Dagblaðið - 05.01.1981, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 05.01.1981, Blaðsíða 16
16 i Iþróttir Iþróttir DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981 róttir Iþróttir D Jafntef liskóngamir frá Old Trafford sluppu fyrir horn gegn Brighton! —tókst þó ekki að krækja í nema annað stigið á heimavelli sínum. Ipswich vann stórleik umferðarínnar og Allison f ékk háðulega útreið á Maine Road. Bikarmeistarar West Ham náðu aðeins jöf nu á Upton Park en annars fátt um óvænt úrslit Óvenju litið var um óvænt úrslit i 3. umferð ensku bikarkeppninnar, sem fram fór á laugardag. Flest eftir bók- inni en þó ekki alveg laust við fráhvörf. Einna mest kom á óvart að Bolton skyldi ná jöfnu f Nottingham — gegn Forest svo og óvæntur stórskellur Swansea á heimavelli sinum, Vetch Field, fyrir Middlesbrough, sem til þessa hefur ekkl talizt sterkt á útivelli. En aðalvlðurelgn dagsins var þó i Ipswich þar sem heimamenn mættu Aston Villa. Ipswlch hafði algera yfir- burði f fyrri hálfleiknum en tókst þó aðeins að skora eitt mark. Paul Mariner sendi knöttinn með þrumu- skoti i netið á 14. minútu eftir fallegan undirbúning. Tvfvegis varð Jimmy Rimmer að taka á öllu sinu til að verja. í síðari hálfleiknum sótti Villa mjög í sig veðrið undir forystu Dennis Mortimer, sem stjórnaði spili liðsins glæsilega á miðjunni. Framherjunum gekk þó illa aö finna göt á vörn Angliu-liðsins og Terry Butcher hafði hinn hávaxna Peter Withe „í vasanum” ef hægt er að nota þá sam- líkingu í þessu tilviki. Það næsta sem Villa komst því að skora var undir lok leiksins er Paul Cooper varði meistara- lega aukaspyrnu frá Gordon Cowans. Eftir mikið þóf og stapp, þar sem Mortimer reyndi hvað hann gat til að draga úr athygli varnarmanna Ipswich, renndi hann knettinum til Cowans, sem sendi þrumufleyg að markinu. Leik- menn Villa voru margir hverjir búnir að lyfta höndunum i fögnuði er Cooper sveif á eftir knettinum og varði glæsilega. Liðin voru þannig skipuð. Ipswich: Cooper, Burley, Osman, Butcher, Mills, Thijssen, Wark, Mllhren, Gates, Brasil og Mariner. Villa: Rimmer, Swain, Evans, McNaught, Williams, Mortimer, Paul Mariner skoraðl eina markið i toppviðureign Ipswich og Aston Villa. Bremner, Cowans, Morley, Shaw og Withe. Áður en við höldum lengra er rétt að fara yfir úrslitin í leikjunum 32. Enski bikarinn — 3. umferð Barnsley—Torquay 2—1 Birmingham—Sunderland 1—1 Bury—Fulham 1—1 Colchester—Bradford 0—1 Derby—Bristol City 0—0 Everton—Arsenal 2—0 Huddersfield—Shrewsbury 0—3 Hull—Doncaster 1—0 Ipswich—Aston Villa 1—0 Leeds—Coventry 1—1 Leicester—Cardfiff 3—0 Liverpool—Altrincham 4—1 Manchester City—C. Palace 4—0 ManchesterU.—Brighton 2—2 Mansfleld—Carlisle 2—2 Maidstone—Exeter 2—4 Newcastle—Sheffield Wed. 2—1 Norwich—Cambridge 1—0 Nottm. Forest—Bolton 3—3 NottsCounty—Blackburn 2—1 Orient—Luton 1 —3 Peterborugh-Chesterf., 1—1 Plymouth—Charlton 1—2 PortVale—Enfield 1—1 Preston—Bristol Rovers 3—4 •QPR—Tottenham 0—0 Southampton—Chelsea 3—1 Stoke—Wolves 2—2 Swansea—Middlesbrough 0—5 WBA—Grimsby 3—0 WestHam—Wrexham 1—1 Wimbledon—Oldham 1 —0 Bikarmeistarar West Ham voru einum of rólegir í tíðinni gegn Wrexham. West Ham hafði yfirburði lengst af en tókst ekki að komast á blað í fyrri hálfleiknum. Það var loks að Paul Goddard var brugðið innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Ray Stewart skoraði fyrir Hammers á 59. mínútu. Wrexham virtist ekki eiga neina möguleika á að jafna metin því heimaliðið hafði tögl og hagldir. En of miklir yfirburðir geta einnig verið hættulegir. Smám saman sofnuðu leik- menn West Ham á verðinum og þegar 3 mínútur voru til leiksloka tókst Gareth Davies að jafna óvænt og ákaflega óverðskuldað fyrir Wrexham. Það gæti því hæglega farið svo að bikarmeistar- arnir féllu út á fyrstu hindrun því leikurinn í Wrexham á morgun verður ekki auðveldur. Áhorfendur á Upton Park voru 30.000. Hitt úrslitaliðið frá í fyrra, Arsenal, féll út fyrir Everton á Goddison Park að viðstöddum 34.000 áhorfendum. Ekkert mark hafði verið gert fyrstu 85 mínútur leiksins og Arsenal varðist með kjafti og klóm. Þá hins vegar kom föst sending fyrir markið. Jennings náði ekki til knattarins og í tilraun sinni til að hreinsa frá markinu sendi Kenny Sansom knöttinn rakleiðis í eigið net. Leikmenn Arsenal féllu alveg saman og á lokamínútunni bætti Mick Lyons öðru marki við. Stóð lengst af í deilum um hvort knötturinn hefði farið yfir marklinuna eður ei en það sást greini- lega í sjónvarpi að knötturinn fór yfir línuna. Forest lenti í hinu mesta basli með Bolton og það þó leikið væri á heima- velli Forest, City Ground. Trevor Francis er nú allt í öllu hjá Forest eftir að hann náði sér eftir meiðslin og hann skoraði fyrsta mark leiksins á 33. mínútu. Paul Jones varnarmaður hjá Bolton varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla á 18. mfnútu og á 30. mínútu meiddist Brian Kidd og var vart nema hálfur maður það sem eftir lifði. En Bolton neitaði að gefast upp. Hoggan jafnaði metin á 36. mínútu og kom Bolton síðan yfir á 55. minútu öllum til mikillar undrunar. Trevor Francis jafn- aði fyrir Forest 10 mínútum síðar en vart var minúta liðin er Neil Whatmore hafði sent knöttinn í net Forest í þriðja sinn. Eftir þetta mark lagði Bolton ofurkapp á vörnina. Sókn Forest var þung lokakaflann og loks á 85. minútu Ándy Rltchie skoraði gegn sinum gömlu félögum, en murk hans dugði þó ekld til sigurs. tókst Raimond o Ponte að jafna metin á ný fyrir Forest. Þar við sat en undir eðlilegum kringumstæðum ætti Forest að vinna Bolton nokkuð örugglega á Burnden Park á morgun. Malcolm Allison var hálf sneyptur er hann gekk með leikmönnum Crystal Palace inn i búningsherbergin á Maine Road. Enda ekki nema von. Karlinn yfirgaf City nýlega og hélt á fornar slóðir í SA-Lundúnum. Og árangurinn lætur ekki á sér standa. City blómstrar nú undir stjórn John Bond en Palace er á hraðri leið niður í 2. deild með Alii- son hinn heilaskerta við stjórnvölinn. Palace varðist grimmilega á laugardag og tókst að halda hreinu þar til á 54. mínútu er Kevin Reeves skoraöi úr víta- spyrnu. City hafði átt leikinn frá upp- hafi en þarna var tónninn gefinn. Paul Power skoraði heppnismark á 60. minútu og lokakaflann bætti City tveimur mörkum við. Fyrst Phil Boyer og síðan Reeves. Kevin Keegan hefur gerbreytt liði Southampton til hins betra eftir að hann hóf að leika með á ný eftir slæm meiðsl. Dýrlingarnir höfðu tögl og hagldir gegn Chelsea og undrabarnið Steve Moran skoraði á 6. mínútu. Það var hans 13. mark í 14 leikjum. Sann- kallaður spútnik drengurinn sá. Keegan bætti siðan öðru marki við á 29. mínútu en varð síðar að yfirgefa völlinn vegna meiðsla er hann hlaut. Það kom þó ekki í veg fyrir að Graham Baker bætti þriðja marki Dýrlinganna við áður en Colin Lee tókst að svara fyrir þá bláklæddu í Lundúnum. Það var fyrsta mark Chelsea í 6 leikjum. Áhorfendur í Southampton voru 23.694. Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með litla liðið Altrincham undir stjórn Antony Snaders, sem hér á árum áður þjálfaði Víking. Liverpool tókst þó ekki að rjúfa varnarmúr smár liðsins fyrr en á 29. mínútu er Terry McDermott skoraði. Kenny Dalglish bætti síðan öðru marki við á 44. mínútu og því þriðja á 50. mínútu. Altrincham sem hafði legið í vörn framan af átti margar hættulegar skyndisóknir og t.d. varð Richard Money að bjarga á línu til að forða marki. Ray Clemence átti ekki annað tiltækt ráð eftir á 71. mínútu en að bregða einum sóknarmanna Altrinc- ham, sem kominn var í upplagt færi. Heathcoat skoraði örugglega úr vítinu Ray Kennedy átti lokaorðið fyrir Liver- pool er hann skoraði fjórða mark liðsins undir lokin. Áhorfendur voru tæplega 37.000 á Anfield og þeir klöpp- uðu leikmönnum Altrincham lof í lófa er þeir gengu af velli í leikslok. Minnstu munaði að Manchester United hlyti óvæntan skell á Old Traf- ford fyrir Brighton. Þótt Gary Birtles léki með á ný var enga breytingu að sjá til batnaðar hjá United-liðinu, jafn- tefliskóngum Bretlandseyja. Það var Brighton, sem gaf tóninn og á 12. minútu skoraði Horton fyrsta mark leiksins. Andy Ritchie, fyrrum leik- maður United, skoraði síðan annað mark liðs síns á 20. mínútu og þannig var staðan þar til 20 minútur voru til leiksloka. Dave Sexton og Tommy Cavanagh sáu þá að nauðsynlegt var að gera róttæka breytingu ef einhverju átti að bjarga. Sexton tók það til bragðs að kippa Sammy Mcllroy, sem hafði átt slakan leik, útaf og setti Mike Duxbury í hans stað. Gífurleg breyting varð á leik United. Duxbury skoraði á 72. mínútu og á 85. minútu tókst Micky Thomas að jafna metin. Þrátt fyrir gegndarlausa sókn United lokakaflann, tókst ekki að knýja fram sigur en liðið má þó vel við una eftir allt saman. Liðin mætast að nýju á Goldstone Ground í Hove á miðvikudag og má búast við hörkuleik. Pat Patridge, dómari, var aðalmað- urinn á Elland Road í Leeds er heima- Kenny Sansom varð fyrir þvi óhappi að senda knöttlnn I eigið net. Mick Lyons tryggði sigur Everton með umdeildu marki i lokin gegn Arsenal. liðið mætti þar Coventry. Það var bak- vörðurinn Thomas sem kom Coventry yflr með heppnismarki. John Lukic hafði hendur á knettinum en missti hann siðan og tuðran skreið innfyrir linuna. Voru mikil áhöld um hvort boltinn hefði farið yfir en Partridge taldi svo vera. Leeds sótti talsvert í s.h. en tókst, sem fyrr, ekki að finna gat á vörn Coventry. Loks tók Alex Sabella á rás og var klossbrugðið rétt fyrir fram- an nefið á dómaranum. Atvikið átti sér stað innan vítateigs. Ekkert var dæmt en þegar Sabella var aftur brugðið á svipuðum stað nokkru síðar var Partridge ekki í vafa og dæmdi víta- spyrnu og það þó hann stæði rúma 40 metra frá atvikinu. Kevin Hird jafnaði úr vítinu, sem loks var dæmt en liðin verða samt að mætast á nýjan leik. Birmingham tókst ekki að leggja Sunderland að velli þó á St. Andrews væri Ieikið. Keith Berthohin skoraði fyrir heimaliðið á 43. mínútu en Gary Chisholm jafnaði fyrir gestina á 80. minútu. Gary Lineker skoraði fyrsta mark Leicester gegn Cardiff og 1. deildarliðið fór létt með mótherja sína úr 2. deildinni. Downes skoraði sigur- mark Norwich gegn Cambridge, sem tókst ekki eins vel upp i bikarnum og í deildabikarnum. Ekki munaði miklu að áhuga- mannaliðinu Enfleld tækist að leggja Port Vale að velli. Bishop kom Enfield yfir á 39. mínútu en Beech jafnaði fyrir Port Vale á þeirri 70. Enfield var mun sterkari aðilinn og má fast eins búast við því að það verði eina áhugamanna- liðið í 4. umferðinni. Maidstone átti aldrei möguleika gegn Exeter og varð að sætta sig við 2—4 tap. Luton skoraði öll sín mörk á 15 mínútna kafla og það varð Orient um megn. Robson skoraði fyrsta mark WBA gegn Brighton og eins og í Leicester hafði 1. deildin betur gegn þeirri annarri. Malcolm Poskett skoraði sigurmark Watford gegn Colchester og Derek Hales tryggði Charlton sigur gegn Plymouth eftir að heimaliðið hafði komizt yfir. Stoke og Úlfarnir skildu jöfn á Victoria Ground. Þar var sóknar- leikurinn í hávegum hafður — óvana- legt þegar þessi lið eiga í hlut. Mel Eves kom Úlfunum yfir á 28. mínútu en Lee Chapman jafnaði fyrir Stoke tveimur mínútum síðar. Kenny Hibbitt skoraði siðan annað mark Úlfanna á 40. mínútu og þannig var staðan í leikhléi. Chapman jafnaði síðan aftur fyrir Stoke í síðari hálfleiknum og þar við sat. Þá var því lýst yfir í herbúðum Crystal Palace að Clive Allen getur yfirgefið félagið þegar hann vill svo fremi eitthvet félag vilji borga tilsetta upphæð fyrir hann. Verði hann seldur gengur hann til liðs við fjórða félagið á aðeins rúmlega hálfu ári og hlýtur það að teljast met af einhverju tagi. Leikmenn Preston vöknuðu upp við vondan draum í hálfleik gegn Bristol Rovers. Staðan var orðin 4—0 gest- unum í vil og fram til laugardags höfðu þeir ekki unnið leik á útivelli. Þó leik- menn Nobby Stiles reyndu allt hvað þeir gátu tókst þeim ekki að svara nema þrisvar fyrir sig og það dugði ekki til. -SSv.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.