Dagblaðið - 30.12.1980, Page 35

Dagblaðið - 30.12.1980, Page 35
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 4 j ÍÞRÓTTAANNÁLL1980 Atli skrifar hér undir samninginn og viö hlið hans er forráðamaður Dort- mund-liðsins. Apríl: Atli atvinnumaður! Það sem líkast til er minnisstæðast úr aprílmánuði er samningur Atla Eðvaldssonar við v-þýzka stórliðið Borussia Dortmund. Þar með gerðist Atli, fyrsti fslendingurinn, leikmaður í v-þýzku Bundesligunni, sem af mörgum er talin erfiðasta knatt- spyrnukeppni I heimi. Annars er apríl sá mánuður er flestum innanhússmótunum lýkur og knattspyrnan tekur að rúlla af stað. Apríl í ár var engin undantekning í þvi tilliti. Ennfremur er skíðalands- mótið haldið I kringum páskana og að þessu sinni var það á Akureyri. Þar má nefna að Haukur Jóhannsson varð íslandsmeistari í 18. sinn en i heildina var miklu meira spunnið í Skíðaþing, sem haldið var i tengslum við landsmótið. ,,Ég keppi ekki aftur fyrir íslands hönd á meðan núver- andi formaður situr,” lét bezti skiðamaður landsins, Sigurður Jóns- son, hafa eftir sér IDB. Vakti sú frétt geysilega mikla athygli. Þá lýsti Skíðaráð ísafjarðar því yfir að áhyggjuefni væri að hafa núverandi formann, Sæmund Öskarsson, við stjórnvöl sambandsins. Héldu deilur um formanninn áfram á íþrótta- síðum DB og létu margir I sér heyra. Lyftingamenn fóru hamförum á fslandsmóti sínu og litu þar 7 ný met dagsins ljós. Ekki neinir venjulegir kraftakarlar, sem ala manninn hér- lendis. Laugdælir blökuðu tveimur titlum I safnið sitt — urðu bæði bikar- og íslandsmeistarar. Kvenna- lið Víkings afrekaði slíkt hið sama. Framstúlkurnar unnu að vanda liggur manni við að segja — bæði bikar og deild í kvennahandbolt- anum. Reisnin yfír bikarúrslitaleikn- um var þó ekki mikil. Var hann háður á Akureyri en í fátinu gleymdist að taka bikarinn með norður. Varð því að fá lánaðan bikar fyrir norðan til að afhenda Framdömunum til bráðabirgða. Lið Þróttar vann sér sæti I 1. deild í hand- bolta eftir erfiða úrslitaleiki. Körfuboltalandsliðið hafnaði í 3. sæti á Polar Cup og vann stórsigur á Norðmönnum og Dönum, en tapaði stórt fyrir Finnum og Svíum. Landsliðið i sundi hafnaði neðst I Kalott keppninni, sem fram fór i mánuöinum og olli það nokkrum vonbrigðum eftir þá grósku sem menn töldu vera komna í sundið. Kristin Magnúsdóttir, TBR — Lena Köppen okkar fslendinga — náði þeim merka áfanga að komast í 3. umferð á Evrópumeistaramótinu í badminton, sem fram fór í Hollandi. Ragnhildur Sigurðardóttir úr Borgar- firðinum — reyndar frá Leirá, varð fimmfaldur fslandsmeistari i borðtennis. Haukar úr Hafnarfirði urðu bikarmeistarar í handknattleik eftir tvo úrslitaleiki gegn KR. Þeim fyrri lauk 18—18, en Haukar unnu þann síðari 22—20. Var sigurinn sá fyrsti í sögu félagsins. Af erlendum vettvangi er e.t.v. eðlilegast að telja fyrstan óvæntan sigur spænska liðsins Calpisa á Gummersbach I Evrópukeppni bikar- hafa. Calpisa vann fyrri leikinn 20— 15 á Spáni en tapaði svo 16—18. Það sakaði ekki því liöið sigraði samanlagt. Keppni i knattspyrnunni víðast hvar í Evrópu var komin á lokastig. f Englandi vantaði Liverpool aðeins 2 stig til að hljóta titilinn enn eina ferðina. Inter Mílanó sigraði á ftalíu, Real Madrid og Real Sociedad börðust grimmilega á Spáni og lauk slagnum með sigri Madrid- liðsins. FC Brugge sigraði í Belgíu og Ajax í Hollandi. íslendingaliðin i þessum löndum stóðu sig vel. Feyenoord varð í 2. sæti í Hollandi og Standard Liege í 2. sæti i Belgíu og Lokeren I 5. sæti þar eftir að hafa leitt lengst af. f Þýzkalandi börðust Hamborg og Bayern grimmilega og svo fór að lokum að Bayern sigraði. West Ham og Arsenal tryggðu sér sæti í úrslitum enska bikarsins — Arsenal eftir 4 leiki við Liverpool. Pétur Pétursson og Petrina kona hans virða hér stolt fyrir sér ungu dótturina. Maía STOR VIKA HJÁ PÉTRI Pétur Pétursson gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í glæsileg- um sigri liðs hans, Feyenoord, yfir erkifjendunum Ajax í úrslitum hollenzku bikarkeppninnar. Feyen- oord sigraði 3—1. f næstu viku á eft- ilr eignaðist hann litla dóttur, svo í nógu var að snúast. Lyftingamenn voru I sviðsljósinu. Tveir, Jón Páll Sigmarsson og Skúli _Óskarsson, hjutu silfurverðlaun á EM I kraftlyftingum, þar sem rúmlega 100 keppendur spreyttu sig. Á sama tíma setti Arthúr Bogason — Norðurhjaratröllið — Evrópumet í réttstöðulyftu á Akureyri. Gísli Halldórsson, sem gegnt hafði stöðu forseta íþróttasambands fslands svo lengi sem elztu menn mundu, ákvað að segja af sér. Sveinn Björnsson, sem verið hafði varafor- seti sambandsins, tók við embættinu. Það vakti mikla athygli að Samband islenzkra samvinnufélaga — SÍS — veitti Körfuknattleikssam- bandi fslands 5 milljón króna styrk. í ávarpi sem flutt var við afhendingu fjársins gat fulltrúi SfS þess að mikLú eðlilegra væri að styrkja eitt sér- samband rausnarlega heldur en að drita smápeningum niður hér og þar. Munu vafalítið mörg sérsam- bandanna líta SÍS hýru auga næsta árið. Erlendis frá þótti það helzt frétt- næmt að Liverpool vann enska meistaratitilinn í 4. sinn á sl. 5 árum. West Ham vann bikarinn nokkuð óvænt eftir 1—0 sigur á Arsenal. f Skotlandi vann Celtic bikarinn eftir 1—0 sigur á Rangers en Aberdeen hirti meistaratitilinn I lokaum- ferðinni. Frans Beckenbauer samdi við Hamburgerr Frankfurt varð UEFA-meistari eftir 1—0 sigur og 1—2 tap gegn Gladbach. Útimarkið nægði þeim. Daley Thompson setti nýtt glæsilegt heimsmet í tugþraut. „Norðurhjara- tröllið” setti nýtt Evrópumet Það var fátt um fína drætti í júni. Helzt er að minnast glæsilegs nýs Evrópumets hjá Arthúri Bogasyni lyftingamanni frá Akureyri, er hann snaraði upp 340 kg í réttstöðulyftu. Þá gerði ung stúlka, Sigurrós Karls- dóttir, sér lítið fyrir og sigraði í sínum flokki i bringusundi á ólympíuleikum fatlaðra, sem fram fóru í Hollandi. Óskar Jakobsson náði þeim merka á- fanga að varpa yfir 20 metra í kúluvarpi á háskólameistaramóti Bandarikjanna, sem fram fór í Texas. Varpaði Óskar 20,2 metra. Handknattleikssambandið komst heldur betur I sviðsljósið í mánuðinum er upp komst að Flug- leiðir höfðu sett ferðabann á sambandið nema það greiddi skuld sína við fyrirtækiö eða setti a.m.k. tryggingu fyrir henni Leystist málið farsællega en ekki fyrr en Júlíus Hafstein, formaður sambandsins, hafði haft milligöngu og bjargað því í höfn. íþróttasamband íslands hélt mikla skrautsýningu í mánaðarlokin undir nafninu íþróttahátíð ÍSÍ. Var ætlunin að reyna að halda svipaða hátíð og gert var fyrir áratug. E.t.v. má segja að svo hafi tekizt en heldur ekkert meira, og var þó mikill byrjendablær á 1970-hátíðinni. Elías Sveinsson náði þeim merka áfanga á sumrinu að verða fslands- meistari í tugþraut í 8. sinn í röð, en vertíð knattspyrnulandsliðsins byrjaði ekki gæfulega. Fyrst 0—4 skellur gegn Wales og síðan 1—1 jafntefli gegn lélegu liöi Finna. Arthúr Bogason setti glæsilegt nýtt Evrópumet í réttstööulvftu.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.