Dagblaðið - 30.12.1980, Side 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
Nýnasistar og Ku Klux Klan menn í
Bandaríkjunum héldu fæðingardag
Hitlers 20. apríl hátiðlegan með pomp
og prakt. Hægrisinnaðar öfgahreyf-
ingar í Bandaríkjunum létu að sér
kveða í auknum mæli í Bandarikjun-
um á árinu.
Maí
Til óeirða kom í Kaupmannahöfn er
borgaryfirvöld hugðust láta reisa há-
hýsi á auðum lóðum í Nörrebrohverfi
þar sem íbúarnir höfðu gert barnaleik-
velli. íbúarnir urðu að láta sinn hlut og
var leikvöllurinn ruddur en harkaleg
framgangá lögreglunnar gagnvart
íbúunum vakti mikla athygli.
Um milljón Svíar úr röðum
opinberra starfsmanna fóru í verkfall
og lögðust samgöngur í landinu að
mestu niður í eina viku, en þá tókust
samningar og var samið um 6,8 prósent
launahækkun.
Tító fellur
í valinn
Loks 4. mai lézt hinn tæplega 88 ára
gamli Júgóslavíuforseti, Tító. Þjóðar-
sorg ríkti í landinu við fráfall hans enda
hafði hann ríkt í 35 ár samfleytt. Tító
hafði staðið uppi í hárinu á Stalín á sin-
um tíma og allar götur síðan hafa
Júgóslavar verið langsjálfstæðastir af
þjóðum Austur-Evrópu. Óttuðust
menn mjög, að Sovétmenn myndu nota
tækifærið og reyna að auka áhrif sín á
stjórn og stefnu landsins. Enn sem
komið er að minnsta kosti sjást þess
ekki mikil merki. Níu manna fórsætis-
ráð tók við völdum Titó.
Skyndikonur í
stað f lóttamanna
Flóttamannastraumurinn frá Kúbu
hélt áfram að valda vandræðum í
Bandarikjunum og íhuguðu Banda-
ríkjamenn að koma á loftbrú milli
landanna til að koma í veg fyrir, að
neyðarástand skapaðist á sundinu milli
Kúbu og Flórída. Kúbumenn notuðu
tækifærið til að losa sig við ýmsa
óæskilega aðila í þeirri ringulreið, sem
skapaðist í kringum flóttamanna-
strauminn og meðai annars kom fullur
skipsfarmur af vændiskonum til
Flórída. Höfðu kúbanskir hermenn
neytt skipverja til að taka skyndi-
konurnar með er þeir komu til að
sækja fólk, sem greitt hafði verið fyrir
frá Bandaríkjunum.
Flórída var áfram i sviðsljósinu er
sextán manns féllu í óeirðum, sem
brutust þar út og a.mk. 200 særðust.
Óeirðirnar brutust út vegna sýknunar
hvítra lögregluþjóna, sem sakaðir voru
um að hafa barið svertingja til bana
með kylfum sínum. Svipaðar dóms-
niðurstöður ollu aftur óeirðum síðar á
árinu í Bandaríkjunum.
Mikið sprengigos varð í eldfjallinu St.
Helenu í Washingtonfylki í Banda-
ríkjunum. Nokkrir tugir manna fórust í
gosinu, sem var á við tíu megatonna
vetnissprengju.
Lesbíur tœkar
í herinn
Dómari í Wisconsin í Banda-
ríkjunum úrskurðaði, að ekki væri
hægt að reka kvenhermenn úr Banda-
ríkjaher á þeim forsendum, að þeir
væru lesbíur.
Frá Jamaica bárust þau
óhugnanlegu tiðindi, að þar hefðu 150
gamalmenni farizt I eldsvoða er kveikt
var í elliheimili því er þau dvöldu á.
Auknar rannsóknir á botni Norður-
sjávar sýndu að Danir geta vænzt þess
að fá þaðan allt að fjörutíu prósent af
þeirri olíu, sem þeir þurfa á að halda á
næstu árum. Síðar á árinu hækkaði
þessi tala upp í fimmtíu prósent.
Afganskir skæruliðar hafa barizt hetjulegri baráttu gegn sovézkum innrásarherjum
allt slðastliðið ár og gert þeim margar skráveifur þrátt fyrir ófullkominn búnað.
Bandaríkjanna í sumar og í Texas þar
sem hitinn var lengi rúmlega 40 stig á
Celcius létust nærri 200 manns af
völdum hitans. Alvarlegur og áður
óþekktur sjúkdómur herjaði á fæðing-
arheimili í Portúgal og létust þar 25
nýfædd börri á skömmum tíma.
Fjórtán flóttamenn frá EI Salvador
er reyndu að komazt á ólöglegan hátt
inn í Bandarikin létu lífið i Arizona-
eyðimörkinni. Þrettán félagar þeirra er
komust lífs af voru sendir til baka til
sinna fyrri heimkynna.
Einn bandarísku gíslanna í Teheran
var látinn laus þar sem hann þjáðist af
andlegum sjúkdómi.
Ronald Reagan valdi keppinaut sinn
George Bush sem varaforsetaefni eftir
að Ford fyrrum forseti hafði neitað að
gefa kost á sér.
Kynþáttaóeirðir blossuðu upp á
nýjan leik á Flórida og slösuðust tugir
manna.
Herinn tók öll völd í Bólivíu og
ekkert lát varð á manndrápum í E1
Salvador. Um miðjan mánuðinn sagði
lögreglan í San Salvador, höfuðborg
landsins, að 45 manns hefðu verið
myrtiráeinum sólarhring.
26. maí ákvað Bush að hætta bar-
áttu fyrir því að verða útnefndur for-
setaframbjóðandi Repúblikana-
flokksins og var þá endanlega orðið
ljóst, að enginn mundi ógna sigri
Ronalds Reagan. Edward Kennedy var
hins vegar ekki á þvi að leggja árar i bát
í baráttu sinni við Carter forseta í
flokki demókrata og skoraði á Carter
að mæta sér í kappræðum. Carter varð
ekki við áskoruninni.
Miklar óeirðir urðu bæði í S-Kóreu
og S-Afríku í lok mánaðarins og náðu
uppreisnmmenn i S-Kóreu borginni
Kwangju á sitt vald um hríð.
Júní
Óeirðirnar í S-Afríku héldu áfram
og sprengdu skæruliðar upp mikla
olíutanka. Var 'sú aðgerð talin vera
liður i skipulagðri baráttu þeirra gegn
stjórn landsins.
í annað skiptið á fimm mánuðum
sýndu Indverjar Indiru Gandhi traust
sitt í kosningum, nú i fylkis-
kosningum, þar sem Kongress-
flokkurinn, flokkur Indiru Gandhi,
vann sigur í átta af níu fylkjum.
Kennedy vann sigur í Kaliforníu og
New Jersey en það var ekki talið breyta
neinu um það, að Carter'yrði útnefnd-
ur frambjóðandi Demókrataflokksins.
Tölvan boðaði
kjarnorkustyrjöld
Tölvuskekkja í varnarkerfi Banda-
ríkjahers boðaði að kjarnorkustyrjöld
væri skollin á. Orustuþotur voru send-
ar á loft og hættuástandi lýst yfir i
þrjár mínútur eða þar til skekkjan
uppgötvaðist.
Hundum, kylfum og táragasi var
beitt gegn mannfjölda, sem safnazt
hafði saman í Soweto i S-Afríku til að
minnast þess, að fjögur ár voru liðin
frá fjöldamorðunum í landinu þar sem
600 manns létu lífið. Afmælissamkoma
þessi kostaði 42 manns lifið.
Pólska stjórnin ákvað að hækka
verð á neyzluvörum vegna bágborins
efnahagsástands landsins. Sú ákvörðun
átti eftir að valda mikilli ólgu í landinu
og það sem eftir var ársins var Pólland
nær daglega í heimsfréttunum.
í skoðanakönnun Gallups um
miðjan mánuðinn var Reagan spáð
sigri yfir Carter i forsetakosningunum
með 40 prósentum gegn 36. Reagan
sagði, að aukinn vígbúnaður Banda-
rikjanna væri einaleiðin til að fá Sovét-
ríkin til raunverulegra afvopnunar-
samninga.
Kennari einn í Texas í Banda-
ríkjunum trylltist, réðst inn í kirkju og
skaut þar fjóra menn til bana og særði
tíu.
Mikil mótmælaalda gekk yfir Spán
eftir að verkalýðsleiðtogi einn var
dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að
gagnrýna konunginn.
Morðalda hefur gengið yfir Mið-Ameríkuríkið El Salvador og er talið að ekki færri
en níu þúsundir manna hafi fallið þar fvrir bvssukúlum á síðastliðnu ári.
Jóhannes Páll páfi annar hefur verið mjög á faraldsfæti á árinu. Myndin er tekin er hann kom i heimsókn til V-Þýzkalands,
en sú heimsókn er talin geta markað timamót i samskiptum lútersku og kaþólsku kirknanna.
Júlí
Kjarnorkuslys varð á Þriggja mílna
eyju í Pennsylvaníu. Á annað hundrað
manns, aðallega konur og börn, flúði
heimili sín vegna slyssins.
Fjórar milljónir manna fögnuðu
Jóhannesi Páli öðrum páfa, er hann
kom í heimsókn til Brasilíu. Páfi hvatti
kaþólsku kirkjuna í landinu til að berj-
ast ávallt gegn óréttlæti, fátækt og
harðstjórn. Jafnframt bannaði hann
biskupum afskipti af stjórnmálum.
Ýmsir kirkjunnar menn í S-Ameríku
hafa á árinu lýst því yfir, að ekki verði
hjá þvi komizt fyrir kirkjuna að taka
þátt í vopnaðri baráttu hinna snauðu
og kúguðu í þessum heimshluta.
Fyrsta kirkjan var vígð í Sovét-
rikjunum síðan 1917. Var hún ætluð
keppendum á ólympíuleikunum til
afnota. Fjölmargar þjóðir, þar á meðal
Bandaríkin og V-Þýzkaland, ákváðu
að taka ekki þátt í ólympíuleikunum i
Moskvu til þess að mótmæla hernaðar-
legri íhlutun Sovétmanna í Afganistan.
200 manns deyja
Íhitabylgju
Mikil hitabylgja gekk yfir miðríki
Grfurlegt
atvinnuleysi
í Bretlandi
Atvinnuleysi jókst stöðugt í
Bretlandi og þegar hér var komið sögu
voru 1,9 milljónir manna atvinnulausar
í landinu, eða 7,8 prósent vinnufærra
manna. Hefur atvinnuleysi í landinu
ekki verið jafnmikið síðan í kreppunni
fyrir síðari heimsstyrjöldina.
Billy bróðir Carters Bandaríkjafor-
seta olli bróður sínum miklum vand-
ræðum er fréttist að hann hefði tekið
að sér verkefni fyrir stjórn Líbýu og
þegið laun fyrir. Forsetinn lýsti því
yfir, að hann teldi slíkt ekki sæmandi
og þingið tók málið til rannsóknar. Var
málið kallað Billygate í fjölmiðlum þar
sem ýmsir vildu líkja því við Water-
gatehneykslið fræga, sem kostaði
Nixon forsetaembættið ásínum tima.
Hinn heimsþekkti kvikmyndaleikari
Peter Sellers lézt úr hjartabilun, 54 ára
að aldri og Reza Pahlavi fyrrum írans-
keisari lézt um svipað leyti eftir
langvarandi baráttu við krabbamein.
Tenniskappinn heimsþekkti Björn
Borg gekk að eiga rúmensku stúlkuna
Simionescu og voru þau gefin saman
tvívegis, bæði á borgaralega og
kirkjulega vísu.