Dagblaðið


Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 8

Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 8
 I DAGBLADID. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. Erlent Erlent Erlent Erlent I Neyðarhjálp Sameinuðu þjóðanna telur ástandið mjög alvarlegt í Kína: Kornuppskeran brást i tveimur stórum héruðum í Kina og af þeim sökum blasir hungursneyð við milljónum manna ef erlend aðstoð kemur ekki til. Starfsmenn Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna telja að Kínverjar þurfi 700 milljón dollara aðstoð en óliklegt er talið, að unnt verði að veita þeim svo mikla aðstoð. ónir manna og um 1,5 milljón tonn af sáðkorni. UNDRO bíður þess nú að heyra frá Alþjóða heilbrigðismálastofnun- inni (Who) um, hvaða lyf sé einkum þörf fyrir í þessum héruðum. Heimildir greina, að hjálparbeiðni Kínverjanna nemi 700 milljónum dollara en sendinefnd frá UNDRO sem heimsótti fyrrgreind svæði taldi, að full þörf væri á svo mikilli aðstoð. Wang Zi-Chuan, einn af yfirmönn- um kínverska viðskiptaráðuneytisins er staddur i Genf og er þar í forystu nefndar, sem kannar möguleika á að- stoð frá vestrænum þjóðum. Þetta er i fyrsta sinn eftir bylting- una 1949, sem formleg beiðni um að- stoð kemur frá Kínverjum. Beiðnin var sett fram eftir að flest iðnriki Vesturlanda, ásamt stjórn nokkurra Mið-Ameríkuríkja og Mið-Austur- landa höfðu lýst áhuga á að verða að liði í Kína. Ekki er þó reiknað með að aðstoðin verði jafnmikil og Kínverjar telja sig hafa þörf fyrir. (Reuter) Neyðarhjálp Sameinuðu þjóðanna’ UNDRO hefur beðið um 700 milljón dollara aðstoð handa Kínverjum vegna náttúruhamfara í tveimur hér- uðum Kína, sem hafa orðið þess valdandi að uppskera þar í landi er mun minni en oftast áður. Beiðnin var sett fram eftir óform- legar viðræður fulltrúa kinversku stjómarinnar við UNDRO og full- trúa stjórna ýmissa ríkja, sem iikleg þóttu til að geta lagt eitthvað af mörkum. Kínverjar hafa óskað eftir því að UNDRO vinni að hjálparstarfinu ásamt Rauða krossinum í héraðinu Hebei, sem varð mjög illa úti vegna þurrka, og Hubei héraði en þar eyði- lagðist uppskeran af völdum flóða. UNDRO hefur lagt fram lista yfir matvæli, klæðnað, korn og tækja- búnað, sem hinar 40 milljónir manna á þessum svæðum þarfnast til að komast yfir mestu erfiðleikana. Þar var að finna klæðnað fyrir 4,4 millj- Kínverjar biðja um 700 milljón dollara aðstoð — Hungursneyð yf irvofandi í tveimur héruðum landsins vegna þurrka ogflóða LOGGÆZLAN VK> ALTA K0STADI40 MILUÓNIR — Margir lögregluþjónanna unnu sér inn heil árslaun á átta vikum Vinnudagurinn hjá lögregluþjónunum i Alta var mjög langur. Sumir unnu allt að 100 vinnustundir á viku. Þeir sem notið hafa góðs af þessum peningaaustri eru að sjálf- sögðu fyrst og fremst lögregluþjón- arnir. Margir þeirra hafa þénað sem svarar einum venjulegum árslaunum á þeim átta vikum, sem þeir hafa verið í Alta. Ekki hefur verið óal- gengt að lögregluþjónarnir hafi haft um 50 þúsund norskar krónur á mánuði. Flestir hafa lögregluþjónarnir unnið um 80 stundir á viku. Fyrir marga þeirra þýðir það 40 tíma í yfir- vinnu og enn meira fyrir aðra, allt eftir því hver vinnuaðstaða beirra er. Töluverður fjöldi lögregluþjón- anna vinnur talsvert meira en þetta, einstaka menn allt að 100 tíma á viku. Slík vinna gefur að sjálfsögðu talsvert í aðra hönd. Lögregluaðgerðirnar við Alta í Norður-Noregi hafa fram til þessa kostað norska ríkið 40 milljónir norskra króna. Þetta upplýsir norska dómsmálaráðuneytið. Ljóst er, að menn eru engan veginn á eitt sáttir um, hvort þessum peningum sé vel varið. Búizt er við nýjum mótmælaað- gerðum við Alta þegar vegalagningu þar verður haldið áfram. Þá kemur til kasta lögreglunnar á nýjan leik og reikningurinn fyrir löggæzluna á staðnum á því væntanlega eftir að hækka verulega ennþá. Erlendar fréttir L________J Samkvæmt upplýsingum dóms- málaráðuneytisins eru mánaðarlaun þeirra sem vinna 70 stunda vinnuviku á bilinu 30 til 35 þúsund krónur og 40—45 þúsund krónur á mánuði er ekki óalgengt heldur. ,,Við útilokum ekki að einstaka menn hafi haft 50 þúsund krónur á mánuði,” segir Levi Fragell, upplýs- ingamálafulltrúi dómsmálaráðu- neytisins. Ráðuneytið hefur þó ekki fullkom- ið yfirlit yfir hve mikil laun eru greidd út né heildarkostnaðinn við aðgerðina. Lögreglustjórinn Einar Henriksen treystir sér ekki heldur til að full- yrða, hvað aðgerðirnar við Alta hafa kostað. ,,Ég hef ekki heyrt tölurnar en lögregluþjónarnir hafa örugglega haft meiri tekjur en lögreglustjórinn. Ég held, að þeir séu flestir ánægðir með launin. Þeir hafa unnið mikla yfirvinnu og haft góðar tekjur,” segir lögreglustjórinn Henriksen. Augljóst er, að lögregluþjónarnir i Alta hafa ekki farið eftir vinnulög- gjöfinni hvað vinnutíma snertir. Fyrstu dagana unnu margir þeirra lengi án þess að sofa nokkuð. Henriksen neitar því ekki að ýmsir þeirra hafi unnið meira en vinnu- málalöggjöfin kveður á um. „Að öðrum kosti hefðum við þurft á mun fleiri lögregluþjónum að halda hér,” segir hann. Um síðastliðna helgi átti stór hluti lögregluliðsins að fara frá Alta. Aðeins tuttugu menn verða eftir, en á tímabili voru þeir um 600. /V

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.