Dagblaðið - 26.03.1981, Side 6

Dagblaðið - 26.03.1981, Side 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. G Erlent Erlent Erlent Erlent I Arnfinn Nesset, sjúkraráðsmaður á elli- og hjúkrunarheimilinu i Orkdal i Noregi, er nú grunaður um að hafa framið fjöldamorð á sjúkrahúsinu. Hann hefur þegar játað að hafa orðið tveimur sjúklinganna að bana með þvi að gefa þeim skammt af curacit. Segist hann hafa gert þetta í líknarskyni. Dánartalan við stofnunina þykir hins vegar óeðlilega há síðan Nesset hóf þar störf og þar sem hann hafði útvegað sér mjög mikið magn af curacit á ólöglegan hátt þykir líklegt að hann hafi mun fleiri morð á samvizkunni en þau tvö sem hann hefur játað á sig. Norska lögreglan vinnur nú ötullega að rannsókn þessa máls. Myndin hér að ofan er af Arnfinn Nesset. Milliríkjadeila að rísa vegna lestarræningjans Ronald Biggs? Brastíía vill nú fá Biggs — og Bretar kref jast f ramsals hans Brasilia segist nú munu fara fram á það við yfirvöld á Barbadoseyjum að þau skili brezka lestarræningjanum Ronald Biggs sem hefur haldið til í Brasiliu frá 1970 á flótta undan brezku lögreglunni. Jafnframt fara Brasiliumenn fram á að mönnunum fimm, sem rændu Biggs á veitinga- húsi í Rio de Janeiro og fluttu hann til Barbados, verði skilað. Þessi nýja afstaða Brasilíumanna getur leitt til milliríkjadeilu vegna Biggs sem slapp úr fangelsi í London árið 1965 eftir að hafa setið þar af sér tvö af þeim þrjátíu árum sem hann hafði verið dæmdur til vegna þáttar í mesta lestarráni sem sögur fara af. Bretar vilja hins vegar að Biggs verði framseldur til Bretlands þar sem hann á að sjálfsögðu yfir höfði sér fangelsisvist. Utanríkisráðuneyti Brasilíu hefur að beiðni dómsmálaráðuneytisins óskað eftir því að Biggs verði skilað aftur til Brasilíu svo og mönnunum fimm sem rændu honum. Jafnframt lét utanríkisráðuneytið þess getið að það væri á höttunum eftir sjötta manninum, að nafni Patrick Ander- son, án þess að skýra það nánar. Dómari í Bridgetown á Barbados mun í dag ákveða hvort Biggs skuli látinn laus eða hvort beri að halda honum í gæzluvarðhaldi áfram. Lög- fræðingar Biggs hafa mótmælt því að honum hafi verið haldið í gæzluvarð- haldi í meira en sólarhring án þess að vera gefið nokkuð að sök. Varsjárbandalagið tilbúið að sigrast á „ óvinum sósíalismans”: Áðeins til mat- væli til tólf daga í Póllandi — Allsherjarverkfall vof ir enn yf ir í landinu—Rakowski aðstoðarf orsætisráðherra segir verkf öllin munu leiða til öngþveitis og „ bræðrastríðs” A-Þjóðverjar segja að heræfingar Varsjárbandaiagsins i Póllandi og umhverfis landið hafi sýnt að banda- lagið sé viðbúið þvi að sigrast á „öllum óvinum sósíalismans”. Á sama tíma vex spennan stöðugt í Pól- landi og óttast margir að ef ekki tekst endaniegt samkomulag milli stjórn- valda og Einingar (Solidarnosc) i þeirri samningaiotu sem nú stendur yfir muni Sovétmenn sjá sig tilneydda til að láta heri Varsjár- bandalagsins skerast í leikinn og brjóta á bak aftur uppreisnaröldu „óvina sósíalismans” í Póllandi. Viðræður Einingar og stjórnvalda stóðu aðeins í eina og hálfa klukku- stund I gærkvöld og ekki tókst þar samkomulag um að hætt yrði við boðað allsherjarverkfall i næstu viku. Búizt er við að viðræðunum verði haldið áfram síðar í dag. Ríkisútvarpið sagði í gær að nú væri svo komið að matvæli í landinu væru aöeins til tólf daga og í sjón- varpinu voru sýndar myndir frá her- æfingum Varsjárbandalagsins i Pól- landi og nálægum löndum. Eining hefur boðað til fjögurra klukkustunda viðvörunarverkfalls á morgun og allsherjarverkfalls á þriðjudag nema stjórnvöld fallist á að refsa þeim er beri ábyrgð á árás lögreglunnar á Einingarfélaga í Bydg- oszcz i síðustu viku. Lech Walesa: „Við verðum að ná samkomulagi sem Pólverjar. Jafnvel þó samkomulag náist ekki fyrr en á siðustu minútu er ég reiðubúinn að fara i sjónvarpið og afboða verkföll- in.” Lech Walesa, leiðtogi Einingar,' sagði að loknum fundinum að samn- inganefnd stjórnarinnar undir for- ystu aðstoðarforsætisráðherrans, Mieczyslaw Rakowski, hefði ekki orðið við kröfum Einingar. Hin opin- bera fréttastofa PAP hafði það síðan eftir Walesa, að hann gerði sér vonir um að komizt yrði hjá verkföllum. „Það slitnaði ekki upp úr viðræðun- um við stjómvöld. Þeim var einungis frestað,” sagði hann. Walesa sagði einnig: „Ég er þeirrar skoðunar að við ekki aðeins getum heldur verðum að ná samkomulagi sem Pólverjar. Jafnvel þó samkomu- lagið náðist ekki fyrr en á síðustu mínútu, er ég reiðubúinn að fara í sjónvarpið og afboða verkföllin.” Rakowski aðstoðarforsætisráð- herra sagði í yfirlýsingu, sem lesin var upp í sjónvarpinu: „Án samkomu- Iags mun myndast öngþveiti og hugsanlega bræðrastríð.” Jafnframt spurði hann leiðtoga Einingar: „Eruð þið að reyna að sýna, að sjálfstæð verkalýðsfélög geti ekki þrifizt undir sósíalisma þar sem það leiði tii hruns ríkisins og cndis friðar í þjóðfélaginu?” Hann kvaðst harma atburðina í Bydgoszcz og lofaði því að þeim sem bæru ábyrgð yrði refsað þegar ölium sönnunargögnum hefði verið safnað saman. Miðstjórn pólska Kommún- istaflokksins hefur verið kölluð saman til fundar á sunnudag. Pólsku rikisfjölmiðlarnir fluttu Pólverjum í gær boð Jóhannesar Páls páfa annars þar sem hann hvatti landa sína til að sýna stillingu og vera ábyrga. Caspar W. Weinberger og David Jones hershöfðingi,yfirmaður bandariska herráðsins. Ýmsir eru nú þeirrar skoðunar að harkalegar yfirlýsingar Haigs utanrikisráðherra hafi orðið til þess að ríkisstjórninni hafi þótt ástæða til að setja ofan I við hann. HAIG SAGÐUR REIÐ- UR 0G VONSVIKINN — Reagan tók upp hanzkann fyrir Haig í gær Reagan Bandaríkjaforseti sagði að hlutverk Alexanders Haig sem utan- rikisráðherra stangaðist ekki á við hina nýju stöðu George Bush varaforseta sem yfirmanns sérstaks og nýstofnaðs öryggisráðs. Er fréttir bárust af því að Haig hefði hótað að segja af sér vegna skipunar Bush í þessa nýju stöðu sendi forsetinn frá sér yfirlýsingu þar sem sagði, að utanríkisráðherrann væri sem fyrr aðalráðgjafi sinn í utanríkismálum. Reagan skipaði Bush yfirmann öryggisnefndar sem ætlað væri að sam- ræma aðgerðir, jafnt utan lands sem innan, á sérstökum hættutímum, aðeins fáum klukkustundum eftir að Haig hafði lýst óánægju sinni með slíka ráðstöfun. Haig gerði sitt til að koma í veg fyrir þessa fyrirætlun forseta og segja ýmsir embættismenn að þá hafi tækifærið verið notað til að setja ofan í við utan- rikisráðherrann sem þótt hefur mjög yfirlýsingaglaður. Reagan forseti hefur borið til baka fréttir þess efnis að Haig hafi hótað að segja af sér. Embættismenn halda því þó fram að Haig sé mjög reiður og vonsvikinn yfir málalyktum og telji sig hafa mátt þola það að dregið hafi verið úr völdum sinum sem utanríkisráðherra.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.