Dagblaðið - 27.02.1981, Page 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
8
(§
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Vel fer á með Ronald Reagan og Margaret Thatcher:
REAGAN HYGGST LÆRA
AF MISTÖKUM BRETA
—fjármálaráðherra Bandaríkjanna gagnrýnir Thatcher—segir hana ekki hafa dregið nægilega
mikið úr ríkisútgjöldum og sköttum
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði að hún og
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
hefðu verið sammála um víðtæk
svið utanríkis- og efnahagsmála á
fundiþeirra íWashingtonígær.
Hún sagði fréttamönnum að það
kæmi ekki á óvart, þar sem stjórn
Reagans byggði á svipuðum
aðferðum og brezka stjórnin.
Nokkra athygli vakti, að fjár-
málaráðherra Bandarikjastjórnar,
Donald Reagan, gagnrýndi Thatcher
fyrir hvernig henni hefði tekizt til við
lausn efnahagsmálanna. Hann sagði
að henni hefði mistekizt að lækka
skatta nægilega og ekki heldur
dregið nægilega úr ríkisútgjöldum.
Fjármálaráðherrann sagði að
efnahagsáætlun Ronalds Reagan,
sem þykir byggja á sama grunni og
stefna Thatchers, myndi heppnast
með því að taka mið af mistökum
brezku stjórnarinnar og læra af
þeim.
Aðstoðarfjármálaráðherrann Rep
McNamar sagði fréttamönnum síðar,
að fjármálaráðherranum hefði
sennilega orðið á mismæli, þar sem
„okkur finnst hún hafa sett i gang
áætlun, sem er fullkomlega rétt.”
Thatcher sagði sjálf í gær, að hún
óskaði þess nú að hún hefði dregið
enn meir úr útgjöldum.
Thatcher sagði að fordæming
Breta á erlendri íhlutun kommúnista í
El Salvador hefði fallið í góðan
jarðveg í Bandaríkjunum. Hún
sagðist þeirrar skoðunar að Reagan
ætti ekki að halda fund með Brésnef
nema að vandlega íhuguðu máli.
Fyrir fáeinum dögum var sýnd f danska sjónvarpinu heimildamynd um eiturl.vfja-
vandamálið, sem Ekstra blaðið hefur látið gera. Myndin vakti mikinn óhug al-
mennings þar f landi. Myndin sýnir eiturlyfjaneytandann Torben Svend Larsen
sprauta sig með herófni i Ixrið. Hann kom fram i ntyndinni.
Fyrrum Bítill sektaöur:
HARRISON GERÐ-
UR BÓTASKYLDUR
— vegna stuldar á laginu He’s so Fine
—verður að snara út 587 þúsund
dollurum
Bítillinn George Harrison var í gær
dæmdur til að greiða Alan Klein
fyrrum umboðsmanni sínum 587 þús-
und dollara eða sömu upphæð og
Klein hafði áður snarað út til handa
Bright Tunes Music útgáfufyrirtæk-
inu. Mál þetta á rætur sínar að rekja
til „ómeðvitaðs” stuldar Georges
Harrisons á laginu He’s so Fine. Hið
geysivinsæla lag Harrisons My Sweet
Lord var talin stæling á fyrrnefndu
lagi.
Dómarinn Richard Owen sagði að
sú upphæð sem um væri að tefla
hefði í raun verið 1,6 milljónir doll-
ara en þar sem Klein hefði tekizt að
------------►
George Harrison.
semja um 587 þúsund dollara á sínum
tíma þá væri rétt að Harrison greiddi
sömu upphæð.
Sote/o myndaöi
nýja ríkisstjóm
Hinn nýi forsætisráðherra Spánar,
Leopoldo Calvo Sotelo, myndaði
nýja ríkisstjórn i gærkvöldi um leið
og þrir herforingjar voru handteknir
til viðbótar þeim, sem áður höfðu
verið handteknir vegna gruns um
þátttöku í hinni misheppnuðu bylt-
ingartilraun síðastliðinn mánudag.
Heimiidir greina nú að næstæðsti
maður spænska hersins, Alfonso
Amada Comyn, hafi reynt að taka
við stjórn landsins meðan á árásinni á
þinghúsið stóð.
Pakistan:
Ekkja Ali
Bhuttos
handtekin
Herforingjastjórn Pakistan, sem er
mjög áhyggjufull vegna vaxandi and-
stöðu við stjórn landsins, hefur látið
handtaka ekkju fyrrum forsætis-
ráðherra landsins, Zulfikar Ali Bhutto
og bannað henni að halda til Punjab
héraðs. Heimildir höfðu greint að frú
Bhutto væri á leið til Lahore,
höfuðborgar Punjab-héraðs, til fundar
við nýstofnað ráð þar sem hefur að
markmiði að endurvekja lýðræðið í
landinu.
Leiðtogar átta stjórnmálaflokka
landsins komu saman til fundar í
Lahore i gær og brutu þar með lög þau
sem herforingjastjórn landsins hefur
sett. Hin nýstofnuðu samtök til endur-
reisnar lýðræði í landinu stefna að því
að allsherjarverkfall verði í landinu 23.
marz næstkomandi, á alþjóðahá-
tíðardegi Pakistan.
Erlendar
fréttir
Altavirkjunarmálið íNoregi:
Stjómvöld hægja ferðina
— „Markmið okkar um friðun óbreyttsegir leiðtogi
Alta-mótmælenda
Samarnir fjórir sem hafa verið í
hungurverkfalli um mánaðartíma hafa
nú hætt því. Þeir túlka síðustu
viðbrögð rikisstjórnarinnar sem sigur
sinn.
Samarnir telja að ríkisstjórnin muni
að lokum gefast upp við virkjunar-
framkvæmdirnar.
Rikisstjórnin ákvað á mánudag, að
leggja aðeins 9 km af hinum 25 km
langa vegi að fyrirhugaðri virkjun. Þeir
16 km sem eftir eru verða friðaðir
fram til júníloka.
Umhverfismálaráðherrann Rolf
Hansen hefur gagnrýnt forstöðumann
Tromsö-safnsins og forstöðumenn
vatns- og raforkumála fyrir að koma
svo seint fram með kröfurnar um
verndun eða skrásetningu forn- og
menningarminja á Alta-svæðinu.
Alfreð Nilsen, sem er leiðtogi Alta-
mótmælenda, hefur lýst yfir ánægju
sinni með málalokin. Hann vill að
tíminn verði nú notaður til að ræða öll
deiluatriði málsins.
„Við munum gera okkar til að setja
niður deilur,” segir hann, „en mark-
mið okkar er eftir sem áður verndun
Altaárinnar”.
-BS/Sigurjón, Hamar, Noregi.