Dagblaðið - 05.01.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. JANUAR 1981
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
S)
Mohammed All Rajal, forsætisráflherra írans.
Ræðu Ali Rajais
beðið með spennu
Mohammad Ali Rajai, forsætis-
ráðherra írans, mun í dag ávarpa
trúarsamkomu í Teheran og er búizt
við að í ávarpi hans þar komi fram
afstaða íransstjórnar til síðasta
tilboðs Bandaríkjastjórnar til lausnar.
gísiadeilunni.
Búizt er við að þúsundir írana
hlýöi á ræðu forsætisráðherrans sem
haldin verður á minningarhátíð spá-
mannsins Mohammad And Of Hass-
an, annars leiðtoga Shiíta en það er
sá hópur Múhameðstrúarmanna, sem
flestir íranar tilheyra.
Ráðamenn í Washington lýstu í
gær áhyggjum sínum vegna þess að
þrír gislanna hafa nú verið fluttir úr
utanríkisráðuneyti Irans og á
ókunnan stað. Ráðamenn í Washing-
ton sögðu að Bandaríkjamenn
mundu ekki sitja auðum höndum ef
gíslarnir 52 yrðu leiddir fyrir rétt.
Pólland:
Ráðamenníhuga
aðvörun Rússa
Leiðtogar Póllands hafa nú til
íhugunar síðustu aðvörun Sovétmanna
vegna ástandsins í landinu. Á sama
tíma hvatti hiö hálfopinbera málgagn
Zycie Warszawy stjórnvöld tU þess að
láta ekki af umbótastefnu sinni, og
hvatti jafnframt til opnari stjórnunar á
kommúnistaflokki landsins.
Tass fréttastofan sagði í síðustu viku
að andósíölsk öfl innan hinna sjálf-
stæðu verkalýðsfélaga í Póllandi
stefndu að því að skapa efnahagslegan
glundroða í landinu. Var þessi frétt
hinnar opinberu sovézku fréttastofu
álitin aðvörun tii pólskra stjórnvaida.
Skuldir Póllands við útlönd nema nú 25
milljörðum dollara og er efnahags-
ástand landsins mjög bágborið.
Kenya:
Brennuvargur
flúðiland
Maður, sem grunaður er um aðild að
íkveikju í hóteli í Nairobi í Kenya er
flúinn til Saudi-Arabíu að því er
heimildir frá Nairobi greina.
Tala látinna hækkaði i fimmtán í
gær þegar einn hótelgestanna lézt á
sjúkrahúsi vegna brunasára er hann
hafði hlotið.
Erfiðákvörðun
ftölsku
stjórnarínnar
Italska stjórnin stendur nú frammi
fyrir þeirri erfiðu ákvörðun hvort
verða skuli við kröfu Rauðu herdeUd-
anna að fangelsaðir skæruUðar fái að
lýsa skoðun sinni á hvort dómarinn
Giovanni d’Urso, sem er I haldi
Rauðu herdeildanna, skuli tekinn af
lífi. Rauðu herdeildirnar segjast
þegar hafa kveðið upp dauðadóm
yfir dómaranum en segjast tilbúnar
að endurskoða hann ef skæruliðar I
tveimur helztu öryggisfangelsum
Ítalíu fái að segja hug sinn um málið i
útvarpi, sjónvarpi og helztu dag-
blöðum landsins.
Stjórnin hefur enn ekki svarað
þessari kröfu Rauðu herdeildanna.
Áður hefur það aldrei gerzt aö
skæruUðum hafi verið veitt rúm í
opinberum fjölmiðlum landsins.
írakarsegjast
hafafellt
áttaþúsund
írkkar segjast hafa fellt meira en átta
þús. íranska hermenn og skotið niður
558 iranskar flugvélar á þeim fjórum
mánuðum sem liðnir eru frá því að
styrjöld þessara tveggja olíuvelda við
Persaflóa hófst.
Bandarískirlög-
fræðingarmyrtir
Ekkert lát virðist ætla að verða á
morðöldunni í Mið-Ameríkuríkinu E1
Salvador og um helgina voru tveir
bandariskir lögfræðingar og forseti
Jarðyrkjuumbótastofnunarinnar í E1
Salvador skotnir til bana.
Bandaríska ríkisstjórnin hefur lýst
yfír áhyggjum sínum og hneykslun
vegna morðanna. Talsmaður banda-
riska utanríkisráðuneytisins sagði að
Bandaríkjamennirnir tveir hefðu unnið
fyrir samtökum er berjast fyrir starfi
frjálsra verkalýðshreyfinga.
Forseti E1 Salvador, Jose Napoleon
Duarte, hefur heitið Bandaríkjastjórn
fyllstu samvinnu við rannsókn málsins
og handtöku og refsingu morðingj-
anna.
__________26908_
• Danska, enska, þýzka, franska, ítalska,
spænska og íslenzka fyrir útlendinga.
• Innritun daglega kl. 1—7 e.h.
• Kennsla hefst 12. janúar.
• Innritun aöeins í eina viku.
Útlendir farandverkamenn eru talsvert fjölmcnnir í Danmörku þrátt fyrir það mikla atvinnuleysi sem ríkir þar. Hafa margir
þessara verkamanna oúið I Danmörku 110—15 ár og finnst þeim nú timi til kominn að þeir öðlist aukin réttindi i landinu.
Sjö samtök innflytjenda i Danmörku hafa nú sent stjórn Ankers Jörgensen itarlega skýslu þar sem fjallað er um aðstæður
innflytjendanna og settar eru fram kröfur um úrbætur. Skýrslan er lögð fram undir yflrskriftinni: Tillögur innflytjendanna að
lausn vandamála þeirra i Danmörku. Skýrslan er 91 blaðsiða að lengd og þar er meðal annars sett fram sú krafa að ekki
verði unnt að senda farandverkamennina úr landi eftir geðþótta stjórnvalda, eins og þeir segja að gert hafi verið.
-MÁLASKÓLI
L26908__________HALLDÓRSJ
Styrkið og fegríö fíkamann
! Dömur og herrarl
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 7. jan. Leikfimi fyrir konur á öiium aidri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar
fyrir eldri dömur og þær sem em slæmar í baki eða þjást af vöðva-
bólgum.
Vigtun — mæling — sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — nudd
Innritun og upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 í síma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúia 32
Víðtækasta lögreglurannsókn síðarí ára í Bretlandi:
Jack the Ripper”
loksins fundinn?
—Lögregla hef ur handtekið kvæntan mann á fertugsaldrí, sem hún hef ur grunaðan
um morð á 13 konum síðastliðin fimm ár
Brezka lögreglan hefur handtekið
mann sem hún hefur grunaðan um að
vera fjöldamorðinginn sem í daglegu
tali hefur verið kallaður „Yorkshire
Ripper” eða Jack the Ripper”, eftir
morðingja, sem myrti sex vændis-
konur í London á 19. öld, án þess að
nokkurn tima hefðist upp á honum.
Leitin að „Yorkshire Ripper” er
sennilega sú víðtækasta sem nokkru
sinni hefur farið fram í Bretlandi og
hafa 300 lögreglumenn unnið að
rannsókn málsins að staðaldri.
Yorkshire-morðinginn er talinn bera
ábyrgð á þrettán moröum á síðast-
liðnum ftmm árum. Fórnarlömb
hans hafa eingöngu verið konur og í
flestum tilfellum vændiskonur.
Lögregluforinginn Ronald
Gregory, sem stjórnað hefur
rannsókn þessa máls, sagði við frétta-
menn að maðurinn sem handtekinn
hefði verið sé á fertugsaldri og
kvæntur. Hann var handtekinn í
vændiskvennahverft í útjaðri
Sheffield á föstudagskvöld, grunaður
um að hafa stolið bilnúmerum. „Við
erum mjög ánægðir með þróun
mála,” sagði lögregluforinginn
Ronald Gregory á fundi með frétta-
mönnum.
Kvennamorðin í Yorkshire síðast-
'liðin fimm ár hafa vakið mikinn óhug
meðal almennings í Bretlandi og
hefur frammistaða iögregiunnar í
málinu sætt vaxandi gagnrýni.
Yorkshire-morðinginn hefur sjálfur
hæðzt að lögregiunni, bæði í bréfum
og með símhringingum. Síðasta
morðið framdi morðingi þessi i Leeds
í nóvembermánuði síðastliðnum og
eftir það morð játaði lögreglan að
hún væri raunverulega engu nær en
fyrir fimm árum, þegar fyrsta morðið
var framið.
Lögreglan hefur ekki fengizt til að
upplýsa hvernig morðin hafa verið
framin, en talið er að morðinginn >
hafl í öllum tilfellum ráðizt aftan að
fórnarlömbum sinum, barið þau í
höfuðið með hamri og síðan stungið
þau margsinnis. Hinn handtekni
kemur fyrir rétt ídag.