Dagblaðið - 26.03.1981, Page 12
mmiABW
frýálst, óháð dagblað
Útgefandi: Dagbiaflið hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánsson.
Aflstoðarritstjórí: Haukur Holgason. Fróttastjórí: Ómar Valdirnarsson.
Skrifstofustjóri ritstjómar: Jóhannes Reykdal.
íþróttir: Hallur Slmonarsorí. Menning: Aflalsteinn Ingólfsson. Aðstoflarfróttastjórí: Jónas Haraldsson.
Handrít: Ásgrímur Pólsson. Hönnun: Hilmar Karisson.
Blaðamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Asgeir Tómasson, Bragi Sig-
urflsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gfisli Svan Einarsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga
Huld Hákonardóttir, Kristján Már Unnarsson, Sigurður Sverrisson.
Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Þorri Sigurösson
og Svainn Þormóðsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þrálnn Þorlelfsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. Halldórs-
son. Dreifingarstjóri: Valgerflur H. Sveinsdóttir.
Ritstjóm: Síflumúla 12. Afgreiflsia, óskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11.
Aðalsími blaðsins er 27022 (10 Ifnur).
Aödragandi innrásar
Hætt er við, að Kremlverjar og dygg-
ustu fylgifiskar þeirra i Póllandi muni
ekki koma auga á aðra lausn en að
sovézki herinn taki völdin í Póllandi til
að hindra vaxandi áhrif óháðu verka-
lýðsfélaganna.
Harðlínumenn meðal kommúnísta
kunna einmitt að ætla að egna hina óháðu með aðgerð-
um svipuðum þeim og urðu í Bydgoszcz síðastliðið
fimmtudagskvöld, þegar til átaka kom milli lögreglu
og stuðningsmanna Einingar. Tuttugu og sjö félagar í
óháðu samtökunum urðu fyrir barsmíð lögreglunnar.
Sá atburður kann að tákna breytt viðhorf.
Augljóst er af yfirlýsingum valdsmanna í Kreml, að
þeir telja ástandið í Póllandi þess eðlis, að ekki verði
við unað. Á því byggjast ummæli um, að óháðu
samtökin séu „stjórnarandstaða”.
Vissulega eru völd og áhrif Einingar orðin meiri en
gerzt hefur í nokkru öðru kommúnistaríki, án þess að
valdsmenn kommúnismans gripu í taumana.
Einingarmenn geta því miður ekki vænzt þess að
taka völdin í Póllandi. Sovétríkin mundu ekki sætta sig
við að missa leppríki, sízt ríki, sem liggur milli Sovét-
ríkjanna og Austur-Þýzkalands.
Walesa, forystumaður frjálsra Pólverja, sagði fyrir
nokkrum dögum, að tíu milljónir félagsmanna í
Einingu yrðu að búa sig undir erfiða tíma.
,,Þið verðið að skilja, að ástandið er tvísýnt bæði
inn á við og út á við,” sagði Walesa. „Þið verðið að
skilja, að allsherjarverkfall táknaði endalok baráttu
okkar. Hin hliðin ræður yfir her. . . .”
Sá er munurinn, að ,,hin hliðin”, valdsmennirnir,
ræður yfir her. Pólski herinn kynni að ganga til stuðn-
ings við andstöðumenn kommúnistastjórnarinnar, en
það er sovézki herinn, sem Pólverjar þurfa fyrst og
síðast að óttast.
Walesa hefur gert sér nægilega grein fyrir afstöðu
valdhafa til að vita ofurvel, að koma hlýtur að þeirri
markalínu, að Kremlverjar telji, að ekki megi lengra
ganga.
Valdhafar í Kreml fylgja nákvæmlega sömu stefnu
gagnvart leppríkjunum og þeir gerðu, þegar innrásin
var gerð í Ungverjaland 1956, og í Tékkóslóvakíu
1968, þegar þeim þóttu þau ríki vera að sleppa úr
greipum heimskommúnismans.
Sovétmenn hika við að ráðast gegn Einingu, vegna
almenningsálitsins í heiminum. Enn hafa þeir kosið að
bíða, ef einhver leið fyndist til að treysta völd Sovét-
leppa án þess að til innrásar kæmi.
Enginn vafi er þó á, að Sovétmenn eru með litlum
fyrirvara reiðubúnir til innrásar. Telji þeir ekki annað
fæft til að stöðva framgang óháðfa félaga, munu þeir
beita innrás.
Líklegt er, að niðurstaðan verði innrás.
Komi til innrásar, munu Sovétmenn fyrst leggja
áherzlu á að skapa eftir föngum það ástand í Póllandi,
að þeir geti síðar með „friðarsókn” þyrlað ryki í augu
einhverra. Því væri eðlilegt, að þeirra dómi, að meiri
harka færðist í málin innan Póllands, svo sem með
götuóeirðum.
Síðan mundi Bresnjev skrifa íslenzka forsætisráð-
herranum og öðrum valdamönnum í heiminum ný bréf
og segjast hafa bjargað Póllandi úr greipum fasista!
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981.
12. mars. Ekki náði ég því hver var
spyrill en hvað sem maðurinn hét þá
spurði hann ekki eins og vænta hefði
mátt hjá samviskusömum frétta-
manni sem leita vildi eftir staðreynd-
um og upplýsa almenning um allar
hliðar mála í viðkvæmu deilumáli,
eins og gera verður kröfu til um
fréttamenn ríkisfjölmiðlanna. Þess f
stað mátti heyra spurningar eins og:
Er Blanda ekki örugglega besti
virkjunarkostur okkar í dag? og er
Kjallarinn
,,Á sama tíma er varla sagt aukatekið
orð um, að yfirleitt sé hægt að virkja í
Fljótsdal. ...”
IHLUTDRÆGNII
Frá suðurför stuðningsmanna Blöndu.
Fimmtudagskvöldið 12. mars sl.
flutti ríkisútvarpið viðlal við orku-
málastjóra Jakob Björnsson. Segja
má að þetta hafi verið hápunkturinn
á sérkennilegum leik rikisfjöimiðl-
anna í umfjöllun um virkjunarmál.
Áður en ég vík að viðtalinu við
Jakob vil ég gera að umtalsefni ýmis-
legt sem á undan hefur farið. Ekki er
óeðlilegt að ítariega sé fjallað um
stefnumótun eða stefnuleysi f orku-
málum og næstu stórframkvæmdir í
virkjunarmálum, svo mjög sem þau
mál brenna á öllum almenningi í dag.
Það vekur því undrun svo^ekki verði
meira sagt, að svo er að sjá sem frétta
menn beggja ríkisfjölmiðlanna hafi
útilokað einn möguleikann sem um er
rætt sem næsta virkjunarkost þ.e.
Fljótsdalsvirkjun. Á sama tíma og
varla er sagt aukatekið orð um að
yfirleitt sé hægt að virkja í Fljótsdal,
hefur átt sér stað ítarleg umfjöllun
um virkjun í Blöndu og virkjun við
Sultartanga. Óhætt er að segja að
einstakir fréttamenn hafi tekið beina
afstöðu í málinu og hafi hafið ódul-
búna áróðursherferð fyrir Blöndu-
virkjun. Þeim ber hinsvegar skylda til
að láta persónulegan áhuga á málinu
vikja fyrir þeirri skyldu að gera eins
samviskusamlega og þeim er urint
samanburð á ólíkum óg mismunandi
virkjunarkostum, en láta síðan
almenningi eftir að móta sér
skoðanir.
Þingfréttaritari sjónvarpsins sló öll
met er hann birti útdrátt úr umræð-
um utan dagskrár á alþingi í tilefni af
suðurgöngu Blöndumanna. í þessum
þætti voru birtar ræður allra þing-
manna Norðurlandskjördæmis
vestra og einni betur, þar sem bæði
tóku til máls varaþingmaður og sá
sem hann sat á þingi fyrir. Þetta var
gott og blessað, hitt er óskiljanlegt og
getur ekki flokkast undir annað en
grófa hlutdrægni sem ekki er hægt að
líða fréttamanni rikisfjölmiðils, að
klippt var á umræðurnar þegar kom
að ræðu Sveins Jónssonar þingmanns
Austfirðinga, þótt hann kæmi með
mjög sterk rök gegn þeirri fullyrð-
ingu að Blönduvirkjun væri sá
virkjunarkostur sem hefði af hag-
kvæmnisástæðum yfirburði yfir
aðra.
Vinnubrögð á borð við þessi eru
vítaverð og Ingvi Hrafn hefur a.m.k.
í mínum augum beðið. verulegan
hnekki sem vandaður fréttamaður.
Kem ég þá að Vettvangsþætti þann
kvæmu pólitísku deilumáli, en við
hann var rætt sem yfirmann Orku-
stofnunar, stofnunar sem á hlutlaus-
an hátt á að gefa stjómmálamönn-
um bestu fáanlegar upplýsingar en
ekki að taka hápólitískar ákvarðanir
eða gefa út órökstuddar yfirlýsingar
um viðkvæm deilumál á borð við
okkar virkjunarmál. Það sem Jakob
byggði sínar fullyrðingar á er a.m.k.
ársgömul skýrsla frá Orkustofnun.
Hefði orkumálastjóri viljað vera
heiðarlegur í sinni umsögn þá hefði
hann upplýst almenning um hver
munur væri á orkuverði frá þeim
þremur virkjunarkostum sem mest er
rætt um þ.e. virkjun í Fljótsdal,
virkjun Blöndu og virkjun við Sultar-
tanga eins og hann kentur fram hjá
Orkustofnun fyrir ári síðan. Rétt
hefði verið að taka mismunandi for-
sendur inn í dæmið t.d. orkuverð frá
Blöndu þegar kostnaður hefur
hækkað um ca þrjú skuttogaraverð,
eða þegar reiknað hefur verið með
hliðstæðum óhöppum við Sultar-
tanga og orðið hafa við Sigöldu.
Svona má halda áfram að spyrja, en
ég reikna ekki með svörum, það
tiðkast yfirleitt ekki hjá opinberum
embættismönnum.
Þá kröfu geri ég hinsvegar til opin-
berra starfsmanna ekki síst forstöðu-
manna rikisstofnana, að ætli þeir að
blanda sér í dægurmálin með póli-
tískum yfirlýsingum þá geri þeir það
sem einstaklingar en beri ekki fyrir
sig þær stofnanir sem þeir veita for-
stöðu. Eins verður að krefjast þess af
fréttamönnum ríkisfjölmiðlanna að í
fréttaþáttum haldi þeir sig við
staðreyndir og hafi í heiðri það
sjónarmið að öllum aðilum beri að
gera jafnhátt undir höfði. Ætli þeir
að koma að sínum privatskoðunum
verða þeir að gera það á annan hátt
en í gegnum fréttir.
Hrafnkell A. Jónsson
verkamaður
Eskifirði.
Hrafnkell A.
Jónsson
ekki einsýnt að drífa sig i að virkja
þenpan hagkvæma kost strax?
Ekki stóð á Jakobi Björnssyni að
játa Blöndu hollustu sína, þótt hann
viti áreiðanlega allra manna best að
ekki liggur fyrir endanleg niðurstaða
á þeim rannsóknum sem áttu sér stað
á sl. sumri og því ekki tímabært af
Orkustofnun að gefa út yfirlýsingar á
borð við þær sem Jakob gaf í þessu
viðtali. Hitt er að sjálfsögðu einka-
mál Jakobs Björnssonar vilji hann
sem einstaklingur taka afstöðu í við-