Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 22

Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 22
ERLENDUR ANNALL ’ DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 Janúar Jarðskjálftar hafa sett mikinn svip á árið sem er að líða og valdið ómældum hörmungum víða um heim. Fyrsti meiriháttar skjálftinn kom þegar fyrsta dag ársins og leiddi til dauða fimmtíu manna á Azoreyjum. Sami fjöldi lézt á áramótahátíð í Kanada. íhlutun Sovétmanna í Afganistan var mjög til umfjöllunar hjá Sameinuðu þjóðunum í upphafi árs og var tekin tii umræðu i öryggisráðinu 6. janúar þar sem Sovétmenn beittu enn einu sinni neitunarvaldi. Erfiðleikar í flug- rekstri IATA spáði erfiðleikum í flugrekstri á árinu 1980. Sú spá hefur sannarlega rætzt og er okkur íslendingum það einkum ljóst af taprekstri Flugleiða. Mörg af stærstu flugfélögum heimsins hafa sýnt taprekstur á árinu. í E1 Salvador féllu þrjátíu bændur í átökum við stjórnarhermenn og þetta litla Mið-Arfteríkuríki átti eftir að verða meira i fréttum síðar á árinu og ætíð var tilefnið sama; morð og aftur morð. Á Indlandi vann Indira Gandhi óvæntan stórsigur i þingkosningum og hlaut flokkur hennar nærri tvo þriöju hluta greiddra atkvæða. Bíræfnir bankaræningjar í Dan- mörku höfðu hvorki meira né minna en 55 milljónir upp úr krafsinu er þeir létu til skarar skriða i einum banka lands- ins. 52 ára gamall Las Vegas búi hafði ekki jafnmikla ástæðu til að gleðjast er hann var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir kynsvall. Dauðastríð Títós hefst Tító Júgóslavíuforseti var sagður á batavegi hinn 14. janúar eftir að hafa verið skorinn upp við blóðtappa í fæti. Heimsbyggðin fékk síðan ýtarlegar og nær daglegar fréttir af dauðastríði þessarar 87 ára gömlu kempu. Um likt leyti bárust fréttir af því að krabbi af sígarettureykingum væri orðinn svo algengur að hann nálgaðist farsótt. Um miðjan janúarmánuð biðu Sovétríkin einn sinn stærsta ósigur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna fram að þvi er tillaga um brottflutning herliðs þeirra frá Afganistan var sam- þykkt með 104 atkvæðum gegn 18. McCartney handtek- inn í Tokyo Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney var handtekinn í Tokyo þar sem marij- uana fannst i fórum hans og íranskeis- ari, Reza Pahlavi sakaði andstæöinga sína um aö kunna ekki að telja er þeir héldu því frani að hann hefði látið myrða hundrað þúsund manns í stjórnartíð sinni. Forkosningar fyrir forsetakosning- arnar fóru fram i flokki demókrata I Iowa og þar gjörsigraði Carter forseti andstæðinga sina þá Kennedy og Browne. Var sigurinn forsmekkur af því sem á eftir fór. Er sigurinn var i höfn bauð Carter trönum samvinnu um varnarmál ef þeir skiluöu banda- rísku gislunum úr sendiráðinu í Teher- an. Þessi yfírlýsing Carters er dæmi um stöðugar tilraunir Bandarikjastjómar til að ná gíslunum úr haldi en allt hefur komið fyrir ekki. Átta manns létu lifið er brú hrundi i Svíþjóð og á sama tíma bárust enn á ný fréttir af morðum í E1 Salvador. Bölbænir íbúa Afganistan { frétt i Dagblaðinu 24. janúar sagði: „íbúar Afganistan þylja bölbænir um Sovétmenn uppi á þaki.” Fréttin er ef til vill dæmigerð fyrir þann ójafna leik sem fram hefur farið í Afganistan milli sovézkra vígvéla og illa vopnaðra bænda. Chryslerfyrirtækið ákvað að gefa hverjum þeim aðila sem keypti bifreið frá fyrirtækinu 50 dollara og er það til marks um þá miklu örvæntingu sem hlaupin er Lbifreiðaframleiðendur. Öll stærstu bifreiðaframleiðslufyrirtæki Bandaríkjanna eru enda talin munu skila tapi á árinu og ekkert þó eins og Chrysler. í lok janúarmánaðar var lesendum DB flutt það heilræði á erlendu frétta- síðunum að til þess að eignast svein- börn skyldu menn éta skelfisk. Eftir er að sjá hvort heilræði þetta muni hafa áhrif áskiptingu kynja hér á landi. Febrúar Skæruliðar í Guatemala, er hertekið höfðu sendiráð Spánar, sprengdu það í loft upp með þeim afleiðingum að 35 manns féllu. Aðeins sendiherrann komst lífs af. Þær fréttir sem bárust úr þessum heimshluta voru yfirleitt mjög á þessa leið. Amnesty International hafði til dæmis það að segja um stjórnarhermenn í Argentinu að þeir myrtu og rændu þúsundum vinstri sinna. Kóka Kóla íbann Fangar í Santa Fe fangelsinu í Nýju- Mexíkó gerðu uppreisn og var aðkom- an hörmuleg er lögreglan réðst til inn- göngu. Fangarnir höfðu barizt inn- byrðis og höfðu þrjátíu þeirra fallið. Sumir höfðu verið hálshöggnir með skóflum. Guatemala var enn á ný í fréttum og nú vegna banns sem verkalýðsfélög vildu setja á sölu Kóka Kóla vegna mannréttindabrota í Kóka Kóla-verk- smiðjunni í landinu. Fjöldamorð voru framin á tvö þús- und borgurum í Kabúl, höfuðborg Afganistan, undir leiðsögn sovézkra Friðarbiskupinn myrtur við altarið Friðarbiskupinn Oscar Arnalto Romero í E1 Salvador var skotinn til bana við altarið i kirkju sinni og segir það meira en mörg orð um ástandið í landinu. Þrjátíu manns féllu og hundr- að særðust við útför hans. Ekki var ástandið mikið betra í nágrannarikinu Guatemala. Þar voru tveir prófessorar og þrír stúdentar myrtír um líkt leyti. Lýst var yfir þjóðarsorg í Noregi er undirstaða á olíuborpalUnum Alex- ander Kielland gaf sig með þeim afleið- ingum að 123 létu lifið. Þar á meðal var einn fslendingur. Misheppnuð björg- un gíslanna Bandaríkjamenn gerðu óvænt og öll- um á óvart tilraun til að bjarga gíslun- um úr sendiráðsbyggingunni í Teheran. Leiðangurinn sem farinn var í þessum tilgangi fékk skjótan endi, er þyrla og flugvél rákust saman með þeim afleiðingum að átta leiðangursmanna fórust. Cyrus Vance, utanríkisráðherra Bandarikjanna, sagði af sér vegna þessa máls enda haföi hann staðið gegn þvi að i leiðangur þennan yrði ráðizt. tranar þóttu setja nýtt met í siðleysi er þeir höfðu lik bandarisku fiugmann- anna til sýnis á opinberum vettvangi. Mikiir og mannskæðir jarðskjálftar hafa sett mjög svip sinn á árið sem er að Ifða. Myndin er tekin i bænum Balvano á Suður-ltaliu, sem jafnaðist við jörðu i jarðskjálfta og stór hluti íbúanna lét lifið. Háværar kröfur voru settar fram um aukið öryggi á oliuborpöllunum i Norðursjó eftir að oliuborpallurinn Alexander Kielland sökk. hernaðarráðgjafa. Bandaríkjastjórn ákvað að hætta við efnahagsþvinganir gegn íran ef það mætti verða til þess að greiða fyrir lausn gíslamálsins. Flugfélagið SAS ákvað að draga saman seglin á Atlantshafsflugleið- inni en engu að síður mun hafa orðið umtalsvert tap á rekstri fyrirtækisins í ár. Carter sigraði Kennedy i forkosning- unum í Maine og notaði tækifærið til að boða lausn gisladeilunnar. Ennþá á sú lausn eftir að sjá dagsins ljós. Mikil flóð urðu í Kaliforníu þar sem 400 hús eyðilögðust og tuttugu manns drukknuðu. Á sama tíma urðu mikil flóð í íran þar sem hundruð manna fórust. , Pierre Trudeau vann mikinn sigur1 í þingkosningum í Kanada og varð for- sætisráðherra á nýjan leik. E1 Salvador rambaði á barmi borgarastyrjaldar og Oscar Arnalto Romero erkibiskup sagði að hægri bylting væri yfirvofandi. Marz Marxistinn og fyrrum skæruliða- foringinn Robert Mugabe vann mikinn sigur í þingkosningum í Zimbabwe. Kennedy sigraði með mikium yfirburð- um i forkosningum í heimariki sínu Massachusetts. Sá sigur dugði þó skammt. Reagan vann stórsigur í S- Kaliforníu og keppinautur hans John Conally dró sig i hlé. Afganistanmálið olli fiskiskorti í Sovétríkjunum þar sem Bandaríkja- menn meinuðu Sovétmönnum fisk- veiðar við strendur N-Ameríku vegna íhlutunar þeirra í Afganistan. Ástandið í E1 Salvador fór stöðugt versnandi og vinstri menn lýstu yfir hernaðarástandi i landinu. „Kærastan kemst en kærastinn ekki”, sagði í frétt DB 11. marz og var þar greint frá mikilli gagnrýni á ný inn- flytjendalög Thatcher í Bretlandi þar sem mismunað var eftir kynjum. Það þótti fréttnæmt að sovézki skák- maðurinn Tigran Petrosjan ávarpaði fyrrum landa sinn, útlagann Viktor Kortsnoj, við skákborðið. Kortsnoj sigraði í þessu „einvígi hatursins” eins og það var nefnt og ruddi þar með úr veginum mikilvægri hindrun á leiðinni að heimsmeistaratitli í skák. Carter og Reagan unnu stórsigra í forkosningum í Flórída, Alabama og Georgíu og var þá orðið nokkuð ljóst að þeir hlytu útnefningu fiokka sinna. Hjúkrunarfólkið veðjaði um dauða- stund sjúklinganna Borgin Las Vegas er sem kunnugt er þekktust fyrir spilaviti og fjárhættu- spil. Mönnum þótti þó fulllangt gengið er fréttist að hjúkrunarfólk í sjúkrahúsi einu I borginni hefði veðjað um dauða- stund sjúklinganna. Ekki þótti heldur til fyrirmyndar er fréttíst frá Panama að þar hefði orðið að fresta uppskurði á transkeisara fyrrverandi vegna deilna milli læknanna. Olíuforstjóri einn var handtekinn með marijuana í Noregi og er það kannski dæmigert fyrir þann fíkniefna- vanda sem Norðurlöndin standa nú frammi fyrir. Atvinnuleysi jókst stöðugt í Bret- landi og fylgið hrundi af Margaret Thatcher forsætisráðherra landsins. Aprfl Þær fréttir bárust frá Havana á Kúbu í upphafi mánaðarins að þar héngi fólk í trjám inni á lóð sendiráðs Perú. Alls söfnuðust tíu þúsund manns inn á lóðina eftir að lögreglumenn hættu gæzlu við sendiráðið. Krafðist fólkið þess að komast úr landi. Banda- ríkjamenn ákváðu fijótlega að veita hluta þessa fólks landvistarleyfi. Carter Bandaríkjaforseti sleit stjórn- málasambandi við -íran og setti viðskiptabann á landið vegna gísla- málsins. Sambúð írans og íraks fór hríðversnandi og skærur hófust á landamærum þjóðanna. Glœpum fækkaði í verkfallinu Strætisvagna- og jámbrautastjórar fóm í verkfall í New York og brá þá svo við að glæpum i borginni fækkaði mjög, hvort heldur það vom nauðg- anir, bankarán eða líkamsárásir. „Burt með hrakmennin, lifi félagi Castro”, hrópuðu fiugvallarstarfs- menn í Havana að löndum sínum sem fóru úr landi sem flóttamenn á leið til Costa Rica. Miklir erfiðleikar sköpuð- ust samfara flótta fólksins frá Kúbu og hundruð fióttamanna drukknuðu á sundinu milli Kúbu og Flórída. Lýst var y fir neyðarástandi á Kúbu. íbúar í Salisbury, höfuðborgar hins nýja ríkis Zimbabwe, dönsuðu á göt- um úti til að fagna sjálfstæði landsins. Titó Júgóslavíuforseti var enn í'tölu lifenda þegar hér var komið sögu en var sagður orðinn lítið annað en líffæra- safn. Frímerki var slegið á 374 milljónir isl. króna í New York og hafði slik upp- hæð ekki áður verið greidd fyrir frí- merki. John Anderson ákvað að bjóða sig fram til forseta utan flokka í Banda- ríkjunum. Fyrstu skoðanakannanir spáðu honum 18 prósent fylgi. ■t*

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.