Dagblaðið - 30.12.1980, Síða 25
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980
33
og Bandanlcjunum. Miklar mótmæla-
göngur voru farnar í París vegna
sprengingarinnar.
Hagur Ronalds Reagans forseta-
frambjóðanda þótti vænkast talsvert er
stærstu verkalýðssamtök Banda-
ríkjanna ákváðu að styðja hann í
kosningunum.
Pólski útlaginn og ádeiluskáldið
Czeslav Milosz hlaut bókmenntaverð-
laun Nóbels.
Kvennamorðingi
gengur laus
Kvennamorðingi, sem gengið hefur
undir nafninu „Jack the Ripper”, lét
til skarar skríða eftir nokkurt hlé og
myrti þrettánda fórnarlamb sitt. Morð
þessi hafa vakið mikinn óhug í Bret-
landi og má heita að öll brezka þjóðin
leiti nú morðingjans.
25 þúsund fórust
íjarðskjálfta
Talið er, að 25 þúsund manns hafí
farizt í mannskæðasta jarðskjálfta
ársins, sem varð í Alsír um miðjan
mánuðinn og jafnaðist borgin E1
Asham að mestu við jörðu. 48 börn og
3 fullorðnir fórust í gassprengingu í
borginni Ortuella á Spáni.
Spennan i Póllandi hélt áfram að
aukast. Ríkisstjórn landsins réðst á
nýju verkalýðssamtökin og sakaði þau
um að hafa brotið gegn samkomulagi
þeirra við stjórnvöld. Lech Walesa,
leiðtogi Einingar, samtaka sjálfstæðu
verkalýðsfélaganna, sagði, að kjörin
mundi stjórn samtakanna og starfsehii
þeirra halda áfram ótrufluð þrátt fyrir,
að dómstóll í Varsjá treysti sér ekki til
að viðurkenna samtökin af lagalegum
orsökum. „Þeir hafa hótað okkur eld-
flaugum og skriðdrekum. Látum þá
reyna,” sagði Walesa er fréttamenn
spurðu hann um hvort hann áliti að
hætta væri á hernaðarlegri íhlutun
Sovétmanna í landinu. Bréfsnef forseti
Sovétríkjanna ákvað eftir fimm
klukkustunda langan fund með Kania
leiðtoga pólska kommúnistafiokksins
að styðja flokksformanninn og
hættunni á innrás Sovétmanna í
Póllandi var þar með talið bægt frá,
a.ni.k. í bili.
Nóvember
Ronald Reagan vann óvæntan yfir-
burðasigur gegn Carter forseta í
bandarisku forsetakosningunum.
Hlaut Reagan 51 prósent greiddra at-
kvæða en Carter aðeins 42 prósent.
Flestar skoðanakannanir höfðu gefið
til kynna að mjög lítill munur yrði á
Carter og Reagan og komu úrslitin
mönnum því í opna skjöldu. Megn
óánægja bandarískra kjósenda með
efnahagsástandið í landinu eftir
fjögurra ára stjórn Carters var talin
höfuðástæðan fyrir sigri Reagans.
Bitillinn John Lennon féll fyrir morðingjahendi.
Einstæð mynd náðist af honum ásamt morðingjanum, Mark Chapman, er Lennon á-
ritaði plötu sina fyrir Chapman aðeins nokkrum klukkustundum áður en Chapman
skaut hann til bana.
Atta manns fórust eftir að flutningaskip braut niður Almobrúna i Kungálv f Svfþjóð i b.vrjun ársins. Alls óku sjö bflar I
sjóinn. Um það bil 300 metrar af brúnni brotnuðu.
verið í viðbragðsstöðu við landamæri
Póllands síðustu vikur ársins en vest-
rænir leiðtogar hafa varað Sovétmenn
mjög við afleiðingum innrásar þeirra í
Pólland.
Ófriðlegt á
öryggismála-
ráðstefnu
Útlit var fyrir, að öryggismála-
ráðstefna Evrópu í Madrid færi út um
þúfur áður en hún byrjaði, þar sem
þjóðunum gekk mjög illa að koma sér
saman um dagskrá. Svíum o'g fleiri
hlutlausum þjóðum tóks't á siðustu
stundy að bjarga ráðstefnunni með
málamiðlunartillögu. Miklar deilur
hafa orðið á ráðstefnunni um
mannréttindabrot í löndum A-Evrópu
og hernaðaríhlutun Sovétrikjanna í
Afganistan.
Jóhannes Páll annar páfi sótti
Þjóðverja heim og átti viðræður við
leiðtoga lútersku kirkjunnar og talið er,
að þær viðræður kunni að vera
upphafið að mun nánara samstarfi
þessara tveggja kirkjadeilda en verið
hefur á undanförnum öldum.
Réttarhöld
í Beijing
Réttarhöld hófust í Beijing yfir fjór-
menningaklíkunni svonefndu og klíku
Lin Biaos. Er sakborningum meðal
annars gefið að sök að hafa látið drepa
þúsundir manna á timum menningar-
byltingarinnar. Margir sakborninga
hafa játað á sig sakir en ekkja Maós
formanns, Jiang Qing, kveðst einungis
hafa gert vilja manns sins. Núverandi
leiðtogar í Kína segja, að Maó hafi
orðið á mistök en hann beri þó ekki
ábyrgð á menningarbyltingunni Talið
er, að Hua Guofeng, formaður
kinverska kommúnistaflokksins, sé
ekki lengur í hópi æðstu manna Kína
og sé ástæðan sú, að sýnt þyki að hann
hafi verið í of nánu sambandi við
menningarbyltinguna.
Miklir jarðskjálftar urðu á S-Ítalíu
og kostuðu þeir a.m.k. þrjú þúsund
mánns lífið og hundruð þúsunda
misstu heimili sín. Meðal annars
hrundi kirkjan í bænum Balvano til
grunna og undir rústum hennar
grófust á annað hundrað manns.
Aðeins presturinn komst Iífs af.
seta. Var Eanes forseti landins endur-
kjörinn og vann öruggan sigur á fram-
bjóðanda stjórnarflokkanna. Varð það
til, að ríkisstjórn landsins sagði af sér.
Lennon syrgður
um allan heim
Bítillinn John Lennon var myrtur í
New York. Var hann-syrgður um allan
heim og tónlist hans og Bítlanna leikin i
útvarpsstöðvum víðs vegar um
heiminn. Plötur þelrra seldust sem
aldrei fyrr og nýtt Bítlaæði virtist í
uppsiglingu.
Sjö IRA-menn voru að dauða
komnir eftir fimmtíu daga hungur-
verkfall í fangelsi á N-írlandi, er þeir
hættu verkfallinu.
Vonir vöknuðu um, að bandarísku
gíslunum í Teheran yrði skilað fyrir jól.
Svo fór þó ekki því „lokaskilyrði”
Irána fyrir lausn deilunnar voru að
mati Bandaríkjastjórnar óaðgengileg
með öllu. Krafðist stjórn írans þess
meðal annars, að Bandaríkjamenn
legðu fram 24 milljarða dollara
tryggingu. Eyddu gíslarnir 52 því
öðrumjólumí Iran.
-GAJ.
Desember
Sovétmenn líktu ástandinu i
Póllandi við ástandið í Tékkóslóvakíu
árið 1968, áður en þeir réðust inn í
landið. Kania flokksleiðtogi sagði, að
kröfur verkamanna væru ógnun við
friðsamlega skipan mála í Evrópu.
Óttinn við innrás Sovétmanna í
Póllandi jókst stöðugt og ýmsir telja,
að hættan á innrás sé enn fyrir hendi.
Mjög ófriðlegt var í Miðaustur-
löndum. ísraelsmenn réðust oftar en
einu sinni inn í Suður-Líbanon á búðir
Palestínuskæruliða og litlu munaði að
styrjöld brytist út milli Sýrlands og
Jórdaníu.
Forsætisráðherra Portúgals, Sa
Carneiro, lézt í flugslysi aðeins þremur
dögum áður en portúgalska stjórnin
gekk að kjörboröinu og kaus sér for-
Tveir af hverjum þremur kjós-
endum, sem spurðir voru töldu efna-
hagsvandann höfuðmál kosninganna.
Átta milljónir manna voru atvinnulaus-
ar i Bandaríkjunum, og verðbólgan var
þrettán prósent er kosningarnar fóru
fram. Hinn nýkjörni Bandaríkjafor-
seti, Ronald Reagan, er 69 ára gamall
og er hann elzti maður, sem sezt í for-
setastól Bandaríkjanna. Þriðji fram-
bjóðandinn John Anderson fékk
aðeins 6 prósent atkvæða, sem var mun
minna en honum hafði verið spáð.
Michael Foot var kjörinn formaður
brezka verkamannaflokksins eftir
harða baráttu við Denis Healey. Hlaut
Foot 139 atkvæði en Healey 129.
Hæstiréttur Póllands viðurkenndi
sjálfstæði hinna nýju verkalýðsfélaga í
landinu og var það mikill sigur fyrir
Lech Walesa og félaga. Spennan í
landinu hélt áfram að magnast og
hættan á innrás Sovétmanna að sama
skapi að aukast. Hafa sovézkir herir
Ronald Reagan vann óvæntan stórsigur ylir Jimm.v Carter I forsetakosamgunum I Bandarlkjunum.
Efnahagsmálin
felldu Carter
i