Dagblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981.
SjáNstœöisfíokknum? Ásgeir
Hvertstefnir
/ efnahagsmáium?
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra, flytur
ræðu á almennum fundi að Seljabraut 54,
fimmtudaginn 26. marz 1981 kl. 20.30. Fundar-
stjóri Kristján Guðbjartsson. Fundarritarar
Dóra Gissurardóttir og Ásgeir Hannes Eiríks-
son. Fundurinn er öllum opinn. Ókeypis Pepsi
Cola-veitingar á fundinum.
Fólag Sjáffs tæöismanna í
Fella- og Hólahverfi íBreiðhofti.
Kreditkorthafar
velkomnir
Laugalæk 2, Reykjavík,
Sími 86511
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör
stjórnar og önnur trúnaðarstörf í félaginu fyrir árið 1981 og hér með
auglýst eftir tillögum um félagsmenn í þau störf.
Frestur til að skila listum er til kl. 12 á hádegi mánudaginn 30. marz
1981.
Hverjum lista þurfa að fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna.
Listunum ber að skila í skrifstofu félagsins í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu.
Stjómin.
Einstakt tækifœri
Góður körfubíll
til sölu
disHsendV-
Sja'
fet
ð atoffl
l*ri og
verU-
eínr.
Sýningarbíll á staðnum.
★ Hagstætt verð — aðeins ca 97.416 m/sölu-
skatti.
★ Greiðsiuskilmálar.
PflLmfl/On & VflL//Ofl Ud.
KLAPPARSTÍG16 ® 27745
Vandi Útvegsbank-
ans að leysast
— „viljum að bankinn verði banki fólksins,” segir
Albert Guðmundsson, f ormaður bankaráðsins
„Með þessum aðgerðum og sam-
starfi við almenning eru vonir til, að
málum Útvegsbankans sé bjargað,”
sagði Albert Guðmundsson alþingis-
maður í viðtali við DJ3-Í gær. Albert
hefur nýverið tekið við formennsku í
bankaráði Útvegsbankans. DB sneri
sér til hans af því tilefni að athuga,
hvernig mál bankans stæðu um
þessar mundir. Útvegsbankinn hefur
um árabil átt í erfiðleikum.
Útvegsbankinn hefur alla tíð verið
í svelti miðað við þau verkefni, sem
honum hafa verið falin,” sagði
Albert Guðmundsson. ,,Nú hafa
ríkisvaldið og Seðlabankinn sýnt
okkur mikinn skilning, til þess að
greiða megi úr vandanum.”
„Verið er að vinna að ýmsum
ráðstöfunum til að rétta hag
bankans. Skuld bankans við Seðla-
bankann var til komin vegna þess að
Útvegsbankinn hefur staðið undir
sjávarútvegi, grundvallaratvinnuvegi
þjóðarinnar, umfram eigið fé. Á
mörgum stöðum hefur Útvegsbank-
inn staðið undir þessum atvinnuvegi
án þess að hafa tekjur á móti á
staðnum. Bankanum hefur verið gert
Samvinnubankinn:
465 MILUÓN KR. HAGWAÐUR
—á síðasta ári. Af koma bankans aldrei hagstæðari
að lána sjávarútveginum langt
umfram getu. Af þessum ástæðum
hefur viðskiptaráðherra ákveðið að
stokka upp viðkiptasvæði viðskipta-
bankanna, þannig að viðskipti á
hinum ýmsu stöðum beinist að þeim
stofnunum sem þar eru fyrir. Með
þessu ætti lausafjárstaða Útvegs-
bankans að batna til mikilla muna.”
„Þá hefur ríkisstjórnin lagt fyrir
Alþingi tillögu um að styrkja stöðu
bankans með 5 milljarða framlagi.
Það lán, sem ríkið mundi taka í þessu
skyni, yrði endurgreitt Seðlabank-
anum á 12 árum. Með því mætti
bæta greiðslustöðu Útvegsbankans
við Seðlabankann.”
„Manninum á
götunni sinnt"
„Vegna þeirra þungu byrða, sem
hafa hvilt á bankanum i sambandi
við sjávarútveg hefur bankinn að
undanförnu ekki getað sinnt hlut-
verki sínu við almenning nægilega og
ekki að því marki, sem hann gerði
áður. Þegar uppstokkuninni verður
lokið er ásetningur stjórnenda bank-
ans að sinna manninum á götunni í
vaxandi mæli svo og fyrirtækjum að
því marki, sem lög um bankann
ætlast til, að hann geri. „Staðan á að
breytast á næstu vikum. Við viljum,
að bankinn verði banki fólksins og
almenningur muni auka viðskipti sín
við bankann og hjálpa með innlánum
til við fjármögnun undirstöðuat-
vinnuvegarins. Ég tók við þessu starfi
í þeirri von, að fólkið standi með
mér. Allt byggist á því,” sagði
bankaráðsformaðurinn. „Starf mitt
hér ber takmarkaðan árangur nema
takist að skapa velvilja almennings til
bankans.”
„Geta má þess, að í dag hófst
fundur útibússtjóra bankans með
bankastjórn, þar sem ég mætti á
fyrsta sameiginlega fundinum ■ fyrir
hönd bankaráðsins, og stendur
fundurinn í þrjá daga. Á þessum
fundi verður staða bankans og
framtíðarstefnumörkun rædd.”
Að lokum undirstrikaði Albert
Guðmundsson, að bankinn hefði
mætt velvilja og skilningi rikis-
stjórnar, viðskiptaráðherra, og
Seðlabankans. -HH.
Afkoma Samvinnubankans á síð-
asta ári var hagstæðari en nokkru
sinni fyrr. Tekjuafgangur, að með-
töldum hagnaði Stofnlánadeildar
samvinnufélaga, nam alls 465 millj-
ónum króna, samanborið við 260
milljónir árið áður. Eigið fé bankans
nam í árslok 1980 samtals liðlega 2.3
milljörðum.
Þetta kom fram á aðalfundi Sam-
vinnubankans, sem haldinn var
nýlega. Erlendur Einarsson, for-
maður bankaráðsins, flutti þar ítar-
lega skýrslu um þróun efnahags-, og
peningamála og gerði grein fyrir
starfsemi bankans árið 1980, sem
hann sagði aðhefði einkennzt af mik-
illi grósku í öllum viðskiptum. Heild-
arveltan hefði aukizt um 66,4%.
Kristleifur Jónsson bankastjóri
lagði fram endurskoðaða reikninga
bankans og skýrði þá. Heildarinnlán
í bankann höfðu aukizt um 11,7
milljarða á árinu, eða 68.5%. Staðan
gagnvart Seðlabankanum batnaði um
735 milljónir og nam þvi inneign
bankans hjá Seðlabankanum, um-
fram endurseld lán tæplega 6,5 millj-
örðum í árslok.
í bankaráð Samvinnubankans
voru endurkjörnir þeir Erlendur
Einarsson forstjóri SÍS, Hjörtur
Hjartar framkvæmdastjóri og Vil-
hjálmur Jónsson framkvæmdastjóri.
Til vara voru kjörnir Hallgrímur
Sigurðsson framkvæmdastjóri,
Hjalti Pálsson framkvæmdasatjóri
og Ingólfur Ólafsson kaupfélags-
stjóri.
-ÓV.
Frá aðalfundi Samvinnubankans:
Innlánsaukning á síðasta ári 68.5%.
53,6% hækkun
á fjárhagsáætlun
Fjárhagsáætlun Eskifjarðarbæjar bygging barnaskólans, sem staðið að tiu lóðum undir einbýlishús. Tvö
fyrir 1981 hefur verið lögð fram. hefur yfir i 6—7 ár, og framræsing þeirra eru raunar orðin fokheld, en
Niðurstöðutölur eru 700 milljónir lands, skólplagna og rafmagns á það er ekki fyrr en nú áð bæjarsjóður
380 þúsund. Hækkun frá í fyrra er jörðinni Eskifjörður, sem bæjar- hefur efni á lagnavinnu þar.
53,6%. Stærstu liðir á þessu ári er . félagið keypti í fyrra. Þar var úthlut- -Regína, Eskifirði.