Dagblaðið - 26.03.1981, Síða 15

Dagblaðið - 26.03.1981, Síða 15
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981. 19 c Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 2 Frank Arnesen til Valencia Spánska stórfélagið Valencia keypti í gær danska miðherjann Frank Arnesen frá Ajax Amsterdam fyrir 450 þúsund dollara. Arnesen er 24ra ára og mörg ensk lið hafa verið á eftir honum. Daninn valdi hins vegar Spán og kemur i stað Mario Kempes. Arneson lék með Fremad Amager áður en hann fór til Ajax. • hsim. Borg sigraði Læknarnir í New Vork virðast hafa unnið gott verk á meiðslum Björns Borg i baki þvi Svíinn tók þátt i opna italska meistaramótinu, sem hófst í Milano f gær. Sigraði þar óþekktan, bandarískan' tennisleikara 6—1 og 6—3. John McEnroe, USA, sigraði einnig i leik sfnum í gær en á óvart kom, að þekktasti tennisleikari ítaliu, Panatta, tapaði sínum lefk. Dómstóll ÍSÍ vísaði málinu f rá — og Grindvíkingar halda stigunum íþróttadómstóll ÍSÍ, æðsti dómstóll iþróttahreyfing- arinnar, kom saman í gær í fyrsta skipti i fimm ár vegna kærumáls Grindavikur og Þórs, Akureyri, í 1. deild körfuknattleiksins. Málinu var visað frá — dómstóllinn gat ekki tekið það fyrir efnislega, þar sem það hafði áður verið tekið fyrir hjá tveimur dómstólum, héraðsdómi og dómstóli KKÍ. Grind- vikingar halda þvi tveimur stigunum, sem dómstóll KKÍ dæmdi þeim. -hsim.-. Halifax vann Úrslit í ensku deildakeppninni i í gær og í fyrra- kvöld urðu þessi: 2. deild Preston — Bolton 1—2 3. deild Charlton — Blackpool 2—0 Oxford — Barnsley 1—1 4. deild Halifax — Crewe 1—0 Tranmere — Port Vale 1—2 York — Peterbro 1—2 Enn tapa Tyrkir — en voru óheppnir gegn Wales Wales færðist skrefi nær þvi að komast í úrslita- keppni HM á Spáni 1982 í knattspyrnunni í gær. Sigraði þá Tyrkland 0—1 í Ankara. Tyrkir sóttu miklu meira i leiknum en Dai Davies, Wrexham, sem lék sinn 41. landsleik, átti snilldarleik í marki Wales. Varði allt, sem á það kom. Á 68. mín. tókst Carl Harris að skora eina mark leiksins eftir mistök Husnu, varnarmanns Tyrkja. Hann gaf knöttinn beint til Harris og Senol átti ekki möguleika að verja. Staðan f 3. riðli er nú þ&nnig:... Wales 4 4 0 0 10—0 8 Sovét 2 2 0 0 7—1 4 Tékkar 2 10 1 2—1 2 ísland 4 1 0 3 4—12 2 Tyrkland 4 0 0 4 1—10 0 Sigur Belga á elleftu stundu Mark Jan Ceulemans á 86. mínútu færði Belgum mikilvægan sigur yfir írum í 2. riðli undankeppni HM í knattspyrnu í Brussel í gærkvöld. Eftir sigur- inn hafa Belgar langbeztu stöðuna í riðlinum, en auk þeirra og Ira eru Frakkar, Hollendingar og Kýpur- búar i sama riðli Það voru markverðir liðanna, Perud’homme hjá Belgíu og Jim McDonagh hjá Irum, sem voru hetjur liðanna í gær. Þeir vörðu hvað eftir annað meistara- lega frá framherjum andstæðinganna og allt stefndi í markalaust jafntefli, er aukaspyrna var dæmd á írana. Rene Vandereycken lyfti knettinum þá yfir írsku vörnina og þar stökk Ceulemans hærra en allir aðrir og skallaði hörkufast í netið hinum 45.000 áhorfendum til óblandinnar ánægju. Bæði lið fengu góð færi <>g tvivegis björguðu írsku varnarmennirnir á línu. I’erud’homme varði tvisvar glæsilega frá Robinson cr hann komst einn í gegn og mark var dæmt af írum rétt fyrir hálfleik. Vildu írsku leik- mennirnir ekki una þeim dómi og rifust í dómaran- um þar til leiðir skildu í búningsklefanum. Staðan í riðlinum: Belgía 5 4 1 0 8—3 9 írland 6 3 12 12—7 7 Frakkland 3 2 0 1 9—1 4 Holland 4 2 0 2 5—3 4 Kýpur 6 0 0 6 4—24 0 Finnar mæta svo gott sem beint úr vélinni í leikinn —f yrsti landsleikurinn af þremur við Finna í Höllinni í kvöld Fyrsti landsleikurinn af þremur við Finna verður i Laugardaishöllinni í kvöld kl. 20. Finnska liðið kemur til landsins um klukkan 17 i dag svo ekki fá leikmenn liðsins langa hvíld fyrir leikinn i kvöld. Það ætti að verða íslenzka liðinu til hjálpar og ekki mun af veita þvi Finnar eru mjög sterk þjóð i körfunni á Evrópumælíkvarða. Þeir hafa á undanförnu ári leikið 26 lands- leiki, unnið 17 en tapað 9. Töpin eru flest fyrir sterkum þjóðum, s.s. Spáni, Póllandi, Sviþjóð, Brasiliu og Grikk- landi svo einhver séu nefnd. Leikmenn finnska liðsins, sem koma hingað í dag eru engir aukvisar og fjórir þeirra eru yfir tvo metra á hæð. Enginn þeirra slagar þó almennilega í Pétur Guðmundsson, sem ætti að hafa góða möguleika gegn þeim. Hann hafði þá ,,í vasanum” á Polar Cup í fyrra og þá tapaði ísland með 14 stiga mun, 63—77, eftir að dómararnir höfðu slegið landann út af laginu sem frægt er orðið. Finnska liðið er einnig skipað mjög reyndum leikmönnum og fjórir þeirra hafa vel á annað hundrað landsleiki að baki. Risto Lignell er þeirra reyndastur méð 140 leiki að baki og hann er enn- fremur helzti skorarinn í liðinu. Hann hefur skorað að meðaltali 24 stig í landsleikjum undanfarinna þriggja ára og það er árangur sem vert er að veita gaumgæfilega athygli. tslenzka liðið hefur undirbúið sig af kostgæfni fyrir þessa leiki en fékk óvænt bakslag í seglin í sl. viku er pressulið án sinna beztu manna lagði það að velli. Landsliðið hefur leikið 19 landsleiki síðan i október 1979. Af þeim hafa 12 unnizt en ekki nema 7 tapazt og það er vel viðunandi árangur. Landsliðshópurinn sem mætir Finn- unum og heldur jafnframt til Sviss í apríl hefur verið valinn og þrátt fyrir forföil tveggja sterkra leikmanna er valinn maður í hverju rúmi. fslenzkt körfuknattleikslandslið hefur aldrei teflt fram eins reyndum mannskap. Reyndastur þeirra allra er Jón Sigurðsson, sem hefur að baki 82 leiki. Jón er elztur leikmannanna, ásamt þeim Gunnari Þorvarðarsyni og Kristni Jörundssyni. Þeir eru næstir í röðinni hvað landsleikjafjölda snertir. Gunnar með 58 og Kristinn með 54. Torfi Magnússon kemur siðan næstur með 49 leiki. Þrír leikmannanna eru sýnu óreyndastir í landsliðs,,bransanum”. Ágúst Líndal með 3 leiki, Gísli Gisla- son með 2 og Valur Ingimundarson með aðeins 1 leik. - SSv. Köppen lenti í basli strax á fyrsta degi — All-England badmintonkeppnin hófst ígærkvöld íLondon Eitt stærsta badmintonmótið í heiminum ár hvert, Afl-England keppnin, hóst í Lundúnum í gærdag og i fyrstu umferðinni kom fátt á óvart. Liem Swie King, sigurvegari í keppninni 1978 og 1979, sýndi í gær að hann er líklegur til að endurheimta titilinn frá Prakash Padukone, sem hann tapaðist fyrir í úrslitaleiknum í fyrra. Hann vann Saw Swee Leong frá Malasíu 15/4—15/2 í gær og í fyrstu umferðinni og siðan Andy Goode í annarri umferð 15/5 og 15/9. Helztu úrslit fylgja hér með. Þá fyrst úr fyrstu umferðinni. Júgóslavarsigruðu Júgóslavar sigruðu Búlgari 2—1 i vináttuleik i Subotica i gær. Halilhodhzic og Sliskovic skoruðu fyrir Júgóslavíu en Slavkov svaraði. Fyrsta markið kom á 2. mín. er Halilhodhzic skoraði og siðan bætti Sliskovic marki við á 25. min. Á sömu mín. svöruðu Búlgarir og þar við sat. Hollendingar héldu smálífi í vonum sinum um að komast í úrslit HM i knattspyrnu á Spáni á næsta ári er þeir sigruðu Frakka 1—0 í 2. riöli undan- keppninnar i Rotterdam í gærkvöld. Karlar Kevin Jolly-Steen Fladberg 12/15, 15/9,15/10 Lius Pongoh-Rudy Heryanto 15/7,15/13 Morten Frost-Hastomo Arbi 18/13,15/1 Ray Stevens-Stefan Karlsson 15/10,15/6 Prakash Padukone-Poul Petersen 15/8,15/7 Svend Pri-Thomas Petterson 15/8,15/9 Rudy Hartono-Fleming Delfs 15/8,15/4 Konur Wiharjo Verawaty-Van Beusekom 11/3,11/2 Pia Nielsen-Sanghee Yoo 9/11,11/6,11/8 Ivana Lie-Annette Börjesson 11/7,11/9 AtsukoTokuda-Pam Hamilton 12/9,11/3 Lena Köppen lenti í hinu mesta basli Eina mark leiksins skoraði Ipswich- leikmaðurinn Arnold Miihren á 47. minútu beint úr aukaspyrnu með bananaskoti. Þetta var fyrsti lands- leikur Miihren i 3 ár. við hina japönsku Kondo. Þrátt fyrir að komast í 10/1 í fyrsta leiknum tókst henni að tapa honum. Taugaspennan var mikil hjá henni í annarri lotunni, en tókst þó að hala inn sigur. Sigurinn í þriðju lotunni var svo öruggur. Önnur umferðin fór fram í gær- kvöld og hér fylgja nokkur helztu úrslit leikja. Karlar Liem Swie King-Andy Goode 15/9, 15/4 Kevin Jolly-Sanjaý Sharma 15/1,15/6 Lius Pongoh-Nick Yates 15/9, 15/4 Rudy Hartono-Paul Whetnall 15/8, 15/6 Morten Frost-Roy Diaz Gonzales 15/6,15/6 Prakash Padukone-Claus Andersen 15/7,15/5 Udom Luengpetchcharaporn-Svend Pri 15/2,15/9 Konur Pia Nielsen-Liselotte Blumer 11/5, 11/7 Wiharjo Verawaty-Fumiko Tohkairin 11/2,11/2 Jane Webster-Helle Hartwich 11/4,11/8 Ivane Lie-Diane Underwood 11/4, 3/11, 11/8 Lena Köppen-Saori Kondo 10/12, 11/9,11/3 Holland lifir í voninni r A vi )ii á landsl liðs- mönn #11 U IQIIUwl um í hópm um” — segir Kjartan L. Pálsson landsliðseinvaldur um páskaferð kylfinga Um þetta leyti árs fara kylfingar vanalega að huga að útbúnaði sinum og sumir þeirra eru þegar búnir að dusta rykið af pokanum og teknir að æfa innanhúss. Margir hafa tekið sér tima hjá Þorvaldi eða Nolan og lamið fram og til baka í langan tíma. Landsliðin í golfi eru bæði komin á stjá, þ.e. „Litli bróöir” fékk skell Knattspyrnufélögin búa sig nú af feiknarkrafti undir sumarið þrátt fyrir storm og fimbulkulda. Keflvikingar léku f fyrrakvöld við „litla bróður”, Reynismenn úr Sandgerði, og sigruðu 4—0. Bæði liðin munu leika i 2. deild i vetur. Þá sigraði FH Val 2—1 um helg- ina og Breiðablik vann Fylkl, en ekki Aftureldingu, 3—0. - SSv. karla- og unglingaliöið og margir hugsa gott til glóðarinnar um páskana. Páskaferðir kylfinga hafa verið vin- sælar mörg undanfarin ár og hafa íslenzkir golfunnendur þrætt golfvelli og krár í Dyflini ef alkunnum eldmóði. Samvinnuferðir-Landsýn gangast fyrir ferð til írlands í ár og hún er að því leytinu frábrugðin fyrri ferðum að ekki verður haldið til i Dublin. írsk ferða- skrifstofa hefur skipulagt 8 daga ferð um landið þar sem allir helztu golfvellir eyjunnar grænu verða heimsóttir, auk þess sem sögulegir staðir verða barðir augum. DB hafði í gærkvöld samband við Kjartan L. Pálsson, landsliðseinvald í golfinu, og spurði hann hvort ’ein- hverjir landsliðsrnannanna myndu fara i þessa ferð. „Það liggur ekki á lausu snnþá en mér segir svo hugur um að tinhverjir þeirra muni slást í hópinn, :nda prýðisæfing fyrir sumarið,” sagði Kjartan, sem jafnframt er fararstjóri í þessari terö. Mönnum ætti ekki að leiðast undir hans leiðsögn því fáir vita um heppilegri staði til að hvílast eftir erfiði dagsins á golfvellinum en klp. Þessi ferð, sem um er rætt, hefst 17. apríl og stendur í 14 daga. Hins vegar koma margir frídagar þarna inn í þannig að menn tapa sennilega ekki nema 6 vinnudögum. - SSv. Dregið hjá Haukunum Dregið hefur vcrið í happdrætti handknattleiksdeildar Hauka. Fyrsti vinningur, páskaferð með Samvinnu- ferðum-Landsýn að verðmæti kr. 3500 kom á miða nr. 2426. Annar vinningur, helgarferð með Samvinnuferöum- Landsýn til Lundúna að verðmæti 2.500 kr., kom á miða nr. 3506. Fyrsti sigur Spán- verja á enskri grund Gunnar Gíslason, handknattleiks- og lyftingamaður. 8. Elmar Geirsson, knattspyrnumaður. 9. Hrefna Magnús- dóttir, skíðakona og 10. Halldór Áskelsson, knattspyrnu- og handknatt- leiksmaður. „Ég átti ekki von á þessari út- nefningu,” sagði Haraldur Ólafsson er DB ræddi við hann. „Þó hafði ég gert mér vonir um að lenda í einu af efstu sætunum. Það hefur eflaust ráðið miklu að ég varð Norðurlandameistari á sl. ári, en það get ég þakkað Guðmundi Sigurðssyni meira en öðrum. Ég bjó heima hjá honum í viku fyrir mótið og hann helgaði mér alla sína krafta á þeim tíma. Ég verð fljótlega að fara að þyngja mig upp í 82,5 kg. flokkinn, en vonast til að þurfa ekki að gera það fyrr en á næsta ári,” bætti hann við. Haraldur var á sínum yngri árum geysilega efnilegur knattspyrnumaður en kunnugir telja að hann hefði þó getað náð enn betri árangri í fimleikum ef hann hefði haldið áfram á þeirri braut. Lyftingarnar náðu tökum á honum ungum og hafa verið hans aðaláhugamál síðan. -GSv/SSv. „íþróttamaður Akureyrar” var út- nefndur á laugardag í lok 36. ársþings ÍBA, sem fram fór i Lundaskóla. Það var. lyftingamaðurinn efnilegi, Har- aldur Ólafsson, sem varð hlut- skarpastur í kjörinu og hlaut alls 100 stig. í öðru sæti varð Arthúr Bogason, einnig lyftingamaður, með 72 stig og þriðji varð Snæbjörn Jónasson, íþróttafélagi fatlaðra, með 49 stig. Annar fulltrúi fatlaðra, Sigurrós Karls- dóttir, varð fjórði með 44 stig. Röð annarra varð sem hér segir: 5. Haukur Jóhannsson, skíðamaður. 6. Þorsteinn Hjaltason, júdómaður. 7. Verðlaunahafar i kjöri iþróttamanns Akureyrar. F.v.: Bogi Pétursson, faðir Arthúrs, Sigurrós Karlsdóttir, Haraldur Ólafsson, Snæbjöm Þórðarson og Haukur Jóhannsson. -DB-mynd GSv. Jón Sigurðsson er langreyndasti landsliðsmaðurinn i körfuknattleikslandsliðinu sem mætir Finnum i kvöld. Spánn sigraöi England í fyrsta skipti i 21 ár i landsleik i knattspyrnu i gær- kvöldi. Það var á Wembley-leikvangin- um i Lundúnum og fyrsta tap Englands á beimavelli undir stjórn Ron Green- wood. Úrslit 1—2 i þessum vináttuleik þjóöanna. Spánska liðið lék sinn fyrsta landsleik undir stjórn Santamaria, þess fræga miövarðar Real Madrid fyrir 20 áram, og leikurinn var mikill sigur fyrir hann. Santamaria gjörbylti spánska landsliðinu frá leikjunum slöku að undanförnu. Sjö breytingar á spánska landsliðinu frá sigurleik Englands i fyrra i Barcelona 0—2. Strax á fjórðu mín. opnaðist vörn Englands og Jesus Satrustegui skoraði. Englendingar heppnir að fá ekki á sig tvö önnur mörk byrjunarkaflann. Jesus Zamora átti skot í þverslá og Marcos skallaði framhjá í dauðafæri eftir hroðalegan misskilning milli Liverpool-leikmannanna Clemence og Neal. Glenn Hoddle jafnaði fyrir England á 27. mín. með þrumufleyg af 25 metra færi en lítið bar á Tottenham- leikmanninum í leiknum. Á 32. mín. náði Spánn verðskuldað forustu aftur. Enska vörnin leikin sundur og saman og Zamora, bezti maður á vellinum, skoraði af þriggja metra færi. í síðari hálfleiknum sótti England nær látlaust en til mikilla vonbrigða fyrir 71.840 áhorfendur tókst liðinu ekki að jafna. Bryn Robson, bezti maður Englands, var þó tvívegis nærri að skora en Luis Arconada, markvörður og fyrirliði Spánar, varði vel. Alla nákvæmni vantaði í sóknar- leik enskra. Francis og Mariner náðu ekki saman sem miðherjar. Brooking lélegur og var tekinn út af. Ray Wilkins kom í stað hans og Peter Barnes í stað Francis undir lokin. Annars var enska liðið skipað eins og skýrt var frá í blaðinu í gær. þetta var fjórði sigur JAFNTEFUIGLASG0W — og Skotar máttu þakka fyrir „Skozku leikmennirnir geta verið ánægðari með þessi úrslit en þeir írsku,” sagði Dennis Law eftir að Skotland og Norður-írland gerðu jafntefli 1—1 i HM-leik sínum í 6. riðli i Glasgow f gærkvöld. írska liðið var betra lengstum í leiknum. Náði forustu, þegar Billy Hamilton skallaði knöttinn i markið á 70. mín. eftir fyrir- gjöf fyrirliða N-írlands, Sammy Mcllroy. Aðeins sex mín. síðar tókst John Wark, sem varla hafði sézt í leiknum, að jafna fyrir Skotland með hörkuskoti. Lokakaflann sóttu Skotar meir en tókst ekki að jafna. Staðan i riðlinum. Skotland Portúgal N-írland ísrael Svíþjóð Spánar gegn Englandi í 14 landsleikj- um. Sá fyrsti á enskri grund. England unnið níu, eitt jafntefli. - hsim. Glenn Hoddle skoraði mark Englands i gær en sást annars lítið i leiknum. Sigurmark Viggós á lokasekúndunum Viggó Sigurðsson færði Bayer Leverkusen tvö dýrmæt stig, þegar hann skoraði sigurmark liðsins örfáum sekúndum fyrir leikslok gegn Kiel í gærkvöld. Leikurinn var i Leverkusen og heimaliðið vann 16—15. Viggó skoraði sjö mörk i leiknum. Sigurður Gunnarsson lék einnig með Bayer Leverkusen og átti góðan leik þó hann skoraði ekki. Húttenberg gerði sér lítið fyrir og sigraði meistara Grosswallstadt í gær- kvöld. Dankersen vann einnig, svo enn er fallbaráttan mikil. Heppenheim og Milbertshofen fallin — siðan kemur Dankersen með 15 stig, Húttenberg 17 og Bayer Leverkusen 19. STEVE MAHRE K0MIVEG FYRIR SIGUR BRÓDUR SÍNS —Varð í öðru sæti í Búlgaríu í gær en Phil Mahre þrið ji Phil Mahre, USA, tókst ekki að komast upp fyrir Ingemar Stenmark i „Ég lofa betri útkomu gegn Norðmönnum á föstudaginn” — sagði Margrét Theodórsdóttir eftir að kvennalandsliðið hafði steinlegið, 10-23 „Engin okkar sýndi neitt í likingu við það sem við getum en engu að siður eigum við nokkuð langt í land með að ná þessum stelpum,” sagði Margrét Theodórsdóttir eftir að kvennalands- liðið hafði fengið Ijótan skell, 10—23 fyrir Dönum i vináttulandsleik i Kaup- mannahöfn i gærkvöld. „Þær eru geysilega fastar fyrir í vörainni og mun hreyfanlegri en við i sókninni og ekki bætti úr skák að við vissum f raun litið hvað við vorum að fara út í. Þetta er hins vegar allt annað en 1. deildin heima og við lærum af þessu,” sagði Margrét ennfremur og bætti svo við: „Ég lofa betri útkomu gegn Norð- mönnum.” Danska liðið komst i 5—0 í gær og gerðu islenzku stúlkurnar þá regin- skyssu í sókninni að skjóta uppi á danska markvörðinn, sem hirti allt þar. Stelpurnar gáfu sig þá ekki og tókst að rétta hlut sinn verulega fyrir hlé og staðan var þá 10—6 fyrir Dani. Jó- hanna Pálsdóttir varði markið af stakri prýði í fyrri hálfleiknum, en í þeim síðari kom Kolbrún Jóhannsdóttir i markið ,,og hefur vafalítið oftast varið betur,” eins og Þórður Sigurðsson sagði við DB í gærkvöld. { síðari hálfleiknum tók danska liðið hins vegar öll völd á ný og sigldi örugg- lega fram úr og í lokin var munurinn 13 mörk, 23—10. Flestar íslenzku stúlk- umar léku langt undir getu og aðeins þær Eiríka Ásgrímsdóttir, Víkingi, og Erla Rafnsdóttir, ÍR, sýndu sitt rétta andlit. Mörkin: Guðríður Guðjóns- dóttir 3/2, Erla Rafnsdóttir 2, Margrét Theodórsdóttir, Katrín Danivalsdóttir, Kristjana Aradóttir, Ingunn Bernódus- dóttir og Oddný Sigsteinsdóttir 1 hver. - SSv. keppni heimsbikarsins i gær i Borowetz í Búlgaríu vegna þess, að tvíburabróðir hans, Steve Mahre, varð á undan honum. Keppt var í svigi og Zhirov, Sovét- ríkjunum, sigraði. Steve Mahre varð í öðru sæti og Phil Mahre varð í þriðja sæti. Fyrir þriðja sætið bætti hann stigatölu sína um þrjú stig. Hefur nú 257 stig en Stenmark 260 stig. Síðasta keppni heimsbikarsins verður á laugar- dag, sennilega i Sviss, vegna snjóleysis í Júgóslavíu. Ingemar Stenmark virðist nú heillum horfinn. Hann var aðeins í 13. sæti eftir fyrri umferðina í gær eftir gróf mistök. Náði sér hins vegar vel á strik í þeirri síðari. Það nægði þó ekki nema í fimmta sætið. Stenmark gat fengið Aðalfundur Þróttaríkvöld Aðalfundur Þróttar verður haldinn í kvöld f Þróttheimum. Quini fannst í gær — ómeiddur og vel á sig kominn í Zaragoza Enrique Castro Quini, miðherji spánska stórliðsins Barcelona, sem týndur hefur veriö á fjórðu viku, fannst í gær i borginni Zaragoza ómeiddur og vel á sig kominn. Quini var rænt eftir deildarleik hjá Barcelona þann 1. marz sl. og síðan spurðist ekkert til hans fyrr en i gær að hann fannst í Zaragoza. Samkvæmt fregnum hafa þrir menn vcrið handteknir vegna máls- fimm stig fyrir fyrsta sætið — annars ekkert — og hann er því stanzaður á 260 stigum. Nú er aðeins spurning hvort taugar hins 23ja ára Phil Mahre halda í keppninni á laugardag. Annað sætið í gær hefði gefið honum átta stig og á laugardag verður hann víst að vera í einu af þremur efstu sætunum til að sigra Stenmark samanlagt. - hsím. Endasprettur Hess dugði henni ekki Heimsbikarkeppni kvenna á skíðum lauk endanlega i gær en Maria Theresa Nadig frá Sviss hafði tryggt sér sigur í henni fyrr i þessum mánuði. Það var Erike Hess, landi hennar, sem vakti mesta athygiina á lokasprettinum er hún vann hvert svigmótiö á fætur öðru — 6 f röð og síðan sfna fyrstu stórsvigs- keppni í gær. Það dugði henni þó ekki til sigurs, en lokastaðan varð þessi: Maria Theresa Nadig, Sviss 289 Erika Hess, Sviss 251 Hanni Wenzel, Lichtenstein 241 Christine Cooper, USA 198 Irene Epple. V-Þýzkalandi 181 Tamara McKinney, USA 176 Perrine Pelen, Frakklandi 176 Cindy Nelson, USA 168 Christa Kinshofer, V-Þýzkal. 165 Fabienne Serrat, Frakklandi 149 „EG ATTIEKKIV0N A ÞESSARIUTNEFNINGU” —sagði Haraldur Ólafsson, „íþróttamaður Akureyrar”

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.