Dagblaðið - 27.01.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981.
5
Nálægt40 maimsafvimulausir á Djúpavogi:
Heimilisfeður leita til
Homafjarðar f vinnu
Afar slæmt atvinnuástand hefur
verið á Djúpavogi siðan um áramót
og láta mun nærri að um 40 manns
séu atvinnulausir. Heimilisfeður hafa
þurft að leita til Hornafjarðar eftir
atvinnu. Eitt frystihús er starfrækt á
Djúpavogi, Búlandstindur. Að sögn
Ingólfs Sveinssonar verkstjóra þar
eru núna um 13—14 manns í vinnu
og þá einungis karlmenn. Eru þeir að
ganga frá síld til útflutnings, en þegar
þvi verki er lokið má gera ráð fyrir að
enn fleiri missi atvinnu sína.
Búlandstindur er eina framleiðslu-
fyrirtækið á Djúpavogi og þegar mest
er eru þar á milli 60 og 70 manns í
vinnu. „Við seldum tvo báta og
keyptum loðnuskip í staðinn. Núna
fara fram viðræður um hvort hægt sé
að fá keyptan bát en það hefur ekki
reynt á það ennþá hvort það verður
hægt.
íbúar hér eru að vonum mjög
óhressir með þetta ástand, en ég held
að allir voni að þetta lagist. Að
minnsta kosti er fólk ekki alvarlega
farið að hugsa um að flytja burt. Við
erum með einn rækjubát hérna, en
það hefur ekki gefið á sjó fyrir hann.
Frá Djúpavogi. Til hægri á myndinni má sjá nýja frystihúsið þeirra, Búlandstind, sem nú hefur orðið að segja upp öitu þvi
kvenfólki sem þar starfaði og frekari uppsagnir blasa við.
Það er næg atvinna á Hornafirði og á
fjörðunum hér fyrir norðan. Þá eru
Breiðdælingar ágætlega settir líka
svo það er aðeins hér sem ástandið er
svona slæmt. Ég á raunar von á að ef
ekkert verður gert blasi enn frekara
atvinnuleysi við,” sagði Ingólfur
Sveinsson. Á Djúpavogi búa um 400
manns. -ELA.
Verðaað
borga
vatnsskatt
— þóekkertsévatnið
Hér er næg orka ennþá frá Lands-
virkjun og dísilstöðvum en aftur á
móti er orðið lítið um vatn. Helgina
17.-18. jan. komu hingað þrjú
loðnuskip með 2000 tonn alls. Byrjað
var að bræða loðnuna 20. jan. en
fljótlega varð aö hætta bræðslu
vegna vatnsleysis. Þann 21. var
byrjað að bræða aftur en að sögn
Þórðar Jónssonar rekstrarstjóra
verður að stöðva bræðslu þá og þeg-
ar. Við full afköst eru brædd 700—
1000 tonn á sólarhring.
Byggðin hér á Eskifirði er að
mestu leyti í fjallshliðinni og eru
mörg efstu húsin nær alveg vatnslaus
og eru búin að vera það um nokkurt
skeið.
Vegna vatnsleysis hafa þeir sem
búa ofarlega í bænum þurft að sæta
lagi við útvegun vatns til matar og
þvotta. Segir mér fólk sem býr ofar-
lega í bænum að helzt sé möguleiki
að fá svolitið vatn um hánóttina eða
þegar mesti hamagangurinn er úr at-
vinnulífi bæjarins. Sumir eiga ekki
einu sinni þvi láni að fagna að fá
vatn þá, þeir verða að fara í næstu
hústil aösækjavatn.
Þrátt fyrir þetta vatnsleysi verða
allir að borga hinn háa vatnsskatt og
þykir að vonum mörgum það súrt i
brotiö.
-Regína, Eskifirði.
Draugagangur í kring-
um Gunnar Thoroddsen?
Svavar Gestsson og Benedikt Gröndal deildu íMorgunpósti
um stuld á ættjardarást, kommúnisma og stjómarskiptin
„einanóttímaf’
„Ríkisstjórn án þátttöku Alþýðu-
bandalagsins er kjarni málsins,” sagði
Benedikt Gröndal þingmaður og
fyrrum alþýðuflokksformaður í
Morgunpósti útvarps á mánudags-
morguninn. Þar var hann nættur ásamt
Svavari Gestssyni félagsmálaráðherra
og alþýðubandalagsformanni til að
ræða efni greinar eftir Benedikt sem
Alþýðublaðið birti i liðinni viku. Bene-
dikt segir þar m.a. að sér virðist „sýni-
lega grundvöllur fyrir nýja stjórn allra
aðila nema Alþýðubandalagsins.
Bendir margt til þess, að mál stefni í
þessa átt, og er spurningin- fyrst og
fremst, hvort það gerist þegar í sumar
eða síðar á kjörtímabilinu.” Og síöar í
greininni:
„Ættu forystumenn stjórnarand-
stöðu og ýmsir aðilar í núverandi stjórn
að gera sér þetta ljóst, undirbúa málið í
kyrrþey og skipta um stjórn á einni
nóttu í maí.”
„Áður sögðu alþýðuflokksmenn að
verðbólgan væri mesta vandamálið á
íslandi og beita yrði róttækum
aðgeröum gegn henni. Nú er það
Alþýðubandalagið sem er mesta vanda-
málið. Spurningin er bara sú, Benedikt,
hvers vegna þið dragið það fram í maí
að skipta um stjórn. Eða ræddu menn
ekki myndun Stefaníustjórnar á sinum
tíma (stjórn með aðild Framsóknar-
flokks, Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks, aths. DB)?” spurði Svavar
Getsson. Og Benedikt svaraði:
„Jú, víst var Stefaníustjórnar-
formið rætt en kannski hefur strax þá
verið byrjaður einhver draugagangur í
kringum núverandi forsætisráðherra
eins og var .í sjónvarpinu í gærkvöldi
(vísar til þess að í Þjóðlífsþætti
Sigrúnar Stefáns á sunnudagskvöldið
komu m.a. fram Gunnar Thoroddsen
og djákninn á Myrká afturgenginn,
aths. DB).
Kommúnisminn er útbreiddasta
stjórnmálaskoðun á jörðinni. í
Alþýðubandalaginu er sterkur hópur
manna í forystu sem vill sjá
kommúnismann í framkvæmd. Því er
sá flokkur varhugavert afl. Alþýðu-
bandalagið er á móti öllum mögulegum
samningum íslendinga við helztu
lýðræðisþjóðir sem næst okkar eru.”
Svavar Gestsson sagði að flokkur
sinn heföi „alls engin flokksleg sam-
skipti við flokkana í Austur-Evrópu
sem stóðu að innrásinni í
Tékkóslóvakíu.” íslenzkir sósíalistar
hafi alltaf viljað að Islendingar héldu
sjálfstæði sínu gagnvart öllum stór-
veldum.
„Þið reynið alltaf að stela ætt-
jarðarástinni af okkur hinum,” sagði
þá Benedikt Gröndal.
Þrætu A-flokkaforingjanna í
Morgunpósti lauk með því að Benedikt
vonast til að landsmenn fái birtu og sól
með vorinu i pólitískum og veðurfræði-
legum skilningi. Ekki mætti taka of
bókstaflega að kaflaskil yrðu* í póli-
tíkinni í maí þó hann nefndi þann
mánuð í Alþýðublaðsgreininni. Hann
vonaðist þó til að málin yrðu rædd
með það i huga að mynda sem fyrst
ríkisstjórn án Alþýðubandalagsins.
Svavar Gestsson sagði að
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
ættu rætur að rekja til verkalýðs-
hreyfmgarinnar. Alþýðuflokkurinn
hefði breytzt undanfarið með tilkomu
nýrra manna í forystuna, til dæmis
væri markaðshyggja allsráðandi í
skrifum ritstjóra Alþýðublaðsins. Ef
hins vegar væri þingmeirihluti fyrir
myndun annarrar rikisstjórnar en nú
situr, kallaði hann það „ræfildóm” að
láta dragast að koma þeim stjórnar-
skiptum í kring.
-ARH.
Mun meira smygl gert
upptækt á síðasta ári
Töluverð aukning varð á þvi
smygli sem tollgæzlan gerði upptækt
á síöasta ári frá árinu á undan.
Tollgæzlan lagði hald á 3.479 flöskur
af áfengi, sem er rúmlega helmingi
meira en árið áður, 281.570
vindlinga, en árið 1979 voru þeir
aðeins 38.800. Þá var lagt hald á
13.727 flöskur/dósir af áfengum bjór
sem er rúmlega þúsund fleiri en árið
áður. Heldur minna hass fannst á
siðasta ári en árið á undan eða 150 gr
á móti 500 árið 1979. Tæplega tvö
þúsund kg af hráu kjöti voru gerð
upptæk á síðasta ári en það er aðeins
meira en 1979. Tollgæzlan lagði
einnig hald á ýmsan annars konar
varning sem fluttur var óleyfilega til
landsins. Þessar tölur eru fyrir utan
það sem fundizt hefur á Keflavíkur-
flugvelli.
Þá leiddi rannsókn tollgæzlunnar
á röngum aðflutningsskjölum
innflytjenda til hækkunar
aðflutningsgjalda um rúmlega 81
milljón gkr. og er það heldur meira
en árið ’79. Þar af voru rúmar 78 m.
gkr. vegna rangrar tollflokkunar.
Eitt mál kom upp vegna vöntunar
vörureiknings, rúmlega 279 þús., eitt
vegna rangs EBE skírteinis, rúml. 762
þús., og tvö vegna rangra upplýsinga
í sambandi við búslóðainnflutning,
rúml. 1.682 þús.
Alls var 181 mál um ólöglegan
innflutning þar sem tollgæzlan
sektaði og nam sú sektarfjárhæð
rúml. 14.299 þús. Til samanburðar
má geta þess að á árinu 1979 voru
málin 151 og nam sektargreiöslan þá
rúml. 5.618 þús. Tollgæzlan sektar
einungis í minni háttar málum, stærri
mál eru send öðrum yfirvöldum. Á
síðasta ári voru upptækar vörur seld-
ar fyrir 2.883 þús.
-ELA.
Uie uxydclLit þneód ....
ONMC*
AS-470 200-Watt 4-Way 5-Speaker System
Eru líka til 70 w, 100 w og 150 w
■ TECHNICAL SPECIFICATIONS
Enclosure: Bass Reflex Type Frequency range: 25 to 23,000 Hz
Speaker complement: Crossover 700 Hz, 4,000 Hz,
Woofer 38cm 115”) cone type frequencies: 8,000 Hz
Midrange 13.5cm (5 1/4") Sensitivity: 97 dB (at 1m distance)
cone type Dimension: 416mm (W) 16-3/8” X
Tweeter 7.5cm (3") cone type 672mm (H) 26-1/2” X
with diffuser x 2 280mm (D) 11-1/16”
Super Tweeter Horn type Weight: 20.0 kg (44.0 1bs) Net.
Nominal impedance: 8 ohms Accessory: L.E.D. Power Level
Power handling 200 Watts (Maximum) Display 4 Green,
capacity: 100 Watts (Nominal) 1 Yellowand 1 Red LED.s
■ FREQUENCY RESPONSE