Dagblaðið


Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 28

Dagblaðið - 26.03.1981, Qupperneq 28
Hópuppsagnir lækna vegna slæmra kjara — Læknar hætta almennt störfum á tímabilinu 18. maítil 1. júníhafi samningar ekki tekizt Hópuppsagnir lækna eru hafnar og bera læknar við lélegum launum. Uppsagnarfrestur lækna er tveir mánuðir og eru fyrstu uppsagnir dag- settar 18. marz. Samkvæmt því hætta læknar störfum á tímabilinu frá 18. maí til I. júni nk., hafi samkomulag ekki náðst fyrir þann tima. Davíð Á. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri ríkisspitalanna, sagði í morgun að uppsagnirnar væru byrjaðar að berast og væru þær allar orðaðar á mjög svipaðan hátt, þ.e. vísað til lélegra launakjara og nýlegs úrskurðar kjaradóms. Þar fengu læknar svipaða hækkun og BHM menn eða 6%. Læknar telja að laun sín hafi verið á stöðugri niðurleið miðað við aðrar stéttir undanfarin misseri. Davíð sagði að ríkisspitalarnir væru ekki samningsaðili, en eftir að uppsagnarbréfin tóku að berast hefði hann upplýst fjármálaráðuneytið um þær. Stjórnarfundur ríkisspítalanna verður í dag, þar sem fjallað verður um málið og fjármálaráðuneytinu siðan skýrt frá málinu bréflega. ,,Það er misjafnt hve vel launaðir læknar eru,” sagði Davíð. ,,Ef horft er á laun lækna miðað við dagvinn- una eina, þá eru launin ekkert sér- stök. Ef menn vinna hins vegar alla nóttina fara launin að verða þokka- leg. En læknar benda á að ekki sé rétt að miða við slíkt.” Davíð sagði að í kjarasamningum lækna væri ekki gert ráð fyrir því að hægt væri að framlengja starf, þegar hópuppsagnir kæmu til. Hins vegar væri slík heimild fyrir hendi, t.d. gagnvart fastráðnu BSRB fólki sem hefði þriggja mánaða uppsagnar- frest. Starf þessa fólks mætti fram- lengja um einn mánuð. - JH Allt hjálpaðist til að gera þeim lífið leitt hjá Hitaveitu Suðurnesja: HEITAV ATNSSKORTUR GERÐIVART VID SIG — á Suðurnesjum í kuldakastinu Hitaveita Suðurnesja hefur átt fullt í fangi með að sinna þörfum notenda fyrir heitt vatn í kuldakastinu undan- farna daga. Þurfti að grípa til þess að stöðva vatnsrennslið í klukkustund í einu i nokkrar nætur og fregnir hafa borizt af kulda í húsum sem hæst standa i Keflavík. ,,Það hjálpaðist allt að til að gera okkur lífið leitt,” sagði Haukur Helgason tæknifræðingur hjá Hita- veitunni í samtali við blaðið í gær. „Smávægilegar bilanir urðu i Svartsengi sem urðu til að draga úr framleiðslunni. Síðastliðið sumar var ætlunin að byggja þrjá miðlunar- geyma fyrir vatnið en aðeins tókst að koma upp einum geymi sem er engan veginn nægilegur forði til að mæta eftirspurn þegar mest er þörf á vatni. Siðast en ekki sízt var ráðgert að taka í notkun II. áfanga orkuversins í Svartsengi. Að því fengnu hefðu ekki skapazt vandræði nú, en áfanginn er því miður ekki enn kominn í gagnið. Búizt er þó við að hann verði próf- aður á næstunni. Vandræðin má rekja til alls þessa og þess að kuldakastið var óvenju langt. Ég reikna ekki með frekari vandræðum ef hlýindin haldast,” sagði Haukur Helgason. - ARH oa-myna: tinar uiason. Áður voru Mhræin glæstar lystíkerrur Sú var tíðin að þessi bílhræ voru glæstar lystikerrur — að minnsta kosti sum I landinu. / baksýn er annað fyrirbæti, sem áður fyrr var með glæstari húsum á hver. Nú eru þau tilvonandi brotajárn og verða að öllum likindum flutt úr íslandi — Viðeyjarstofa og Viðeyjarkirkja. Bæði húsin hafa látið á sjá á landi eftir þjöppun. Síðar meir verða íslenzk bilhræ tekin i suðupottana í undanförnum árum og áratugum en Þjóðminjasafnið hefur þó unnið gott og væntanlegri stálbræðslu á íslandi og þá fer ekkert brotajárn lengur út úr \ þarft verk með endurbótum á húsakosti í eynni. frjálst, áháð dagblað FIMMTUPAGUR 26. MARZ 1981 50 kg loft- bor rotaði manninn Vinnuslys varð í Álverkstniðjunni í gær á sjötta tímanum. Þar var verið að grafa fyrir keri og unnu að því verka- menn og höfðu loftbor til verksins. Slysið varð með þeim hætti að loft- bornum hafði verið stillt upp við vegg ofan þeirrar gryfju sem grafin hafði verið og var orðin á þriðja metra á dýpt. Skyndilega féll borinn, sem vegur um 50 kg, ofan í gryfjuna og lenti á verkamanni sem þar var að vinna. Hann var fluttur meðvitundarlaus i sjúkrahús. Ekki var vitað i morgun hversu alvarleg meiðsli hans eru. - A.St. Dularfull hestahvörf austanfjalls Lögreglan á Selfossi kannar nú dularfullt hvarf tveggja hesta í hennar umdæmi. Annar hesturinn hvarf frá jVorsabæ við Hveragerði snemma í febrúar. Sá hestur er dökkrauður, 6 jvetra, taminn ogá járnum. Hinn hesturinn, 16—17 vetra ójárn- aður, hvarf úr hesthúsi við Selfoss 5. marz. Hvarf þessar hesta þykir nokkuð dularfullt, því þeir hafa haldið sig við hús á undanförnum árum. Allar upp- lýsingar um hvarf hestanna eru vel þegnar hjá lögreglunni á Selfossi. A.St. Húsbruni í Gríndavík Gamla íbúðarhúsið að Tóftum í Staðarhverfi við Grindavík brann í gær til kaldra kola. Aðeins steinveggirnir stóðu eftir. Húsið stóð autt en ekki hefur verið búið i því í meira en áratug. Á tímabili i fyrra var það notað sem fjárhús. Þegar slökkviliðið kom að var allt brunnið og þótti ekki taka því að hefja slökkvistarf. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða. - IJ, Grindavík. Stúdentapólitikin íHáskólanum: Viðræður umbóta- ogvinstrísinna Vinstrimenn í Háskóla íslands ákváðu á fundi í gærkvöldi að taka boði umbótasinna um formlegar við- ræður vegna hugsanlegs samstarfs í stúdentaráði. Vinstrimenn kusu við-* ræðunefnd, skipaða Stefáni Jóhanni Stefánssyni formanni fráfarandi stúd- entaráðs, Þorgeiri Pálssyni, Guðmundi Þorbergssyni, Hrund Ólafsdóttur full- trúa í háskólaráði og Halldóri Grön- vold ritstjóra Stúdentablaðsins til að spjalla við umbótasinna. í veganestið hefur nefndin fyrst og fremst það að kanna hvaða hugmyndir umbótasinnar hafa um samstarf. Búizt er við að fund- ur aðila verði boðaður strax, enda þarf nýtt stúdentaráð að taká til starfa fyrir mánaðamót. - ARH diet pepsi MIN.NA f K' rih! KALÓRÍAÍ f LÖSKU Stinilas

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.