Dagblaðið - 27.01.1981, Síða 20

Dagblaðið - 27.01.1981, Síða 20
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. JANÚAR 1981 FÓLK Vor- og sumartízkan í fyrsta skipti sýnd hér fram í tímann: „ Gœti orðiö til þess að módelin kœmu afturhingað9 — segir Marta Bjarnadóttir um vel heppnaða sýningu „Sýningarnar gengu alveg ægilega vel og allir mjög ánægðir, bæði við sem stóðum að sýningunum og þeir sem hafa talað við mig. Fólki fannst þetta góð tilbreyting í skammdeginu, eins og við bjuggumst við,” sagði Marta Bjarnadóttir eigandi verzlan- anna Evu og Galleri, en sýning vor- og sumartízkunnar frá IN WEAR og matinique voru einmitt haldnar í til- efni af tiu ára afmæli verzlunarinnar Evu. „Sýningarfólkið var ákaflega ánægt með að koma hingað, fannst því mjög vel tekið. Það hafði jafnvel orð á því hve íslendingar væru opnir fyrir svona sýningu,” sagði Marta. Sýningarfólkið hélt til Danmerkur á sunnudagsmorgun, þar sem sýningar biðu þess strax í gærdag. Þessi sýning mun halda áfram hjá því fram í marz, en þá verður byrjað að kynna haust- og vetrartízkuna. „Það er mikill spenningur fyrir því að þau komi hingað aftur einhvern tíma og það yrði mjög gaman að því. Við verðum bara að sjá til,” sagði Marta. Það er óhætt að fullyrða að sýningin hafi heppnazt vel og vakið mikla athygli, viðbrögð gesta í Holly- wood leyndu þvi ekki. Eins og þeir þekkja sem keypt hafa fatnað frá IN WEAR og matinique leggur fyrir- tækið mikið upp úr frjálslegum fatnaði. Svo verður einnig næsta sumar. Tízkan eða línan, eins og sagt er, ber nafnið „High tech safarí”.Hún ryður sér mjög til rúms erlendis um þessar mundir. -ELA. Fatnaðurinn var misjafnlega léttur, allt frá sundbolum og bikini upp í úlpur. Hér er ein af mörgum gerðum af sund■ bolum sem sýndir voru á sýningunni. Karipeningurinn I dönsku sýningar- samtökunum þótti óvenju hressilegur. Til dcemis létu þeir sig ekki muna um að koma með látbragðsleik um leið og þeir sýndu fótin. Þessi hafði ekkert fyrir þvl að brosa allan tímann meðan á sýningunni stóð og einhver lét það út úr sér að llklega hefði hann brosað er hann kom út úr vélinni á Keflavíkur- flugvetli og það siðan frosið í öllum kuldanum. Fatnaðurinn sem sýndur var í llollywóod erjafnt fyrir karimenn og kvenmenn. Frjálslegur sumariegurfatnaður I safarí-stíl. Og eftir að dömurnar höfðu dansað fyrir áhorfendur á sundbolum kom hann þessi eins og skrattinn úrsauðar- leggnum, I anorakk með hettu svo varia sást í andlitið á honum. Að vonum vakti hann gifurlega athygli kvenna i salnum. m---------------------» Þannig verða líklega pörin á skemmti- stöðunum i sumar, þ.e.a.s. ef veðrið verður hagstœtt. Finfaldur, sportlegur og þcegilegur sumarfatnaður. Herrahuxurnar eru í Ijósum litum og samfestingur sem daman klœðist í „High tech safari" stll.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.