mennina að standa upp. Vitnið Ogrodowsky horfir vandlega á þá en s varar síðan neitandi. Og hvernig ætti hann iíka að þekkja þetta fólk aftur eftir 37 ár. Þá var „Bing-Bang” ungur maður, klæddur i SS-einkennisbúning og Ogrodowsky sá hann oftast frá botninum á tveggja meta djúpri gröf sem hann vann í. Minnir á helvíti Það er einmitt þetta sem mest hefur verið gagnrýnt, þ.e. hve réttar- höldin hafa tekið langan tíma og hve seint var byrjað á þeim. Vitni, sem hefðu getað orðið að liði fyrir tíu til fimmtán árum, eru nú látin og önnur hafa gleymt þvi sem máli skiptir. Mörg vitnin hafa brotnað saman í réttarsalnum er þau hafa átt aö rifja Lengstu og mest gagnrýndu r'éttar- höld vegna stríðsglæpa, hin svo- nefndu Majdanek-réttarhöld, hafa nú staðið í fimm ár. Af þeim sextán sem ákærðir hafa verið eru nú aðeins niu á lífi. Hinir ákærðu eru taldir bera ábyrgð á útrýmingarbúðunum Majdanek i Lublin í Póllandi. Réttarhöld þessi eru um margt ákaflega sérstæð. Skólabörn fá kennslu í sögu meö því að vera við- stödd réttarhöldin. Mitt á meðal lög- fræðinga, dómara og saksóknara eru níu gamlir menn. Einn kemur i hjóla- stól, niðursokkinn i samtal við lög- regluþjón sem keyrir hann. Annar leggur frá sér hækjurnar áður en hann sezt niður og konurnar tvær leggja handtöskur sínar á borðið. „Blóðuga Brigida" Þetta virðist ósköp venjulegt fólk og vel hefði mátt ímynda sér, að önnur konan væri amma skólabarn- anna. I útrýmingarbúðunum var hún kölluö „Blóðuga Brigida”. Það var undir geðþótta hennar komið, hverjir lifðu og hverjir dóu. Það fór mest eftir því í hvernig skapi hún var. Hin konan var kölluð „Slæga merin”, vegna þess að hún var vön að sparka í fólkiö eða nota svipu við SS-foringinn Kurt Asche segist hafa haldið að flytja ætti Gyðingana i vinnubúðir. Hann hafi ekki vitað, að vagnarnir fluttu þá I útrýmingarbúðir. Majdanek-réttarhöldin hafa nú staðið ífimm ár: Bjargar minnisleysi og hár aldur vitnanna SS-foringjunum? — Mörgvitnanna eru látin ogömur þekkja sakbomingana ekki lengur, sem taldir em bera ábyrgð á dauða 100 þúsund pólskra gyðinga »

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.