Dagblaðið - 27.02.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
25
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Birgir og Jón
með blómaleik
Fyrir leik KR og Vals i úrvalsdeildinni i vikunni
voru þeim Birgi Guðbjörnssyni og Jóni Sigurössynj
afhentir blómvendir fyrir merkisáfanga. Birgir var
að leika sinn 300. leik með KR en Jón sinn 100.
Myndin hér að ofan er af þeim félögum (Birgir t.v.)
og Jóni, á vinstri hönd er dóttir hans, Guðrún
Hulda. -SSv./DB-mynd S.
150% aukning í
kvennaflokkunum!
— íslandsmótið íinnanhúss-
knattspyrnu hefst í kvöld og
stendur yfir í 37 klukkustundir
Innanhússmeistaramótið i knattspyrnu hefsl i
Laugardalshöllinni kl. 18 í kvöld og hefur þátttaka
aldrei nokkru sinni verið meiri. Alls hafa 47 lið
tilkynnt þátttöku i karlaflokki og 10 i kvennaflokki.
t fyrra voru 44 karlalið en ekki nema 4 kvennalið
svo aukningin þar hefur orðið umtalsverð. Gert er
ráð fyrir að mótið taki alls 37 klukkustundir en
ráðgert er að því Ijúki um kl. 22.40 á sunnudags-
kvöld. íslandsmeistarar sl. þrjú ár i karlaflokki hafa
veriö Valsmenn, sem reyndar hafa verið illsiprandi í
flestum innanhússmótum i mörg herrans ár. Islands-
meistarar i kvennaflokki frá í fyrra eru stúlkurnar
úr Breiðabliki, en þær urðu einnig utanhússmeist-
arar í fyrra.
-SSv.
Víkingur komst
í7-0íbyrjun
en dugði ekki til!
- Akranes jafnaði, 17 -17, í lokin
Skagastúlkurnar löguðu stöðuna sína i 1. deild-
inni verulega í gærkvöld er þær kræktu í 17—17
jafntefli gegn Vikingi i Laugardalshöllinni. Jafntefli
þeirra er i raun mikið afrek þvi Vikingsdömurnar
komust i 7—0 i upphafi leiksins. Staðan í hálfleik
var síðan 10—8 Hæðargarðsliðinu i vil, en i síðari
hálfleiknum var aldrei meira en 1—2 marka munur.
Það var Laufey Sigurðardóttir sem jafnaði metin
fyrir Akranes úr vitakasti 40 sek. fyrir leikslok, en
alls fengu Skagastúlkurnar 11 viti i leiknum. Undir
lokin var mikill darraðardans stiginn og fékk Vik-
ingur þá hvert aukakastið á fætur öðru en tókst ekki
að innbyrða sigurinn. Mörkin fyrir Akranes skor-
uðu: Ragnheiður Jónasdóttir 6/5, Laufey Sigurðar-
dóttir 6/3, Kristin Reynisdóttir 2, Kristín Aðalsteins-
dóttir 2 og Ragnhildur Sigurðardóttir 1. Ekki tókst
okkur að fá uppgefin mörk Vikings.
-SSv.
Valur þurfti að
hafa fyrir sigri
— Keflavík mátti þola 84 - 92 tap
íundanúrslitum bikarsins
Valsmenn fengu að hafa fyrir sigri sínum gegn
Keflvikingum er liðin mættust i undanúrslitum bik-
arkeppni KKÍ i Keflavik i gærkvöld. Valur sigraði
92—84 eftir að staðan hafði veriö 36—34 fyrir Val.
Nokkurrar taugaspennu gætti hjá báðum liöum i
fyrri hálfleiknum og var þvi ekki ýkja mikiö skorað
en spennan þeim mun meiri. Heimamenn, ákaft
hvattir af fjölda áhorfenda, léku allan tímann mjög
vel og sigur Vals var ekki öruggur fyrr en flautan
gall.
Það gerði útslagið að Valur náði fljótlega í síðari
hálfleiknum 11 stiga forskoti sem heimamönnum
gekk illa að minnka. Þeim tókst þó að laga stöðuna
áður en yfir lauk en ekki dugði það til. Það verða því
Valsmenn, sem mæta Njarðvíkingum í úrslitaleik
bikarsins.
Flest stig ÍBK i gær gerði Terry Read, 28 talsins,
en Jón Kr. Gíslason var með 21. Fyrir Val skoraði
Brad Miley 28 og var frábær. Pétur og Ríkharður
skoruðu 16 stig hvor — aðrir færri.
-SSv.
„EKKIVAR HLUSTAÐ A MIG
ÞEGAR ÉG VARADIMENN VID”
— segir Páll Eiríksson, læknir landslidsins, íviðtali við DB. Margir þættir liggja að baki hruni landsliðsins
Fró Magnúsi Gfslasyni, fróttamanni
DB á B-keppnlnni I Frakklandi:
Menn eru að vonum daufir i dálkinn
eftir þennan hrikalega ósigur gegn
Frökkunum. Vægast sagt kom hann
eins og reiðarslag yfir flesta, jafnvel
heimamenn ætluðu ekki að trúa þvi að
slíkur sigur hefði unnizt. Hvað bjátaði
á og hvers vegna vantaði goskraftinn
hjá piltunum? Af hverju voru þeir eins
og freönir fiskar í leiknum? Einn
maður i ferðinni getur kannski svarað
þeirri spurningu, Páll Eiríksson læknir,
sem reyndar hafði rætt við undirritað-
an eftir tvo fyrstu leikina, þar sem hann
sagðist óttast að liðið næði ekki að
beita sér að fullu i B-keppninni.
,,£g benti á það fyrir einu ári eftir
ferðina á Baltic-keppnina, að hefjast
yrði handa með að byggja upp liðið,
bæði andlega- og líkamlega með lækn-
isfræðiiegri aðstoð,” sagði Páll Eiríks-
son, ,,en á mig var ekki hlustað. Síðan
heyrði ég ekkert frá handknattleiksfor-
ystunni fyrr en hálfum mánuði fyrir B-
keppnina, að óskað var eftir aðstoð
minni. En það er of naumur tími til að
hafa þau áhrif, sem læknir getur haft
— ekki er hægt að kippa í liðinn hvað
heilsufar snertir. Menn eru oft í mis-
munandi góðu likamlegu ástandi þótt
þeir æfi og keppi. Ef vel ætti að vera
þarf læknir að fylgjast með landsliðinu
í tvö til þrjú ár ef miðað er við að reynt
sé að vinna eins og eðlilegt sé og aðrar
þjóðir gera við uppbyggingu landsliða.
Með landsliðum flestra þjóða í hinum
ýmsu íþróttagreinum eru ekki einn,
heldur 3—4 íþróttalæknar, sem eiga
aðgang að sérmenntuðu fólki ef á þarf
að halda. í þessum efnum er stór brota-
löm hjá okkur.
En fyrst svona seint var haft sam-
band við Pál eins og raun ber vitni
hvert er þá gildi þess að hafa lækni með
I sllkri ferð? „Að mínu mati er það
bráðnauðsynlegt ef einhver óárán
íþróttir
Bflstjórinn
rataði ekki
Það var þungbúinn hópur, sem héll
frá Besancon áleiðis til Dijon hér i
Frakklandi í gærdag eftir tapið fyrir
heimamönnum. Mórallinn er á núlli og
vonbrigðin innan hópsins ótrúleg. Til
að bæta gráu ofan á svart villtist rútu-
bilstjórinn og lengdi leiðina til Dijon
um 50 kilómetra. Styrkti það þá
skoöun manna að undirbúningur og
skipulag Frakkanna væri nú e.t.v. ekki
alls staðar til fyrirmyndar i B-keppn-
inni. -emm.
herjaði á liðið, s.s. flensa eða eitthvað
því um líkt. Einnig ef um meiðsli er að
ræða. Þvi fljótar sem leikmenn komast
undir læknishendur því meiri líkur á
bata. Mörg dæmi eru til úr iþróttum
þar sem menn hafa ekki fengið rétta
meðferð þegar þeir hafa meiðzt, en
orðið að súpa seyðið af því seinna —
verið bæði frá vinnu og keppni í langan
tima. En lika getur læknir tekið í taum-
ana ef mönnum er ofgert með æfing-
um. Ég var aðeins beðinn að líta á leik-
menn í síðustu HM-keppni í Danmörku
1978. Þar komst ég að raun um að
sumir leikmenn voru illa farnir vegna
meiðsla eða vegna of mikils álags. Slíkt
hefur skiljanlega neikvæð áhrif á leik-
getu manna en það sem verra er, þeir
geta skaðazt til langframa þar sem eng-
inn getur veitt þeim bót meina sinna.”
Þegar landsliðið uppfyllir ekki þær
vonir sem bundnar eru við það og búast
má við af því þegar á einstaklinga er lit-
ið, sem sagt valinn maður í hverju
Njarðvíkingar, Keflvíkingar og
Sandgerðingar hafa byggt sér iþrótta-
hús. Garðmenn eru að hefjast handa,
en unga fólkið hefur varla biðlund og
leggur sitt af mörkum til að flýta fyrir
með þvi að safna peningum með hluta-
veltum og sölu á ýmiss konar varningi.
Ágóðinn rennur svo til íþróttahússins.
rúmi, er það oftast nefnt afsökun þegar
orsakanna er leitað. „Slælega frammi-
stöðu landsliðsins núna má rekja til
breyttra hátta. í stað þess að fara í
vinnuna eða skólann á daginn, æfa og
keppa á kvöldin, vera í sambandi við
fjölskyldu og vini, þá eru menn í slík-
um ferðum sem þessum aðeins að æfa
og keppa. Borða allt aðra fæðú og hafa
lítið fyrir stafni. Slíkar breytingar á
lífsháttum hafa lamandi áhrif á árang-
ur leikmanna svo ekki sé nú talað um
síbreytta dvalar- og keppnisstaði eins
og núna í B-keppninni. Mikil hætta er á
að hópeinim’ tapist og henni er mjög
erfitt að "au- paftur.”
Av' imen ra lækninga er Páll geð-
1; ni nt og starfar sem slíkur.
n sago' iíka hafa lagt sig mjög
við a’ ynna sér hópsálarfræði,
n viðV *ur iþróttafólki. „Eigi sú
þt. að koma að einhverju
gagr g að starfa með þjálfurum
og fyi, neð leikmönnum, eins og
Ekki alls fyrir löngu afhentu 9 börn i
Garðinum oddvitanum, Sæva. •
Guðbergssyni, 580 þúsund gkrónur
sem þau höfðu safnaö og vildu að
rynnu i sundlaugarsjóðinn. Slík laug
verður í væntanlegu iþróttahúsi Garð-
manna.
emm.
fram kom áðan. Ég tel það hreina fjar-
stæðu að leggja út í uppbyggingu
landsliðs án þess að taka þessa þætti
með í reikninginn. Ekki má skella
skolleyrunum við því lengur. Verði
það gert þá getum við ekki vænzt þess
að komast ofar í handknattleiksstigann
heldur verðum við áfram í kjallaran-
um.”
Óli H. ákveð-
inn að hætta
Ólafur H. Jónsson hcfur lýst því yfir
að hann muni ekki leika með islenzka
handknattleikslandsliðinu eftir B-
keppnina sem lýkur um helgina. Þessi
ákvörðun Ólafs kemur I raun ekki
mjög á óvart þar sem vitað hefur veriö
að hann hygðist leggja landsliösskóna á
hilluna. emm.
Reykjavíkur-
meistaramótið
í skíðagöngu
Reykjavíkurmeistaramótið í
Skiðagöngu fer fram i Hveradölum á
morgun og hefst með nafnakalli kl. 13
Keppt verður í 15 km göngu karla 20
ára og eldri svo og í flokkum unglinga.
Það eru Hrannarar, sem standa að
mótinu að þessu sinni en skiðagöngu-
menn félagsins hafa látið til sín taka á
undanförnum árum þótt önnur i-
þróttastarfsemi í þeim herbúðum sé
þróttminni.
Skotarnir
unnu ísrael
Skotar unnu ísraela 1—0 í landsleik
liðanna í 6. riðli undankeppni HM á
Spáni 1982. Rúmlega 40.000 áhorf-
endur sáu Kenny Dalglish skora eina
mark leiksins á 54. mínútu. Leikurinn
fór fram í Tel Aviv og áhorfendur
klöppuðu sínum mönnum lof i lófa þvi
, þeir höfðu sýnt mun betri leik i fyrri
hálfieik. Skotarnir tóku sig loks saman
cftir hlé og réðu þá gangi leiksins en
tókst aðeins að skora einu sinni.
Staðan í riðlinum er nú þessi:
Portúgal 3 2 1 0 4—0 5
Skotland 3 2 1 0 2—0 5
N-írland 3 111 3—1 3
ísrael 5 0 3 2 1—5 3
Svíþjóð 4 0 2 2 1—5 2
Talió frá vinstri: Sveinn Magni Jensson, Sigriður Brynjarsdóttir, Elínóra Katrín
Árnadóttir, Guðjónina Sæmundsdóttir, Gunnrún Theodórsdóttir, Lilja Berglind
Jónsdóttir, Sólveig Ólöf Magnúsdóttir, Birna Petrína Sigurgeirsdóttir, Eygló
Eyjólfsdóttir og Sævar Guðbergsson, oddviti.
Garðmenn Hyggjast
’jyggja íþróttahús
ÍR HIRTIBRONSVERÐLAUNIN
MEÐ GÓÐUM ENDASPRETTI
—öruggur sigur ÍR á Stúdentum í gærkvöld, 82 - 58
ÍR-ingar tryggðu sér 3. sætið í úr-
valsdeildinni i körfuknattleik er þeir
báru sigurorð af örþreyttumStúdentum
í Kennaraháskólanum í gærkvöld.
Sigur ÍR var stór og um leið öruggur,
82—58. í hálfleik leiddi ÍR, 45—36.
ÍR tók strax forustuna í leiknum og
lét hana aldrei af hendi leiktímann á
enda. Munurinn varð þó aldrei neitt
verulegur í fyrri.hálfleiknum, þetta 4—
H
Jón Jörundsson átti ágælan leik
með ÍR í gær. Hann reynir hér
kröfuskot I leiknum gegn KR á
dögunum, en hitti reyndar ekki. Lengst
til vinstri má sjá Stefán Kristjánsson,
skælbrosandi yfir velgengni fyrrum
félaga sinna.
DB-mynd Þorri.
9 stig. Greinilegt var að leikmenn ÍS
voru þreyttir og virðist aðeins sem þeir
Gísli Gíslason og Árni Guðmundsson,
auk Jóns Oddssonar hafi nægt úthaid.
Þá bætti lítið úr skák, að Mark
Coleman virtist vera útkeyrður eftir
baráttuna við Danny Shouse i fyrra-
kvöld og hann náði sér aldrei á strik
fremur en liðið í heild.
ÍR-ingar sýndu það í gærkvöld að
lið þeirra er til alls líklegt á næsta
keppnistímabili ef rétt er á málum
haidið. Innan liðsins er nú fjöldi ungra
og bráðefnilegra leikmanna, sem ekki
sáust á bekknum fyrst í haust. Þrír
fastamenn síðan þá hafa horfið á
braut. Stefán Kristjánsson, Jón
Indriðason og síðast en ekki sízt
Kolbeinn Kristinsson, sem hætti vegna
endurtekinna meiðsla. Þetr bræðuF
Kristján og Hjörtur Oddssynir hafa
vafalítið komið manna mest á óvart en
yngri menn á borð við Benedikt
Ingþórsson og Björn JónssOn ásamt
Birni Leóssyni hafa einnig skotið upp
kollinum og gert góða hluti. Með þá
bræður Kristin og Jón Jörundssyni í
bland býður ÍR-liðið upp á
skernmtilega heild. Andy Fleming
akkerið en Kristinn stýrið.
Stigin. ÍR: Andy Fleming 21,
Kristinn Jörundsson 16, Jón Jörunds-
son 12, Kristján Oddsson 10, Hjörtur
Oddsson 8, Sigmar Karlsson 6, Björn
Leósson 4, Óskar Baldursson 3 og
Benedikt Ingþórsson 2. ÍS: Gísli Gísla-
son 16, Árni Guðmundsson 12, Mark
Coleman 12, Bjarni G. Sveinsson 9,
Ingi Stefánsson 5, Jón Óskarsson 2 og
Jón Oddsson 2.
Dómarar voru þeir Jón Otti Ólafs-
son og Gunnar Guðmundsson og
komust prýðilega frá aúðdæmdum
leik.
ATHUGASEMD!
í greininni hér aö neöan er því haldið fram aö íslendingar eigi
möguleika á 3. sæti riðils slns með sigri yfir Pólverjum og veröi þannig
á undan FrÖkkum á markatölu. Þaö kom hins vegar ekki í Ijós fyrr en
i morgun að markatala skiptir engu máli ef lið veröa jöfn að stigum i
riðlinum. Fari svo, gilda einungis innbyrðisúrslit úr leik liöanna. Þar
eru Frakkar með pálmann i höndunum eftir 23—15 sigur á okkur.
-SSv.
r, .......
Þorbjörn Guðmundsson sendir hér knöttinn í netið hjá Pólverjum i jafnteflinu, 23— 23, 1979. Lengst til vinstri er Ölafur H. Jónsson og á milli Pólverjanna er Bjarni
Guðmundsson.
Eitt jaf ntef li f síðustu
11 leikjum við Pólverja
- sigur yf ir þeim er síðasta hálmstrá íslenzka landsliðsins í B-keppninni í Frakklandi
Sigur yfir Pólverjum í kvöld er
síðasta hálmstrá íslenzka handknatt-
leikslandsliðsins i B-keppninni í Frakk-
landi. Hálmstrá af veikari gerðinni svo
ekki sé fastar að orði kveðið, Mögu-
leikar okkar eru í raun svo fjarlægir að
það hlýtur að flokkast undir óráð að
fjalla yfirhöfuð um þá. Til þess að eiga
möguleika á 5. sætinu í keppninni þarf
ísland að sigra Pólland í kvöld og
treysta síðan á það um leið að Frakkar
vinni ekki Austurríkismenn með meira
en 10 marka mun. Takist þetta er samt
aðeins hálfur sigur unninn. Þá tekur
við slagurinn um 5. sætið — að öllum
líkindum gegn Svisslendingum, sem
leikið hafa mjög vel i B-keppninni.
Eins og islenzka liðið hefur leikið i
keppninni er vist óþarfi að fjölyrða
frekar um möguleikana.
i gegnum árin hefur okkur gengið
þolanlega með Pólverja, nokkuð sem
Svíar geta ekki státað af. Svíar hafa
t.d. aldrei borið sigurorð af Pólverjum
en við hins vegar fimm sinnum. Ekki er
þó hægt að styðjast eitthvað við þá
sigra því þeir voru allir, utan einn,
unnir á árunum 1966—1975 og í núver-
andi landsliði okkar eru sennilega ekki
nema 2—3 leikmenn sem léku sigurleik-
inn gegn Pólverjum í Lubljana 1975:
Einu sinni eftir það hefur okkur tekizt
að leggja þá að velli, 22—19, hér í
Reykjavík 1977.
Landsleikir gegn Pólverjum hafa alls
verið 21 talsins — fieiri en gegn nokk-
urri annarri þjóð, að Dönum undan-
skildum. Eins og fyrr segir höfum við
fimm sinnum sigrað þá, einu sinni
hefur orðið jafntefli en 15 sinnum hafa
Pólverjar unnið. Markatalan er 465 —
401 þeim i hag. í siðustu 11 leikjum
gegn þeim er útkoman Ijót. Aðeins eitt
jafntefli og tíu töp! lðulega hafa leikir
þjóðanna verið hnifjafnir og lítill
munur verið. Hér að neðan eru úrslitin
úr landsleikjum okkar við Pólverja til
dagsins í dag.
1966 Gdansk (HM) 12—27
1966 Reykjavík (HM) 23—21
1970 Hagondange (HM) 21 — 18
1972 Madrid (OL) 21 — 19
1972 Miinchen (OL) 17—20
1975 Lubljana 16—14
1975 Reykjavík 19—27
1975 Reykjavík 15—20
1977 Reykjavík 16—20
1977 Reykjavík 22—19
1977 Varsjá 21—28
1977 Varsjá 15—21
1978 Rouen 22—23
1979 Reykjavík 20—25
1979 Reykjavík 23—23
1979 Hammel (Baltic) 20—22
1980 Reykjavík 23—25
1980 Reykjavík 21—24
1980 Reykjavík 15—20
1980 Olsztyn 19—28
1980 Olsztyn 13—21
Þar höfum við það. Það er því erfitt
verkefni sem biður landsliðsins í kvöld
og líkurnar eru allar með Pólverjum.
Það er því ekki annað að gera fyrir
okkur en bíða og vona hið bezta. -SSv.
Þær stöllur Sóley Oddsdóttir (sitjandi) og Hildigunnur Hilmarsdóttir hjálpast hér að við að snurfusa sig f.vrir úrslitaieik-
inn gegn KR um fyrri helgi. Snyrtingin dugði ÍR-dömunum reyndar ekki til sigurs en það sakar ekki að líta vel út — þó í
körfuknattleik sé. DB-mynd S.
-SSv.