Dagblaðið - 30.12.1980, Page 40

Dagblaðið - 30.12.1980, Page 40
EM unglinga fskák: JónLenná sigurbraut „Þetta var fjörug skák. And- stæðingurinn lenti í tímahraki og hafði auk þess erfiða stöðu. Hann gafst upp eftir 41 leik en þá var ég kominn með frípeð upp í borð,” sagði Jón L. Árna- son í samtali við DB í morgun. Jón vann HoIIendinginn Douven í 10. um- ferð Evrópumeistaramóts unglinga í skák og er í 3.—5. sæti með 7 vinninga. Svíinn Akesson hélt áfram sigurgöngu sinni og virðist nú fátt geta komið i veg fyrir sigur hans. Hann hefur 8,5 vinn- inga og hefur þegar mætt öllum sterk- ustu keppendunum á mótinu. í gær vann hann Skotann Motwani, sem tefldi að sögn Jóns mjög illa og eyddi nær öllum tíma sínum á 10 fyrstu leik- ina. Þar vann Akesson mjög léttan sigur. Sovétmaðurinn Pigusov er í 2. sæti með 7,5 vinninga, síðan kemur landi hans Andrianov ásamt Jóni og Búlgar- anum Danailov með 7 vinninga. Jón mætir Danailov í dag. Þeir hafa einu sinni mætzt áður og þá vann Búlgarinn {en Jón kveðst í dag ætla að koma fram jhefndum. -GAJ. LETTSKYJAÐ SUNNAN- LANDS EN ÉUAGANG- UR Á NORDURLANDi Það ætti að vera óhætt, a.m.k. fyrir þá sem búa sunnanlands, að fjárfesta í flugeldum fyrir gamlárs- kvöld. Búizt er viö því að fljótlega fari að ganga í norðanátt og við það mun létta til sunnanlands. Fyrir norðan er búizt við éljagangi um ára- mótin. Lítillega mun kólna, 4—5 stiga frost og vindhraðinn verður skaplegur, kannski strekkingur. Færð er almennt góð, þó er viða hálka á vegum. Seinna í dag er reiknað með því að fært verði orðið frá Reykiavík um Þrengsli allt austur á Egilsstaði um Fagradal. Greiðfært er norður í land allt til Húsavíkur, en þó eru Vatnsskarð og Öxnadalur ótrygg. Fært er á Siglufjörð en sömuleiðis er ótryggt að það haldist. Frá Akureyri er fært á Ólafsfjörð. í gær var rutt með ströndinni frá Húsavík austur tíl Vopnafjarðar og úr Mývatnssveit er fært á Húsavík. Sæmilega greiðfært er um Snæfells- á landi og í lofti ættu aðganga sæmilega nes en litlar fregnir hafa borizt af Vestfjörðum. Flugið er að fara aftur í gang eftir óveðurskaflann. ! morgun var búið að fljúga tíl Akureyrar en óvíst var með ísafjörð. Að öðru leyti má búast við því að flugsamgöngur gangi hnökralaust. .kmii Srjálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 30. DES. 1980. Snurðaá bensínsamningum: Samninga- fundur ekkiboðaður Alvarieg snurða virðist vera hlaupin á samningaviðræður bensínafgreiðslu- manna á höfuðborgarsvæðinu og viðsemjenda þeirra. Upp úr samninga- fundi slitnaði á laugardaginn og hefur ekki verið boðaður nýr fundur enn. Verkfall bensínafgreiðslumanna hófsf á miðnættí þriðja í jólum, og stendur enn. Þó hefur verið hægt að fá bensín á einum fjórum stöðum á höfuðborgar- svæðinu, einum í Kópavogi, tveim í Garðabæ og einum í Mosfellssveit. Forráðamenn Dagsbrúnar hyggjast fara fram á það í dag að þessari sölu verði hætt. -DS. Gamla myntin kvödd _ nýju með varúð' Þá er um það bil að vera kominn timi til að kveðja aiimlu krónurnar enda þœr orðnar lasle/tar oj> ekki alls staðar teknar alvarlega. Afgreiðslustúlkan á myndinni heldur á va>nu seðlabúnti, sem á fimmtudaginn verður jafnvirði eins fimm hundruð króna seóils. Seðlabankastjórí hvetúrfólk til að J'ara gtetilega fyrst i stað og huysa sig um TillögurTómasar Ámasonar: Skyndíaðgerðir tiibjargar Útvegsbanka Tómas Árnason viðskipta- ráðherra hefur boriö fram tiílögur um veigainiklar aðgerðir til að bjarga Útvegsbankanum, sem stendur tæpt. Tómas vill, að felld verði niður um 1,5 milijarðs vaxtaskuld Útvegsbank- ans við Seðlabankann. Auk þess leggi rikissjóður á 10 árum fram 5 millj- arða hlutafé i Útvegsbankann. Tillögur Tómasar hafa enn ekki hlotið samþykki rikisstjórnarinnar. Stjórnvöld hafa um hrið leitað leiða til að „bjarga Útvegs- bankanum”. Efnahagsnefnd ríkisstjórnarinnar lagði i sumar til, að Útvegsbanki yrði sameinaður annaðhvort Búnaðar- banka eða Landsbanka. -HH. áður en stórar seðlafúlgur eru reiddar af hendi — ekki sízt í gleðskap, sem kann aö vera Igangi annað kvöld. Á innfeUdu myndinni eru stórar upphœðir komnar ípeninga- kassann — stórar, jafnvelþótt svo lítiðfarifyrirþeim. -DB-mynd: Gunnar Örn. Gervasoni sendur úr landi í morgun: Guðrún játar hvorki né neitar stuðningi —við ríkisst jómina. Lýsti af stöðu sinni á þingf lokksf undi ígær. Talin standa við fyrri ákvörðun ,,Ég get ekkert sagt að svo stöddu, ég lofaði forsætisráðherra að bíða með allar yfirlýsingar til há- degis, gefa ríkisstjórninni frest þangað til,” sagði Guðrún Helga- dóttir alþingismaður í morgun, er DB spurði hana hvort hún hefði hætt stuðningi við ríkisstjórnina. Svo sem kunnugt er hefur Guðrún oft lýst því yfir að hún myndi ekki styðja ríkis- stjórnina ef franski flóttamaðurinn . Patrick Gervasoni yrði rekinn af landi brott. Gervasoni var sendur tíl Danmerkur í morgun, þannig að dómsmálayfirvöld hafa staðið fast á þeirri ákvörðun sinni, að hann fengi ekki Iandvistarleyfi á fslandi. Guðrún skýrði afstöðu sína á þingflokksfundi Alþýðubandalagsins í gærkvöldi. Hún vildi ekki greina frá því í morgun hvað þar hefði komið fram. Hún neitaði að svara þvi í morgun, hvort hún styddi ríkis- stjórnina eða ekki. Óstaðfestar heimildir DB herma þó að hún standi fast við fyrri ákvörðun um að hætta stuðningi við ríkisstjórnina vegna brottreksturs Gervasonis. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður þingflokks Alþýðubanda- lagsins, sagði i morgun að Guðrún hefði skýrt afstöðu sína á fundinum, en hann sagðist ekki greina frá af- stöðu einstakra þingmanna. Ólafur sagði að þingflokkurinn sem sh’kur hefði enga afstöðu tekið. Ríkisstjórnin var á fundi í morg- un, þar sem málið var m.a. rætt. Að þeim fundi loknum mun Guðrún opinbera afstöðu sína. -JH. BIAÐIÐ Opið verður á auglýsingadeild og af- greiðslu Dagblaðsins i dag með venju- legum hætti. Á morgun, gamlársdag, verður opið til hádegis. Lokað verður á nýársdag en á föstudaginn 2. janúar verður opið eins og venjulega. Starfs- fólk auglýsingadeildar og afgreiðslu sendir viðskiptavinum sínum beztu nýársóskir með þakklæti fyrir liðið ár. — Lokað verður á ritstjórn eftir hádegi í dag og til kl. 14 á nýársdag. 30. DESEMBER 9317 Kodak Ektra 12 myndavél. 31. DESEMBER 27308 Skil 1552H verkfærasett. Vinningshafar hringi ísíma 33622.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.