Dagblaðið


Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 2

Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. Opið bréf til þingmanna Vesturlands: Þið hafið staðið ykkur sér- lega vel, eða hitt þó heldur — hvað varðar húsnæðismál Fjölbrautaskólans á Akranesi Artalsljórn Ncmendalela(;s Ijöl- braulaskólans á Akranesi skril'ar A úlifundi, er haldinn vai að aflokinni kröfugöngu, þann 16. marz á Akratorgi, Akranesi, var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Útifundur nemendafélags Fjöl- brautaskólans á Akranesi, haldinn á Akranesi, mánudaginn 16. marz kl. 13.30 að aflokinni kröfugöngu, krefst þess að þingmenn kjör- dæmisins sjái til þess að Fjöl- brautaskólinn á Akranesi verði ekki settur hjá við fjárveitingar í framtið- inni. Einnig vítir fundurinn stælega frammistöðu þingmanna, og áhuga- leysi, i þessu mikla hagsmunamáli kjördæmisins.” Það er ekki að ástæðulausu að þessi tillaga er fram komin og sam- þykkt. Áhugi ykkar á Fjölbrauta- skólanum á Akranesi hefur verið svo lilill undanfarin ár, að furðu sætir. Fjölbrautaskólanum á Akranesi hefur verið mismunað mjög i fjár- veitingum undanfarin ár, miðað við aðra framhaldsskóla. Setja þar síð- ustu fjárlög ríkisins punktinn yfir i-ið á glæsilegum baráttuferli ykkar, þingmcnn Vcsturlands, l'yrir mál- cfnum hans. L.itum nú aðeins á gjaldfærðan stofnkostað ýmissa skóla, satnkvæml siðustu fjárlögum: Menntaskólinn á Egilsstöðum...... 2.730.000.-kr. Menntaskólinn á ísaflrði......... 4.300.000.- kr. Fjölbrautaskólinn áSauðárkróki....... 1.790.000.-kr. Fjölbrautaskólinn áAkranesi.......... 0.450.000.-kr. Þessar lölur segja í sjálfu sér ekki mikið. Til hliðsjónar birtist hér þvi tafla yfir fjölda nemenda í þessum skólum, samkvæmt skýrslu Háskóla- og alþjóðadeildar Menntamálaráðu- neytisins: Menntaskólinn á Egilsstöðum...... 154ncmendur. Menntaskólinn á ísafirði......... 105 nemendur. Fjölbrautaskólinn áSauðárkróki....... 144nemendur. Fjölbrautaskólinn áAkranesi.......... 488 ncmendur. Eins og á þessu sést, hal'ið þið þingmenn Vesturlands staðið ykkur sérlega vel, eða hitt þó heldur. Ef saman er lagður nemendafjöldi Menntaskólans á Egilsstöðum, Menntaskólans á ísafirði og Fjöl- brautaskólans á Sauðárkróki, þá eru þeir 403, eða 85 nemendum færri en nemendur i Fjölbrautaskólanum á Akranesi einum. Samt sem áður fá þessir 3 skólar samanlagt 8.820.000.- kr., eða 19,6 sinnum meira en Fjöl- brautskólinn á Akranesi. Jalnframt bendum við á, að framlag ríkisins til stofnbúnaðar Menntaskólans á ísa- firði, var 3 milljónir i fjárlagafrum- varpi en er 4,3 milljónir í fjárlögum, og hefur því hækkað um 1,3 milljónir i meðförum Alþingis. Hækkun þessi nemur þrefaldri heildarfjárveitingu til uppbyggingar við Fjölbrautaskól- ann á Akranesi. Ekki það, að þessir skólar séu ekki vel að þessum pening- um komnir, heldur þykir okkur hart að slíkt sé látið bitna á okkar skóla. Fjölbrautaskólinn á Akranesi hefur frá upphafi setið á hakanum, hvað varðar fjárveitingar til nýbygg- inga. Þó að hér við Fjölbrautaskólann á Akranesi stundi u.þ.b. 100 aðkomu- nemendur nám, þá er hér aðeins heimavistaraðstaða fyrir 19 manns, þá vel þjappað eins og sardinur í dós. Áður var það embættisbústaður sóknarprestsins.Ekki þótti það þó lil- hlýðilegur bústaður lengur, svo að bærinn samþykkti að byggja nýjan embættisbústað, gegn því að fá gamla bústaðinn undir heimavist. Ástandið -t húsnæðismálum utan- bæjarnemenda er þvi algerlega óvið- unandi, sérstaklega þar sem þessi skóli mun líklega i framtiðinni verða Fjölbrautaskóli Vesturlands. Siðastliðið haust sóttu 84 nemend- Fjölbrautaskólinn á Akranesi. ur utan Akraness um skólavist við Fjölbrautaskólann á Akranesi. Af þeim komust aðeins 51 i skólann, 15 fóru i framhaldsdeild að Laugum en 18 drógu umsóknir sínar til baka, þar sem þeir höfðu ekki fengið loforð fyrir húsnæði, þegar komið var fram í ágúst. Útvegun húsnæðis fyrir þá er hingað komu, stóð fram í september, og var siðustu nemendunum komið fyrir i óíbúðarhæfu húsnæði. Slíkter ekki gott til afspurnar, þegar 500 manna skóli er að byggja upp orðstir sinn. Þó Fjölbrautaskólinn á Akranesi bjóði upp á mest verknám allra fjöl- brautaskóla landsins, að Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti undanskildum, þá finnast hér engin verknámshús, heldur er kennt i ófullnægjandi húsnæði út um allan bæ. Er hel. . . . hart, að einn stærsti framhaldsskóli landsins, utan Stór-Reykjavíkur- svæðisins, skuli búa við slíka aðstöðu. Ef hægt er að taka vinnu ykkar að menntamálum kjördæmisins sem marktækt dæmi um störf ykkar á þinginu, þá hljóta menn almennt að spyrja sig, hvort þið séuð á réttri hillu í tífinu Þó er einlæg von okkar nemenda, að þið þingmenn Vestur- lands athugið vel ykkar gang og gerið eitthvað raunhæft til úrbóta, þótt þið getið ekki ávarpað nemendur i Fjölbrautaskólanum sem ykkar ,,Kæru atkvæði”. AFRAM MEÐ HUSIÐ Á SLÉTTUNNI — þættir sem mikið er lagt í hl jóta alltaf að verða svolítið dýrari 8354—0494 hringdi: Ég skora á sjónvarpið að kaupa fleiri þætti um Húsið á sléttunni. Þessir þættir eru með því bezta, sem sjónvarpið hefur verið með. Einnig vil ég endilega að þeir verði sýndir eftir kaffi á sunnudögum það erviss stemmning yfir því. Mér finnist alveg sjálfsagt að sjón- varpið fái að hækka afnotagjöldin, svo að hægt verði að kaupa góða myndaflokka eins og Húsið á slétt- unm. En það er því miður staðreynd að þættir sem mikið er lagt í eins og Húsið á sléttunni hljóta að verða eitt- hvað dýrari. Útvarpið og Landsíminn: Almúginn er látinn borga afnotagjöldin — hvers vegna ekki að af nema ríkisreksturinn og f æra hann einkaaðilum? Hér blómstrar ástin á sléttunni. Guðjón Bogason (2907—6782) skrifar: Mig langar til að koma að athuga- semdum vegna krafna Ríkisútvarps- ins um 40% hækkun á afnota- gjöldum. GOD ÞJ0NUSTA ÞÖKKUÐ — nýir sólbekkir komu fljótlega, mér algerlega að kostnaðarlausu Helga Lára skrifar: Oft eru fyrirtæki skömmuð fyrir lélega þjónustu en þegar vel er gert þá vill oft gleymast að geta þess. Fyrir um tveimur árum keypti ég sólbekki frá Marmorex í Hafnarfirði. Fljót- lega eftir að þeir voru settir upp tóku þeir að svigna en af ýmsum ástæðum gerði ég ekkert í málinu í eitt og hálft ár en þá hafði ég samband við skrif- stofu neytendasamtakanna og leitaði ráða. Þeir voru fúsir til þess að aðstoða mig á allan hátt en bentu mér þó á að eðlilegra væri að ég hefði fyrst samband við Marmorex og kannaði viðbrögð þeirra. Fljótlega eftir að ég hafði samband við fyrirtækið kom maður að nafni Svavar heim til min að líta á sólbekk- ina, hann lýsti sig óánægðan með ásigkomulag þeirra en benti þó á að uppsetningu væri ábótavant. Þrátt fyrir það lýsti hann sig strax reiðubú- inn að bæta þetta með þvi að afhenda nýja sólbekki. 1 stuttu máli má segja að nýir sólbekkir komu fljótlega og mér algerlega að kostnaðarlausu. Framkoma Svavars, afgreiðsla og þjónusta Marmorex er svo sannar- lega til fyrirmyndar og mættu önnur fyrirtæki gjarnan fara að dæmi Marmorex. Kærar þakkir. Starfsfólk Rikisútvarpsins og Landsímans er undanþegið þvi að greiða afnotagjöld til þeirrar stofn- unnar sem það vinnur hjá (eftir 3ja ára starf) , samtals er hér um að ræða ca 1200 manns. Þarria er því um að ræða umtalsverða fjárupphæð, sem leggst á fólkið í landinu. Einnig vil ég nefna fyrirhugaða byggingu á nýju húsi undir þessar stofnanir. Varla batnar fjárhagurinn við það. Erlendis eru margar útvarps- stöðvar í einkarekstri sem bera sig ágætlega án síhækkandi afnota- gjalda. Það á að afnema einkarekstur ríkisins á útvarpi og leyfa einkaaðil- um að reka útvarpsstöðvar eins og önnur fyrirtæki. Það er ekki mikið að útvarpsstjóri og aðrir forráðamenn útvarps fari fram á 40% hækkun afnotagjalda, þeir þurfa nefnilega ekki að borga þau sjálfir.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.