Dagblaðið - 27.02.1981, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
9
Erlent^
3
Erlent
Erlent
Átjánda fórnarlamb Atlantamorðingjans, hinn tiu ára gamli Jefferey Mathis, er hér borinn til grafar af bekkjarfélögum
sinum.
Átján lík svartra barna í Atlanta fundin:
Bömin hverfa
ummiðjandag
Átta tíu ára gamlir negradrengir í
borginni Atlanta i Bandaríkjunum
báru um síðustu helgi bekkjarfélaga
sinn, Jefferey Mathis, til grafar.
Hann var átjánda fórnarlamb fjölda-
morðingja, sem hefur herjað í At-
lanta í hálft annað ár. Öll hafa fórn-
arlömbin verið svört börn á aldrinum
sjö til fimmtán ára.
Mörg hundruð sjálfboðaliðar nota
helgarnar til að leita í skógunum fyrir
utan bæinn ásamt lögreglumönnum.
Þeir leita að líkum tveggja blökku-
barna sem saknaðer. Hvorki lögregl-
an né íbúarnir eru í minnsta vafa um
að þau eru nítjánda og tuttugasta
fórnarlamb fjöldamorðingjans.
Varaforseti Bandaríkjanna George
Bush, lýsti því yfir um helgina að
sambandsstjórnin hygðist senda alla
tiltæka sérfræðinga í slíkum málum
til aðstoðar lögreglunni í Atlanta,
sem þrátt fyrir umfangsmiklar ranns-
óknir stendur algjörlega ráðþrota i
leitinni að fjöldamorðingjanum.
Þrátt fyrir að útgöngubann gildi
eftir klukkan sjö á kvöldin fyrir öll
börn undir sautján ára aldri i Atlanta
hefur ekki tekizt að stöðva morð-
bylgjuna. Börnin hverfa sporlaust
um hábjartan dag.
Rannsókn lögreglunnar er orðin
mjög umfangsmikil og yfir 20 þúsund
ábendingar frá íbúum Atlanta hafa
verið athugaðar og jafnvel hefur
verið leitað á náðir miðla og skyggns
fólks við rannsókn málsins. Allt er
þetta án árangurs enn sem komið er.
Ekki er einu sinni vitað, hvort um er
að ræða einn mann eða fleiri, svert-
ingja eða hvítan mann, ungan mann
eða gamlan, karl eða konu. Fórnar-
lömbin hafa verið myrt á mjög mis-
munandi hátt þó flest þeirra virðast
hafa verið kyrkt.
Eins og áður segir hafa lík átján
fórnarlamba fundizt til þessa. Sextán
fórnarlambanna voru drengir, tvö
voru stúlkur. Öll voru þau negrar og
öll lítil eftir aldri. öll voru þau börn
—Gíf urleg skelf ing meðal íbúa Atlanta í
— Lögreglan stendur ráðþrota
Bandaríkjunum
fátækra, fráskilinna foreldra og öll
unnu þau sér inn vasapening við ýmis
þjónustustörf í verzlunarhverfum
borgarinnar.-
Lögreglan stendur ráðþrota en
fjölmargar getgátur hafa að sjálf-
sögðu komið fram um morðingjann.
Gizkað hefur verið á að hann sé lög-
reglumaður því lögreglan gæti nálg-
azt börnin án þess að vekja grun-
semdir þeirra. Aðrir hafa hallazt að
því að morðinginn sé táningur, nógu
nærri börnunum að aldri til þess að
vinna traust þeirra. Enn aðrir benda
á, að þar sem öll börnin hafi unnið
sér inn vasapening með smásendi-
ferðumkunnimorðinginn einfaldlega
að hala þótzt ætla að fá þau til að
vinna eitthvert verk fyrir sig. Allt eru
þetta getgátur og lögreglan stendur
ráðþrota og sú gagnrýni hefur verið
sett fram, að hefðu það verið hvít
börn sem voru myrt hefði rannsóknin
farið fyrr af stað og orðið árangurs-
rikari. Hæpið er þó að slík gagnrýni
eigi rétt á sér.
Lubie
Geter, 14
Clifford
Jones, 13
LaTonya
Wilson, 7
Christopher Milton
Richardson, 11 Harvey, 14
Anthony
Carter, 9
Eric Patrick
Middlebrook '4 Baltazar, 11
Yusef
Bell, 9
Charles
Stephens, 12
IfoppfHÚS/Ð
Reykjavíkurvegi 78,Hafnarfirði,sími 54499
Sýning, laugardag 9-6
og sunnudag1-6
Góðar fréttir
frá
Þetta er nýja FUJICA STX-1 Ijósmyndavélin. Vönduð
„reflex" Ijósmyndavél með innbyggðum Ijósmæli.
FUJICA STX-1 er sterkbyggð og einföld í notkun.
Skiptanleg linsa, - ný ,,bayonet“ linsufesting. Úrval
fylgihluta.
Vegna innkaupa beint frá Japan getum við boðið
FUJICA STX-1 á aðeins
Kr. 1.995.-
sem er mun lægra verð en nokkur önnur sambærileg
Ijósmyndavél fæst fyrir.
Líttu inn og kynntu þér nýju FUJICA STX-1, - það
borgar sig.
LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUNIN
AMATÖR
Laugavegi 55
sími 12630
Tiu af fórnarlömbum Atlántattiorðinjýans.