Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
19
INNLENDUR ANNÁLL ’
Sumarið var sólríkt, sérstaklega sunnanlands. Það var þvi engin ástæða til þess að
fela of mikið af likamanum i sólinni. Í heild var veðurfar ársins nokkuð gott, ef frá eru
skilin nokkur hret.
September
Smyglvarningur fyrir 30 milljónir
króna fannst í Hofsjökli. Áfengissala
á Bolungarvík og Flateyri kom upp um
smyglið. Alls játuðu 11 af 23 skip-
verjum að eiga smyglið.
Fjör færðist í útvarpsmessu þegar
dynjandi popptónlist yfirgnæfði guðs-
orðið skyndilega. Ekki var þetta þó
með vilja gjört, heldur hafði gleymzt
að slökkva á stúdíói 1, þar sem poppið
var. Messan hélt áfram eftir stutt hlé.
Risaterta
Dagblaðsins
Allar pútur á Suðurnesjum voru
fengnar á sérsamning er DB lét baka
tertu fyrir 6000 manns í tilefni 5 ára af-
mælis blaðsins. Tertan var skorin á
heimilissýningunni í Laugardal og
gestum gefið að smakka. í tertuna fóru
150 kg af eggjum, enda var tertan um 7
fermetrar á fjórum hæðum.
Silfursjóður stór fannst við bæinn
Miðhús í Egilsstaðahreppi. Silfrið vó
700 g og var til forna metið á tíu kýr-
verð.
Dagbiaðið færði lesendum sínum
afmælisgjöf er það var stækkað um
fjórar siður daglega í tilefni fimm ára
afmælisins. Lesendur fá því meira fyrir
peninga sína og aukna þjónustu.
Flugleiðir sendu frá sér efnahags-
skýrslu og taldi Ólafur Ragnar Gríms-
son skýrsluna falskt og ómerkilegt
auglýsingaplagg. „Raunsætt efnahags-
uppgjör myndi að mínu mati sýna að
fyrirtækið er „fallitt”,” sagði Ólafur.
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða svaraði og sagði að hér væri
um pólitískar ofsóknir að ræða gegn
Flugleiðum. Óiafur Ragnar hefði
hundelt fyrirtækið í tvö ár.
Gervasoni
Landflótta Frakki, Patrick Gerva-
soni, bað um hæli hér sem pólitískur
flóttamaður. Hann hafði neitað að
gegna herþjónustu í Frakklandi og kom
inn í landið á fölsuðum skilríkjum.
Patrick Gervasoni er enn í landinu, en
fer jafnvel utan í dag eftir endurtekna
fresti á hérvist. Gervasonimáliö hefur
vakið miklar deilur meðal landsmanna
eins og lesendadálkar DB hafa borið
með sér.
Kaupfélagið í Varmahlið i Skagafirði
stórskemmdist í eldi. Brann alit sem
brunnið gat í húsinu og er tjónið metið
á 300 milljónir króna.
Steingrimur Hermannsson sam-
gönguráðherra fór til Luxemborgar til
viðræðna við þarlend yfirvöld vegna
Flugleiðamálsins. Samtímis fóru Flug-
leiðatopparnir Sigurður Helgason og
örn Ó. Johnson til Luxemborgar.
Þaðan fréttist aftur á móti að British
Airways vildi yfirtaka Luxemborgar-
flug Flugleiða. Þegar upp var staðið
taldi samgönguráðherra vanda Flug-
leiða mun meiri en menn hefðu gert sér
grein fyrir.
Grindvíkingar rifust enn um skóla-
mál. Foreldrar tóku börn sín úr timum
eins kennarans og taldi kennarinn,
Ragnar Ágústsson, sig verða fyrir barð-
inu á sama valdahópnum og Friðbjörn
Gunnlaugsson og Hjálmar Árnason á
sínum tíma. Þeir voru skólastjórar en
hröktust frá Grindavík vegna deilna.
En fleiri áttust við í Grindavík en
skólamenn. Svínabóndi þar í bæ hugð-
ist hefna íkveikju í svínaskúr sínum og
tók hann sig því til og henti rottu
framan í heilbrigðisfulltrúa bæjarins,
þannig að á honum sá. Svínabóndinn
er bróðir kennarans sem foreldrar
kröfðust að viki úr starfi. Það er því
víst að fiskur er undir steini í Grinda-
vík.
Borgarstjórn Reykjavíkur úthlufaði
Kattavinafélaginu lóð, en það varð til
þess að Þrastavinafélagið mótmælti
úthlutuninni fyrir jafnblóðþyrst dýr og
kettir eru.
Það var sungið og dansað í óbyggð-
unum er veðurathugunarmenn á
Hveravöllum gengu í það heilaga. Rúta
flutti prest og gesti á staðinn og fór
brúðkaupið vel fram.
Þrír ungir menn fórust í flugslysi er
flugvél Flugfélags Austurlands fórst í
Smjörfjöllum. Vélin flaug inn í þver-
hníptan klettavegginn og gekk mjög
erfiðlega að komst að flakinu.
Stjórnin nýtur stuðnings rúmlega 60
af hundraði kjósenda, að þvi er
skoðanakönnun DB sýndi. Fram kom
að fylgi ríkisstjórnarinnar hefur mikið
minnkað síðan í febrúar.
Þýzkur ofurhugi kom hingað til
lands á nokkuð sérstakan hátt. Hann
stóð ofan á flugvéi og vildi með þessum
ferðamáta setja heimsmet. Það tókst er
maðurinn náði eftir nokkra töf til
Bandarikjannaá þennan hátt.
Jóhannes Hiimisson sigraði í Hæfi-
leikakeppni DB og Birgis Gunnlaugs-
sonar. Jóhannes fiutti gamanvísur
sem dugðu honum til sigurs.
Október
Samkvæmt skoðanakönnun DB
hefur Sjálfstæðisfiokkurinn bætt
miklu fylgi við sig frá því í síðustu þing-
kosningum. Alþýðubandalagið stæði
nokkuð í stað, en Framsóknarflokkur
og Alþýðuflokkur töpuðu miklu.
Ný fullkomin þyrla, TF-Rán, bættist
í fiugfiota Landhelgisgæzlunnar. Sá
floti átti eftir að breytast nokkuð á
árinu, því minni' þyrla gæzlunnar
hrapaði og eyðilagðist og eldri Fokker-
vélin var seld Flugleiðum. Mannbjörg
varð er þyrlan hrapaði.
íslenzk hjón, Sólveig Þórhailsdóttir
og Gunnar Jóakimsson, lentu í
óskemmtilegri reynslu í flugvél milli
New York og Florida. Sessunautur
þeirra reyndist vera flugræningi og
sneri hann vélinni til Kúbu. Allt endaði
þó vel og þau komust til sinna heima.
Rannsókn beindist að 5—6 starfs-
mönnum Fríhafnarinnar á Keflavíkur-
flugvelli. Þeir voru grunaðir um að
hafa staðið að smygli út úr fríhöfninni
mánuðum saman.
Dagblaðið birti enn skoðanakönnun,
þar sem fram kom að sjálfstæðismenn
tækju Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra fram yfir Geir Hallgrímsson
formann Sjálfstæðisfiokksins. 63.3%
studdu Gunnar en 36.7% Geir.
Stórtjón varð á athafnasvæði Snar-
fara í Elliðaárvogi í miklu roki. Bátar
brotnuðu og 12 tonna snekkja sökk á
læginu. Ef eitthvað er að veðri eru bát-
arnir í stórhættu þarna.
Stjórnarandstæðingar í Sjálfstæðis-
flokknum eru í naumum meirihluta
samkvæmt skoðanakönnun DB.
Fylgjandi stjórninni eru tæp 46% en á
mótirúm54%.
Fjölmennur hluthafafundur Flug-
leiða hf. samþykkti að halda áfram N-
Atlantshafsflugi, með fyrirvara um
jákvæð svör ríkisstjórnarinnar um að-
stoð.
Yfir 63% landsmanna vilja hafa her-
inn hér á landi, samkvæmt skoðana-
könnun DB.
Nýkjörinn forseti, Vigdís Finnboga-
dóttir, setti Alþingi. Það bar helzt til
tíðinda á upphafsdögum þingsins að
sjáifstæðismenn náðu samstöðu um
nefndakjörá Alþingi.
Hagkaup sótti um bóksöluleyfi, en
Félag íslenzkra bókaútgefenda neitaði.
Málið var kært til samkeppnisnefndar
og stóð í löngu þrefi, unz Hagkaup
byrjaði að selja bækur nokkru fyrir jól.
Fór svo að lokum að bókaútgefendur
bökkuðu, enda taldi samkeppnisnefnd
framferöi þeirra ólðglegt.
Sundasamtökin börðust gegn bygg-
ingu stórhýsis SlS inn við sund og
fengu því framgengt að borgin út-
hlutaði SfS lóð í nýja miðbænum.
Enn gos við
Kröflu
Og enn gaus við Leirhnjúk.
Umbrotahrinan fyrir gos var með þeim
allra minnstu. Gosið var svipað júlí-
gosinu, ákaft í byrjun en síðan dró úr
þvi. Um tíma óttuðust menn kviku-
hlaup til suðurs, en þá voru mann-
virki í hættu. Af því varð þó ekki.
Væringar nokkrar urðu með topp-
krötum. Kjartan Jóhannsson varafor-
maður Alþýðufiokksins bauð sig fram
á móti Benedikt Gröndal formanni.
Rétt fyrir flokksþing Alþýðuflokksins
lýsd Benedikt þvi yfir að hann drægi
sig í hlé. Kjartan var því einn í fram-
boði og var kosinn formaður Alþýðu-
flokksins. Átökin um varaformennsk-
una héldu hins vegar áfram og kepptu
þar aðallega Magnús Magnússon og
Vilmundur Gylfason. „Gamli stæll-
inn” vann að mati Vilmundar þvi
Magnús var kosinn varaformaður.
Jón Sólnes splæsti í Guðbrandsbiblíu
á litlar 12 milljónir króna á uppboði og
lét sig lítið um muna.
Tveir rallkappar voru teknir fyrir of
hraðan akstur. Mældist hraði þeirra
131 km á klukkustund. Rallararnir
komu þó með frumlega skýringu á
hraðanum. Jú, flugvél hafði komið inn
í radargeislann. Þeir gengu út með
ökuleyfin, en botn er ekki kominn í
málið.
Samningar tókust milli ASÍ og VSÍ
eftir langt þóf. Kauphækkun lægstu
taxta nam 11% og auk þess var félags-
málapakkinn opnaður.
Nóvember
Gjöf aldarinnar eða allra alda sögðu
menn þegar erfðaskrá hjónanna Sigur-
liða Kristjánssonar (Silla) og Helgu
Jónsdóttur var opinberuð.Gjöfin var á
fjórða milljarð krónaog rann til Borg-
arleikhúss, íslenzkrar óperu, Listasafns
ríkisins og styrktar stúdentum.
Friðrik Ólafsson stórmeistari og for-
seti FIDE gerði sér lítið fyrir á stór-
meistaraskákmótinu í Buenos Aires og
sigraði heimsmeistarann í skák.
Anatolí Karpov gafst upp eftir 40 leiki.
Bandariskur sjóliði gekk berserks-
gang á Keflavíkurvelli. Hann stakk
konu sína og tvo sjóliða með hnífi í
afbrýðiskasti.
Bakarar töldu nýjar mjólkurum-
búðir koma illa við sig, en á þeim var
látið að því liggja að franskbrauð og
snúðar væru óhollir. Umbúðirnar
entust þó stutt, þannig að málið er úr
sögunni.
Lýsi og mjöl fóru langt með að kæfa
Hafnfirðinga. Verksmiðjan puðraði
mjöli yfir næsta nágrenni og auk þess
var fýlan menn lifandi að drepa. „Ekki
hægt að bjóða bæjarbúum upp á
þetta,” sagði heilbrigðisfulltrúinn.
Eftir bæjarstjórnarfundi var loks sam-
þykkt að verksmiðjan fengi að starfa
áfram með skilyrðum.
Prentarar fóru í verkfall og stoppuðu
blöðin um stund og seinkuðu útkomu
bóka. Þá fór verkalýðsfélagið Rangæ-
ingur í verkfall og stöðvaðist við það
öll vinna við Hrauneyjafossvirkjun.
Landsfundur Alþýðubandalagsins
var haldinn og Svavar Gestsson kosinn
formaður án mótframboðs. Kjartan
Ólafsson var kosinn varaformaður eftir
mótframboð Erlings Viggóssonar.
Tveir menn fórust á Öxarfirði með
rækjubátnum Trausta frá Kópaskeri.
Veður var mjög slæmt.
Háskólaforsetar ASÍ
Sögulegt þing Alþýðusambandsins
var haldið í lok nóvember. Þar gerðist
það að tveir háskólamenn voru kosnir
forsetar ASÍ og báðir úr Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur. Slíkt hefur
ekki gerzt áður. Ásmundur Stefánsson
var kosinn forseti og sigraði hann
Karvel Pálmason og Guðmund
Sæmundsson með umtalsverðum yfir-
burðum. Björn Þórhallsson var kosinn
varaforseti og sigraði hann Jón Helga-
son með yfirburðum. Þinghald var allt
í skugga plotta og þreifinga vegna for-
setakjörs og voru margir kallaðir en
fáir útvaldir.
Desember
Stuðningsmenn Frakkans Gervasoni
settust að í dómsmálaráðuneytinu og
vildu ekki út fyrr en svör fengjust um
afdrif Gervasonis. Lögeglan hafðist
ekki að og þar kom að setuliðið varð
þreytt á setunni og yfirgaf.ráðuneytið.
Aftakaveður gekk yfir Austfirði og
urðu miklar skemmdir víða. Lögreglu-
stöðin á Seyðisfirði hvarf, raflínur
slitnuðu, plötur fuku, rúður brotnuðu
og bátar sukku í höfnum.
Spurning vaknaði um það hvort sam-
trygging váeri meðal lækna í ölvunar-
akstri. Lögreglu var neitað um blóð-
sýni meints lögbrjóts, læknis sem hafði
verið tekinn grunaður um ölvun við
akstur. Borgarlæknir var kvaddur á
staðinn en vildi ekki taka fram fyrir
hendur á vakthafandi lækni.
Banka-
verkfall
Tvö þúsund og þrjú hundruð banka-
menn fóru í fyrsta sinn í verkfall og
lamaðist öll starfsemi peningastofnana
í landinu. Verkfallið stóð í fjóra daga,
þannig að það hafði ekki veruleg áhrif
á þjóðlífið. Hefði það staðið lengur
óttuðust menn vöruskort og ýmis
vandræði.
Það upplýstist á framhaldsaðalfundi
Oliumalar hf., að tveir stjórnarfor-
menn, núverandi og fyrrverandi, höfðu
gengið persónulega i ábyrgð fyrir fyrir-
tækið upp á rúmlega 100 milljónir
króna. Heildarskuldir Oliumalar hf.
nema nú 2.6 milljörðum króna.
Lögreglumaður sem starfaði í afleys-
ingum á Sauðárkróki var í fyrra sak-
aður um gróft fikniefnabrot. Þrátt
fyrir svo alvarlegar ásakanir var
maðurinn ráðinn til lögregluþjóns-
starfa í sumar hjá föður sínum,
sýslumanninum á Sauðárkróki. Ráðu-
neytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu lét
hafa eftir sér að slík ráðstþfun væri
hæpin. Ráðuneytið fór síðan fram á
það að maðurinn léti þegar í stað af
störfum.
Hefur Alusuisse komið 5 milljörðum
kr. undan skatti hérlendis? Standist töl-
ur sem iðnaðarráðuneytið gaf upp, þá
er sú raunin. Iðnaðarráðherra greindi
frá því að innfiutningsverð álverk-
smiðjunnar á súráli sé miklu hærra en
útflutningsverð á þessu súráli frá
Ástralíu. Ragnar Halldórsson, for-
stjóri ísal taldi hins vegar að á bak við
fullyrðingar ráðherrans væri pólitisk
barátta.
Þungar ásakanir komu fram á Al-
ingi. Þar var rætt um fyrirhuguð
togarakaup til Þórshafnar og sagt að
þau væru mesta fjármálahneyksli síð-
ari ára. Áhætta eigenda skipsins væri
engin og fyrirséö væri 500 milljóna kr.
tap á fyrsta ári. Hér væri um að ræða
fé sem aldrei fengist aftur.
Steingrimur Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra ákvað að fara að ráðum
fiskifræðinga og er miðað við að
þorskafii næsta árs miðist við 400
þúsund lestir.
Slæmt veöur setti svip sinn á jóla-
hátlðina víða um land. Tveir ungir pilt-
ar urðu úti rétt við Akureyri, en þrír
komust lerkaðir til byggða. -JH.
Dagblaðið varð fimm ára I september og fagnaði þvi að sjálfsögðu vel. 1 tilefni afmælisins var bökuð risastór terta, sem mett-
aði á sjöunda þúsund manns i Laugardalshöll. Myndin var tekin af starfsfólki DB i sýningarbás blaðsins f Höllinni.
DB-mynd tmynd, Guðmundur Ingólfsson.