Dagblaðið - 05.01.1981, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 05.01.1981, Blaðsíða 8
OPIÐ í KVÖLD FRÁ KL. 18-01 HalldórÁrni í diskótekinu SPAKMÆLI DAGSINS: „ Oft er í holti heyrandi naer." SJÁUMST HEIL Óða/ STILL Esslingen lyftarar uppgerðir frá verksm. Til afgreiflslu nú þegar. Rafmagns: 1,51,21, 2,51 og 3, tonna. Dísil: 3,51,41 og 6 tonna. Greiflslukjör. STILL einkaumboð á íslandi J^K JÓNSSON &CO. HF. Hverfigötu 72, simi 12452 og 26455. VANTA5.ft FRAMRUÐU? TT Ath. hvort viö getum aðstoðað. ísetningar á staðnum. bílrúðan rrM Verksmiðjustörf í plastiðnaði Hampiðjan óskar að ráða fólk til eftirtaíinna starfa: Vaktformenn og aðstoðarfólk i plastvinnsludeild. Unnið er á þrískiptum vöktum fimm daga vikunnar. Menn þurfa að vera undir það búnir að taka á sig aukavaktir þegar þörf krefur. Hafíð samband við Davíð eða Gylfa. Starfsfólk I flétti og spunadeildir fyrirtækisins. Unnið er á tvískiptum vöktum fímm daga vikunnar. Uppl. veita Davið eða Hektor. Til ýmissa annarra starfa svo sem vélgæzlu á kaðlavélum, við blývinnslu o.fl. Tvískiptar vaktir. Uppl. hjá Hektori. Hafíð samband við ofangreinda menn milli kl. 10 og 12 næstu daga, ekki í síma. Hampiðjan h/f. Dregið var í hausthapp- drætti Blindrafélagsins 22. desember 1980, vinningar komu á eftir- talin númer: Myndsegulband....... Vöruúttekt gkr. 500.000.- Reiðhjól gkr. 300.000.- .. nr. 12002 - 11715 - 18820 - 18039 - 13738 - 28932 - 12634 - 7041 - 7251 - 5532 - 24461 - 8860 _ 9337 - 13451 - 23811 - 5559 Þökkum landsmönnum veittan stuðning á liðnu áru # Blindrafélagið Hamrahlíð 17. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981 Erlent Erlenf Erlent I Jiang Qing fyrir rétti f Beijing. Jiang Qing ótt- aðist fortíðina —og þess vegna lét húntil skarar skríða gegn þeim, sem minntust hennar frá Sanghai Athygli umheimsins hefur mjög beinzt að Kína og Beijing undan- farnar vikur. Ástæðan er fyrst og fremst réttarhöldin yfir fjór- menningaklíkunni svonefndu og það valdatafl, sem samhliða réttarhöld- unum virðist hafa átt sér stað meðal ,forystumanna þjóðarinnar. Hluta réttarhaldanna hefur verið sjón- varpað og hefur það að sjálfsögðu ekki orðið til að draga úr athyglinni. Milljónir sjónvarpsáhorfenda í Kína og víðar um heiminn fylgdust með þeim þætti réttarhaldanna er Jiang Qing, ekkja Maós var með valdi flutt út úr réttarsalnum f Beijing eftir að hún hafði hrópað ókvæðis- orðum að vitninu Liao Mosha, sem á tímum menningarbyltingarinnar var stimplaður sem útlendur njósnari og mátti af þeim sökum þola átta ára fangelsisvist. Ókvæðisorðin sem Jiang Qing hrópaði nú að Liao Mosha voru meðal annarra flokks- svikari, endurskoðunarsinni og fífl. En hver var hinn grátandi og 73 ára gamli Liao Mosha og hvers vegna hataði Jiang Qing hann svo mjög? Til þess að komast að því verðum við að hverfa nokkra áratugi aftur í tímann eða aftur til fjórða áratugar aldarinnar í Shanghai, til þeirrar for- tíðar sem Jiang Qing, sem þá var kvikmyndaleikkona, hefur gert allt sem í hennar valdi hefur staðið til að dylja. Það hversu Jiang Qing hefur verið umhugað að fortíð hennar yrði ekki grafin upp sézt meðal annars af því, að í júnímánuði 1%6 bað hún félaga sinn í fjórmenningaklíkunni, Zhang Chunqiao í Shanghai um að ræða við kvikmyndaframleiðandann Zheng Junli, sem þekkti talsvert til lífs hennar á fjórða áratugnum. Zheng var skipað að láta af hendi þau bréf sem Jiang Qing hafði sent honum. Við því gat hann ekki orðið þar sem hann hafði ekki geymt bréfin og átti aðeins fáeinar myndir frá þessum tíma. En Jiang Qing grunaði hann um græsku og lét nokkra her- menn úr flughernumí sem voru dul- búnir, sem rauðir varðliðar, fram- kvæma húsleit hjá fimm listamönn- um. Afraksturinn varð tveir fullir pokar og innihaldi þeirra var brennt i janúarmánuði 1967. í byrjun októbermánaðar 1%6 var lögregluforingi einn frá Shanghai, Jiang Tengjiao að nafni, kallaður til Beijing þar sem eiginkona Lin Biaos gaf honum skipun um að finna bréf eitt, sem Jiang Qing hafði skrifað á fjórða áratugnum. Honum var skipað að hafa upp á öllum bréfum, dagbókum, minnisbókum og þvíum- líku þetta á að gerast með mikilli leynd. Bréf þessi vörðuðu fortíð Jiang Qings og hún var hrædd um að vissir hlutir yrðu afhjúpaðir. Liao Mosha, sem nú sat grátandi sem vitni í Beijing-réttarhöldunum var á fjórða áratugnum félagi í vinstrisinnuðum samtökum lista- manna og mjög fátækur maður. Hann bjó við bágbornar aðstæður ásamt ófrískri konu sinni í einu þak- herbergi en samt sem áður skaut hann skjólshúsi yftr Jiang Qing þegar hún átti í erfiðleikum. Þegar Jiang Qing flutti úr þakher- berginu lánaði hún velgjörðarmanni sinum tuttugu yuan og árið 1%2 sagði frú Maó bandariska sagn- fræðingnum Roxane Witke frá því, að Liao Mosha hefði aldrei greitt einn einasta eyri af þessari upphæð til baka. Frú Witke segist hins vegar hafa fengið það á tilfinninguna, að Jinag Qing væri að reyna að dylja það, að hún hefði verið að kaupa þögn Liao Mosha. Þegar menningarbyitingin byrjaði árið 1966 hugðist Jiang Qing hefna sín á Liao, sem nú var framkvæmda- stjóri einingardeildar flokksins i Beijing. Hann var einn hinna fyrstu, sem var handtekinn og ákærður fyrir grein, sem hann hafði skrifað í júli 1934 um hinn mikla rithöfund Lu Xun í blaðið Da Wan Bao. En aðalákæran var vegna rit- gerðarsafns sem hann skrifaði „Minningar frá þriggja fjölskyldna sveitabænum” ásamt rithöfundunum Wu Han og Deng To í blaðið Qianxian á tímabilinu 1%1 til 1964, þar sem sögulegir atburðir voru settir fram í formi háðssögu. Ein þessara greina, sem birtist árið 1962 fjallaði um mann, sem þjáðist af minnisleysi, sem kom fram i óskynsamlegri hegðun hans. Maðurinn var Maó formaður. í greininni sagði meðal annars: ,,Fólk, sem þjáist af minnisleysi stendur ekki við orð sín. Það leiðir til óeðlilegrar sjálfsánægju eða reiði- kasta og að lokum til geðveiki. Sá semþjáistuf þessum sjúkdómi verður þegar í stað að fá fullkomna hvíld. Ef hann krefst þess að tala eða aðhafast eitthvað skapar hann hina mestu erfiðleika. í gamla daga var læknis- aðferðin fólgin í því að hella hunda- blóði yfir höfuð hins þjáða. ” Maó sjálfur aðhafðist aldrei neitt gegn rithöfundunum þremur en jafn- skjótt og Jiang Qing fékk tækifæri til lét hún til skarar skríða gegn Liao og hinum rithöfundunum, sem þekktu hana frá Shanghai. Liao Mosha sætti mjðg illri meðferð í fangelsinu og meðal annars slógu fangaverðirnir tennurnar úr honum. I dag á hann sæti í ritnefnd kvöldblaðs Beijing. (Politiken). Jiang Qing, ekkja Maós formanns.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.