Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 24
32
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
Athygli manna hefur beinzt mjög að Póllandi síðari hluta ársins og baráttu hinna sjálfstæðu verkalýðsfélaga fyrir auknum
réttindum verkafólks. Á myndinni er leiðtogi verkamanna, Lech Walesa, sem hiklaust má telja mann ársins. Meö honum á
myndinni er kaþólskur prestur en kaþólska kirkjan hefur komið mjög við sögu i þeirri þróun mála sem orðið hefur i Póllandi.
Ágúst
Mikil sprenging á aðaljárnbrauta-
stöðinni í Bologna.á ítaliu kostaði 76
manns lífið og fjölmargir særðust
alvarlega. Fyrstí stað lýstu fasistar því
yftr, að þeir þefðu staðið fyrir
sprengingunni en drógu þá yfirlýsingu
til baka, þegar ljóst var, hversu margir
höfðu farizt.
Edgar Tekere, atvinnumálaráðherra
naumlega við 80 vandarhögg sem hún
átti yfir höfði sér fyrir að veita áfenga
drykki í samkvæmi i Saudi-Arabíu þar
sem bæði kynin komu saman.
Konungur landsins náðaði hana og
mann hennar.
Verkföll breiðast
út í Póllandi
Verkföll breiddust út í Póllandi og
lögðu sextán þúsund verkamenn niður
vinnu í Lenínskipasmíðastöðinni í
Gdansk. Kröfðust þeir hærri launa,.
leiðinni að heimsmeistaratitli í skák.
Gierek rak hálfa stjórn sína og
lofaði frjálsum kosningum í verkalýðs-
félögunum til þess að freista þess að
binda enda á verkföllin í landinu. Jafn-
framt var símasambandi komið á að
nýju við Gdansk en það hafði verið
rofið til þess að einangra verkfalls-
menn. Jafnframt lýstu stjórnvöld því
yfir, að samkomulag hefði náðst um
launahækkanir og félagslegar
umbætur.
Járnbrautaslys voru mjög tíð í Sví-
þjóð á árinu og var skipuð nefnd til að
kanna orsakir þeirra og gera tillögur
um úrbætur.
rómversk-kaþólsku kirkjunnar verði
útvarpað.
Sovótmenn
áhyggjufullir
vegna þróunar
mála f Póllandi
Sovétmenn höfðu vaxandi áhyggjur
vegna þróunar mála i Póllandi og fór
Jagielski varaforsætisráðherra Pól-
Póllands til Moskvu að ræða ástandið
við ráðamenn þar. Skyndileg aðför var
gerð að tékkneskum andófsmönnum
og þótti mönnum hún sýna, að aðrar
A-Evrópuþjóðir væru staðráðnar í að
láta ókyrrðina í Póllandi ekki breiðast
út til annarra kommúnistalanda.
Stjórnvöld í Póllandi féllust á kröfur
verkfallsmanna um, að útvarpað yrði
messu á hverjum sunnudegi og var það
i fyrsta skipti í 36 ár, sem kaþólska
kirkjan í landinu fékk afnot af fjöl-
miðlum.
Skoðanakannanir i Bandaríkjunum
sýndu, að þar hefði Carter forseti tekið
forystuna í baráttunni gegn þeim
Reagan og Anderson um forseta-
embættið.
Anastasio Somoza, fyrrum
einræðisherra Nicaragua, var myrtur á
götuíParaguay.
ísraelsmenn náðu umtalsverðum
árangri í að rækta plöntur án jarðvegs
eða vatns.
Lýst var yfir heilögu stríði á milli
írans og íraks og Ronald Reagan
notaði tækifærið og sakaði Carter for-
seta um, að hann ætti með utanríkis-
stefnu sinni sök á þessari styrjöld.
Allur oliuflutningur frá löndunum
stöðvaðist og óttast menn, að ef
styrjöldin dregst mjög á langinn verði
enn á ný gífurlegar olíuverðhækkanir í
heiminum.
Lech Walesa, leiðtogi pólskra
verkamanna, hótaði allsherjarverkfalli
í landinu og varaði stjórnvöld við að
leggja stein í götu hinna sjálfstæðu
verkalýðsfélaga.
Október
Khomeini trúarleiðtogi írana
neitaði öllum sáttaboðum vegna
styrjaldar írans og íraks. írökum
vegnaði mun betur framan af í
styrjöldinni og voru herir þeirra
komnir langt inn í fran. Fimm olíuríki
með Saudi-Arabíu ákváðu að auka
olíuframleiðslu sína vegna styrjaldar
írans og Iraks.
Ríkisstjórn Helmut Schmidt í V-
Þýzkalandi hélt velli í þingkosningum.
Frjálsir demókratar, sem eiga aðild að
ríkisstjórninni, voru sigurvegarar
kosninganna og juku fylgi sitt úr 7,9
prósentum í 10,6 prósent. Kristilegir
demókratar töpuðu fylgi.
Nýnasistar á ferð
Nýnasistar sprengdu sprengju við
bænahús gyðinga i París og létu fjórir
gyðingari' llfið í sprengingunni.
Atburður þessi er dæmi um aukna at-
hafnasemi nýnasista og annarra öfga-
sinnaðra hægrihreyfinga bæði í Evrópu
September
„Sigur verkfallsmanna. Vinna hófst
í morgun.” Þannig sagði í frétt DB 1.
september um vinnudeiluna í Póllandi.
Stjórnvöld féllust á að greiða hærri
laun og bætt yrði úr skorti á kjöt-
vörum og öðrum matvælum. Þau voru
tregari til að fallast á kröfur verkfalls-
manna um frjáls og óháð verka-
lýðsfélög, verkfallsrétt og að ritskoðun
yrði aflétt. Að lokum var þó gengið að
þessum kröfum og þær samþykktar
formlega af kommúnistaflokki
landsins og ríkisstjórninni.
Walesa þjóflhetja
f Póllandi
tran hélt áfram að vera I fréttunum allt árið, sem nú er að liða. Hér er götumynd frá
Teheran.
Leiðtogi verkfallsmanna I Póllandi,
Lech Walesa, var skyndilega orðinn
þjóðhetja og nafn hans á hvers manns
vörum. Hlutur hans átti enn eftir að
aukast og verður tvímælalaust að telj-
astmaður ársins.
Fyrsti górilluapinn sem getinn er
með aðstoð tækninnar fæddist í dýra-
garðinum í Memphis í Tennessee og
verður hann að teljast fyrsti
glasagórilluapinn.
Bifreiðasala þriggja stærstu bif-
reiðaframleiðslufyrirtækja Banda-
ríkjanna minnkaði um 30 prósent á
fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama
tíma seldu Japanir 22 prósent allra bif-
reiða sem seldar voru i Bandarikjunum
á móti 9,3 prósent árið áður.
Stanislav Kania tók við embætti
pólska kommúnistaflokksins af
Edward Girek, sem dró sig í hlé vegna
hjartaveilu, Kania lét það verða sitt
fyrsta verk að vara við verkföllunum í
landinu. Enn voru verkföll í tiu
borgum landsins og var þar meðal
annars farið fram á kristinfræöi-
kennslu í skólum og að messum
Sovézkir herir hafa verið I viðbragðsstöðu á landamærum Póllands og hafa leiðtogar
á Vesturlöndum óttazt mjög að til innrásar þeirra kæmi i landið.
Helmut Schmidt hélt örugglega velli f þingkosningum i V-Þýzkalandi 8. október.
í stjórn Zimbabwe, átti þátt í morði á
hvítum bónda í landinu. Síðar á árinu
var Tekere sýknaður þrátt fyrir, að
hann hefði játað á sig verknaðinn og
sagzt stoltur af honum. Sýknunin var
byggð á lögum er sett voru til verndar
ráðherrum landsins þegar hvítir menn
réðu þar lögum og lofum. í E1 Salvador
voru um svipað leyti myrtir 28 bændur
er þeir neituðu samvinnu við vinstri
sinnaða skæruliöa.
Boeing 737 þotu, sem var í innan-
landsflugi í Bandaríkjunum, var rænt,
og flugmaðurinn neyddur til að fljúga
til Kúbu. Síðar kom í ljós, að flugvélar-
ræninginn hafði aðeins verið vopnaður
sápu.
Edward Kennedy hætti loks við for-
setaframboð sitt þegar sýnt var, að
Carter var öruggur um sigur á flokks-
þingi demókrata. Lýsti Kennedy yfir
stuðningi við Carter.
Brezk tveggja barna móðir slapp
lægra verðs á llfsnauösynjum og betri
vinnuskilyrða.
Um leið og verkföllin í Gdansk
breiddust stöðugt út breyttust kröfur
verkfallsmanna og nú var einnig krafizt
málfrelsis, frelsunar fanga og frjálsra
verkalýðsfélaga.
Ýmsir þeirra fjölmörgu flótta-
manna er flúið höfðu frá Kúbu til
Bandarikjanna fengu bakþanka er þeir
voru komnir til Flórída og neyddu þeir
þrjár flugvélar til að fljúga til Havana.
265 farþegar fórust er farþegaþota af
Trident-gerð hrapaði í Saudi-Arabíu.
Gierek, formaður pólska komm-
únistaflokksins, lofaði verkfalls-
mönnum úrbótum. Á sama tima voru
ýmsir andófsmenn í landinu handteknir
og áróðursstríð hafið gegn verkfalls-
mönnum.
Viktor Kortsnoj sigraði Sovét-
manninn Lev Polugaevskí í einvígi og
ruddi þar enn úr vegi stórri hindrun á
ERLENDUR ANNÁLL ’8