Dagblaðið - 30.12.1980, Page 37

Dagblaðið - 30.12.1980, Page 37
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1980 ÍÞRÓTTAANNÁLL1980 Októben Steinunn kosin íþrótta- maður Reykjavíkurborgar Öktóbermánuður er skjótaf- greiddur. Sannast sagna átti sárafátt merkilegtsérstað. Knattspyrnulands- liðið kom niður á rassinn með dynk eftir glæsilega frammistöðu í Tyrklandi. Rússneski björninn lék sér að íslenzku strákunum eins og köttur að mús. Lokatölur urðu 5—0 Rússum í vil eftir að staðan hafði verið 2—0 í hálfleik. Handknattleikslandsliðið krækti í bronsverðlaun á Norðurlandamótinu í handknattleik. Silfrið var ekki fjarri lagi en grátlega klaufalegt tap gegn Dönum, þar sem leikið var klukkan 9 að morgni, gerði út um allar vonir. Norðmenn voru auðsigraðir og Finnar og Færeyingar bókstaflega malaðir. Sviar unnu landann hins vegar fyrirhafnarlítið. f heild voru Svíar, Danir og íslendingar alls ekki i ósvipuðum klassa. Valsmenn urðu Reykjavíkurmeist- arar í körfuknattleik eftir framlengdan úrslitaleik gegn KR. Lokatölur 79—78 og Valur hélt þar með titlinum frá í fyrra. Áður hafði Valur unnið KR í sjálfu mótinu til þess að tryggja sér aukaleik við vesturbæjarveldið. Þó KR-ingar hafi gefið eftir gerðu júgóslavnesku mótherjar Valsmanna í Evrópukeppninni það ekki. Þeir unnu Val auðveldlega í báðum leikjunum, en Valsmenn geta borið höfuðið hátt. Þeir léku vel en áttu einfaldlega við ofurefli að etja. Sjö af 10 leikmönnum Cibona voru yfir 2 metrar á hæð. Steinunn Sæmundsdóttir var kjörin íþróttamaður Reykjavíkur af hálfu ÍBR og fékk fyrir vikið vegleg- an verðlaunagrip, sem afhentur var við hát í ðlega athöfn að Höfða. í Bretlandi kom Watford aftur stórlega á óvart og sigraði nú Evrópumeistara Nottingham Forest 4—1 í deildabikarnum. Nóvember: Skúli Óskarsson setti heimsmet Þorbergur Aðalsteinsson skoraði markið, sem kom VikJngum áfram, beint úr aukakasti eftir að leiktima var lokið. Stórafrek Víkinga í Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik stendur algerlega upp úr í afrekum desembermánaðar. Vart á að þurfa að rifja upp leikina gegn Tatabanya fyrir lesendum. Víkingur sigraði 21— 20 i fyrri leiknum hér heima og enginn gerði sér vonir um að þeir næðu að komast áfram. Þeir léku þó afar vel úti og stóðu í heimaliðinu allt þar til í lokin. Er blásið var til merkis um leikslok benti fátt til að Víkingarnir kæmust áfram. Staðan var 23—21 Tatabanya í vil og aðeins aukakast, sem eftir átti að fram- kvæma. En viti menn. Þorbergur Aðalsteinsson gerði sér lítið fyrir og skoraði beint úr aukakastinu og Víkingar voru komnir áfram. Sigurinn var sætur og e.t.v. enn sætari fyrir þá staðreynd að fyrir tveimur árum höfðu Víkingar lagt Ystad að velli f Evrópukeppni bikar- hafa. Drógust þeir þá gegn Tatabanya en voru síðan dæmdir úr leik eins og allir muna eftir. Hauk'ar úr Hafnarfirði tóku einnig þðtt í Evrópukeppni að þessu sinni — keppni bikarhafa. Þátttaka þeirra varð þó ekki eins glæsileg og Víkinganna. Þýzka liðiö Tus Nettelstedt sigraði 21—18 hér heima og síðan 17—12 úti. í raun útkoma sem Haukar geta vel við unað. Frakkar voru tvívegis lagðir að velli 1 landsleik 1 körfuknattleik nú um helgina. fsland sigraði fyrst 79— 75 og svo 69—65, og komu þeir sigrar geysilega á óvart því Frakkar leika í A-riðli Evrópukeppni lands- liða en íslendingar i C-riðli. Sýndi lleikurinn það glögglega, að körfu- boltinn er að skjóta almennilega rótum hérlendis. Landsliðið í handknattleik lék tvo landsleiki gegn Belgum. Sá fyrri varð alger einstefna — 33—10 sigur en í þeim síðari náöu Belgar mikið að rétta sig við og töpuðu aðeins 17— 25 í leik þar sem kæruleysið var alls- ráðandi. Skömmu áöur hafði lands- liðið borið lægri hlut í viðureign sinni við pressuliðið. Ingi Þór Jónsson bætti 8 ára gamalt met Finns Garðarssonar í 100 metra skriðsundi og þessi ungi Skaga- maður er langmesta sundmannsefni hérlendis í háa herranstíð. Ásgeir Sigurvinsson skoraði þrennu í Evrópuleik Standard Liege gegn Dyriamo Dresden og það á úti- velli í 4—1 sigri Standard. Fyrri leik liðanna lauk með 1 — 1 jafntefli en Ásgeir var svo sannarlega hetja Standard. öll mörk hans með þrumufleygum — glæsimörk, sem íslenzkir sjónvarpsáhorfendur fengu aðsjá. Metvinningur vannst í Reykjavik fyrir jólin er þrítugur Reykvíkingur fékk 8,8 milljónir i vinning. Þátttaka í Getraunum hefur aukizt geysilega mikið á árinu og í árslok var potturinn kominn i 13 milljónir en var á biliriu 2—3 milljónir i byrjun árs. Skúli Óskarsson gerði sér lítið fyrir og bætti heimsmet Banda- ríkjamanns í réttstöðulyftu í 75 kg flokki og snaraði upp 315,5 kílóum. Á svipuðum tíma var íslenzkt júdófólk í brennideplinum. Fyrst sigraði Margrét Þráinsdóttir afar glæsilega í sínum flokki á Norður- landameistaramóti kvenna í júdó og síðar i mánuðinum gerði Bjarni Friðriksson sér litið fyrir og sigraði á opna skandinavíska meistaramótinu í júdó í sínum flokki. Voru þar þátt- takendur frá einum 10 þjóðum, og þ.á m. fríður flokkur manna frá Japan. Magnús Bergs vakti .mikla athygli er hann gerði atvinnumanna- samning við Borussia Dortmund — sona alveg ,,upp úr þurru” eins og menn segja gjarnan. Hafði enginn átt von á þessu. Teitur Þórðarson var hins vegar meira í umræðum manna á milli og lengst af stefndi í að hann færi til enska 2. deildarliðsins Bristol City. DB skýrði hins vegar frá því fyrst allra fjölmiðla hér heima að franska 1. deildarliðið Lens hefði gert honum tilboð. Fór svo að lokum að samningar tókust á milli Öster, liðs Teits, og Frakkanna en ekki fyrr en um áramótin. Kristinn Björnsson komst í fréttirnar og vakti reyndar mikla athygli í norsku pressunni er hann gekk til liðs við norska liðið Vaalerenga. Lýstu norskir sig heppna mjög að fá Kristin í sínar raðir. Handknattleikslandsliðið beið tvisvar ósigur gegn heimsmeisturum V-Þjóðverja í landsleikjum í Laugar- dalshöllinni. Fyrst 9—16 og síðan 17—191 mun betri leik af hálfu okkar manna. Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, gekk til liðs við Valsmenn og gerðist aðstoðarþálfari hjá hinum sovézka Boris Akbashov. Erlendis frá vakti það mesta athygli að Lasse Viren sagði endanlega skilið við hlaupabrautirnar eftir að hafa hlaupið sig inn í hjörtu manna á tvennum ólympíuleikum. Þá tapaði Liverpool, 1—4 fyrir Úlfunum, og var hér um að ræða stærsta tap meistaranna sl. 4 ár. Skúli fagnar glæsilegu heimsmeti sfnu. Desember: VIKINGARNIR SLÓGU TATA- BANYAÚT!!!

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.