Dagblaðið - 05.01.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981
iI
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Horowitz
Serkln
Sutherland
Bemstein
Rostropovich
Caballé
Watts
Menuhin
r æ.
Þetta góða listafólk sem er á
myndunum hér að ofan er tekið sem
dæmi um það hvernig hlutföllin í
greiðslum til ýmissa heimsfrægra
listamanna hafa raskazt og himinhá-
ar upphæðir þessar stjörnur taka
fyrir að koma fram eitt kvöld.
í efsta flokki tróna söngvarinn
Pavarotti og píanóleikarinn
Horowitz, en þeir taka 40 þúsund
dollara eða 250 þúsund nýkrónur
fyrir hverja skemmtun. í næsta
flokki eru þau píanóleikarinn Rudolf
Serkin og söngkonan Joan Suther-
land, en þau taka 25 þúsund dollara
eða rúmlega 150 þúsund nýkrónur
fyrir að koma fram. í þriðja flokki
koma svo Mstislav Rostropovic
sellóleikarinn og hljómsveitarstjórinn
frægi, Leonard Bernstein sem bæði
bregður fyrir sig píanóinu og
tónsprota og hljómsveitarstjórinn
Georg Solti. Þeirra taxti er 15
þúsund dollarar eða nærri eitt
hundrað þúsund nýkrónur.
Neðst koma þau píanóleikarinn
Watts, fiðlusnillingurinn Menuhin og
söngkonan Caballé, en þau fá, sem
nemur 10 þúsund dollurum, eða
62.500 nýkrónum fyrir hverja
skemmtun.
. Pavarotti
Bo Derek
engin
leikkona
Hjónin John og Bo Derek eru
sammála um eitt. . . sem leikkona er
Bo ekki atvinnumanneskja. Þau telja
þetta vera henni til framdráttar á sviði
kvikmyndanna. Bo, hin 24 ára stjarna
úr myndinni ,,10” segir í viðtali. ,,Ég
held að vegna þess að ég hef enga
þjálfun hlotið i leiklist, sé ég ekki
taugaóstyrk á hvíta tjaldinu. Fyrir mér
er að leika bara að látast. Maður
hennar, sem er 54 ára, segir að Bo sé
„áhugamanneskja” í leiklistinni, en
segir að „áhugafólk hafi eitthvað sér-
BO DEREK „Mknr” Jaae 1 nýrri
mynd um Tarzan apabróður.
stakt afl”. Hann bætti við, „ef Bo færi
að leika, yrði útkoman hræðileg.”
Síðasta mynd hennar er „Tarzan”.
Hún leikur Jane, en maður hennar
stjórnar.
Kennedyar á hálum ís
— tvö afsprengi Kennedyœttarinnar flœkt í eiturlyfjamál
Christopher Lawford, frændi
Edwards Kennedys öldungadeildar-
þingmanns í Bandaríkjunum var hand-
tekinn í Boston fyrir meinta sölu á
heróíni. Christopher Lawford er 25 ára
að aldri og er sonur leikarans Peter
Lawford og Patriciu Kennedy, systur
þeirra Kennedybræðra.
Lögreglumenn sögðust hafa séð
Christopher í heróínviðskiptum og
var hann gripinn. Hann hélt hins vegar
fram sakleysi sínu og var skömmu síðar
látinn laus. Hann á hins vegar að mæta
til yfirheyrslu 30. janúar nk.
Refsing fyrir heróínsölu í Boston er
frá eins til tíu ára fangelsi og sekt allt
að tíu þúsund dollarar. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem þetta afsprengi
Kennedyættarinnar kemst i kast við
Iögin vegna eiturlyfjamisferlis.
Fleiri Kennedyar hafa farið inn á
Brezka rithöfundinum Graham
Greene hafa verið veitt hin svonefndu
„Jerúsalem verðlaun” fyrir árið
1981. Þessi verðlaun eru veitt annað
hvert ár rithöfundum, sem þykja í
þessar brautir. David Kennedy, sem
einnig er 25 ára gamall, sonur Roberts
Kennedys, flæktist í eiturlyfjamál árið
1979. Hann var skömmu síðar fluttur á
sjúkrahús vegna eitrunar sem algeng er
meðal eiturlyfjaneytenda.
verkum sínum hafa unnið mann-
réttindamálum vel. Verðlaunin verða
veitt á alþjóðlegri bókaviku í
Jerúsalemíaprílnk.
Graham Greene verðlaunaöur
UMBOÐSMENN SÍBS
ÍREYKJAVÍK
OG NÁGRENNI
Leynlst meiia í
veskinuenbia
grímar?
Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23130.
Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26,sími 13665.
Hreyfill bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632.
Versl. Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800.
S. I. B. S.-deildin, Reykjalundi, Mosfellssveit.
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180.
Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18,
Garðabæ, sími 42720.
Sigríður Jóhannesdóttir c/o Bókabúð,
Olivers Steins, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, sími 50045.
HAPPDRÆTTI SÍBS