Dagblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 1
... -'.v’ '''-'V' l frjálst, dagblað 7. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 — 22. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022. Aurskriða fétt á bæinn Lund íLundarreykjadal: TÓK MEÐ SÉR FJÓS HLÖÐU OG TÓLF GRIPI Skriða féll á gripahús að Lundi í Lundarreykjadal i Borgarfirði milli kl. 9 og 10 í gærkvöldi. Tók hún með sér hliðar fjóssins og hlöðunnar svo og hesthús sem var hinn gafl hlöð- unnar. Standa gaflar þessara húsa einir eftir. í fjósi var 21 gripur, þar af 13 mjólkandi kýr. í hamförunum drápust eða slösuðust 9 mjólkurkýr og einn annar gripur og aflífa varð þá þegar. Tvísýnt er enn um hvort bjarga megi lífi 10. mjólkurkýrinnar. Einnig dráðust tvö tryppi sem í hest- húsinu voru. Að Lundi býr Þorbjörn Gíslason með foreldrum sinum en Þorbjörn er ókvæntur. Átti DB tal við Þorbjörn í morgun: „Það voru hér feikilegir vatna- vextir i gær. Það sem gerðist var nán- ast að hóll sem verið hefur hér skammt ofan við bæjarhúsin fór að miklum hluta af stað með fyrrgreind- um afleiðingum. Hóllinn lenti á hliðarveggjum fjóssins og hlöðunnar og tók þá nán- ast í heilu lagi með sér. Fylgdi og með hesthúsið sem reist var við hlöðugafl- inn. Standa gaflar fjóssins og hlöð- unnar, sem hvort tveggja voru stein- steypt hús, einir eftir. Skriðan var ekki breið og mjólkur- hús sem stóð við annan enda fjóssins stendur óskemmt eftir. t hlöðu voru engin. tæki sem skemmdust. Það eru því gripirnir og húsin sem skriðan eyðilagði. Að sjálfsögðu eru einnig einhverjar skemmdir á túni, en þær eru ekki ýkja miklar, því skriðan fór ekki langan spöl.” Auk þeirra gripa sem að framan eru taldir á Þorbjörn 270 kindur. Þær sakaði ekki. Tjónið að Lundi er mikið. HjáBúnaðarfélaginu fékk DB þær upplýsingar að dauðu gripina mætti meta á 65 þúsund nýkrónur og auk þess eru fjós og hlaða ásamt hest- húsi horfin. Þorbjörn sagði að í dag yrði gengið í að bjarga því heyi sem bjarga mætti og koma eftirlifandi gripum í varan- legtskjól. Þorbjörn kvaðst ekki hafa heyrt um tjón á öðrum bæjum en víða hefðu krapaskriður fallið. -A.St. FOGUR SYN EN ORKUFREK Fagurtcrotilita að Kjarvalsstöðum. Flóðlýsin/iinglamparósvellglteruna og lýsirupp I frystikistufjtHda landsmanna?Erþað opinbera éftll villað snúa sér I ranga úttþegar skammdegishimininn. En meðal annurru orða, hvaðfer mikið af okkar dýrmœtu orku almenningur er beðinn að spara orku en hið opinbera er t reynd það sem bókstaflega I þessa undurfógru lýsingu? Og flóðlýsingu ó Þjóðleikhúsinu, Háskólanum og fleiri eyðir henni? opinberum byggingum? Er þar efti! vilí samankomin eyðsla sem svarar til gjörvalls \ DS/ DB-mynd Sigurður Þorri. Sovétmenn hætta hvalveiðum — sjá erl. f réttir bls. 6-7 / Vinsældaval Dag- blaðsinsogVikunnan Síðasti at- kvæðaseðill- innerbirt- urídag Síðustu forvöð eru nú að taka þátt í Vinsældavali Dagblaðsins og Vikunnar. í dag er atkvæða- seðillinn birtur í siðasta skiptið. Til að auðvelda þeim kosninguna sem veigra sér við að fylla út seðilinn er einnig birtur nokkurs konar tossalisti, upptalning á öllum þeim tónlistarmönnum, hljómplötum og lögum, sem höfðu hlotið atkvæði um miðjan mánuð. Skilafrestur atkvæða- seðla rennur út um næstu helgi. Úrslit vinsældavalsins verða sem kunnugt er kynnt á Stjörnumessu DB og Vikunnar þann 12. febrúar. Undirbúningur hennar er nú I fullum gangi. Til dæmis var í gær lokið við að steypa í ál 25 verðlaunagripi, sem afhentir verða á Messunni. Að sjálfsögðu er samt enn ekki endanlcga vitað hversu margir fá verðlaun, Það kemur ekki í ljós fyrr en að talningu atkvæða lokinni. -ÁT/ÓV, — Sjánánarábls. 16ogl7. Vcrðlaunagripir vinsældavalsins eru steyptir i ál i málmsteypunni Hellu. Hér er einn starfsmanna fyrirtækisins að pússa agnúana af einum gripnum. DB-mynd: Einar Ólason. L............■■■ iii ’ , V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.