Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981.
9
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Shirley Williams
Boðar kosn-
ingabandalag
með
Frjálslyndum
Shirley Williams, einn uppreisnar-
mannanna í Verkamannaflokknum
brezka, sagði í gær að hinn nýi sósíal-
demókratíski hópur í Bretlandi kynni
að mynda kosningabandalag við Frjáls-
lynda flokkinn.
Hún sagði að kosningabandalag
væri nauðsynlegt til þess að koma í veg
fyrir að atkvæði ónýttust, ,,en ég tel
ekki, að það muni leiða til samruna
flokkanna,” sagði hún.
Enn barizt á
landamærum
Perú
ogEquador
Perústjórn hefur skipað hersveitum
sínum að hætta bardögum þar sem þær
hafi nú endurheimt öll þau landsvæði
sem Perústjórn telur sig eiga á landa-
mærum Equador eftir fimm daga bar-
daga milli hersveita Perú og Equador i
fjalllendi og skógum á landamærum
þjóðanna. Equadormenn segja að her-
sveitir Perú haldi enn uppi árásum við
landamærin og sé yfirlýsing stjórn-
valda í Perú um að bardögum hafi
verið hætt blekking ein.
íranir
fordæma
ákvörðun
Frakka
íranir hafa fordæmt þá ákvörðun
Frakka að selja frökum tíu Mirage-orr-
ustuþotur. Búizt er við að þoturnar
komi til íraks í dag og á morgun og
verði þær sendar beint í orrustur I styrj-
öld írans og íraks. Þær geta flogið með
tvöföldum hraða hljóðsins og eru
taldar geta haft mikil áhrif á gang styrj-
alda þjóðanna.
Arabískurlæknir
njósnari KGB
Arabískur læknir, dr. Jahar Sayege,
hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í
fsrael fyrir njósnir í þágu Sovétríkj-
anna. Dr. Sayege, sem starfaði á
sjúkrahúsi í austurhluta Jerúsalem, var
sakaður um að hafa látið sovézku
leyniþjónustunni KGB í té upplýsingar.
Íranslíturstjórn-
málasambandi
viðJórdaníu
ogMarokkó
fran hefur slitið stjórnmálasambandi
við Jórdaniu og Marokkó að því er ír-
anska ríkisútvarpið greindi frá í gær.
Behxad Nabavi, dómsmálaráðherra
írans, sagði að ástæðan væri fullur
stuðningur þessara þjóða við stjórn
íraks og fjandskapur þeirra i garð
islömsku byltingarinnar í íran.
Óeirðirí
Londonderry
Til óeirða kom i Londonderry á
Norður-írlandi í gær er hópur kaþól-
ikka réðst á lögreglu og var barizt i
þrjár klukkustundir. Brezkir hermenn
komu lögreglunni tíl aðstoðar.
Fyrírhuguð verkföll Einingar afboðuð í Póllandi:
Samkomulag varó um
tvö aðaldeiluefnin
Enn hef ur ekki tekizt samkomulag um viðurkenningu st jómvalda á
dreifbýlisdeild Einingar
Eining, samtök hinna sjálfstæðu
verkalýðsfélaga í Póllandi, hefur af-
boðað fyrirhugað klukkustundar
allsherjarverkfall sem koma átti til
framkvæmda í morgun.
Hið fimmtíu manna landsráð Ein-
ingar lýsti því jafnframt yfir að sá
möguleiki væri ekki útilokaður að
allsherjarverkfall yrði boðað siðar ef
stjórnvöld viðurkenndu ekki sjálf-
stæð verkalýðsfélög bænda.
Talsmaður Einingar, Karel
Modzelewski, sagði i gærkvöld að
Eining hefði ákveðið að falla frá
fyrirhuguðu verkfalli eftir að stjórn-
völd hófu viðræður við bændur í
Rzeszow, höfuðstöðvum baráttunnar
fyrir sjálfstæðum verkalýðsfélögum
bænda.
Landsráð Einingar lýsti yfir fullum
stuðningi við kröfur bænda og
sagðist líta á þær sem sínar eigin
kröfur.
Fyrr um helgina náðist samkomú-
lag milli stjórnvalda og Einingar um
tvö af meginágreiningsefnunum.
Samkomulag varð um að verkamenn
mættu til vinnu einn laugardag í
hverjum mánuði fyrst um sinn þó
Eining haldi enn fast við, að 40
stunda vinnuvika verði leidd í lög
með nýrri vinnumálalöggjöf. Einnig
varð samkomulag um aukinn aðgang
Einingar að fjölmiðlum.
Átökum hefur þannig verið skotið
á frest en Lech Walesa, leiðtogi Ein-
ingar, sagði í sjónvarpi í gærkvöld að
verkamenn hefðu enn verkfallsvopn-
ið í sínum höndum og myndu ekki
hika við að beita því ,,ef ráðizt
verður á okkur eða bændur.”
Pólskir verkamenn hafa að þvi er virðist unnið enn einn sigurinn við samningaborðið og ætti þvi að vera friðvænlegra í
landinu á næstunni þó enn sé eitt aðalágrciningsefnið óleyst, það eru kröfur bænda um að fá að stofna sjálfslæð verka-
lýðsfélög. Stjórnvöld hafa enn ekki viljað fallast á það en samningaviðræður eru hafnar við bændur.
Flvturöu inn vörur f rá
Svíþjóð?
„FOB VASTERVIK"
Gæti það lækkað
innkaupsverðið ?
HAFSKIP HF. hefur um sextán ára skeið haldið uppi
reglubundnum siglingum til Svíþjóðar, nú vikulega til
Gautaborgar og hálfsmánaðarlega til Halmstad.
HAFSKIP HF. hefur nú bætt við nýjum viðkomustað, nú
á austurströnd Svíþjóðar, VÁSTERVIK, og verður viðkoma
þar á 25 daga fresti. Borgin er staðsett miðja vegu milli
Stokkhólms og Helsingborgar, en á því svæði eru
f jölmargar verksmiðjur, sem selja þekktar vörutegundir til
íslands.
Tilgangur okkar með því að bæta VÁSTERVIK við aðra
viðkomustaði HAFSKIPS í Svíþjóð, er að sjálfsögðu að
bæta þ jónustuna. Þannig geta nú innflytjendur, sem kaupa
vörur frá VÁSTERVIK svæðinu gert samanburð á verði á
innfluttri vöru frá Svíþjóð. Athugið hvort hagkvæmara sé
að kaupa vöruna „EX FACTORY" eða „FOB VÁSTERVIK'
Allar frekari upplýsingar eru fúslega veittar
í Markaðsdeild Hafskips hf. í síma 21160.
HAFSKIP HF.
Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu,Sími 21160
M.S.LANGÁ
13. febrúar1981
13. mars 1981
Umboðsmaður
í VÁSTERVIK:
Knut Sjögren A/B
S 59301 VÁSTERVIK
P.O. Boxll,
Telex: 3912
Sími: 0490-301 30