Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981. 19 KJÖTBUÐ SUÐURVERS STIGAHLIÐ - SÍMI35645 Grunnvara allt árið í stað skammtíma tilboða Lækkað verð á mörgum helstu neysluvörum AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS Nú er að byrja nýtt fyrirkomulag með afsláttar- og tilboðsvörur, sem leiða mun til varanlegrar lækkunar vöruverðs í matvöru- * búðunum. I þeim stóra hópi, sem mynda Grunnvöruna, en þannig eru þær einkenndar í búðunum, eru margar helstu neysluvörur, sem hvert heimili þarfnast svo sem hveiti, sykur, grænmeti, ávextir og þvottaefni. Þessi nýbreytni mun fela í sér umtalsverða lækkun á matar- reikningum þeirra, sem við kaup- félagsbúðimar skipta, félags- menn sem og annarra jafnt. Það býður engin önnur verslun Gmnnvöm á gmnnverði. $ Kaupfélagið Fréttabréffrá Hellu: Skuggalegt atvinnu- ástand f Rangárþingi SKÓLAVÚRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235. Munio þorra- matinn Tiarti verö DB-mynd ARH. - Tími þorrablótanna kominn Nú þegar þorri er genginn í garð hefj- ast þorrablótin í hverri sveit. Eru þau mjög svo vinsælar skemmtanir og sækja þau allir sem vettlingi geta valdið. í vikunni var þorrablót í Brúar- lundi í Landsveit og síðan koma þau hvert af öðru. Ekki bjart yf ir atvinnumálunum Atvinnumálin í héraðinu eru í skuggalegu standi. Vinna liggur nú niðri við Hrauneyjafossvirkjun. Á sl. sumri unnu á þriðja hundrað manns héðan úr sýslunni við virkjunina og má & UTMYNDIR1^^ Mr/A _____ 3= 'f KVIKMYNDA f|| ■m- FILMU LEIGA s / —andvaraleysi Almannavama Mikla snjókomu gerði á Hellu fyrir síðustu helgi með skafrenningi og var mikill snjór í plássinu eins og reyndar í allri sýslunni. Torfært var um götuf bæjarins helgina á eftir, enda ekki talið að það borgaði sig að moka vegna þess að bæta mundi í þetta fljótlega. Andvaraleysi Almannavarna Ófært er að vanda á efstu bæi á Rangárvöllum og síminn í óstandi sömuleiðis að venju. Það má heita furðulegt andvaraleysi Almannavarna að kanna ekki ástandið í öryggismálum þeirra bæja og gera þar á úrbætur. Þarna er um fimm bæi að ræða sem iðulega verða oft á vetri hverjum gjör- samlega sambandslausir við umheim- inn, bæði vega- og símalausir. Svæði þetta, efst á Rangárvöllum og alveg við rætur Heklu, er eitt virkasta eldgosa- og jarðskjálftasvæði landsins. Þar búa um 30 manns og hefur það engin tök á að koma frá sér neinum boðum þegar vegur og sími lokast því þar eru engin loftskeytatæki né vélsleðar. nærri geta að þetta atvinnuleysi kemur illa við margan manninn. Að vísu er um tímabundið atvinnuleysi að ræða því búast má við að vinna þar innfrá hefjist aftur í apríl. Samt er hér um að ræða a.m.k. fjögurra mánaða stopp. Má nærri geta að ekki fær þetta fólk neina atvinnu hér um slóðir þennan tíma. f Rangárþingi eru engar aðrar opinberar framkvæmdir en virkjunin. Næsta haust lýkur framkvæmdum þar og verður þá hluti virkjunarinnar tek- inn í notkun. Engar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að sjá þeim Rangæingum, sem þá missa atvinnuna, fyrir vinnu annars staðar. Og hver verður þá framvinda atvinnumálanna? Ekki verður komið auga á annað en at- vinnuleysisbætur taki þá við. Ríkis- valdið virðist vera alveg staurblint og hefst ekki að. Atvinnuleysi víðar en í sjávarplássum Okkur þykir svolitið öfundsverð um- hyggja hins opinbera fyrir sjávarpláss- unum þar sem allt kapp er lagt á að allir hafi atvinnu. Á meðan rekur það á reiðanum hvort kauptúnin í sveitum landsins hafa nokkra atvinnumögu- leika upp á að bjóða fyrir sína íbúa. Yfir tvö hundruð manns hér um slóðir er nú aðgerðaiiausir og eftir fáeina mánuði tekur fyrir alla atvinnu fyrir þetta fólk á heimaslóðum. Forystu- menn atvinnumála hér í sýslu hafa nú um langt skeið reynt að opna augu valdamanna landsins á því ástandi sem hér mun skapast þegar Hrauneyjafoss- virkjun lýkur. Það sem þá tekur við er hreint sagt ógnvekjandi. í afrekaræð- um alþingismanna er mikið gortað af því að ekki sé til atvinnuleysi á íslandi. Ætli sá hreini tónn verði ekki svolítið holur í miðjunni þegar næsti vetur gengur í garð? Það er skýlaus krafa Rangæinga að atvinnumál okkar verði tafarlaust tekin til athugunar og gerðar raunhæfar áætlanir um framtíðarlausn þeirra. - HT, Hellu. Vinna við Hrauneyjafossvirkjun.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.