Dagblaðið - 27.02.1981, Side 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
HLÍFIÐ GAMLA
FÓLKINU VIÐ
SKREFATALNINGU
Kona úr Reykjavík hringdi:
Ég vil mótmæla fyrirhugaðri skatt-
lagningu á íbúa höfuðborgarsvæðis-
ins.
Þessi fyrirhugaða skrefatalning er
ekkert annað. Þetta kemur fyrst og
fremst til með að bitna á gamla fólk-
inu og það má ekki við því.
Síminn er þarfasti þjónn þess fólks
sem ekki á hægt með að ferðast á
milli.
Ég vil taka undir með Bandalagi
kvenna sem afhenti alþingismönnum
Reykjavikur áskorun þess efnis að
gamla fólkinu væri hlíft við skrefa-
talningunni.
Geir Hallgrímssvni afhent bréf Bandalags kvenna.
MSá
Ituttogskýr brtf\
. “ÍTSi ^’rDL, é - -
' Lesendur eru Ja>n^am^ilinn er fuUur réllur nl u<)
veru stutt or sky ■ g rlim of! koma
lemtrien 200-300 orð- ^ ^ mfííf ki
a;
Það er enginn leikur að eignast þak yfir höfuðið.
Venjulegu fólki verði gert kleift
AÐ EIGNAST ÞAK
YFIR HÖFUÐK)
— lagfæra verður þessi mál
Húsbyggjandi af Skaganum hringdi:
Kjartan Jóhannsson alþingismaður
skrifar kjallaragrein í DB 18. feb. sl.
um lán og lánakjör þau sem íbúðar-
kaupendur og byggjendur búa við.
Það er gott að það skuli þó vera
einhver innan kerfisins sem hugsar
um og vill gera eitthvað í þessum
málum, áður en það er um seinan.
Þvi eins og málin standa er fjöldinn
allur af íbúðarkaupendum og byggj-
endum sem ekki gerir betur en halda
eignum sínum vegna greiðsluerfið-
leika á þessum lánum, þá aðallega
vaxtaaukalánum.
Það er því tími til kominn að þessi
mál verði athuguð og lagfærð áður
en farið verður að selja ofan af fólki í
stórum stil á nauðungaruppboðum.
Kjartan setur upp töflu með núver-
Raddir
lesenda
andi tilhögun og valkostum Alþýðu-
flokksins í lánamálum. Þar reiknar
hann með 8 millj gkr. lífeyrissjóðs-
láni. Það finnst mér óraunhæft þar
sem almennir lifeyrissjóðir lána ekki
svo mikið, heldur aðeins lífeyris-
sjóðir ríkisstarfsmanna og verzlunar-
manna.
Ég held að Kjartan hafi ekki málað
myndina of svarta, því erfíðleikar í
þessum málum erugífurlegir.
Ég skora þvi á Kjartan að hamra
járnið meðan það er heitt og fylgja
þessum tillögum eftirá þingi.
I von um að andvökunóttum fólks
sem er að reyna að koma þaki yfir
höfuðið fækki, takk fyrir.
Einn nýf luttur til landsins:
Blöskrar verðið
á bflatryggingum
— í íslandi miðað við Svíþjóð
Kinn nýfluttur frá Svíþjóð hringdi:
Ég flutti með mér bíl heim og þegar
tryggingin á honum rann út á dögun-
um kannaði ég möguleika á trygg-
ingakaupum hjá tryggingafélögunum
í Reykjavik. Það er skemmzt frá að
segja að mér ógnaði verðið og mis-
munurinn á íslenzkri og sænskri bíla-
tryggingu. Þar kostaði 3ja mánaða
trygging 168 krónur. Innifalið er
75% bónus, bætur vegna bruna,
þjófnaðar, stýrisbilunar, glertrygg-
ing, kostnaður vegna útkalls viðgerð-
arbíls sem kemur á bilunarstað og
fleira. Að auki fæst 10% iðgjalds
dregið frá tekjum til skatts. Á Islandi
kostar 1390 krónur að tryggja bíl í
eitt ár (ekki hægt að kaupa tryggingu
sem gildir í skemmri tíma!). Innifalið
í kaupunum er framrúðutrygging og
búið!
Svona væri hægt að rekja ótal
dæmi sem sýna mismun á kjörum á
íslandi og i nágrannalöndunum.
Blöðin ættu að gera miklu meira að
því að birta samanburð á vöruverði
og þjónustu hérlendis og erlendis.
Bréfritara blöskrar verðiö á bíltrygg-
ingum.
Neytendurhagnastá
FJÖLGUN VEITINGASTAÐA
4438—2393 skrifar:
Ég fagna þeirri breytingu sem
orðið hefur á steikhúsinu Versölum i
Kópavogi — salurinn hefur aftur
fengið á sig þann notalega blæ sem
var í byrjun.
Okkur hjónunum datt 1 hug að fá
okkur að borða á veitingastað sl.
sunnudag og fórum þangað 1 hádeg-
inu. Þar var þá meðal annars á bóð-
stólum hlaðborð, einstaklega smekk-
legt og gott. Verðið var sanngjarnt og
mátti borða að vild.
Ég er ein af þeim sem gleðst yfir
þeirri fjölgun veitingastaða sem átt
hefur sér stað i Reykjavík og ná-
grenni undanfarin ár, því það bætir
hag okkar neytendanna.