Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 34

Dagblaðið - 30.12.1980, Blaðsíða 34
42 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 ÍÞRÓTTAANNÁLL1980 Janúar: Hreinn kosinn í þriðja sinn íþróttir á árinu 1980 hafa verið með allra blómlegasta móti. Mikil gróska hefur verið í langflestum greinum og ánægjulegt er að sjá hve miklar framfarir hafa orðið í t.d. frjálsum íþróttum, badminton, júdó, sundi og fimleikum. Allt eru þetta greinar sem hafa átt undir högg að sækja á undanförnum árum, en frjálsíþróttirnar virðast nú loks vera að ná sér á strik á ný eftir gullöldina í kringum 1950. Hér á eftir fer saman- tekt yfir helztu atburði ársins, sem er að líða. Hér er ekki um nákvæma staðreyndatalningu að ræða heldur er hér einungis stiklað á því mark- verðasta. Sá atburður, sem stendur líkast til uppúr í þessum mánuði, er vafalítið kjör iþróttamanns ársins, sem nú fór fram í 24. sinn. Nokkuð á óvart hlaut Hreinn Halldórsson útnefninguna „íþróttamaður ársins”. Ekki ber að skilja það svo að Hreinn hafi ekki verið vel að nafnbótinni kominn, en flestir höfðu e.t.v. hallast að þeim Oddi Sigurðssyni spretthlaupara eða Pétri Péturssyni knattspyrnumanni, sem báðir voru mjög í sviðsljósinu. Hreinn er þessari nafnbót ekki ókunnugur því hann hefur tvivegis áður verið kjörinn — árin 1976 og 1977. Skúli Óskarsson hlaut hnossið 1978. Seint í mánuðinum ákvað íslenzka ólympiunefndin að ísland tæki þátt í OL í Moskvu hvað sem tautaði og raulaði. Olli sú ákvörðun miklum deilum á siðum dagblaðanna og voru menn ekkí á eitt sáttir. Síðar gerði DB skoðanakönnun á vilja fólks í landinu í þessu tilliti og kom þá ótvírætt í ljós að meginþorri lands- manna var fylgjandi þátttöku í leikunum. Ólympíunefndin gat því sofið rólega. Handknattleikurinn var mikið í sviðsljósinu sem endranær í janúar- mánuði. Eftir auðvelda sigra á byrjendum Bandaríkjamanna i desember þyngdist róðurinn verulega í janúarbyrjun er Pólverjar komu hingað til þriggja landsleikja. Þeir unnu þá alla. Þann fyrsta 25—23, þá 24—21 og loks 20—15. Eftir þá leiki var strax haldið til þátttöku í Baltic Cup í V-Þýzkalandi. Fyrst beið land- ans þar 15—25 tap fyrir A-Þjóðverj- um, þá 12—18, gegn V-Þjóðverjum. Norðmenn voru þá lagðir að velli 21 —15, en I lokaleiknum kom stórt tap fyrir Dönum, 20—28. Landsliðs- einvaldurinn, Jóhann Ingi Gunnars- son, lét í ljósi efasemdir um það að hann myndi verða með landsliðið öllu lengur. Voru ýmsar ástæður nefndar fyrir því en launamál þjálfar- ans voru vafalítið þyngst á metunum. Áfram með handboltann. Víkingur hafði algera yfirburði í 1. deildinni og um miðjan janúar lauk fyrri umferð íslandsmótsins. Hafði Víkingur þá enn ekki tapað stigi. Viggó Sigurðsson fékk tilboð frá þýzkum félögum eftir Baltic-keppnina, en ekki var ákveðið neitt í þeim efnum í mánuðinum. Karl Þórðarson komst i fréttir er það spurðist út að hann myndi e.t.v. snúa heim á ný með vorinu eftir dvöl hjá belgíska félaginu La Louviere. Á sama tíma komst Elías Sveinsson, frjálsíþróttamaðurinn kunni, í sviðsljósið, er hann brá sér í túr á togara til að komast til Kaliforníu í sólina og sumarið til hinna íslenzku frjálsíþróttamannanna, sem þar höfðu dvalið um lengri tíma við æfingar. Það sem menn leggja á sig fyrir áhugamál sín. Deilur á milli formanns SKÍ, Sæmundar Óskarssonar, og aðila víðs vegar af landinu héldu áfram. M.a. blandaði DB sér I þær deilur. Afleiðingin varð sú, að síðar á árinu sagði Sæmundur af sér. Af erlendum vettvangi var það helzt títt að Björn Borg var kjörinn tennisleikari ársins 1979, Liverpool var áfram efst í Englandi, Lokeren Arnórs Guðjohnsen leiddi enn í Belgiu, en Pétur og lið hans, Feyenoord, var í 3. sæti i Hollandi. Febrúar: Eric Heiden stjarna vetrarólympíuieika Vetrarólympíuleikarnir í Lake Placid eru sá atburður er hæst rís í febrúar. Ekki einungis vegna frá- bærra afreka Eric Heiden og fleiri, heldur og vegna fádæma lélegs aðbúnaðar keppenda svo og klaufa- skapar varðandi fréttaflutning og upplýsingamiðlun til fjölmiðla. Þar var mikill munur á, eða á leikunum í Moskvu í sumar. Sem fyrr sagði var það Bandaríkjamaðurinn Eric Heiden, sem stal senunni gjör- samlega. Hlaut 5 gullverðlaun í skautahlaupi og setti bæði ólympíu- og heimsmet. Þá kom ishokkílið Bandaríkjamanna verulega á óvart með því að vinna gullverðlaunin. Var það í fyrsta sinn í tvo áratugi, sem Bandaríkjamenn náðu gullinu í þess- ari vinsælu íþróttagrein. Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og komust í undanúrslit Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik er þeir unnu sænska liðið Drott í Laugar- dalshöllinni með 18 mörkum gegn 16. Fyrri leiknum lauk með 18—17 sigri Drott. Sigur Vals í Höllinni var ævintýri líkastur því Svíarnir leiddu um tíma 10—4. Með fádæma seiglu og keppnishörku tókst Valsmönnum að jafna metin og siga framúr á loka- mínútunum. Ekki þarf að taka það fram að þetta var í fyrsta skipti, sem íslenzkt lið komst svo langt i Evrópukeppni. Hörður Hilmarsson gekk til liðs við sænska 2. deildarliðið AIK, sem reyndar komst í 1. deildina í haust. Jóhannes Eðvaldsson fékk sig loks lausan frá Celtic og samdi við banda- ríska félagið Tulsa Roughnecks. Sig- urlás Þorleifsson gekk aftur til liðs við fyrrum félaga sína í Eyjum eftir ársdvöl hjá Víkingi. Kevin Keegan, knattspyrnumaður Evrópu 1978 og'1979, ákveður að ganga til liðs við Southampton á Englandi er samningi hans við Hamburger SV lýkur. Hann hafði áður gefið yfirlýsingar þess efnis að hann myndi aldrei leika með liði á Bretlandseyjum á ný, en samningur Southampton freistaði. íþróttasamband íslands efndi til mikillar vetraríþróttahátíðar á Akureyri um mánaðamótin febrúar/marz. Af hálfu heimamanna var geysilega mikil vinna lögð í undir- búning en vegna veðurofsa fór há- tíðin að miklu leyti fyrir ofan garð og neðan. í mánuðinum voru iþróttafélög og einstaklingar heiðraðir af Reykja- víkurborg. T.d. fékk Fram einnar milljón króna gjöf vegna frammistöðu meistaraflokks kvenna í handknattleik. Valur og Vikingur fengu kr. 500.000 fyrir handknatt- leiksfélög sín, KR sömu upphæð fyrir körfuknattleikslið sitt og svo og nokkur önnur félög minni styrki vegna einstaklinga. Þá voru 4 borgar- ar heiðraðir fyrir góða ástundun í almenningsiþróttum. Brvnjar Harðarson reynir markskot i úrslitaleiknum gegn Grosswallstadt. Marz: Valur í úrslit Evrópu- keppni meistaraliða Marzmánuður tilheyrir Vals- mönnum eins og hann leggur sig. Meira að segja glæsilegur sigur Víkings í 1. deildinni í handknattleik, þar sem liðið tapaði ekki einu einasta stigi í leikjunum 14, féll í skuggann. Handknattleikslið Valsmanna var mest í sviðsljósinu. í byrjun mánaðar náðu Valsmenn að leggja Atletico Madrid frá Spáni að velli í undanúr- slitum Evrópukeppni meistaraliða. Fyrri leiknum í Madrid lauk með 24—21 sigri Atletico en í mesta stemmingarleik, sem sézt hefur á fjölum Laugardalshallarinnar, sigraði Valur 17—14 í síðari leiknum. Áhorfendur troðfylltu Höllina og hávaðinn var engu likur. Þoku- lúðralager Ellingsen var fenginn að láni og síðan var framkallaður eins mikill hávaði og frekast var unnt. Leikmenn Atletico, sem töldu sig öllu vana, höfðu ekki kynnzt slíku. Þeir hreinlega fóru á taugum þegar mestu skipti og þar sem Valur skoraði fieiri mörk á útivelli komst liðið áfram í úrslitaleikinn. Hann fór síðan fram í MUnchen í lok mánaðarins. Mótherjarnir voru Evrópumeistarar Grosswallstadt og þrefaldir Þýzkalandsmeistarar árin á undan. Það kom strax í ljós að Valur átti ekki möguleika. Grosswallstadt komst í 6—1 og lokatölurnar urðu 21 —12 þeim í vil. Enginn Valsmanna náði sér nokkru sinni á strik í leikn- um og því varð leikurinn dapur á að horfa. Með eðlilegum leik hefði Val- ur sloppið með 2—4 marka tap. Aðrir Valsmenn, körfuknattleiks- lið félagsins, tryggðu sér bæði íslandsmeistaratitilinn og sigur í bikarkeppninni í þessum mánuði. Áður hafði Valur unnið Reykjavíkur- mótið um haustið þannig að uppsker- an varð þreföld. Glæsilegur sigur Víkings í 1. deildinni— þar sem liðið sigraði í öllum leikjum sinum, hvarf í skuggann af afreki Valsmanna, sem höfnuðu aðeins í 3. sæti í 1. deildinni að þessu sinni. Árangur Víkings er einstakur. Liðið hafði algera yfir- burði og aðeins Valur náði að fylgja liðinu eftir framan af en síðan varð ekki um neina keppni að ræða. Eftir miklar erjur sagði formaður KKÍ, Stefán Ingólfsson, af sér, eftir ummæli manna í dómstól KKÍ. Eftir mikil læti, blaðaskrif (m.a. mjög ítarleg í DB) fékkst Stefán til að taka formannsstarfið að sér aftur — flestum til mikillar ánægju. . . Ungir piltar frá Akranesi, Ingi Þór Jónsson og Ingólfur Gissurar- son, stálu algerlega senunni á innanhússmeistaramótinu í sundi i Sundhöllinni og sigurganga þeirra átti eftir að verða mikil á árinu — einkum þó Inga Þórs, sem er mesta sundefni hérlendis í áratug. Af erlendum vettvangi var það helzt að Viggó Sigurðsson varð spænskur meistari í handknattleik með Barcelona og að sjálfsögðu fyrsti íslendingurinn, sem hefur náð þeim áfanga. Borussia Dortmund falast eftir Atla Eðvaldssyni og þykja likur á samningum umtalsverðar. Úlfarnir sigruðu Nottingham Forest, 1—0, í úrslitum enska deildabikarsins en Forest lék til úrslita þriðja árið í röð. í ensku 1. deildinni var aðalbar- áttan á milli Liverpool og Manchester United og í Þýzkalandi var slagurinn á milli Hamburger og Bayern. Þá má geta þess i lokin, að Valur varð íslandsmeistari í innan- hússknattspyrnu í marzmánuði.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.