Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 02.02.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRUAR 1981. 17 Iþróttir Iþröttir Iþróttir Iþróttir ísland vann Frakkland 19-16 ígærkvöldi í Laugardalshöll Enstaklingsfranitak Sigga og Þorbergs bjargaði s|gri —Skoruðu 16 af 19 mörkum í leik sem einkenndist af alltof mörgum mistökum íslenzka landsliðið i handknattleik sigraði það franska öðru sinni í gær- kvöld i Laugardalshöll í þriðja lands- leik þjóðanna í keppnisför Frakka hingað. Þriggja marka sigur í lokin, 19- 16. Það var ekki beint sannfærandi sigur. B.vggðist eingöngu á einstaklings- framtaki þeirra Þorbergs Aðalsteins- sonar, sem var óstöðvandi í fyrri hálf- leik og skoraði þá sjö mörk, og Sigurðar Sveissonar. Siggi tók sig skemmtilega á í síðari hálfleiknum. Skoraði þá sjö mörk og þessir tveir leikmenn skoruðu sextán af nítján mörkum íslands i leiknum. Hinir aðeins þrjú. Auk þessara tveggja áttu þeir Jens Einarsson, markvörður, og Guðmundur Guðmundsson ágætan leik í íslcnzka liðinu. En eitt er vist að islenzka liðið verður — og getur það örugglega — að gera betur ef það ætlar sér mikinn hlut í B-keppninni. Þær þrjár vikur sem eftir eru. verða að nýtast vel í „slipingu” liðsins. Það var mikið um mistök í þessum leik hjá báðum liðum. Rangar sending- ar allt of margar og flestir leikmenn lið- anna gerðu sig seka um villur. Sóknar- leikur íslenzka liðsins allt of einhæfur. Þar réð einstaklingsframtakið rikjum. Siggi Sveins náði sér ekki á strik í fyrri hálfleiknum en þá var Þorbergur óstöðvandi, þó hann væri i mjög strangri gæzlu. Skoraði þá sjö af tíu mörkum íslands. í síðari hálfleiknum tók Siggi hins vegar upp merkið og skoraði þásjöaf niu mörkum íslands. í varnarleiknum var vinstra hornið mikið vandamál. Frönsku leikmenn- irnir léku oft illa á Stefán Halldórsson en honum var þó ekki skipt út af fyrr en tólf mín. fyrir leikslok. Eftir það fékk ísland aðeins á sig tvö mörk — staðan breyttist úr 14-13 fyrir Frakk- land i 19—16 fyrir Island. En það urðu .fleirum á mistök en Stefáni. Ólafur H. Jónsson var hvað eftir annað „dauða- frir” á línunni en skoraði þó ekki nema eitt mark. í vörninni var hann hins vegar sterkur. Páll Björgvinsson og Axel Axelsson, þeir leikreyndu kappar, náðu sér ekki beint á strik í leiknum. Þó byrjaði Páll svo vel. Skoraði eftir aðeins 10 sekúndur og skoraði annað mark nokkru síðar. Það var hins vegar dæmt af og víti dæmt í staðinn. nstri Helgi, Ólafur Haukur, Ómar, sigur- larhafi, Sigurjón, Guðmundur Ólafsson DB-mynd Þorri. igraði í glímunni Hjálmur — skjaldarhafinn — varð í þriðja sæti með 4 v. Tapaði fyrir Ómari. Guðmundur Freyr, Á, varð fjórði með 3.5 v. Helgi Bjarnason, KR, fimmti, með 2 v. 1 sjötta sæti varð Guðmundur Ólafsson, Á, með 1 v. og sjöundi Sigurjón Leifsson, Á. Kepp- endur voru sjö. Þrír heltust úr lestinni. -hsím. ísland byrjaði mjög vel. Páll skoraði strax og á 3ju mín. skoraði Siggi Sveins úr vítakasti. Átti áður snjalla línusend- ingu á Óla H. og viti dæmt. Á sjöundu mín. var Óli H. aftur frír á línu. Varið frá honum. Páll sendi knöttinn í netið á 9. mín. en víti dæmt, sem Þorbergur skoraði úr. 3-0 fyrir ísland. Frakkland skoraði rétt á eftir sitt fyrsta mark. Knötturinn sleginn í markið eftir að Jens hafði varið. Það hefði hann átt að geta hindrað, svo og vörnin. Eftir ranga sendingu skoruðu Frakkar aftur og Óli H. var síðan frír á línu, hitti ekki markið. Varið frá Þorbergi og Frakkar jöfnuðu i 3-3 á 13. mín. Þetta var slakur kafli. Þorbergur kom íslandi í 4- 3 en svo urðu Jens á mistök eftir að hafa varið. Kastaði knettinum beint til Frakka og Axel fékk á sig víti, þegar’ hann reyndi.að verja innan vítateigs. 4- 4. Þorbergur, 2 mörk, og Steindór komu Islandi í 7-4 með fallegum mörk- um og þegar fimm mín. voru eftir af f.h. var staðan 9-6 fyrir Island. Þor- bergur skoraði aftur tvívegis. Þennan mun tókst Frökkum að minnka i eitt mark. Staðan var 10-9 i hálfleik fyrir ísland. Framan af síðari hálfleiknum hélzt eins til tveggja marka munur fyrir Island og þó misnotaði Þorbergur víti. Skaut yfir markið. Frakkar jöfnuðu í 13-13 og komust svo yfir 14-13 þegar 13 min. voru til leiksloka. Talsverð spenna en Sigurður Sveins- son innsiglaði sigur íslands með fjórum mörkum í röð. Breytti stöðunni í 17-14 og sjö mínútur eftir. Hægt var að auka þann mun. ÓIi H. hitti ekki markið frir á línu og dæmdur var ruðningur á. Sigga. Frakkar minnkuðu muninn, 17- 15 og rúmar þrjár mín. eftir. En Þor- bergur svaraði með marki, 18-15 og tvær mín. til leiksloka. Frakkar skor- uðu sitt fallegasta mark rúmri mín. fyrir leikslok. Hinn svarti Couriol sveif inn í teiginn, fékk knöttinn og skoraði. Ólafur fyrirliði átti svo síðasta orðið í leiknum. Skoraði eftir fallega línusend- ingu Þorbergs. Mörk íslánds skoruðu Þorbergur 8/3, Siggi Sveins 8/4, Páll, Steindór og Óli H. eitt hver. Mörk Frakka skoruðu Serinet 3, Geoffroy 3, Couriol 2,Casa- grande 2, Cailleaux 2, Perzichetti 2,Cicut 1 og Germain 1/1. Island fékk 8 vítaköst i leiknum — Frakkar aðeins eitt. Við sltkri dóm- gæzlu getum við ekki búizt í Frakk- landi. Fjórum leikmönnum Islands var vikið af velli, Páli, Axel, Sigga Sveins og Þorbirni. Þremur Frökkum. - hsím. „Stefnum á fyrsta sæti f Frakklandi” ,,Ég er alls ekki ánægður með leikinn en það er þýðingarmikið að sigra," sagði Hilmar Björnsson landsliðsþjálf- ari eftir sigur islenzka landsliðsins i handknattleik á þvi franska 1 gær- kvöld. „Það vantaði i sóknina að láta knöttinn „vinna” — það gekk ekki nógu vel i spilinu. Frakkar spila langar sóknarlotur — lengri en við erum vanir. Það fór talsvert i taugarnar á strákunum. Vörnin var þokkaleg þó svo einstaklingar innan hennar hafi á stundum brugðizt. Það þarf geysimikið til að sigra franska liðið i Frakklandi en það er hægt. Eins og staðan er nú stefnum við að fyrsta sæti i B-keppninni i Frakk- landi.” Hefur landsliðið endanlega verið ákveðlð? „Nei, það verður gert siðar i vikunni en endanleg skipan liðsins liggur þó nokkuð Ijós fyrir,” sagði Hilmar enn- fremur. -hsim. MANNFAGNAÐUR ÞARFT ÞÚAÐ HALDA: stjómarfund, kokkteil- partí, blaðamannafund, aðalfund, brúðkaup, fermingu? Þá skaltu halda hann á HLÍÐARENDA í hádegi. Við leigjum út salinn frá kl 10.00 fh.—17.00. Munið: Hjá okkur eru allar veitingar. ^LlÐARENDl FERMING huhla bor<)i<) frá I Uídarcmht cr ödruvísi. I i<) bcrum /tadfram u fotum of> í skáhun hönnuöum uf lluuki l)ór Vcrökr. 96,- HLlÐARENDI OPNARKL. 18.00 ÖLL KVÖLD. BORÐAPANTANIR FRÁ KL. 14.00 í SÍMA 11690. BRAUTARHOLTI 22. Sigur h já La Louviere „Við unnum Racing Mechelen 2-1 hér heima i dag og gerðum 0-0 jafntefli við Boom á útivelli um síðustu helgi. Það voru hins vegar tvö töp i leikjunum þar á undan sem slógu okkur út af laginu,” sagði Karl Þórðarson er við slógum á þráðinn til hans í gærkvöid. Karl lagði bæði mörk La Louviere upp gegn Racing og hefur átt mjög góða leiki með liði sínu undanfarið. Tongeren erefst í 2. deildinni með 26 stig, síðan kemur KV Mechelen með 25, þá Aalst 23 , Charlcroi 23, Seraing 22, Harelbeke 20, Oudenarde 19, Hasselt 19 og síðan La I.ouvicre með 18 ásamt Boom. -SSv. Punktamót á skíðum Fyrstu punktamótin á skíðum voru háð á Siglufirði og Akureyri um lielg- ina. Árni Þór Árnason, Reykjavik, var þar fremstur í flokki. Sigraði bæði i svigi og stórsvigi í Hlíðarfjalli og því einnig samanlagt. í stórsvigi kvenna sigraði Ásdis Alfreðsdóttir, Reykjavik, en Nanna Leifsdóttir, Akureyri, i svigi. Norrænar greinar voru á Siglufirði. Haukur Sigurðsson, Ólafsfirði, sigraði í göngu en Jakob Árnason, Siglufirði, í stökki. Tvö heimsmet ískauta- hlaupunum Kanadamaðurinn Gaetan Boucher kom heldur betur á óvart i Davis í Sviss á laugardag, þegar hann bætti tvö heimsmet skautahlauparans fræga, Eric Hcidcn, USA. Heiden varð fimm- faldur ólympiumeistari fyrir ári i Lake Placid. Fyrst hljóp Boucher 1000 m á 1:13,39 min. en heimsmet Heiden var 1:13,60 min. Þá fékk hann samanlagt á spretthlaupunum 148,785 stig sem er heimsmet. Heiden átti það gamla, 150,250 stig. Stenmark skauzt úr 11. sætiífyrsta! „Auðvitað vonast ég til að sigra í heimsbikarnum og ég mun berjast fyrir þeim sigri. Hins vegar keppi ég ekki oftar i bruni," sagði Ingemar Sten- mark, eftir að hann sigraði f svigi i keppni heimsbikarsins í St. Anlon i Austurriki i gær. Glæsilcgur sigur Svfans.sem var i cllefta sæti eftir fyrri umferðina. í sfðari umferðinni var hann langbeztur og það nægði lil sigurs. Stenmark var mcðal þeirra fyrstu sem renndi sér niður brautina og það merkilega var að hún varð fljótlega miklu betri. Alls konar kappar náðu þá betri tima en Stenmark. Bandaríkjamaðurinn Phil Mahre, sem er helzti keppinautur Stenmark um heimsbikarinn, varð í öðru sæti i svig- inu í-gær. I 20. sæti í bruninu á laugar- dag. Vann þvi samanlagt og hlaut fyrir það 10 aukastig. Nú aðeins 32 stigum á eftir Stenmark. Úrslit i gær. 1. I. Stenmark, Sviþjóð, 1:40.94 2. Phil Mahre, USA, 1:41.06 3. Jarle Halsnes, Noregi, 1:41.62 4. V. Andreev, Sovét, 1:41.64 5. W. Ortner, Austurr. 1:41.95 6. Odd Sörli, Noregi, 1:41.97’ Staðan í heimsbikarnum er nú þann- ig, að Stenmark er efstur með 200 stig. Phil Mahre hefur 168 stig. Peter Miill- er, Sviss, 140 stig. Harti Weirather, Austurríki, og Steve Podgorski, Kanada, hafa 105 stig. Weirather sigraði í bruninu á laugar- dag í St. Anton á 1:59.67 mín. rétt á undan landa sínum Peter Wirnsberger 1:59.73 mín. Þriðji varð Podgorski á 2:00.15 sek. -hsim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.