Dagblaðið - 26.03.1981, Síða 27
s
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981.
i
Utvarp
Sjónvarp
Málaferlin stóðu um það hver væri eigandi þeirra verðmæta, sem unnin eru af botni Mývatns.
DB-mynd: Hörður.
útvarpkl. 20,05: Málaf erlin um Mývatnsbotn
Mývatnsbotnsmálið svonefnda
verður tekið fyrir í næstu tveim þáttum
Dómsmála sem Björn Helgason hæsta-
réttarritari annast. Sá fyrri er í kvöld en
sá síðari verður á dagskrá á sama tíma
eftir hálfan mánuð, fimmtudags-
kvöldið 9. apríl.
Það mál er hér um ræðir höfðuðu
landeigendur við Mývatn ásamt
hreppsnefnd Skútustaðahrepps gegn
ríkissjóði árið 1974. Þess var krafizt að
kísilgúrtaka af Mývatnsbotni yrði
dæmd ólögleg og að botn og botns-
verðmæti Mývatns yrðu taiin eign
þeirra jarða, sem land eiga að
Mývatni.
Dómur í undirrétti sem var auka-
dómþing Þingeyjarsýslu, féll í
nóvember 1977 og skömmu síðar
áfrýjuðu landeigendur honum til
Hæstaréttar. Hæstiréttur felldi síðan
úrskurðsinn 19. febrúarsl.
Málaferli um Mývatnsbotn hafa
staðið lengi eða allt frá árinu 1969.
Málaferli um sakarefnið stóðu því yfir
á tólfta ár. Björn Helgason hefur þvi
frá allviðamiklu máli að segja enda
þarf hann tvo þætti til að fara yfir það
allt.
—KMU.
nám í Pressburg og Búdapest. 1907 var
hann skipaður prófessor við tónlistar-
háskólann í Búdapest.
Eftir fyrri heimsstyrjöld liðaðist
heimaland hans í sundur. Þjóðernis-
sinnar urðu áhrifamiklir upp úr
styrjöldinni fyrri og svo fór að Bartok
neyddist til að flýja til Bandaríkjanna.
Hann lézt árið 1945.
sem hann hefur leikið með mörgum af
virtustu sinfóniuhljómsveitum heims.
-KMU.
/2
KRISTJÁN MÁR
UNNARSSON
FERMINGARÚRIN
QUARTZ-ÚR FRA
atlantic Nivada
SEIKO
PIERPOflT
Magnús E. Baldvinsson sf.
úramWur
Laugavegi 8 — Sími 22804.
n
Béla Bartok. — Hann hefði orðið 100 ára í gær hefði hann lifað.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR—útvarp kl. 20,30:
Tónlist eftir Johannes
Brahms og Béla Bartok
KJÖREIGN SF.
ÁRMÚLA 21. - SlMI 85988 - 85009
DAN V. S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR
Söluskrá okkar verður í
Dagblaðinu á laugardaginn.
Fyrri hluta tónleika Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands i Háskólabíói í kvöld
verður útvarpað beint. Stjórnandi að
þessu sinni er Gilbert Levine en hann
hefur margoft áður stjórnað
hljómsveitinni.
Á efnisskrá fyrri hlutans eru tvö
verk, akademískur forleikur eftir
Johannes Brahms og píanókonsert nr.
tvö eftir Béla Bartok.
Béla Bartok fæddist í Nagyszent-
miklos i Ungverjalandi 25. marz 1881 og
hefði því orðið 100 ára í gær hefði
hann lifað. Hann lærði á píanó af
móður sinni en stundaði síðar tónlistar-
Einleikari á tónleikunum er ungur
Bandaríkjamaður, David Lively. Hann
hefur haldið tónleika víða og unnið til
margs konar viðurkenninga auk þess
NEMENDALEIKHÚSIÐ
Peysufatadagurinn
eftirKjartan Ragnarsson
Sýning í kvöld kl. 20.
Sýning sunnudag kl. 20.
Miflasala opin I Lindarbæ frá kl. 18—19 alla daga, nema laugar-
daga. Mlðapantanir I alma 21971 á sama tfma.
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur verður haldinn að Hóiei
Esju í kvöld kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur.
*