Dagblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 27.01.1981, Blaðsíða 18
18 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981. Spáfl ar sunnan- og suövestanátt á landinu, rlgning ofla súld sunnan lands og vastan þurrt á Norflur- og Austurlandi. Hltl varflur svipaflur an kólnar mafl kvöldinu. Klukkan 6 var suflvastan 4, súld og 5 stlg í Reykjavlc, sunnan 6, abkýjafl og 4 stlg á Qufuskáium, suflvostan 7, rigning og 4 stfg á Galtarvlta, sunnan 6, skýjafl og 8 stig á Akurayri,' suflvastan 7, alskýjafl og 5 stlg á Raufarhflfn, suflvastan 4, hálfskýjafl og 13 stfg á Dalatanga, suflvastan 6, rigning og 7 stlg á Hflfn og suflvastan 8, skýjafl ogðstlgá Stórhtiffla. ( Þórshflfn var abkýjafl og 9 stig, láttskýjafl og -4 stlg í Kaupmanna- httfn, skýjafl og -8 stlg í OskS, hálf- skýjafl og -7 stlg í Stokkhólmi, súld og 7 stlg I London, láttskýjafl og -6 stlg ( Hamborg, abkýjafl og 3 stig I Parb, halflakfrt og -4 ( Madrid og Hallur Björnsson hreppstjóri, Rangá, sem lézt 17. janúar sl., fæddist 9. júní 1902 á Rangá. Foreldrar hans voru Hólmfriður Eiríksdóttir og Björn Hallsson. Hallur stundaði nám i Eiða- skólaáárunum 1922-24. Árið 1938 hóf Hallur sjálfstæðan búskap á nýbýli er hlaut nafnið Rangá. Hallur var valinn i sýslunefnd árið 1937 og var þar allt til ársins 1978, í hreppsnefnd var hann í 20 ár og þar af oddviti í 8 ár. Hallur var fulltrúi sveitar sinnar á aðalfundum Búnaðarsambands Austurlands frá 1959 svo og á aðalfundum Kaupfélags Héraðsbúa. Hallur var einnig í sjúkra- húsnefnd sjúkrahússins á Egilsstöðum. Árið 1939 kvæntist Hallur Gunnhildi Þórarinsdóttur og áttu þau 5 börn. Ólöf Guðmundsdóttir, sem lézt 17. janúar, sl., fæddist 19. október 1894 á Gæsum í Glæsibæjarhreppi. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson og Anina Arinbjarnardóttir. Árið 1917 giftist Ólöf Sigfúsi Baldvinssyni og bjuggu þau lengst af á Akureyri. Ólafur Pálsson, fyrrverandi sund- kennari, Safamýri 36, Reykjavík, lézt að heimili sínu 23. janúar sl. Jón Hafliðason fulltrúi, Hátúni 10 A, lézt 24. janúar í Öldrunardeild Land- spítalans, Hátúni 10 B. Davið Sigurðsson forstjóri lézt í Land- spítalanum 24. janúar sl. Steinunn Magnúsdóttir frá Miðvogi lézt að Elliheimilinu Grund 25. janúar sl. Anna Hannesdóttir, Hellu Hafnarfirði, lézt i Landakotsspitalanum 25. janúar sl. Guðný Sveinsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík lézt í sjúkrahúsi ísafjarðar 25. janúar sl. Björn Jónsson, fyrrverandi verkstjóri hjá Landsmiðjunni, lézt 23. janúar sl.- Olivert A. Thorarensen lézt í Borgar- spítalanum 25. janúar sl. Þórunn Ólafsdóttir, áður Smáratúni 8 Selfossi, sem lézt i hjúkrunardeild Landspítalans, Hátúni 10, 17. janúar sl., verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 28. janúar kl. 13.30. Þorkell Ármann Þóröarson fulltrúi, Álftamýri 24, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík 28. janúar kl. 15. Spilakvöld Kópavogur — Spilakvöld Sjálfstæðisfélag Kópavogs auglýsir. Okkar vinsælu spilakvöld halda áfram þriðjudaginn 27. jan. kl. 21.00 í Sjálfstæðishúsinu Hamraborg I, 3. hæð. Nýir þátt- takendur velkomnir. Mætum öll. Kvenfélag Fríkirkjusafn- aðarins í Reykjavík Spila- og skemmtikvöld verður haldið fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30 að Hótel Sögu, Lækjarhvammi og er það fyrir allt sáfnaðarfólk og gesti þess. Nazsti félagsfundur kvenfélagsins verður mánudaginn 2. febrúar í Iðnó uppi. Félagsvist i Félags- heimili Hallgrímskirkju Félagsvist verður spiluð í kvöld (þriðjudag) kl. 21 i Félagsheimili Hallgrimskirkju til styrktar kirkju- byggingarsjóði. Spilað verður annan hvern þriðjudag á sama stað og á sama tima. Kvenfélag Hreyfils Fundur verður í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30 í Hreyfils húsinu. Þorrablót félagsins verður sunnudaginn I. febrúar. Upplýsingar gefa stjórnarkonur. VINIR í VÍDÁTTU Guðni Kolbein'sson var ennþá með þáttinn Daglegt mál í útvarpi í gær- kveldi, hvað sem síðar verður. Þáttur hans var góður að vanda og er hann eitt af því fáa í útvarpi sem ég missi ógjarnan af. í þættinum minnti Guðni menn á að segja ekki í dag þegar þeir meina nú á dögum. Barátta málvöndunarmanna gegn þessu danska orðalagi virðist hafa borið nokkurn árangur, er þetta nær alveg hætt að heyrast. Annað mál er með hið vinsæla „ég mundi segja”, virðist ætla verða erfiðara að vinna bug á því. Er það annars furðulegt, ,,ég mundi segja” hljómar illa og völ er á fjölda ágætra orða i stað þess, s.s. ég tel, ég álit o.s.frv. Sú nýbreytni hjá sjónvarps- mönnum að skipta yfir milli þuls og fréttamanns með þvi að hafa þá báða á skjánum í einu er anzi skemmtileg. Lífgar þetta upp á fréttirnar og gefur þessum annars vélræna miðli per- sónulegra yfirbragð. Svo ekki sé minnzt á þegar skemmtileg mistök verða eins og i gærkveldi þegar orðið ekki hafði fallið út í handriti sem Magnús Bjarnfreðsson las, þess efnis að leysa hefði þurft kýr af básum en Ómar Ragnarsson leiðrétti strax með því að hvísla að honum að ekki hefði þurft að leysa kýrnar af básunum. íþróttaþátturinn var ágætur, þó einhverjir hafi sjálfsagt saknað hand- boltamynda. Þátturinn var fjölbreyttur, þar kenndi ýmissa grasa og víða var komið við, eins og umsjónarmaður hans, Jón B. Stefánsson segir stundum. Vinir í víðáttu hét sjónvarpsleikrit kvöldsins. Það var brezkt gamanleikrit og eips og Bretanna er von og vísa nokkuð gott. Spurningin um hvort líf sé á öðrum hnöttum hefur lengi ásótt mannkynið en hefur sennilega aldrei verið eins nærgöngul og nú á öld ótrúlegra tækniframfara. Síðast á dagskrá sjónvarps var heimildarmynd um sögu þyrlunnar. Kom fram m.a. að sagt hefur verið um þyrluna að hún væri sigur hug- vitsins yfir heilbrigðri skynsemi, fannst mér það ekki vera fjarri sanni. Lelklisf Frumsýning á Litla sviði Þjóðleikhússins: febrúar kl. 20.30. I Safnaöarheimilinu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Þorramalur á mjög vægu vcrði. Mætið vel og stundvíslcga. iFÍSNAR-félagar Líkaminn — annað ekki eftir James Saunders Nk. þriðjudagskvöld 27. jan. kl. 20.30 frumsýndir Þjóðleikhúsið nýlegt brerzkt leikrit eftir James Saund ers á Litla sviðinu. Leikritið heitir „Bodies" á frum málinu en hefur I islenzkri þýðingu örnólfs Árnasonar hlotið nafnið Líkaminn —* annað ekki. Það er Bcne dikt Árnason sem leikstýrir en Jón Svanur Pétursson gerir leikmynd og búninga. er þetta fyrsta leik myndin sem Joii Svanur gerir fyrir Þjóðleikhúsið en hann hefur starfað sem leiktjaldamálari við stofnunina nokkur undanfarin ár. Páll Ragnarsson sér um lýsinguna i sýningunni. Hlutverkin i leiknum eru aðeins fjögur og cru i höndum Kristbjargar Kjeld. Gisla Alfreðssonar. Steinunnar Jóhannesdóttur og Sigmundar Arnar Amgrímssonar. Likaminn — annað ekki er meðal þeirra lcikrita sem hvaðmestaathygli hafa vakið i Bretlaiu'i á siðari árum Erfitt er að segja frá efni verksins án þess að Ijóstra upp um efnisþráðinn sem ekki væri sanngjarnt gagnvart væntanlegum áhorféndum. Þó er óhætt að geta þess að leikritið fjallar um tvenn hjón, önnu og Margeir, seni Kristbjörg og Gísli leika og Helenu og Davið. sem Steinunn og Sigmundur örn leika. Hjón þessi hittast eina kvöldstund eftir niu ára aðskilnaðen áður fyrr hafði verið mjög náinn vinskapur með þessu fólki. Níu ár eru langur timi af mannsævi og ýmislegt hefur breytzt. ekki sizt fólkið sjálft.. Þorrablótið verður haldið 31. janúar i Snorrabæ kl. 19. Þátttaka tilkynnist til Andreu. s. 84853. Sigur bjargar. s. 77305 eða Bergþóru. s. 78057 fyrir 25. janúar. Félög sjálfstæðismanna í Nés- og Melahverfi og Vestur- og Miðbæjarhverfi boða til fundar með umdæmafulltrúum þriðjudaginn 27. jan. kl. 20.30 í Valhöll. Háaleitisbraut I. Á fundinn mæta Guðmundur H. Garðasson. Gunnlaugur B. Danielsson og Sveinn H. Skúlason. Umdæmafulltrúar eru hvattir til að mæta stund- vislcga. ÝmisKegt k. Námskeið í frjálsri tjáningu fyrir hreyfihömluð börn Tilkynningar Kvenfélag Árbæjarsóknar Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 2. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra efnir til námskciðs i frjálsri tjáningu fyrir hreyfihömluð börn á aldrinum 10—16 ára sem hefst í naísta mánuði. Námskeiðiðer haldið i samstarfi víð Námsflokka Reykjavikur. en kennari verður Guðmundur Magnússon leikari. Námskeiðið fer fram í Sjálfsbjargarhúsinu að Hátúni 12 og er áformað að þaö hefjist fimmtudaginn 5. febrúar kl. 17.30. — Siðan mun það verða á hverj- Stórkostleg gjöf til Seltjarnarnessafnaðar Söf nuðinum gefin lóð undir kirkju Eigendur Pálsbæjarlands á Seltjarnarnesi, systkinin Guðlaug Sigurðardóttir. Pálsbæ. Pétur Sigurösson for- stjóri. Hrólfsskála, og Ólafur Sigurðsson, búsettur i Svíþjóð, hafa afhent sóknamefnd að gjöf lóð undir kirkju austan til í Valhúsahæð. Gjöfin var afhcnt i Pálsbæ. ajskuheimili þeirra systkinanna. miðvikudaginn 21. janúar 1981. Sóknarnefnd telur gjöf þessa ómetanlegt framlag til sameiningar i safnaðarstarfinu og ber vott um stórhug og höfðingsskap frumbyggja Seltjarnarness og niðja þeirra. Undanfarin sex ár hefur sóknarnefnd undirbúið kirkjubyggingu, en ekki getað hafizt handa fyrr en nú þar sem staðiö hefur á afgreiðslu lóðar frá bæjaryfir- völdum. Verður gjöfin seint fullþökkuð því með henni er rudd brautin fyrir söfnuðinn til að hefjast handa um bygginguna. um fimmtudegi á sama stað og tima i febr.. marz og april. Á námskeiðinu fer fram kennsla i framsögn. upp- lestri. frjálsri leikrænni tjáningu. spuna og slökun. Þátttökugjald er kr. 25.00. Aðstendendur þeirra barna sem áhuga hafa á að taka þátt i námskeiðinu eru bcönir að hafa samband við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem fyrst og eigi síðar en um nk. mánaðamót. i síma 84560 og 84561. Námskeið cins og það sem hér urn ræðir getur vcrið mjög gagnlegt og þroskandi og hjálpað hinum fötluðu börnum til að yfirstiga ýmsa erfiðleika. Villa ífóstru- frétt Villa slæddist in i frétta á baksíðu Dagblaðsins á laugardaginn þar sem fjallað er um kjarabaráttu fóstra í Reykjavík, Kópavogi og á Akureyri. Þar kom fram að fóstrur í Reykjavík hafa krafizt þess að byrjunarlaun hækkuðu úr 10. í 12. launaflokk. Hið rétta er að krafan var að hækkunin yrði úr 10. í 13. flokk. Er það sam- ræmd krafa fóstra sem vinna hjá Reykjavikurborg, Kópavogsbæ og rík- inu. Ástand vega betra en á horfðist „Það horfði illa með ástand vega i gær en nú hefur rigningin sjatnað og það hefur komið í ljós að ástand vega er betra en á horfðist,” sagði Arnkell Einarsson hjá Vegaeftirlitinu i morgun. Mikil hálka er um allt land og minni háttar skemmdir hafa orðið á vegum sem geta orðið minni bílum til trafala. í Norðurárdal flæddu tvær ár yfir veginn og varð hann illfær þess vegna en nú hefur vatnið sjatnað, þannig að þar ætti að verða fært aftur í dag. Héraðsvötn flæddu yfir Norðurlands- !veg í Skagafirði og þar er ekki fært nema stórum bílum. í Ólafsvíkurenni féllu skriður aftur í nótt og verður ekki rutt þar fyrr en birtir. Þar féllu skriður í gær og var vegurinn þá ruddur. - JR Ríkisverksmiðjur: TILBOÐ SKODAÐ Undirnefndir i kjaradeilu starfs- manna í ríkisverksmiðjunum og í Kisiliðjunni störfuðu í morgun en síðdegis er boðaður sameiginlegur fundur. Fulltrúar ríkisvaldsins lögðu fram tillögu til lausnar deilunni í gær og eru viðsemjendurnir að skoða hana. Vonazt er til að nú fari senn að sjá fyrir endann á þessum löngu og erfiðu viðræðum. Þá er á morgun boðaður fundur út- vegsmanna og sjómanna um kjarpmál sjómanna á togurum og bátum. Ekkert bendir til að hreyfing komist á málin, heldur er litið fremur á fundinn sem uppfyllingu lögboðins ákvæðis um samningamálin. -ARH. • GENGIÐ ■ 3 GENGISSKRÁNING Ferðamanna- Nr. 17 — 28. janúar 1981 ♦ gjaldeyrir Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 BandarikJadoNar 6,230 8,248 6,873 1 Stariingspund 14,980 15,023 18,525 1 KanadadoHar 6,238 5,250 5,775 1 Dönskkróna 0,9886 0,9914 1,0905 1 Norskkróna 1,1713 1,1747 1,2922 1 Sœnsk króna 1,3841 1,3881 1,5289 1 Rnnsktmark 1,5926 1,5971 1,7588 1 Franskur franki 1,3178 U217 1,4535 1 Beig. franki 0,1894 0,1900 0,2190 1 Svissn. franki 3,3878 3,3773 3,7160 1 Hollenzk florína 2,8013 2,8094 3,0903 1 V.-þýzkt mark 3,0416 3,0503 3,3553 1 íttiisklfra 0,00841 0,00843 0,00707 1 Austurr. Sch. 0,4296 0,4307 0,4738 1 Portug. Escudo 0,1149 0,1162 0,1287 1 Spánskur peseti 0,0788 0,0770 0,0847 1 Japansktyen 0,03072 0,03080 0,03388 - i?_ór*töí< dráttarréttindi) 8/1 11,386 7,8744 11,398 7,8972 12,538 * Breyting frá sfflustu skráningu. Sknsvari vegna gefeigisskróningar 22190. | 1 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.