Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 28
28 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981. IBM-kúla í vasa starfsmannsins Hannes Hólmsteinn Gissurarson er , sagður nokkurs konar arftaki mormónaprests sem flæktist um landið og boðaði trú sína bændum og búaliði. Munurinn er bara sá að prestur boðaði mormónatrú en Hannes Hólmsteinn frjálshyggju. Og prestur hafði ekkert Morgunblað til boðunarinnar. Það hefur Hannes hins vegar. H. Hólmsteinn kemur stundum í heimsókn í sjálfstæðis- húsið Valhöll og notar þar tól og tæki svo að sumum föstum starfs- i mönnum blöskrar. Þannig hefur ; komið fyrir að símar og símalínur 1 Valhallar hafa verið uppteknar tím- unum saman þegar H. Hólmsteinn og frjálshyggjufélagar hans sátu og hringdu út um bæinn til að bjóða frjálshyggjuritling til kaups. Menn tóku eftir því líka að rándýr borði í fínustu kúluritvél í Valhöll entist furðu stutt, styttra en eðlilegt gat tal- izt. Málið var kannað af athugulum Valhallarbúum og kom í ljós að frjálshyggjuliðið notaði ritvélina góðu ótæpilega og spændi upp borð- ana. Til að fyrirbyggja slíka efnis- sóun innandyra 1 Valhöll tók einn starfsmaðurinn það til bragðs að taka kúluna úr ritvélinni í hvert sinn sem hætt var að nota hana í flokksstarf- inu. Og nú gengur starfsmaðurinn með IBM-kúlu í vasanum þegar hann þarf að bregða sér frá! Hljómsveitin Demo hugar að plötuupptökum - nýi staðurinn, Arnarhvoll, opnaður í lok marz „Við erum að byrja að breyta staðn- um núna og það hefur gengið alveg prýðilega fram að þessu. Ef heldur áfram sem horfir ættum við að geta opnað um mánaðamótin marz/april," sagði Skúli Hansen yfirmatreiðslu- maður á Hótel Holti I samtali við DB. Eins og Fólk-síðan skýrði frá í haust hafa þeir Skúli og Guðbjörn Karl Ólafsson tekið á leigu Alþýðuhús- kjallarann undir fínni matsölustað sem mun bera nafnið Arnarhvoll. „Við gjörbreytum staðnum, hann mun fá algjörlega nýtt andlit,” sagði Skúli, — Nú hefur Alþýðuhúskjallarinrt ekki haft sem bezt orð á sér. Á ttu von á þvi að það komi niður á ykkar starf semi? „Nei, á því á ég ekki von. Það hefur litil starfsemi verið þarna undanfarið. Auk þess verður staðurinn gjörbreytt- ur svo við erum ekki hræddir við það. Við stefnum að því að þetta verði fyrsta flokks veitingahús. Staðurinn tekur 70 manns í sæti og líklega verðum viðmeðum 15 manns í vinnu. Innréttingarnar verða allar mjög stí|- hreinar, hins vegar viljum við halda því leyndu hvernig starfseminni verður háttað hjá okkur þangað til að henni kemur,” sagði Skúli Hansen. ELA. Bin þeirra fjögurra hijómsveita sem skemmta i SATT-kvöldlnu i miövikuöag er Pónik. Hún mun leika nokkur vaiin lög afplötu sinni, Útvarp, sem kom út fyrir síðustu jól. DB-mynd Einar Ólason. Klojvega á ránni Kjósendum finnst stundum flokka- farganið á íslandi allt of flókið, sér- staklega þegar gera þarf upp hug sinn fyrir kosningar og velja úr þann flokkinn sem lýgur sennilegast. 'Sumir óska þess heitt og innilega í huganum að hér væru bara tveir risa- flokkar eins og Bretar og Kanar hafa. Þá væri málið miklu einfaldara. En íslendingar eiga kost á að einfalda flokkakerfið meira en þekkist annars staðar á jarðarkringlunni, jafnvel í ríkjum þar sem einn flokkur er leyfður en allir aðrir bannaðir. Hann er sá að leggja niður alla flokka, hvaða nafni sem nefnast, að Sjálf- stæðisflokknum undanskildum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt að hann býr yfir þeim fágæta sveigjan- leika að geta í senn verið stjórnar- flokkur og stjórnarandstöðuflokkur. Og fátt sýnist því til fyrirstöðu að félagar annarra flokka geti gengið í Sjálfstæðisflokkinn og myndað arm eða fylkingu fyrir sig. Þetta yrði svo mikið mikið auðveldara líf fyrir okkur vesalingana sem þurfum að kjósa annað slagið. Við vitum hvort eð er aldrei hvort flokkarnir okkar fara í stjórn eða stjórnarandstöðu eftir kosningar. Sjálfstæðisflokkur- irin gerir ekki upp á milli sjónarmiða og situr klofvega á ránni. Stúlkan afgreiddi sjálfa sig Kaupmaður einn í Reykjavík hafði hjá sér stúlku í vinnu í búðinni í fyrra. Stúlkan sú reyndist einum of fingralöng þegar á reyndi og stakk gjarnan t vasa sinn eigulegum varn- ingi svo lítið bar á. Kaupmaðurinn stóð hana að verki og taldi þetta ekki geta gengið, enda stúlkan uppvís að þjófnaði hvað eftir annað. Hún fékk „reisupassann” hjá kaupmanninum. í janúarmánuði fékk stúlkan launamiðann sinn frá kaupmannin- um, eins og aðrir launamenn í land- inu. Þar var tíundað kaup, orlof og annað sem atvinnurekendur setja á slíka miða. í reit merktan „tegund at- vinnu” hafði kaupmaður hins vegar skrifað: Sjálfsafgreiðsla! Hljómsveitin Demo er komin á kreik á nýjan leik eftir rúmlega mán- aðar hlé. Fríið notuðu liðsmenn hennar til að hljóðrita nokkrar prufuupptökur — svokallaðar demo- upptökur — af lögum sínum. Þeir stefna á að koma frá sér hljómplötu áður en langt um líður. Útgefandi hefur enn ekki fengizt en þau mál eru í athugun. „Demo er búin að vera starfandi í um hálft annað ár,” sagði Einar Jónsson gítarleikari. ,,Að visu hafa orðið smámannabreytingar hjá okkur. Við skiptum um hljómborðs- Skúk' Hansen yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti. DB-mynd R. Th. Sig. Breytingar hafnará Alþýðuhús- kjallaranum leikara og þá erum við með vara- mann á bassann fram á vor.” Auk Einars eru í Demo Sigurður Reynisson trommuleikari, Gunnar Jónsson hljómborðsleikari, Ólafur Bjarnason söngvari og Grétar Jó- hannesson sem sér um bassaleik um þessar mundir í staðinn fyrir Hávarð Tryggvason. „Við höfum að undanförnu aðal- lega leikið í Klúbbnum um helgar og á Keflavíkurflugvelli,” sagði Einar Jónsson. „Um síðustu helgi vorum við í Klúbbnum. Við höfum hins vegar fullan hug á að koma víðar við á næstunni.” Einar kvað hljómsveitina aðallega hafa rokktónlist á dagskránni, svo og þau lög sem vinsælust eru hverju sinni. „Á milli reynum við svo að skjóta okkar eigin lögum,” sagði hann. ,,Ef ég ætti að lýsa frumsömdu tónlistinni myndi ég kalla hana rokk- tónlistiokkareiginstíl.” -ÁT Hljómsveitin Demo hefur verið starfandi á annað ár. Hún leikur aðallega rokk og þá tónlist sem vinsælust er hverju sinni. DB-mynd Þorri. Tvœr austfirzkar hljóm- sveitir ú nœsta SA TT-kvöldi auk tveggja frú Reykjavík Fjórar hljómsveitir, Pónik, Þeyr, Amon Ra og Lóla, koma fram á næsta tónlistarkvöldi Samtaka al- þýðutónskálda og -tónlistarmanna. Það verður haldið i veitingahúsinu Klúbbnum á miðvikudagskvöld. Pónik og Þeyr sendu báðar frá sér hljómplötur fyrir síðustu jól og.munu kynna lög af þeim. Hinar hljómsveit- irnar tvær eru báðar austan af landi. Amon Ra kemur frá Neskaupstað. Hún hefur verið starfrækt undan- farin ár og er gestum sveitaballa austanlands að góðu kunn. Lóla er frá Seyðisfirði og tiltölulega óþekkt enn sem komið er. SATT-kvöldin, eins og tónlistar- kvöld samtakanna eru oftast kölluð, hafa nú unnið sér fastan sess í tón- listarlífi höfuðborgarinnar. Til- gangur þeirra er tvíþættur. Annars vegar er þeim ætlað að stuðla að framgangi lifandi dægurtónlistar og hins vegar að afla fjár til húsakaupa SATT. Félagið keypti fyrir nokkru hluta húseignar við Vitastíg 3 í Reykjavík. Þar er ætlunin að SATT- kvöldin verði haldin í framtiðinni. FÓLK Að sögn forráðamanna SATT- kvöldanna hefur aðsóknin almennt' verið mjög góð. Hafi þau því sannað gildi sitt með því að sýna fram á að gróska sé í popptónlistinni hér á landi, þó svo að atvinnuhorfur hafi versnað á undanförnum árum sam- fara aukinni diskótek-menningu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.