Dagblaðið - 02.02.1981, Síða 18
18 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1981.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Metin f uku f Liverpool er
botnliðið kom f heimsókn
—Furðulegt tak sem Leicester City hefur haft á Liverpool gegnum árin. Sigraði á Anf ield á laugardag og
er fyrsta liðið sem sigrar Liverpool tvöfalt í deildinni í sex ár. Fyrsta tap Liverpool á Anfieid í 3 ár
Síðan undirritaður fór að fylgjast
með ensku knattspyrnunni fyrir góðum
þremur áratugum hefur Leicester City
haft hreint furðulegt tak á Liverpool.
Sama hvort leikið hefur verið í deild
eða bikar — sigrar Leicester oftast
staðreynd. Kórónan á öllum þessum
sigrum átti sér þó stað á Anfield á
laugardag. Leicester, botnliðið, sem
bókstaflega hefur ekkert getað á leik-
timabilinu, og þó einkum ui\danfarnar
vikur, gerði sér litið fyrir og sigraði
Englandsmeistara Liverpool, 1-2.
Skoraði öll mörkin i leiknum Fyrsta tap
Liverpool á heimaveili i 85 leikjum eða
síðan í janúar 1978. Liverpool hafði
sem sagt ekki tapað leik á Anfield i rúm
þrjú ár og ekki nóg með það. Leicester
er fyrsta liðið sem sigrar Liverpool i
báðum deildaleikjunum i sex ár. Ekki
f urða þó leikmenn Liverpool fagni því
að Leicester er nú aftur á leið niður i 2.
deild en sigrar liðsins á stórveldinu í
vetur hafa þó sennilega komið i veg
fyrir, að leikmcnn Liverpool verði
meistarar i vor. En slík úrslit sem áttu
sér stað á Anfield á laugardag eru ein-
mitt mesti sjarmur ensku knattspyrn-
unnar. Ekkert lið getur talið sig öruggt
um sígur fyrirfram, meira að segja ekki
slíkt yfirburðalið sem Liverpool hefur
verið siðustu árin. Rúmlega 32.000
áhorfendur voru sem lamaðir, þegar sú
stund rann upp að Liverpool tapaði á
hcimavelli, þó svo hinir 1500 áhorf-
endur frá Leicester létu vel í sér heyra.
En það mega hinir tryggu áhorfendur
Liverpool eiga — The Kop — að þegar
úrslítin voru staðreynd klöppuðu þeir
lengi og innilega fyrir leikmönnuml
Leicester. |
Þrátt fyrir staðreyndir í sambandi
við leiki þessara liöa gegnum árin var
Leicester ekki talið hafa neina mögu-|
ieika á sigri á Anfield á iaugardag.
Leikmenn liðsins nýslegnir út í bikar-
keppninni af Exeter í 3. deild (3-1) og
hafa varla skorað mark síðustu vik-
urnar. Að vísu gátu þeir Kenny
Dalglish og David Fairclough ekki
leikið með Liverpool á laugardag vegna
meiðsla. David Johnson og Steve
Heighway. tveir heimsfrasgir leikmenn,
koinu i þeirra stað og Liverpool með
alla sina frægu ieikmenn virtist eiga
léttan leik framundan.
Ekki virtust mögulcikar Leicester
aukast, þegar Alan Young skallaðí
knöttinn i eigið mark eftir aðeins 15
mínútur. Venjulega er það nóg fyrir
Liverpool að skora eitt mark á Anfield.
Sóknarloturnar voru Liverpool, Heigh-
way, fór illa með opiö tækifæri en í síö-
ari hálfleiknum varð svo breytingin,
Celtic komst i efsta sætið i skozku
úrvalsdeildinni á laugardag, þegar liðið
sigraði Hearts i Edinborg 0-3.
McGarvey, Tommy Burns og Don
Sullivan skoruðu mörk Celtic. Á sama
(ima tapaði Aberdeen, efsta liðið fyrir
umferðina, 1-0 fyrir Rangers á Ibrox
Park í Glasgow. Derek Jobnson
skoraði eina mark leiksins á 64. min.
í hinum þremur leikjunum urðu úr-
óvænta. Leicester jafnaði á 60. min.,
Pat Byrne, og á 76. mín. skoraði Jim
Melrose sigurmarkið eftir að Ray
Clemence, markvörður Liverpool,
hafði misreiknað sig í úthlaupi. Loka-
kaflann reyndu leikmenn Liverpool
mjög að jafna en strákarnir ungu hjá
Leicester og markvörðurinn snjalli,
mark Wallington, komu í veg fyrir allar
þeirra tilraunir. Sigur Leicester stað-
reynd ogáhorfendur 33.154.
Látum þetta nægja um úrslitin
furðulegu og snúum okkur að öðrum
leikjum. Fyrstu úrslitin.
1. deild
Arsenal — Coventry 2-2
Aston Villa — Man. City 1 -0
Brighton — Tottenham 0-2
Ipswich — Stoke 4-0
Leeds — Norwich 1 -0
Liverpool — Leicester 1 -2
Man. Utd. — Birmingham 2-0
Middlesbro — C. Palace 2-0
Nottm. Forest — Everton 1-0
Southampton — Sunderland 2-1
Wolves — WBA 2-0
2. deild
Blackburn — Orient 2-0
Bristol Rov. — Bristol C. 0-0
Cardiff — Oldham 0-2
Chelsea — Shrewsbury 3-0
Derby — Luton Town 2-2
Newcastle — Bolton 2-1
Sheff. Wed, —NottsCo. 1-2
Swansea — QP R 1-2
Watford — Cambridge 0-0
WestHam — Preston 5-0
Wrexham — Grimsby 0-2
3. deild
Barnsley — Gillingham 3-3
Blackpool.— Huddersfield 1-2
Carlisle — Chester 3-0
Chesterfield — Burnley 3-0
Exeter — Hull Hull City 1 -3
Fulham — Swindon 2-0Þ
Millwall — Newport 0-0
Oxford — Sheff. Utd. 2-0
Reading — Brentford 0-0
Rotherham — Portsmouth 3-0
Walsall — Colchester 3-1Þ
4. deild
Bury — Halifax 0-0
Crew — Aldershot 0-0
Hartlepool — Rochdale 2-2
Hereford — Mansfield 2-1
Northampton — Bournemouth 0-1
Peterbro — Doncaster 0-1
Port Vale — Wimbledon 2-3
Scunthorpe — Bradford 1-0
Stockport,—Darlington 0-1
Tranmere — Southend 2-2
Wigan — Lincoln 0-2
Leik Torquay og York City var frest-
að vegna þoku á suðurströndinni.
Ipswich í stuði
Hollendingurinn Arnold Múhren átti
frábæran leik i liöi Ipswich, þegar liðið
vann góðan sigur á Stoke. Skoraði þó
ekki mark og reyndar furðulegt, að Ips-
wich skyldi ekki skora nema eitt mark (
f.h. John Wark úr vitaspyrnu á 30.
* .
slit þau, að Dundee Utd. vann stórsigur
á útivelli á Airdrie 0-5. Morton vann
Kilmarnock 1-0 en Partick og St.
Mirren gerðu jafntefli 0-0.
Celtic hefur nú 36 stig eftir 24 leiki.
Aberdecn 35 stig eftir 23 leiki. Rangers
30 stig eftir 22 leiki. Dundee Utd. hefur
26 stig, St. Mirren og Partíck 23 stig,
Morton 21 stig, Airdrie 19 Stig, Hearts
er með 11 stig og Kilmarnock 9 stig.
Tommy Hutchison langbeztur á Villa
Park þó það nægði Man. City ekki.
mín. 26. mark hans á leiktímabilinu.
Alan Brazil átti stangarskot á fyrstu
mfn. og sóknarloturnar buldu á vörn
Stoke allan leikinn. Strax eftir leikhléiö
skoraði Brazil tvö mörk með stuttu
millibili og siðan bætti Eric Gates
fjórða markinu við. Ekki oft sem hin
sterka vöm Stoke fær slíka útreið og þó
heföu mörkin hæglega getað orðið
helmingi fieiri. Það er erfitt að eiga við
Ipswich-liöið, þegar allt smellur saman
hjá þvi. Er efst ásamt Aston Villa með
40 stig en hefur mun betri markamun
og auk þess leikið einum leik minna.
„Breyting frá því í haust á liði Man.
City er hreint ótrúleg,” sagði kappinn
kunni, Dennis Law, þegar hann fylgd-
ist með leik Aston Villa og Man. City á
laugardag. Fréttamenn BBC voru sam-
mála um að leikurinn væri sá bezti sem
þeir hefðu séð á keppnistimabilinu.
Nokkur heppnisstimpill á sigri Villa.
Strax á 3. min. skoraði Villa. Fékk inn-
kast. Knettinum varpað til Peter
Withe, sem gaf inn til Gary Shaw. Vörn
Man. City svaf augnablik og Shaw átti
ekki í erftðleikum að skora. 17. mark
hans á leiktfmabiiinu. Það reyndist
sigurmark leiksins. Eftir því sem leið á
fyrri hálfieikinn náöi City mjög góöum
tökum á leiknum. Leikmenn liðsins
gerðu allt nema skora. Alan Evans
bjargaði á eigin marklínu og Steve
McKenzie fór illa með gott færi. Sama
spennan ailan sfðari hálfleikinn. Villa
varð fyrir áfaili á72. mín. Miðvörður-
inn sterki, Ken McNaught, varð að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Sneri
sig illa, þegar enginn mótherji var ná-
lægt honum. David Geddis kom inn
sem varamaður en Des Bremner tók
stöðu McNaught. Man. City tókst ekki
að nýta sér þá bíeytingu sem þetta
hafði á vörn Vills og lokakafiann var
Birmingham-liðið betra. Tony Morley
fór oft illa með bakvörð City, Henry,
en aðrir framherjar Villa voru ekki
færir um að nýta sér það. En bezti
maður á vellinum var hins vegar sá elzti
— hinn 33ja ára Tommy Hutchinson
hjá Man. City. Joe Corrigan, mark-
vörður, lék sinn 400. deildarieik með
Man. City en liðin voru annars þannig
skipuð:
Aston Villa: Rimmer, Swain,
McNaught (Geddis), Evans, Deacy,
Bremner, Mortimer, Cowans, Morley,
Withe, Shaw. Man. City: Corrigan,
MacDonaid, Caton, Booth, Henry,
Power, Gow, Hutchison, McKenzie,
Reeves og Bennett. Tommy Booth lék í
stað Nicky Reid, sem er f leikbanni, en
Phil Boyer meiddist í bikarleik Man.
City og Norwich. Litlar líkur taldar að
hann leiki meira á þessu leiktimabili.
Keegan skoraði tvívegis
Dýrlingarnir eru komnir í fjórða
sætið eftir sigur á Sunderland. Hefur.
ekki tapað deildaleik síðan fyrir Man.
City 15. nóvember. 10 leikir og
Southampton-liðið hefur hækkað um
eliefu sæti á töflunni. Liðið hafði gífur-
lega yfirburði gegn Sunderland en tókst
ekki að skora nema tvö mörk. Kevin
Keegan skoraði bæði — á 15. og 25.
mín. Eftir því, sem á leikinn leið kom
Sunderland, sem nú hefur tapað átta
síðustu útileikjum sínum, meira inn í
myndina. Tom Ritchie, sem keyptur
var frá Bristol City í síðustu viku, kom
inn á strax eftir leikhléið. Komst einn í
gegn á 80. min. en tókst ekki að skora.
Það reyndist dýrt, þegar Chisholm
skoraði fyrir Sunderland á lokamínútu
leiksins.
Coventry er að verða skemmtilegt
lið. Náði jafntefli við Arsenal á High-
bury að viðstöddum 24.876 áhorfend-
um. Brian Talbot skoraði fyrsta mark
leiksins á 37. min. með skalla en Bodak
jafnaði með síðustu spyrnunni í fyrri
hálfleik. Aftur komst Arsenal yfir með
smjöllu marki Frank Stapleton. Það
nægði ekki. Gerry Daly jafnaði og
Lundúnaliðinu tókst ekki að hala sigur
í land þrátt fyrir nokkra yfirburði loka-
kaflann.
Úlfarnir eru talsvert að rétta sinn
hlut. Hlutu bæði stigin í leiknum við
nágranna sína, WBA. Heldur slakur
leikur og nýja uppstiiiingin hjá WBA
með Regis og Mills sem miðherja mis-
heppnaðist alveg. Bæöi mörk Úlfanna
voru skoruðu í s.h. Mel Eves á 57. mín.
og Andy Grayá73. mín.
Tveir reknir af velli
Um aðra leiki er það að segja, að
Tottenham vann sinn fimmta sigur í
röð. Sigraði Brighton með mörkum
Ardiles og Garth Crooks í siðari hálf-
leik. Loks vann Man. Utd. sigur í deild-
inni. Joe Jordon skoraði strax á 5. mín.
eftir langa markspyrnu Gary Bailey.
Siðan fór Sammy Mcllroy illa með
opið tækifæri og Birmingham fékk
tækifæri til að jafna. Frank Worhting-
ton tvívegis nálægt. En á 85. min. gull-
tryggði Lou Macari sigur United, til
mikils léttis fyrir 39.821 áhorfanda á
Old Trafford.
Crystal Palace er komið í neðsta
sætið og ekki bætir úr að tveir leik-
menn liðsins voru reknir af velli á
iaugardag i Middlesbrough. Ekkert
mark skorað í f.h. en á 54. mín.
skoraði David Armstrong fyrir heima-
liðið. Nokkru síðar var dæmd víta-
spyrna á CP og þá hófust lætin.
McAndrew skoraði en Tony Sealey
mótmælti dómnum svo mjög að hann
var rekinn af velli. Tlu mín. síðar fékk
Jim Cannon einnig reisupassann.
Middlesbrough skoraði þó ekki fleiri
mörk gegn niu mönnum Crystal-hailar-
innar. Leeds nældi sér í tvö stig gegn
Norwich, Carl Harris skoraði í síðari
hálfleik, og Nottingham Forest vann
Everton i döprum leik og grófum.
Forest fékk sin tækifæri ] byrjun, Ian
Wallace og Trevor Francis komust fríir
i gegn. Tókst ekki að skora og eina
mark ieiksins skoraöi svo míðvörður-
inn Kenny Burns, sem lyfti knettinum
af 30 metra færi, yfir alla varnarmenn
Liverpool-liðsins og markvörðinn líka.
Áhorfendur 25.500.
West Ham heldur sinu striki i 2.
deild. Vann stórsigur á Preston.
Goodard skoraði á 15. mín. — síðan
þeir Pike, Lampard og Devonshire tví-
vegis. Notts County vann sinn fyrsta
deiidarsigur í þrjá mánuði og komst í
annað sætið. Chelsea vann líka sinn
fyrsta deildarsigur i langan tíma og er í
þriðja sæti. Alan Mayes, nýkeyptur frá
Swindon, skoraði fyrsta markið gegn
Shrewsbury. Síðan þeir Fillery og Colin
Lee. QPR vann í Wales. Langley og
King skoruðu en Stevenson fyrir Swan-
sea. Sérfræðingar eru nú farnir að gera
því skóna að Grimsby komist í 1. deiid
eftir mjög slaka byrjun í keppninni í
haust. Bob Cummings skoraði bæði
mörk liðsins í Norður-Wales, gegn
Wrexham.
í 3. deild er Charlton efst með 43
stig. Barnsley hefur 42, Rotherham 41
og Huddersfield 40 stig. síðan nokkur
munur í fimmta liðið, Chesterfield,
sem hefur 36 stig. í 4. deild hefur
Southend 46 stig, Lincoln 43, Mans-
field 38, Hartlepool og Doncaster 36
stig.
Eftir að Halifax neitaði tilboði Scar-
borough yfirtók milljónamæringur í
borginni félagið. Meiri peningar nú hjá
George Kirby og liðið hefur hlotið örfá
stig síðan. Staðan er þó ljót. Port Vale
neðst með 20 stig, síðan Halifax og
Hereford með 21 stig, Stockport 24 og
Bury 25 stig.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Ipswich 27 15 10 2 50-22 40
A. Villa 28 17 6 5 47-24 40
Liverpooi 28 12 12 4 48-31 36
Southampton 28 13 7 8 56-40 33
Arsenal 28 11 11 6 41-33 33
WBA 27 12 9 6 35-26 33
Tottenham 28 12 8 8 54-47 32
Nottm. For. 27 12 7 8 41-29 31
Man. Utd. 28 8 15 5 37-26 31
Everton 27 10 7 10 39-34 27
Man. City 28 10 7 11 40-40 27
Middlesbro 27 11 4 12 39-38 26
Stoke 27 7 12 8 30-39 26
Leeds 28 10 6 12 23-37 26
Coventry 28 9 7 12 33-42 25
Wolves 28 9 lS 28-37 25
Sunderland 28 9 6 13 38-37 24
Birmingham 28 8 8 12 32-43 24
Brighton 28 8 4 16 3249 20
Norwich 28 7 6 15 31-52 20
Leicesster 28 7 2 19 19-46 16
C. Palace 28 5 5 18 34-56 15
2. deild
West Ham 28 17 7 4 50-23 41
Notts Co. 27 11 12 4 31-26 34
Chelsea 28 12 9 7 41-25 33
Swansea 28 11 10 7 42-32 32
Blackburn 27 11 10 6 30-21 32
Derby 28 11 10 7 43-38 32
Grimsby 28 10 11 7 30-24 31
Sheff. Wed. 26 12 6 8 35-28 30
Luton 28 11 8 9 41-35 30
Cambridge 27 13 4 10 32-33 30
QPR 27 10 8 9 37-26 28
Orient 27 10 8 9 38-35 28
Newcastle 27 9 9 9 20-34 27
Watford 28 8 9 11 30-32 25
Bolton 28 9 6 13 43-44 24
Wrexham 27 8 8 11 22-28 24
Oldham 27 7 9 11 24-30 23
Cardiff 26 8 7 11 30-38 23
Shrewsbury 28 5 12 11 25-31 22
Preston 27 5 12 10 25-43 22
Bristol City 28 4 12 12 18-34 20
Bristoi Rov. 28 1 11 16 22-48 13
-hsim.
Celtic nú i
efstasæti