Dagblaðið - 17.01.1981, Page 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981.
c*
Utvarp
23
Sjónvarp
i
NÓTTIN SKELFILEGA—sjónvarp kl. 22,15:
ÚTVARPSSENDINGIN UM
INNRÁSINA FRÁ MARS
— menn hélduað
um raunveru-
legafréttaút-
sendinguværi
aðræðaog
ofsahræðsla
greipumsig
í kvöld verður sýnd bandarísk sjón-
varpsmynd um þau áhrif sem útvarps-
leikrit hafði á bandarískan almenning
kvöld eitt í október 1938.
Sögu H. G.Welles.Innrásin frá Mars,
var þá útvarpað á leikrænan hátt en of
raunverulegan því hlustendur sem opn-
uðu útvarpstæki sin í miðri útsendingu
héldu að um fréttaútsendingu af raun-
verulegum atburðum væri að ræða.
Enda var ætlunin sú því leikritið var
eins og venjuleg útvarpssending nema
hvað fréttir og tilkynningar um land-
töku Marsbúa voru lesnar. Fastir liðir
eins og veðurfregnir voru áfram á*
sínum stað í dagskránni.
Þulurinn, Orson Welles, rauf skyndi
lega dagskrána og las frétt um dular-
fullar sprengingar á Mars. Síðar komu
fleiri fréttir. Loftsteinn hafði fallið til
jarðar nálægt borginni Princeton í New
Jersey. Næsta frétt var um að loft-
steinninn hefði reynzt holur sívalningur
og að verur frá Mars væru að skríða úr
honum. Áfram hélt leikritið. Frétta-
menn útvarpsstöðvarinnar voru komn-
ir á staðinn til að fylgjast með Marsbú-
unum. Voru verurnar sagðar vopnaðar
hræðilegum dauðageisla og stefna i átt
til New|York.
Þeir sem opnuðu tæki sín eftir að
leikritið var hafið heyrðu ekkert nema
stríðsfréttir. Marsbúar voru vel
vopnaðir og bandaríski herinn gat
ekkert gert. Ofsahræðsla og móðursýki
greip því um sig. Fólk í New Jersey og
Paul Shenar fer með hlutverk Orson W elles en hann oe Vic Morrow (sem margir muna eftir úr Combat i Keflavíkursjónvarp
inul fara með aðalhlutverkið i bandarisku sjónvarpsntyndinni í kvöld.
New York þar sem aðalskotmark Mars-
búa var látið vera varð sumt frávita af
hræðslu. Þessi ofsahræðsla skapaði
margar ímyndunarfregnir og fólk greip
til örþrifaráða. Þúsundir hlupu út á
götur og spurðu hvert flýja ætti. Menn
hringdu til herstöðva og buðu sig fram í
herinn og læknar og hjúkrunarfólk
mættu til vinnu til að hjúkra hinum
særðu. Maður nokkur kom að konu
sinni þar sem hún var i þann veginn að
fremja sjálfsmorð með því að taka inn
eitur. ,,Ég vil frekar deyja á þennan
hátt en falla fyrir Marsbúum,” sagði
hún.
Maðurinn á bak við þetta, Orson
Welles, þá 23 ára, varð heimsfrægur á
svipstundu. Þegar loks hafði tekizt að
sannfæra menn um að útvarpssending-
in hefði verið skáldskapur fóru menn
að ræða áhrifamátt útvarpsins. Menn
furðuðu sig á hve mikil áhrif einn fjöl-
miðill gat haft og höfuðpaurinn Orson
Welles var sjálfur mest undrandi. ,,Ég
á ekki von á þvi að við munum velja
slíkt efni aftur til flutnings,” sagði
hann. -KMU.
r- - >
Q Utvarp
Laugardagur
17. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir 7.I0
Bæn. 7.15 Leikfimi.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. .(útdr.). Dagskrá. Morg-
unorð. Stína Gísladóttir talar.
Tónleikar.
8.50 Uikfimi.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga: Ása Finns-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir).
11.20 Gagnoggaman.Goðsagnirog
ævintýri í samantekt Gunnvarar
Braga.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 I vikulokin. Umsjónarmenn:
Ásdís Skúladóttir, Askell Þóris-
son, Bjöm Jósef Arnviðarsson og
ÓIi H. Þóröarson.
15.40 Islenzkt mál. Dr. Guðrún
Kvaran talar.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlislarrabb; - XIV. Atli
Heimir Sveinsson fjallar um
rússneska tónlist.
17.20 Að leika og lesa. Jónina H.
Jónsdóttir stjórnar barnatíma.
Dagbók, klippusafn og fastir liðir
eins og venjulega.
18.00 Söngvar i láttum dur.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkvnninear.
19.35 „Ast við fyrstu sýn”, smá-
saga eftir Steinunnl Sigurðardolt-
ur.Höfundur les.
20.00 Hlöðuball. Jónatan Garðars-
son kynnir ameríska kúreka- og
sveitasöngva.
20.30 „Þvi frostið er napurt”. Létt
blanda handa bölsýnismönnum.
Umsjón: Anna Ölafsdóttir
Björnsson. ' .
21.15 Fjórir piltar frá Liverpool.
Þorgeir Astvaldsson rekur feril
Bítlanna — The Beaties; —
þrettándi og síðasti þáttur.
21.55 Konur í norskri ljóðagerð
1930—1970. Bragi Sigurjónsson
spjallar um skáldkonurnar
Gunvor Hofmo, Astrid Tollefsen,
Halldis Moren Vesaas og Aslaug
Vaa og les óprentaðar þýðingar á
sjö ijóðum þeirra.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orðw
kvöldsins.
22.35 „Kari, Jón og konan”, smá-
saga eftir Guðberg Bergsson.
Höfundur les.
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. janúar
8.00 Morgunandakt. Séra Sigurður
Pálsson vigslubiskup flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit
Wal-Bergs leikur.
9.00 Morguntónleikar. a. Sónata
nr. 1 í D-dúr fyrir strengjasveit
eftir Georg Muffat. Barokk-sveit-
in i Vinarborg leikur; Theodor
Guschlbauer stj. b. Sinfónía nr. 10
i d-moll eftir Giovanni Battista
Boboncini. St. Martin-in-the-
Fields hljómsveitin leikur; Neville
Marriner stj. c. Pianókonsert í Es-
dúr op. 13 nr. 6 eftir Johann
Christoph Bach. Ingrid Haebler
leikur með Hljómsveit tónlistar-
skólans i Vinarborg; Eduard
Melkus stj. d. Flugeldasvíta eftir
Georg Friedrich Hándel.
Menuhin-hátíðarhljómsveitin leik-
ur; Yehudi Menuhin stj.
10.05 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.25 <Jt og suður: Inn að miðju
heimsins. Sigurður Blöndal skóg-
ræktarstjóri segir frá ferð til Altai-
héraðs í Miö-Asíu i október 1979.
Umsjón: Friðrik Páll Jónsson.
11.00 Messaf Neskirkju. (Hljóðrituð
11. þ.m.). Prestur: Séra Kristján
Búason. Organleikari: Reynir
Jónasson.
12.10 Dagskráin. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Um heilbrigðismál og við-
fangsefni heilbrigðisþjónustunn-
ar. Skúli Johnser. borgarlæknir
flytur annað hádegiserindi sitt.
14.00 Tónskáldakynning. Guð-
mundur Emilsson ræöir viö
Gunnar Reyni Sveinsson og
kynnir verk eftir hann. — Fyrsti
þáttur.
15.00 Sjómaðurinn og fjölskyldu-
lifiö. Þáttur í umsjá Guðmundar
Hallvarðssonar. M.a. rætt við
læknana Helgu Hannesdóttur og
Jón G. Stefánsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um suður-ameriskar bók-
menntir; þriðji þáttur. Guöbergur
Bergsson les söguna „Maður
rósarinnar” eftir Manúel Rojas í
eigin þýðingu og flytur formáls-
orð.
16.55 „Að marka og draga á land”.
Guðrún Guðlaugsdóttir tekur
saman dagskrá um Þjóðskjalasafn
íslands. Rætt viö Bjarna Vil-
hjálmsson þjóðskjalavörð, Sigfús
Hauk Andrésson skjalavörð,
Hilmar Einarsson forstöðumann
viðgerðarstofu o.fl. (Áður á dag-
skrá 17. júní sl.).
17.40 Drengjakórinn i Vinarborg
syngur lög eftir Johann Strauss
með Konsert-hljómsveitinn i Vin;
Ferdinand Grossmann stj.
18.00 Anton Karas-hljómsveitin
leikur austurrísk alþýöulög. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Frétiir. Tilkynningar.
19.25 Veiztu svarið? Jónas Jónasson
stjórnar spurningaþætti, sem fram
fer samtímis í Reykjavík og á
Akureyri. í niunda þætti keppa
Sigurpáll Vilhjálmsson á Akureyri
og Matthias Frimannsson í Kópa-
vogi. Dómari: Haraldur Ólafsson
dósent. Samstarfsmaður: Margrét
Lúðvíksdóttir. Samstarfsmaður
nyrðra: Guðmundur Heiðar Frí-
mannsson.
19.50 Harmonikuþáttur. Sigurður
Alfonsson kynnir.
20.20 Innan stokks og utan. Endur-
tekinn þáttur, sem Árni Bergur
Eiríksson stjórnaði 16. þ.m.
20.50 Þýzkir pianóleikarar leika
samtimatónlist: Vestur-Þýzka-
land. Guömundur Gilsson kynnir
fyrri hluta.
21.30 Söguskoðun Leopolds von
Kanke. Haraldur Jóhannsson hag-
fræðingur flytur erindi.
21.50 Að tafli. Guðmundur Arn-
laugsson flyturskákþátt.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Virkið”, smásaga eftir Sieg-
fried Lenz. Vilborg Auður Isleifs-
dóttir þýddi. Gunnar Stefánsson
les.
23.00 Nýjar plötur og gamlar.
Gunnar Blöndal kynnir tónlist og
tónlistarmenn.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
19. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Bæn. Séra Sigurður H. Guð-
mundsspn flytur.
7.15 Leíkfimi. Umsjónarmenn:
Valdimar Örnólfsson leikfimi-
kennari og Magnús Pétursson
píanóleikari.
7.25 Morgunpóslurinn. Umsjón:
Páll Heiðar Jónsson og Birgir
Sigurðsson.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
landsmálabl. (útdr.). Dagskrá.
Morgunorð: Guðmundur Einars-
son talar. Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Pési rófulausi” eftir Gösta
Knutsson. Pétur Bjarnason byrjar
lestur þýðingar sinnar.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
9.45 Landbúnaðarmál. Umsjónar-
maður: Óttar Geirsson. Rætt við
Árna Jónasson um kvótakerfið.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.25 íslenzkir einsöngvarar og
kórar syngja.
Sjónvarp
Laugardagur
17. janúar
16.30 iþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Lassie. Friðarboðar. Þriðji
hluti. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 Enskaknattspyman.
19.45 Fréttaágrip á láknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Spitalalff. Bandarískur gam-
anmyndaflokkur. Annar þáttur.
Þýðandi Ellért Sigurbjörnsson.
21.00 A gamalli þjóðleið. Margar
slóðir eru til á landinu frá þeim
tíma, er menn ferðuðust fótgang-
andi og ríðandi, og tengjast þeim
ýmsar sögusagnir. Siðastliðið
haust fóru sjónvarpsmenn um
eina slika slóð, hina fornu þjóö-
leið yfir Hellisheiöi. Leiösögu-
maður Jón I. Bjarnason. Umsjón
og stjórn upptöku Karl Jeppesen.
21.30 Himnahurðln breið? Islenskur
poppsöngleikur, gerður árið 1980.
Handrit Ari Harðarson og Krist-
berg Óskarsson, sem einnig er
leikstjóri. Tónlist Kjartan Ólafs-
son. Kvikmyndun Guðmundur
Bjartmarsson. Söngvarar Ari
Harðarson, Ingibjörg Ingadóttir,
Kjartan Ólafsson, Erna Ingvars-
dottir, Bogi Þór Siguroddsson og
Valdimar Örn Hygenring. Fram-
leiðandi Listfom Sf.
22.15 Nóttin skelfilega. (The Night
That Panicked America). Nýleg,
bandarisk sjónvarpsmynd. Aðal-
hlutverk Paul Shenar og Vic
Morrow. Áríö 1938 varð Orson
Welles heimsfrægur á svipstundu,
þá 23ja ára gamall, þegar útvarp-
að var um Bandaríkin leikriti
hans, Innrásin frá Mars. Myndin
fjallar um þessa sögufrægu út-
varpssendingu. Þýðandi Ragna
Ragnars.
23.50 Dagskráriok.
Sunnudagur
18. janúar
I6.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson, sóknar-
prestur í Hallgrímsprestakalli,
flytur hugvekjuna.
16.10 Húslð á sléttunni. Milli vonar
og ótta — fyrri hluti. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
17.10 Leitin mikla. Tólfti þáttur.
Þýðandi Björn Björnsson. Þulur
Sigurjón Fjeldsted.
18.00 Stundin okkar. Meðal efnis:
Fjallað veröur um myntbreyt-
inguna og farið á Sædýrasafnið.
Lúðrasveit frá Búðardal leikur.
Umsjónarmaöur Bryndís Schram.
Stjórn upptöku Andrés Indriöa-
son.
18.50 Skiðaæfingar. Þýzkur mynda-
flokkur. 2. þáttur. Þýðandi
Eirikur Haraldsson.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Tónlistarmenn. Rögnvaldur
Sigurjónsson leikur á píanó. Egill
Friðleifsson kynnir Rögnvald og
spjallar við hann. Stjórn upptöku
Rúnar Gunnarsson.
21.30 Landnemamir. Níundi þáttur:
Efni áttunda þáttar: Fárviðri
veldur gifurlegu tjóni á Venne-
ford-búgarðinum. Bókarinn
Finlay Perkin ásakar Seccombe
um fjárdrátt en getur ekkert
sannað. I.evi Zendt vitjar æsku-
stöövanna og kemst að því að þar
er allt óbreytt. Hann snýr aftur
heim. Þangað er komin dóttir
hans, Clemma, eftir misheppnað
ástarævintýri í St. Louis. Þýðandi
Bogi Arnar Finnbogason.
23.00 Dagskrárlok.