Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 15
15 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRUAR 1981. Iþróttir Iþróttir I £ Iþróttir Iþróttir ÁSGEIR REKINN ÚT AF HILDUR TRYGGÐIFH SIGURINN GEGN VAL —FH vann 15-13 í æsispennandi leik í toppuppgjöri 1. deildar Hildur Harðardóttir var svo sannar- lega hetja FH-stúlknanna i 1. dcild kvenna á laugardag er þær lögðu stöllur sinar úr Val að velli, 15-13, í æsispennandi leik í Hafnarfirði. Er ein og hálf minúta var til leiksloka var Katrinu Danivalsdóttur vikið af leik- velli í 2 mínútur og staðan þá 14-12 fyrir FH. Ágústa Dúa minnkaði mun- inn í 13-14 og allt gat gerzt. FH-stúlk- urnar, leikmanni færri, voru i stökustu vandræðum með að finna leið i gegn- um Valsvörnina en nokkrum sekúnd- um fyrir leikslok reif Hildur sig lausa og skoraði fallegt mark, 15-13. Bæði lið voru illa þrúguð af tauga- spennu fyrst í leiknum og var mikið um mistök. FH hafði yfirhöndina til að byrja með en síðan kom góður kafli hjá Val og þær komust 1 4-2 og nýttu samt ekki tvö vítaköst 1 röð á þeim tíma. Erna átti bylmingsskot 1 þverslá og Höfðu 5-0yfir íhálfleik Skagastúlkurnar styrktu stöðu sina á botnl 1. deildarinnar veruleg er þær unnu Hauka 9-7 á Akranesi á föstu- dagskvöld. í hálfleik var staðan 5-0 ÍA í vil, hvort sem menn trúa þvi nú eða ekki. Haukadömurnar tóku sig veru- lega á i siðari hálfleiknum en allt kom fyrir ekki. FJögur vítaköst fóru for- görðum hjá þeim og það reið bagga- muninn. Harpa í stöng. Markramminn átti eftir að reynast þeim óþægur ljár í þúfu í leiknum því 4 sinnum til viðbótar smullu skot Valsstúlknanna á honum. Jafnræði var með liðunum fram að hálfleik og staðan þá 7-7. Margrét skoraði jöfnunarmark FH mjög glæsi- lega með þrumuskoti beint úr auka- kasti eftir að leiktíma var lokið. FH komst strax i 9-7 með tveimur mörkum Katrínar en þá kom snjöll ráð- stöfun hjá þjálfara Vals, Jóni Her- mannssyni. Hann lét taka þær Margréti Theodórsdóttur og Kristjönu Aradóttur úr umferð og spil FH hrundi saman. Vaiur skoraði þrjú mörk í röð og komst í 10-9. Þeim tókst þó ekki að fylgja þessu nógu vel eftir og FH komst yfir á ný. Sóknarieikur Vals var ekki nógu yfirvegaður á þessum tíma og var Harpa þar einna versti sökudólgurinn. Sóknarleikur FH var þó enn bitlaus- ari eftir að Margrét og Kristjana voru teknar úr umferð og það var ekki fyrr en Hildur kom inn á að ógnun komst aftur í sóknina. Það var það sem þurfti og sigurinn lenti hjá FH, Jafntefli hefði verið sanngjarnast í þessari viðureign og óheppnin elti Vals- stúlkurnar í markskotunum. Liðin eru ákaflega áþekk að getu en líkast til er íslandsmeistaratitilinn genginn Val úr greipum að þessu sinni. FH og Fram eiga eftir að mætast innbyrðis og sá leikur sker iíkast til úr um hvort iiðið hlýtur titilinn, Hjá Val voru þær Magnea og Erna beztar og svo Sigrún Bergmundsdóttir. Þá varði Jóhanna vel í markinu. Af FH-dömunum var Katrín bezt. Geysilega ákveðin á lín- unni og föst fyrir í vörninni. Margrét átti erfitt uppdráttar sökum strangrar gæzlu en skilað sínu. Þá var Hildur sterk í lokin. Kristín Pétursdóttir vakti athygli í hægra horninu. Mörkin: FH: Margrét Theódórs- dóttir 6/4, Katrín Danivalsdóttir 4, Hildur Harðardóttir 3, Björg Gilsdóttir og Kristín Pétursdóttir 1 hvor. Valur: Erna Lúðvíksdóttir 4/3, Harpa Guð- mundsdóttir 3, Magnea Friöriksdóttir 3, Ágústa Dúa Jónsdóttir 2, Björg Guðmundsdóttir 1. Dómarar voru þeir Grétar Vil- mundarson og Ævar Sigurðsson og sluppu ágætlega frá sínu þó vissulega hafi þeir átt sínar vitleysur. - sSv, Staðaní 1. deild kvenna Staðan I 1. deild kvenna er nú þessi eftir undanfarna leiki: Akranes —■ Haukar 9-7 FH — Valur 15-13 Fram — KR frestað FH 9 7 11 178-118 15 Fram 8 6 0 2 151-107 12 Valur 9 5 2 2 125-110 12 Víkingur 9 4 3 2 122-115 11 KR 8 4 13 104-107 9 Akranes 9 2 2 5 102-146 6 Haukar 9 117 103-128 3 Þór 9 10 8 120-174 2 —og Standard tapaði leiknum gegn Anderiecht Hildur Harðardóttir skorar hérna siðasta mark FH gegn Val og innsiglar sigurinn. Sigrún Bergmundsdóttir fylgist með. DB-mynd Sig. Þorri. Heldur betur varð heitt í kolunum i leik Standard Liege og Anderlecht, toppliðsins í Belgíu, er liðin mættust á heimavelli Standard i gær í aðalleik dagsins í Belgiu. Anderlecht sigraði 1-0 i þessum þýðingarmikla leik og markið var skorað úr geysilega umdeildri víta- spyrnu. Lasonne komst þá inn fyrir vörn Standard á 37. mínútu og virtist greini- lega rangstæður. Hann lék á Preud- ’homme í markinu en Dardenne var þá kominn á marklínu til varnar. Skot Lasonne hafnaði í læri Dardenne en dómarinn, sem veifaði gulum og rauð- um spjöldum eins og vindmylla, dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu, sem Lasonne skoraði örugglega úr. I sjónvarpi var þetta atvik margsýnt og kom þá í ljós að knötturinn hafði aldrei snert hönd Dardenne. Skömmu fyrir leikhlé var Lasonne þessum vikið af velli fyrir ljótt brot á Tahamata og Ásgeir Sigurvins- son fékk siöan að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik fyrir mótmæli gegn dómi. Anderlecht hélt fengnum hlut og meistaravonir Standard eru nú hverf- andi litlar. Anderlecht mætir Beveren á heimavelli sinum um næstu helgi og vinnist sigur í þeim leik má telja titilinn þeirra. Úrslitin í Belgiu í gær urðu sem hér segir: Winterslag — Beringen 2-1 Molenbeek — Beerschot 1 -1 Coutrtrai — Antwerpen 0-0 Gent — Waregem 1-1 Beveren — Waterschei 2-0 Berchem — FC Brugge 1-1 CS Brugge — Lokeren 1-1 Lierse — FC Liege 1-1 Það var Grzegorz Lato sem skoraði mark Lokeren í f.h. en í þeim síðari jafnaði CS Brugge. Staðan í Belgíu er nú þessi: Anderlecht 20 16 2 2 39-12 34 Beveren 20 13 4 3 35-15 30 Standard 20 11 5 4 39-24 27 Lokeren 20 10 4 6 39-21 24 Molenbeek 20 10 3 7 30-29 23 FC Brugge 19 9 3 7 38-27 21 Lierse 19 7 7 5 30-25 21 Waregem 20 7 6 7 24-25 20 Winterslag 20 9 2 9 25-30 20 Gent 20 7 5 8 34-29 19 Courtrai 20 7 4 9 24-31 18 Antwerpen 19 6 6 7 24-31 18 CS Brugge 20 6 5 9 31-39 17 Berchem 19 4 7 8 19-39 15 Beringen 20 5 3 12 28-44 13 Waterschei 19 5 2 12 33-48 12 FC Liege 19 4 4 II 27-42 12 Beerschot 20 3 4 13 17-33 10 heldur niðurlútur eftir tap gegn Feyenoord sumarið 1979. Ekki er óllklegt að fasið hafi verið svipað er hann varð að yfirgefa völlinn I leiknum gegn Anderlecht I gær.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.