Dagblaðið - 05.01.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR5. JANÚAR 1981
(S
gþróftir
Iþróttir
Iþróftir
B-lið KR-inga
sigraði Þórsara
Það er ekki ofsögum sagt af B-liði KR-inga f körf-
unni. Liðið hefur á undanförnum árum valdð mikla
athygli fyrir glæsilega takta og lét sig ekki muna um
að ryðja 1. deildarliði Þórs á Akureyri úr vegi um
helgina i bikarkeppni KKÍ. KR sigraðf örugglega 80-
70 þó svo enginn útlendlngur léki með þeim en Þórs-
arar tjölduðu að sjálfsögðu Gary sinum Schwarz en
dugði skammt.
Heimsmet í1500 m
skautahlaupi kvenna
Sovézka stúlkan Natalia Petruseva setti um
helgina nýtt heimsmet f 1500 metra skautahlaupi
kvenna f Medeo. Petruseva, sem vann gullverð-
launin i 1000 metra hlaupina á ólympiuleikunum f
Lake Placid kom i mark á 2 min. 6,01 sek. en gamla
metið sem iandi hennar Vorobyova átti var 2 mín.
7,18 sek.
Leikið ílægri
deildum Englands
Nokkrir leikir fóru fram i lægri Englandi um helgina. Úrslit urðu þessi: deildunum i
3. deild
Brentford—Burnley 0—0
Gillingham—Rotherham 0—0
Newport—Sheffield Utd. 4—0
Walsall—Millwall 0—0
4. dcild
Aldershot—Northampton 0—0
Bournemouth—Stockport 0—1
Darlington—York 0—0
Rochdale—Crewe 2—0
Wigan—Southend 0—1
Skipað í störf hjá KSÍ
Á laugardag var stjórnarfundur i Knattspymu-
sambandi tslands. Þar skiptu stjórnarmenn með sér
verkum. Ellert B. Schram var kjörinn formaður á
ársþingi KSÍ. Friðjón Friðjónsson verður áfram
gjaldkeri og Jens Sumarliðason varaformaður.
Helgi Danfelsson verður áfrám formaður landsliðs-
nefndar. Árai Þ. Þorgrimsson verður formaður
dómaranefndar, Helgl Þorvaidsson formaður móta-
nefndar og Hilmar Svavarsson, formaður aganefnd-
ar.
Celtic nú stigi
á eftir Aberdeen
Celtic vann góðan sigur á Morton, 3—0, á heima-
velli f skozku úrvalsdeildinni á laugardag, og er nú
aðeins einu stigi á eftir efsta liðinu, Aberdeen. Mörk
Celtic gegn Morton skoruðu Frank McGarvey og
Dave Provan — Provan tvivegis með skalla. Á sama
tima gerði Aberdeen jafntefli 1—1 við St. Mirren i
Paisley. Jim Bone skoraðl fyrir St. Mirren en rétt
undir iok leiksins, jafnaði Ian Scanlon fyrir Aber-
deen úr vftaspyrau. Aberdeen hefur leikið einum leik
minna en Celtlc.
Þá vann Dundee Utd. stórsigur á neðsta liðinu i
úrvalsdeildinni, Kilmarnock. 7—0 i Dundee en
Aidrie og Rangers gerðu jafntefli, 1—1.
Jason úr Þrótti
Blakmaðurinn góðkunni Jason ívarsson, hefur
tilkynnti félagaskipti úr Þrótti i UMF Samhyggð i
Gaulverjabæjarhreppi. Samhyggð leikur i 2. deild
blaksins (suðvesturlandsriðli) en Jason hefur einmitt
þjálfað llðið f vetur. Jason á að bald 12 landsleiki.
Samúel öra Erllngsson, leikmaður UMFL og
fyrrum landsliðsmaður hefur einnig tilkynnt félags-
skipti, hann gengur til liðs við Hveragerði. -KMU.
Kemst Kína
áHMáSpáni?
Kina sigraði Norður-Kóreu 4-2 eftir framlengdan
leik og sigraði þar með { sínum riðli i Asiu-keppni
heimsmeistarakeppninnar i knattspyrnu. Með
sigrinum er Kina komið i úrslit i Asiu-riðlunum.
Þrjú lönd til viðbótar munu leika þar. Ennþá er ekki
vitað hver þau verða. Tvö efstu löndin i úrslitariðlin-
um munu leika i úrslitum heimsmeistarakeppninnar
áSpáni1982.
Leikur Kina og Norður-Kóreu var háður i Hong
Kong. í hálfleik var staðanl-1 og 2-2 eftir venjulegan
leiktima. Þá var framlengt. Leikmenn Kina voru út-
haldsbetri og sigruðu verðskuldað 4-2. Siðustu mörk
leiksins voru skoruðu á 110. min. af Xiangdong og á
112. min. af Guo Guangming. Norður-Kórea, sem
komst f úrslit heimsmeistarakeppninnar 1966, sem
háð var á Englandl, náði forustu eftir aðeins tvær
minútur i leiknum f Hong Kong. Kina jafnaði i 1-1
með siðustu spymunni f fyrri hálfleik.
Sigurvcgarar Vikings i 2. flokki karla ásanit þjálfara sinum. Pctri Bjarnarsyni.
DB-mynd S.
Innanhússmótinu íknattspymu lokið:
Fylkir vann í kvennaflokki
—Víkingur í2. flokki karla
Reykjavikurmótinu f innanhúss- I Þróttur varð þvf i öðru sæti — Fylkir f
knattspymu lauk á laugard. i Laugar- þriðja og Valur f fjórða.
dalshöllinni með úrslltaleiknum f 2. Þá voru úrslit í kvennaflokki á laug-
flokki karla. Þar léku Vfklngur og ardag og fimmta fiokki drengja.
Þróttur til úrslita og sigraði Vfklngur. | Fylkir sigraði Val 2—1 i úrslitaleiknum
í kvennaflokki. Leiknir sigraði Fram I meistaraflokki karla.
6—4 í úrslitum í fimmta flokki. Þar f 4. flokki sigraði Fram. Valur varð í
varð Valur i þriðja sæti og KR í fjórða. öðru sæti, ÍR í þriðja og Fylkir í fjórða
Úrslit í öðrum flokkum voru fyrir sæti. f 3. flokki karla sigraði Fram.
áramót. Valur sigraði sem kunnugt er í | Valur varð i öðru sæti, KR í þriðja.
„Ætla ekki að leika á
Akranesi næsta sumar”
—sagði Sigurður Björgvinsson, en hann og Bnar Ásbjöm, líta Fram nú hým auga
,,Nei, það verður ekkert úr þvi að ég
leiki með Skagamönnum,” sagði Sig-
urður Björgvinsson,” þeir höfðu haft
samband við mig og Elnar Ásbjöra
Ólafsson. Við fengum frest fram að
áramótum, en við nánari athugun
höfðum við ekld áhuga á þvi að flytja
Austurrikismaðurinn Christian
Orlainsky vann sinn fyrsta sigur i
heimsbika'mum i alpagreinum f Ebnat-
Knappel f Sviss i gær. Þá var keppt f
stórsvigi og melstaranum mikia, Inge-
mar Stenmark, Sviþjóð, mlstókst.
Lenti á stöngunum á einu hliðinu. Féll
og varð að hætta keppni. Það var i
fyrri umferðinni. I fyrsta skipti, sem
Stenmark iýkur ekld keppni i stórsvigi
siðan 1977 og má það teljast furðulegt
öryggi.
Margir af kunnustu skíðamönnun-
um luku heidur ekki keppni í gær og
upp á Skaga, svo að ÍA er út úr mynd-
innl.”
Þeir félagarnir, Sigurður og Einar,
sem báðir léku með sænskum liðum í
sumar, ætla að fylgjast að næsta tíma-
bil og aðspurður sagði Sigurður, að nú
kæmu tvö lið til greina hér á landi, ÍBK
það nýtti Orlainsky sér vel. f sex fyrstu
sætunum urðu þessir kappar.
1. Ch. Orlainsky, Austurr. 2:41,41
2. Hans Enn, Áusturr. 2:41.50
3. J.L. Foumier, Frakkl. 2:41.58
4. Phil Mahre, USA, 2:42.18
5. Hannes Spiess, Austurr. 2:42.32
6. Jac. Lýthy, Sviss 2:42.46
Keppnin var óvenjujöfn að þessu
sinni. Eftir fyrri umferðina hafði Hans
Enn góða forustu 1:21.05 mín. en hinn
18 ára Orlainsky náði langbeztum tíma
í síðari umferðinni.
og Fram. Gæti fBK útvegað þeim
sæmilegt starf, væru allar líkur að þeir
herjuðu á heimaslóðum, — að öðrum
kosti myndu þeir leika með Fram,
undir stjórn Holmberts Friðjónssonar.
Ekki er heidur útilokað að Sigurður
fari aftur út fyrir landsteinana.
Aðstæður til keppni voru slæmar og
Stenmark hafði náð beztum tima eftir
fyrri helminginn í fyrri umferðinni.
Aðeins síðar féll hann. Þess má geta,
að Stenmark hefur sigrað í 17 af 19
stórsvigskeppnum í heimsbikarnum
síðustu árin.
Eftir þessa keppni er Peter Miiller,
Sviss, efstur i stigakeppninni með 80
stig. Hans Enn hefur 63 stig. Steve
Podborski, Kanada, er með 61 stig.
Andreas Wenzel, Lichtenstein, 57 stig.
Stenhiark er í áttunda sæti með 50 stig.
örgryte vill helzt ekki sleppa honum,
en Sigurður verður að gefa þeim
ákveðið svar fyrir 1. marz. Varðandi
samskipti hans og þjálfarans hjá
örgryte, sem sagt var frá hér í blaðinu,
vill Sigurður taka fram að ástæðan
fyrir misklíðinni á milli þeirra var sú að
þjálfarinn lét Sigurð spila meiddan —
píndi hann marga leiki unz Sigurður
varð að leggjast í rúmið í heilan mánuð
vegna beinhimnubóigu. Þannig missti
hann af seinustu 10 leikjunum í deild-
inni og einum bikarleik. Samtals lék
Sigurður 26 leiki með aðalliðinu, auk
margra í varaliðinu, sem var ekkert
annað en aukaálag, til að koma honum
isembeztaþjálfun.
,,Mér líkaöi í alla staði mjög vel hjá
örgryte. Það er mjög fjársterkt félag
og ætlar sér mikið í Allsvenskan, sem
þeir unnu sig upp í í sumar. Þar hef ég
átt mína beztu daga sem knattspyrnu-
maður — hafði góða atvinnu hjá Volvo
og aðstæður hjá félaginu eins og bezt
gerist í Svíþjóð. Af hverju ég skoða hug
minn um að fara út til þeirra aftur? Ég
er ekki viss um að ég geti gengið beint
inn í aðalliðiö og það er mikið stríð að
vinna þar sess. Mér finnst ég vera of
ungur til að standa í slíku. Vil heldur
reyna að vinna mér sæti í íslenzka
landsliðinu — þá er eftirleikurinn
auðveldari fyrir þá, sem ætla að halda
út í atvinnumennskuna.”
-emm.
Stenmark féll í stór-
svigi heimsbikarsins
—og 18 ára Austumkismaður sigraði. í fyrsta sinn síðan 1977
að Stenmark lýkur ekki keppni í stórsvigi
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1981
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Islandsmeistaratitillinn
blasir nú við Víkingum
—eftir stórsigur á Haukum, 28-16, í Laugardalshöll f gærkvöld. Víkingur þarf
aðeins tvö stig í þremur leikjum sem liðið á eftir til að sigra í mótinu
,,Nei, íslandsmeistaratitillinn er
ekki enn kominn i höfn, þó likurnar
séu góðar,” sagði Páll Björgvinsson,
fyrirliði Vikings, eftir að lið hans hafði
unnið stórsigur á bikarmeisturum
Hauka i 1. deild handknattleiksins i
Laugardalshöll i gærkvöld. Lokatölur
28—16 eða tólf marka sigur íslands-
meistaranna. Þó var Gunnar Einarsson
markvörður Hauka, langbezti leik-
maður Hafnarfjarðarliðsins. Sigur
Vikings i gærkvöld var hinn tfundi i
ellefu umferðum — 21 stig, aðeins eitt
jafntefli i öðrum leik mótsins. Liðiö
þarf nú aðeins tvö stig i þeim þremur
leikjum, sem það á eftir, til að halda
íslandsbikarnum á Hæðargarði. 25.
leikur Vfkings i röð á íslandsmótinu án
taps.
Víkingar byrjuðu Ieikinn með mikl-
um krafti og höfðu náð yfirburðastöðu
um miðjan fyrri hálfleikinn, 8—2.
Haukar áttu ekkert svar við sterkri
vörn Víkinga og góðri markvörzlu
Kristjáns Sigmundssonar. Eftir leikinn
hefur þjálfari Hauka, Viðar Símonar-
son, ekki beint verið sáttur við þá yfir-
lýsingu, sem hann gaf fyrir
Evrópuleikina, að Víkingar væru ekki
það yfirburðalið sem stigatala þeirra á
Íslandsmótinu gæfi til kynna. Nú fékk
hann að fmna" fyrir styrkleika þeirra.
Haukar voru yfirspilaðir á ölium
sviðum og sigur Víkings hefði efiaust
getað orðið enn stærri hefðu leikmenn
liðsins beitt sér allan tímann. Þeir
þurftu þess ekki í gær.
Nokkur áramótabragur var á leikn-
um eftir að Víkingar höfðu náð yfir-
burðastöðu. Ýmislegt sást, sem ekki
hefði komið fyrir nema vegna þess
hvernig staðan var orðin. Haukaliðið
náði sér hins vegar. aldrei á strik — og
faiihættan er enn mikil. Aðeins sjö stig
eftir 11 leiki.
Víkingar komust í byrjun í 3—0 en
Haukar skoruðu sitt fyrsta mark eftir
fimm mín. Skoruðu varla nema úr
vítum í fyrri hálfleiknum. Eftir 17.
mín. stóð 8—2, síðan 11—3 og staðan í
hálfleik var 15—7.
Framan af síðari hálfleiknum
breyttist staðan lítið hvað mörkin
snerti. Enn átta marka munur um
miðjan hálfleikinn, 20—12. Síðan
komst Víkingur í 24—13 og stór-
sigurinn var í höfn. Eggert Guðmunds-
son stóð í Víkingsmarkinu allan síðari
hálfleikinn og varði með miklum
glæsibrag. Áhorfendur klöppuðu
honum mjög lof í lófa, svo og Gunnari
i Haukamarkinu. í sókninni réðu
Haukar ekkert við Þorberg Aðalsteins-
son, sem skoraði mörg glæsileg mörk.
Þá voru þeir Páll og Steinar Birgisson
sterkir, einkum í fyrri hálfleik. Árni
Indriðason stjórnaði vörninni eins og
herforingi. Um tíma leit út fyrir, að
Ólafur Jónsson gæti ekki leikið vegna
meiðsla, sem hann hlaut á iands-
iiðsæfingu um áramótin — en hann gat
verið með. Um frammistöðu Hauka er
bezt að hafa sem fæst orð nema
markvörzlu Gunnars.
Mörk Víkings skoruðu Þorbergur
Staðaníl.deild
Elleftu umferðinni á íslandsmótinu
í handknattleik lauk I gærkvöld með
leik Vfkings og Hauka. Staðan er nú
þannig:
11 10 1
11 8 0
6 1
5 2
3 3
3 1
Víkingur
Þróttur
Valur
FH
KR
Haukar
Fram
Fylkir
11
11
11
11
11
11
0 223—183 21
3 250—224 16
4 252—199 13
4 239—243 12
5 227—250 9
7 216—234 7
2 1 8 231—255 5
2 1 8 208—258 5
Tólfta umferðin hefst á miðvikudag
7. janúar með leik KR og Hauka í
Laugardalshöll kl. 20.00. Daginn eftir
leika Valur og Fram. Laugardaginn 12.
janúar leika Þróttur-FH í Laugardals-
höll kl. 14.00 og umferðinni lýkur með
leik Víkings og Fylkis á sunnudag kl.
20.00 í Laugardalshöll.
10/1, Páll 6/1, Steinar 4, Árni 3, Guð-
mundur Guðmundsson 2, Ólafur -1,
Stefán Halldórsson 1 og Heimir
Karlsson 1. Mörk Hauka skoruðu
Hörður Hárðarson 4/3, Sigurgeir Mar-
teinsson 3, Lárus Karl Ingason 2, Árni
Sverrisson 2, Júlíus Pálsson 2, Stefán
Jónsson, 1, Árni Hermannsson 1 og
Viðar1/1.
Dómarar Gunnar Kjartansson og
Karl Jóhannsson. Vikingar fengu 4 víti
— nýttu tvö. Haukar fengu 6 víti —
nýttu 'fjögur. Einum leikmanni var
vikið af velli, Steinari Birgissyni,
Víking. Áhorfendur heldur fáir. -hsim.
Árni Indriðason hefur hér rifid sig lausan frá vörn Hauka og skorar örugglega framhjá Ólafi Guðjónssyni.
Jafntefli Argentínu og Brasilíu í gær:
Möguleikar V-Þjóðverja
ekiu lengur fyrir hendi
— úrslitin nær örugglega á milli Uruguay og Argentínu
Argentinumenn og Brasilíumenn
skildu jafnir i bezta leiknum i gull-
bikarnum í Montevideo til þessa. Loka-
tölur urðu 1-1 f stórkostlegum leik i
gærkvöld. Með þessum úrslitum eru
vonir V-Þjóðverja um sigur i keppninni
orðnar að engu en Uruguaymenn mæta
að öllum likindum heimsmeisturum
Argentfnu i úrslitaleiknum, þó svo að
Brasilfa gæti e.t.v. unnið V-Þjóðverja
með 2-0 og tryggt sér úrslitasætið i
leiknum gegn Uruguay.
Brasilfumenn hófu leikinn í gær-
kvöld með miklum látum og sóttu
linnulítið og fengu góð tækifæri til að
skora. Ubaldo Fillol í marki Argentínu
var hins vegar ekki á þeim buxunum að
láta þá skora hjá sér og síðan skoraði
Diego Maradona á 31. mínútu.
Hann tók á rás upp i hægra horn
vallarins en sneri síðan skyndilega við
og á móts við hálfbogann utan víta-
teigsins lét hann skot ríða af með
vinstri fætinum. Þrátt fyrir góð tilþrif
tókst Carlos í marki Brasiliumanna
aðeins að koma hönd á knöttinn en
megnaði ekki að halda skotinu.
Ekki voru hins vegar liðnar nema
tvær mínútur af síðari hálfleiknum er
Brasilíumenn jöfnuðu metin. Paoio Isi-
doro hafði komið inn á fyrir Renaldo í
hálfleik og hann skoraði næstum með
sínu fyrsta skoti. Boltinn skall í brjósti
Fillol og þaðan út til Edevaldo, sem
sendi boltann í netið með bylmings-
skoti.
Eftir þetta brutust út slagsmál meðal
Ieikmanna og urðu leikmenn jafnt sem
forráðamenn liðanna að hafa sig alla
við að skilja félaga sína. Lokakafli
ieiksins var hins vegar ein allsherjar
knattspyrnusýning. Bæði liðin léku á
fullri ferð og lögðu ofurkapp á að
tryggja sér sigurinn. Hvoru liði um sig
tókst að skora eitt mark fyrir leikslok
en þau voru bæði dæmd af fyrir brot.
Framherjar beggja liða syntu í dauða-
færum en mörkin létu ekki sjásig.
Liðin. Argentína: Fillol, Galvan,
Tarantini, Olguin, Gallego, Passareila,
Bertoni (Valencia í hálfleik), Ardiles,
Diaz, Maradona, Barbas (Luque á 86.
mín.) Brasilía: Carlos (Joao Leite á 68.
mín.), Edevaldo, Oscar, Luishino,
Batista, Junior, Tita, Cerezo, Socrates,
Renato (Isidoro í hálfleik), Ze Sergio.
Margtskiýtið
íkýrhausnum
Sumir menn eru hræðilega
ánægðir með aig og Argentinu-
maðurínn Danlel Bertoni er
einn þeirra. Gildir þá einu hvort
f einkalifi er eða i viðtali við
þekkt blöð og tfmarit.
í viðtali við frægt italskt blað
sagði Bertoni eftirfarandi: ,,Við
erum helviti góðir þaraa
frammi ég og Antognoni. Við
leikum mjög skemmtilega sam-
an oft á tiðum og skorum gull-
falleg mörk og andstæðingarnir
eiga iðulega mjög erfitt með að
stöðva okkur. Það er bara vörn-
in hjá okkur (Fiorentina) sem er
að gera út af við okkur. Það er
sama hvað við skorum, ég og
Antognoni, vörain hefur ekki
undan lekanum. Um leið og við
getum komið henni i lag
verðum við sterkir.”
Ekld sakar að geta þess að
þegar þetta viðtal var tekið
hafði Fiorentina leikið 6 leiki —
skorað 5 mörk og fengið 3 á
sigiIII
Það geríst margt skrýtið i
knattspyrnunni úti i heimi og
eitt kyndugt atvik átti sér stað
hjá smáliðinu Dorfspielen í
Austurriki. Þar leikur i marki
maður að nafni Kurt Grutsch.
Það er i sjálfsögðu ekki i frá-
sögur færandi en fyrír skömmu,
eftir að Dorfsplelen hafði tapað
0-8 fyrír Niederfuss, komst það
upp að Kurt stóð alls ekki í
markinu eins og leikmennirnir
höfðu allan timann haldið.
Kurt var þá á þeysireið með
brúði sina i brúðkaupsreisu ein-
hvers staðar i landinu en tii þess
að tryggja að einhver stæði i
markinu á meðan ferð hans
stæði fékk hann tviburabróður
sinn til að verja marldð. Erích
heitir sá og fer ekld miklum sög-
um af getu hans i marldnu.
Hann sótti hins vegar um stöðu
markvarðar hjá Dorfspielen
eftir frumraun sina, en fékk
þvert nei. Að auki var brúð-
guminn Kurt rekinn frá félaginu
og þeir bræður sitja nú eftir
með sárt ennið.
Gullbikarínn í Montevideo:
Uruguay í úrslitin
eftir sigur á Ítalíu
—Uruguay sigraði 2-0 á laugardag. Þrír leikmenn reknir af velli
Lið Uruguay átti f litlum erfiðleikum
að tryggja sér sæti i úrslitum ,,gull-
bikarsins” eða litlu heimsmeistara-
keppninnar f knattspyrau, sem nú
stendur yfir i Montevideo f Uruguay. Á
Iaugardagskvöld léku Uruguay og
fitalia. Uruguay sigraði 2-0 i leik, sem
mjög einkenndist af grófleik. Þremur
leikmönnum var vísaö af velli af
dómaranum. Eftir þessi úrslit er Uru-
guay komið f úrslit. Sigraði Holland
með sömu markatölu i fyrsta leik
keppninnar. Hefur þvi lokið báðum
leikjum sinum i A-riðlinum með þeim
árangri, sem margir reiknuðu með
fyrírfram. Uruguay mun þvi leika til
úrslita við sigurvegara B-riðilsins næst-
komandi laugardag.
Fyrra mark leiksins á laugardag var
skorað úr vítaspyrnu á 66. mín. eftir að
Venancio Ramos var felldur innan víta-
teigs. Julio Morales skoraði en síðara
mark Uruguay skoraði Waldemar
Victorino á 82. min. Áhorfendasvæðin
á leikvanginum í Montevideo voru þétt-
skipuð — eða sjötíu þúsund áhorf-
endur — og var mikill fögnuður meðal
heimamanna eftir sigurinn.
Á. 70. mín. voru tveir leikmenn
reknir af velli. Jose Moreira, bak-
vörður Uruguay, og ftaiinn Antonio
Cabrini eftir að þeir höfðu slegizt inn-
byrðis. Rétt fyrir leiksiok vék dómar-
inn svo ítalanum Marco Tardelli af
velli fyrir brot á Ruben Paz. Mikið var
um brot og meiðsii. Fimm leikmenn
bókaðir.
Mikili hraði var í fyrri háifieik en
ekkert mark skorað. Sáralitil uppbygg-
ing en spenna. Knötturinn gekk mark-
anna á milli og hraði allt of mikill.
Hvorugt markið komst í verulega
hættu. Sérstakiega var lokahnúturinn i
sókn ítala bitlaus. Hinn. tvítugi leik-
maður Uruguay, sem vakti svo mikla
athygli í leik Uruguay og Hollands fyrir
frábæra leikni, fékk nú lítil tækifæri til
að leika listir sinar. ftalski varnar-
maðurinn Tardelii fylgdi honum sem
skuggi allan ieikinn og ef eitthvað fór
úrskeiðis hjá honum var þegar annar
varnarmaður til taks.
Eftir hornspyrnu á 66. min. lék Agile
Morales i átt að ítalska markinu og var
felldur. Spánski dómarinn Emilio
Guruceta dæmdi þegar vítaspyrnu.
Allir ellefu leikmenn Ítalíu mótmæltu
mjög en allt kom fyrir ekki. Morales
skoraði örugglega. Ivano Borden,
italski markvörðurinn, átti ekki mögu-
leika aðverja.
Fram að þessu atviki hafði leikurinn
verið jafn en nú náðu leikmenn Uru-
guay frumkvæðinu, ákaft hvattir af
áhorfendum. Síðan komu slagsmálin
á 70. min. en ftalir áttu iitia möguleika
að jafna. Hraði hinna ungu leikmanna
Uruguay var meiri en þeir réðu við.
Victorio gulitryggði svo sigurinn á 82.
mín. eftir snjalla sendingu Ramos.
Eftir leikinn sagði Iandsliðseinvaldur
Uruguay, Roque Maspoli, sem var
markvörður Uruguay, þegar lið Uru-
guay sigraði í heimsmeistarakeppninni í
Brasilíu 1950, að vörn ítala hefði verið
sterk í leiknum. Þó ekki nógu sterk
fyrir eldfljóta leikmenn sína.
Liðin voru þannig skipuð: — Urug-
uay. Rodrigues, Olivera, Leon, Mor-
eira, Krasowsky, Martinez, Ramos, La
Pena, Victorio, Paz, Morales og Diogo
kom inn sem varamaður. Ítalía.
Bordon, Oriali, Scirea, Cabrini,
Gentile, Tardelii, Marini, Antognoni,
Conti, Graziani, Altobeili og Pruzzo
kom í hans stað eftir leikhléið. Af
þessari upptalningu má sjá að ýmsa
þekkta leikmenn vantaði í lið Ítalíu.