Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
Febrúar
Stytzti mánuður ársins bar með sér
mikil tiðindi i íslenzku þjóðlifi. Dag-
blaðið upplýsti hinn 1. febrúar að Vig-
dís Finnbogadótir leikhússtjóri gæfi
kost á sér til forsetaframboðs. Þar var
kominn fyrsti kvenframbjóðandinn til
forsetaframboðs á íslandi. Forseta-
frambjóðendurnir voru þar með orðnir
fjórir. Fljótlega varð ljóst að framboð
Vigdísar átti miklu fylgi að fagna og
jafnaðist það helzt á við fylgi Guðlaugs
Þorvaldssonar.
Bomba
dr. Gunnars
Þá er óhætt að segja að dr. Gunnar
Thoroddsen hafi gert allt vitlaust í póli-
tíkinni. Flokksformennirnir höfðu
gefizt upp við stjórnarmyndun og
háværar raddir voru um utanþings-
stjórn. Þá spurðist það, að Gunnar
Thoroddsen varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, ætti í viðræðum við forystu-
menn Framsóknarflokksins og Alþýðu-
bandalagsins um myndun ríkisstjórnar.
Strax fyrstu daga mánaðarins þótti sýnt
að stjórnarmyndun dr. Gunnars væri
að takast. ,,Meirihluti þingmanna
fylgir mér að málum”, hafði DB eftir
Gunnari 4. febrúar. Ljóst var að Sjálf-
stæðisflokkurinn klofnaði um stjórnar-
myndunartilraunina.
Meirihluti þingflokksins fylgdi for-
manni sínum, Geir Hallgrimssyni, sem
ekkert vildi hafa saman að sælda við
varaformanninn. Hins vegar lá fyrir að
nokkrir sjálfstæðismenn myndu styðja
stjórnina, eða a.m.k. verja hana van-
trausti. Það voru Friðjón Þórðarson,
Eggert Haukdal, Albert Guðmundsson
og Pálmi Jónsson. Friðjón og Pálmi
reyndu sættir og lögðu til að Sjálf-
stæðisflokkurinn gengi i heilu lagi til
stjómarmyndunarviðræðna. Hug-
myndin mætti mikilli andstöðu Geirs
og náði ekki fram að ganga.
Rætt var um brottrekstur Gunnars
úr flokki og þingflokki ef af stjórnar-
myndun yrði og að hið sama gilti um þá
þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem
tækju sæti í stjórninni. En hvað sem
öllum slíkum átökum leið innan Sjálf-
stæðisflokksins, þá veitti forseti ís-
lands dr. Gunnari umboð til myndunar
meirihlutastjórnar.
Ríkisstjórnin
mynduð
Hlutirnir gengu nú hratt fyrir sig og
þegar fyrir lá að Friðjón og Pálmi
studdu stjórnina, var hún í höfn. Dr.
Gunnar tilkynnti skipan ráðherra í
stjórninni 8. febrúar. Framsóknar-
flokkurinn fékk fjóra, Alþýðubanda-
lagið þrjá og sjálfstæðismenn þrjá.
Gunnar Thoroddsen fór með forsætis-
ráðuneytið og Hagstofuna, Friðjón
Þórðarson varð dóms- og kirkjumála-
ráðherra og Pálmi Jónsson land-
búnaðarráðherra. Framsóknarmenn-
irnir voru Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegs- og samgönguráðherra,
Gunnar bakaði Geir
Dagblaðið efndi til skoðanakönnun-
ar um stuðning manna við Gunnar
Thoroddsen og Geir Hallgrímsson.
Fram kom að 76% sjálfstæðismanna
tóku Gunnar fram yfir Geir. Þá var
Gunnar einnig með miklu meira fylgi
óháðra og stuðningsmanna annarra
stjórnmálaflokka en Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þá efndi blaðið einnig til skoðana-
könnunar um fylgi flokkanna og kom í
ljós að Sjálfstæðisflokkurinn var í sókn
en Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
á niðurleið. Framsókn bætti heldur við
Janúar
„Hallarekstur Flugleiða hf. lendir á
rikinu á næsta ári”, sagði i forsíðu-
fyrirsögn Dagblaðsins á síðasta tölu-
blaði ársins 1979. Þar sagði blaðið
nokkuð fyrir um eitt aðalmál ársins,
sem nú er að líða, Flugleiðamálið. Mál-
efni Flugleiða hafa verið stöðugt í
sviðsljósinu og færast milli ára ef að
líkum lætur.
Forsetaslagur
og stjórnarmynd-
unartilraunir
En í upphafi árs var þó annað ofar í
hugum manna. Forseti íslands, dr.
Kristján Eldjárn, tilkynnti i nýársá-
varpi sínu, að hann gæfi ekki kost á sér
til forsetakjörs þegar kjörtímabil hans
rynni út á miðju sumri. Þar með var
boltinn endanleg gefinn upp og slagur-
inn um forsetatignina hófst. Boltinn
var að vísu áður kominn á loft, því það
lá í loftinu að dr. Kristján færi ekki
fram þegar á miðju ári 1979. Knatt-
spyrnuhetjan Afbert Guðmundsson var
með boltann, því að hann hafði þegar
lýst því yfir að hann færi fram, hvað
sem dr. Kristján gerði.
Albert ítrekaði í fyrsta tölublaði DB,
að ákvörðunin um framboð stæði
óhögguð. í sama blaði var rætt við
annan líklegan frambjóðanda, Pétur
Thorsteinsson sendiherra. Hann ætlaði
að athuga málið, ef fram kæmu
ákveðnar áskoranir um framboð.
En fleira sótti á eyþjóðina í upphafi
árs en væntanlegar forsetakosningar.
Ekki hafði enn tekizt að mynda ríkis-
stjórn, þótt mánuður væri liðinn frá
desemberkosningunum. Um áramót
fór Geir Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins með stjórnarmynd-
unarviðræðurnar og komu helzt til
greina möguleikar á nýsköpunarstjórn
og þjóðstjórn. Ekki gekk saman hjá
formanninum, þannig að formaður
Sjálfstæðisflokksins varð ekki for-
sætisráðherra. Tæplega hefur for-
manninn grunað á þessari stundu,
hvernig fara myndi með myndun
stjórnar á því herrans ári 1980, og þvi
síður þjóðina sjálfa.
En þótt mikið væri að gerast í þjóð-
málunum og stórmálin kæmu á færi-
bandi, voru þó ýmis önnur mál sem
vöktu athygli. Enn var framið póstrán í
Sandgerði 2. janúar, nákvæmlega ári
eftir annað sams konar. Póstmeistar-
inn, Unnur Þorsteinsdóttir, fannst slas-
aður á gólfi pósthússins að morgni
dags. Hvorugt þessara póstrána hefur
verið upplýst. Vænta má þess að Sand-
gerðingar hafi augun hjá sér upp úr
Dr. Gunnar Thoroddsen varaformaður Sjálfstæðisflokksins m.vndaði ríkisstjórn með stuðningi Framsóknarflokksins,
Alþýðubandalagsins og nokkurra sjálfstæðismanna. Óhætt er að segja að þessi stjórnarmyndun kom eins og sprengja I
islenzka pólitlk. Staða Sjálfstæðisflokksins á þingi er nú mjög sérstök, þar sem varaformaðurinn er oddviti rikisstjórnar-
innar en formaðurinn oddviti stjórnarandstöðunnar. Mvndin var tekin er Gunnar tók við lyklum stjórnarráðsins úr höndum
fráfarandi forsætisráðherra, Benedikts Gröndal. DB-m,vnd Ragnar Th.
sig.
Væringar voru nokkrar með æðstu
mönnum á Neskaupstað og kærði
fógeti bæjarstjóra fyrir að standa ekki
skil á opinberum gjöldum til fógeta-
embættisins. Bæjarstjóri svaraði fyrir
sig og sagði að fógeti sjálfur væri í van-
skilum við bæjarsjóð. Bæjarstjóri neit-
aði því að borga dráttarvexti með rök-
um fógeta.
Enn birti DB úrslit skoðanakönn-
unar og kom þar í ljós, að hin nýja
rikisstjórn naut yfirgnæfandi fylgis
þjóðarinnar. Yfir 70% þjóðarinnar
studdu ríkisstjórnina.
áramótum ef þar sjást á ferð úlpu-
klæddir menn, lyktandi af Old Spice.
Snemma árs kom i ljós að enn höfðu
íslendingar sett persónulegt met. Verð-
bólga ársins 1979 hafði verið nær 59%.
Met ársins 1978 var bætt verulega, en
þá var verðbólgan „aðeins” 38%. Eftir
er að vita hvort nýtt met verður sett á
þessu ári, en flestir eru á því að við
höfum staðið okkur vel í verðbólgu-
kapphlaupinu á árinu og fáir séu þar
jafnokar okkar. Verst er að milljóna-
mæringum landsins fækkar nokkuð nú
um áramótin með nýkrónunni, en ef að
líkum lætur verða landsmenn ekki
lengi að ná aftur fyrra stigi hinnar elli-
dauðu krónu.
Mikill harmleikur gerðist um borð í
varðskipinu Tý þar sem skipið var statt
norðan Grímseyjar. Þriðji vélstjóri
banaði tveimur skipsfélögum sinum
með hnífi og varpaði sér síðan útbyrðis
og hvarfíhafið.
Dagblaðið alltaf á
vaktinni
Dagblaðið upplýsti nokkra sérkenni-
lega stuldi á árinu og þann fyrsta í
janúar. Hringt var til blaðsins og til-
kynnt að þjóðfundarskjöldurinn af
MR væri á leiði Jóns Sigurðssonar í
gamla kirkjugarðinum. Spæjarar DB
fóru á staðinn og fundu skjöldinn og
komu honum í hendur réttra eigenda
með aðstoð lögreglu.
Þegar Geir Hallgrímsson gafst upp
við stjórnarmyndun, var röðin komin
að Alþýðubandalaginu að reyna. Sam-
kvæmt hefð var komið að Lúðvík
Jósepssyni en hann vildi ekki reyna.
Forseti fól því Svavari Gestssyni til-
raunir til stjórnarmyndunar. Ekki gekk
saman hjá Svavari og fór þvi hjá
honum líkt og Geir, að hann gafst upp.
En tilraunir Svavars voru undanfari að
þvi er síðar gerðist i Alþýðubanda-
laginu cr hann tók við formennsku af
Lúðvik.
Áfram hélt forsetarallið og um
miðjan janúar greindi DB frá því að
þrír menn væru í viðbragðsstöðu að
Bessastöðum, Albert, Pétur og Guð-
laugur Þorvaldsson ríkisáttasemjari.
Umfangsmestu sakamál aldarinnar,
Guðmundar- og Geirfinnsmálin voru
til lykta leidd af Hæstarétti. Mál-
flutningur og varnir stóðu i langan
tíma, enda málskjöl í mörgum bókum.
Hæstirétttur breytti þyngstu dómum,
ævilöngu fangelsi í 16 og 17 ára fang-
elsi.
Íslendingar tóku að nota kreditkort,
en ekki gekk það átakalaust fyrir sig.
Enn vantar mikið upp á að notkun
slíkra korta sé orðin almenn hérlendis.
Sérkennilegt mál spannst um sjón-
varpstæki sem fannst eitt og y firgefið á
Hellisheiðinni. Tækið var flutt í bæinn,
en síðan var DB tilkynnt að tækið
Vigdís Finnbogadóttir var kosin forseti tslands fyrst kvenna. Vigdís er raunar fyrsta konan, sem kosin er þjóðhöfðingi i
lýðræðislegum kosningum i heiminum. Kosning Vigdisar vakti mikla athygli viða um heim. Myndin er tekin við heimili
Vigdísar er úrslit lágu fyrir, morguninn eftir kjördag. DB-mynd Ragnar Th.
væri þarna af trúarlegum ástæðum,
rödd hrópandans í eyðimörkinni. Þetta
varð til þess að sjónvarpstækið var
aftur flutt upp á heiðina, þar sem menn
vildu trauðla trufla framgang trúar-
innar.
Benedikt Gröndal tók til við að
mynda ríkisstjórn og reyndi fyrst við
„Stefaniu”. Stefanía vildi ekki þýðast
krataformanninn og eftir ýmsar þreif-
ingar og þukl fór fyrir honum sem
öðrum. Enginn vildi í bólið með
honum.
íslenzkar kvikmyndir unnu mikinn
sigur á árinu. Land og synir, Óðal feðr-
anna og Veiðiferðin fengu mikla og
góða aðsókn og góða krítík, bæði hér
heima og einnig erlendis.
Unglingar tóku upp á því að brúka
mentóltóbak nokkuð ótæpilega. For-
ráðamenn barna og skólamenn lýstu
áhyggjum sínum, en æðið stóð ekki
lengi. Bjórmúrinn brast að nokkru leyti
er Sighvatur Björgvinsson fjármálaráð-
herra tók sig til og gaf út nýja reglugerð
um áfengisinnflutning ferðamanna. Nú
geta menn haft með sér bjór inn í
landið og er bjór nú sötraður í öðru
hverju húsi. Þeir sem ekki koma með
bjórinn með sér brugga hann heima.
Enn gildir þó hið steinrunna og ein-
stæða fyrirkomulag hérlendis, að ekki
má brugga eða selja almenningi bjór.
Hann er aðeins fyrir þá, sem hafa tök á
að ferðast.
íslendingar tóku þá ákvörðun að
fara á ólympíuleikana í Moskvu, þrátt
fyrir talsverða andstöðu.
Ingvar Gíslason menntamálaráðherra,
Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra
og Tómas Árnason viðskiptaráðherra.
Alþýðubandalagsmennirnir voru Hjör-
leifur Guttormsson iðnaðarráðherra,
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra og
Svavar Gestsson félags-, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra.
,,Ég tel fráleitt að kenna málefna-
samninginn sérstaklega við vinstri
stefnu,” sagði Gunnar Thoroddsen um
málefnasamning stjórnarinnar. Geir
Hallgrímsson sagði hins vegar um
þennan sama samning, að hann væri
dæmigerður loforða- og óskalisti
vinstri stjórnar. Átökin innan Sjálf-
stæðisflokksins minnkuðu ekki eftir
stjórnarmyndunina. Skipzt var á
þungum skotum á báða bóga og sættu
bæði Gunnar og Geir harðri gagnrýni.
Enginn var þó rekinn úr flokki eða
þingflokki en sambúð stirð.
En ekki var allt svona erfitt i febrúar.
Dagblaðið hélt árlega Stjörnumessu
sína 14. mánaðarins með pomp og
prakt. Súlnasalur Hótel Sögu var þétt-
setinn og skemmtikraftar náðu upp ríf-
andi stemmningu. Haukur Morthens
hélt upp á 35 ára söngafmæli sitt, en
sigurvegarar urðu þau Nina og Geiri,
eða öllu heldur Diddú og Bjöggi. En
svo fer með Ninu og Geira sem aðrar
dægurflugur, það sem söng stöðugt i
eyrum landsmanna i upphafi árs heyrist
varla í árslok.
Sverrir Hermannsson forseti neðri
deildar Alþingis greip í tómt þegar
hann hugðist setja fund í deildinni.
Bjalla neðri deildar og sameinaðs þings
var horfin. Einhverjir óprúttnir höfðu
brotizt inn í Alþingishúsið og haft á
braut bjölluna. Bjalla þessi fannst ekki
lengi vel. En hér er komið að öðrum
kafla í hinum sérkennilegu stuldum,
sem DB upplýsti að nokkru. Hringt var
til blaðsins og sagt að bjallan væri á
styttu Jónasar Hallgrímssonar í Hljóm-
skálagarðinum. Það reyndist rétt vera
og tóku þingmenn þágleði sína á ný.
INNLENDUR ANNÁLL'