Dagblaðið


Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 20

Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 20
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981 24 Rallyspecial BÍKR: SPENNANDIKEPPNIIKULDA OG ROKI Super Sport fjöðrunarkerfið, gorm- arnir og tommu sveru ballaneestang- irnar undir Chevellunni unnu verk sitt óaðfinnanlega þegar Ágúst snar- aði bílnum i hverja bcygjuna á eftir annarri og snéri honum með vélar- afinu í kringum keilurnar. I)B-mynd Jóhann Kristjánsson. Síðastliðinn laugardag hélt Bif- reiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur fyrstu rallíspecial keppni sína en siðastliðið haust kynnti Landssam- band íslenzkra akstursíþróttaklúbba þessa grein akstursíþrótta á íslandi. Tíu lið mættu til keppni á laugar- daginn en í hverju liði eru tveir menn, ökumaður og aðstoðarökumaður. Flestir bilanna í keppninni voru litlir og snaggaralegir rallíbílar en meðal þeirra var einn gamall og góður kvartmílujaxl. Var það 396 SS Chevellan sem Guðmundur Kjartans- son flutti inn á sínum tíma. Reyndar er nú búið að skipta um vél í henni og í stað gömlu sleggjunnar hefur Ágúst Þórólfssonett 327 cid small block vél í hana. Logi Einarsson og Gunnlaugur Rögnvaldsson sigruðu i keppninm, fyrst og fremst vegna góðs aksturs Loga og samvinnu þeirra félaga, því bíllinn þeirra, Escort 1300, er ekki sá kraftmesti sem hægt er að hugsa sér. DB-mynd Jóhann Kristjánsson. «*■ '*■ C.. •••••• Nafnarnir Birgir Bragason og Halldórsson misstu af fyrsta sætinu þegar þeir komu of geyst í markið í lok einnar leiðarinnar og felldu þar markkeilu.' DB-mynd Jóhann Kristjánsson. >««*»* *» i*. Keppnin fór fram á Reykjavíkur- flugvelli og samanstóð hún af þremur leiðum sem voru hver annarri erfiðari. Má segja að þær hafi allar verið malarbrautir því þar sem steypt var undir var allt þakið steinvölum. Var því einna líkast sem ekið væri á samfelldri kúlulegu þar sem steypan var. Áttu margir bílstjóranna í vandræðum með að hemja bíla sína og snarsnérust sumir þeirra svo oft að ætla hefði mátt að þeir væru að keppa í ísakstri. Sérstaklega skraut- legt var aksturslag þeirra Þorsteins Mckinstry og Salbergs Jóhanns- sonar sem kepptu á Lada 1500.' Afturhjólin hjá þeim virtust hafa það meginmarkmið að komast fram úr framhjólunum. Voru rassaköstin á Lödunni oft svo mikil að erfitt var að sjá í hvaða átt hún ætlaði að fara. Úrslitin í keppninni urðu þau að i fyrsta sæti urðu Logi Einarsson og Gunnlaugur Rögnvaldsson sem óku Escort 1300. Samanlagður tími þeirra á öllum leiðunum var 6 mín. 19.75 sek. í öðru sæti lentu þeir nafnarnir Birgir Bragason og Birgir Halldórs- son, sem óku Datsun 1600. Á síðustu leiðinni komu þeir helzt til geyst inn í markið og keyrðu á og felldu mark- keilu en ef keilur i hliðum eða markinu eru felldar er bætt 15 refsi- sekúndum við tíma keppendanna. Endanlegur tími þeirra nafnanna varð því 6 min. 23.44 sek. í þriðja sæti voru kvartmílingarnir Ágúst Þórólfsson og Magnús Halldórss. á SS Chevellunni. Kom það mörgum á óvart enda bar lítið á þeim félögum í keppninni. Virtist sem Chevellan færi mun hægar yfir en hinir bílarnir en þar hefur stærð bilsins platað augað svo og nett aksturslag Ágústs. Misnotaði hann aldrei afl átta' strokka vélarinnar en notaði það fag- mannlega til að snúa bilnum í kröpp- um beygjum og ná upp hraðanum á beinu köflunum. Missti hann aldrei stjórn á bilnum og virtist aka allar leiðirnar fyrirhafnarlaust. Timi þeirra Ágústs og Magnúsar var 6 min. 29.81 sek. -J.A.K. Ladan þeirra horstcins og Salbergs hvarf oft i rykmökkinn sem þyrlaðist upp um leið og bíllinn snarnserist í kringum sjálfan sig. DB-mynd Jóh. Kristjánsson.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.